Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján Ómissandi þáttur í ferðalögnm er að gera nesti sínu góð Geldneytin voru með allra frískasta mðti, hoppuðu og Stefán bóndi með nýfætt lamb í fanginu, en ærin er ekki skil f skjólgóðum skógi. skoppuðu enda að fara út í fyrsta sinn á þessu vori. langt undan þegar afkvæmi hennar er skoðað. Heildverslun Valgarðs Stefánssonar KEA kaupir meirihlut ann í fyrirtækinu Hríseying- ar í hús- dýragarði BÖRNIN á Leikskólanum Smábæ í Hrísey brugðu sér f vorferð á dög- unum og var förinni heitið að bú- garðinum Þórisstöðum á Svalbarðs- strönd, en þar reka hjónin Inga Ámadóttir og Stefán Tryggvason húsdýragarð og opið kúabú, þar sem gestum gefst kostur á að kynn- ast íslenskum landbúnaði rétt eins og hann er stundaður á hefðbundnu fjölskyldubúi nú um stundir. Húsdýragarðurinn er opinn að siunarlagi en þar má sjá flest islensku húsdýrin í súiu náttúrulega umhverfí. Gesta- og veitingastofa er sambyggð (jósinu og þannig er hægt að fylgjast með mjöltum á mjaltatíma. GENGIÐ hefur verið frá kaupum Kaupfélags Eyfirðinga á meirihluta hlutafjár í Heildverslun Valgarðs Stef- ánssonar ehf. á Akureyri og í kjölfarið verður kostssala Nettó sameinuð heildversluninni, sem og þjónusta við mötuneyti sem sinnt hefur verið í versluninni Strax á Byggðavegi. Áætlað er að velta hins sameinaða félags verði um 400 milljónir króna á ári. Félagið verður áfram til húsa á sama stað og ekki eru fyrirhugaðar breytingar á starfsmannamálum að svo stöddu. Heildverslun Valgarðs Stefánsson- ar var stofnuð 1933 og hefúr veitt matvöruverslunum og sölutumum þjónustu, en í auknum mæli hefur fé- lagið nú veitt fyrirtækjum og stofn- unum þjónustu á sviði rekstrar- og hreinlætisvara. Nettó-kostur hefur starfað frá árinu 1997 og starfsemin vaxið ört síðan, en hún felst í að veita skipum, útgerðum, mötuneytum og veitingastöðum alhliða þjónustu að því er varðar kaup á matvöru, búsá- höldum, hreinlætisvörum, hreinsi- efnum og ýmsum sérvörum og rekstrarvörum. Starfsemin hefur verið í húsnæði Nettó á Akureyri en þaðan eru sendar vörur um land allt. Sameiningin hefur verulega hag- ræðingu í för með sér, m.a. hvað varðar bókhald, skráningu og þá er þess vænst að stærra og öflugra félag hafi betri möguleika á að fá vörur keyptar á hagstæðara verði. Eftir þessar breytingar eru helstu hluthafar í Heildverslun Valgarðs Stefánssonar ehf., Kaupfélag Eyfirð- inga, Valgerður Valgarðsdóttir, Ragn- heiður Valgarðsdóttir og Besta ehf. Júníspá V eðurklúbbsins Veðrið batnar um miðjan mánuð Dalvfk. Morgunblaðið. NOKKUR ágreiningur var á milli félaga í Veðurklúbbnum í Dalbæ á Dalvík þegar kom að því að útbúa veðurspá fyrir júnímánuð. Þannig vildu sumir félaganna meina að veðrið í mánuðinum yrði ekkert sérstakt, þokuloft, lítill hiti, einhver rigning en nokkrir góðir dagar inn á milli. Aðrir töldu að um miðjan júní færi smátt og smátt að hlýna og veðrið yrði orðið hið besta í lok mánaðarins. Félagamir komust þó að sameig- inlegri niðurstöðu sem er á þá leið að þegar tungl kviknar 2. júní fer að hlýna svolitið, en veðrið að öðru leyti ekki ósvipað og verið hefur síðustu daga og vikur. Um miðjan mánuðinn, 16. júní, fer hann hins vegar að taka verulega við sér og líkur á góðu útivistarveðri á þjóð- hátíðardaginn. I kjölfarið má búast við rigningarkafla, en siðustu daga mánaðarins verður sumarblíða eins og hún gerist best. Klúbbfélagar eru vinsælir heim að sækja, þannig heimsóttu um 140 manns klúbbinn í maímánuði og eru félagar þakklátir fyrir heimsóknir, góðar kveðjur og sendingar. Sjómannadagur hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis OPIÐ hús verður hjá Krabba- meinsfélagi Akureyrar og ná- grennis á morgun, sunnudaginn 4. júní, sjómannadaginn, í húsnæði félagsins að Glerárgötu 24, frá kl. 14 til 16. Starfsmenn félagsins munu þar leggja áherslu á að kynna bækl- inga sem tengjast körlum og krabbameini. Félagið mun í samvinnu við Sjómannadagsráð og Sjómanna- félag Eyjafjarðar dreifa þessum bæklingum í öll skip og báta á Eyjafjarðarsvæðinu og sjá auk Kynningarfund- ur og opið hús þess til þess að nýir bæklingar sem sérstaklega tengjast krabba- meini hjá körlum berist þeim í hendur. Sama dag kl. 16 verður kynn- ingarfundur hjá KRAFTI, stuðn- ingsfélagi ungs fólks á öllum aldri sem greinst hefur með krabba- mein og aðstandenda þeirra. Hildur Björk Hilmarsdóttir for- maður og Árný Júlíusdóttir vara- formaður munu kynna starfsemi félagsins en ætlunin er að mynda hóp á Norðurlandi sem myndi starfa í tengslum við Krabba- meinsfélag Akureyrar og ná- grennis og KRAFT í Reykjavík. Markmiðið er að tengja fólk saman, hjálpast að við að koma upplýsingum á framfæri, bæði hvað varðar andlegan og félags- legan stuðning, standa fyrir fræðslufundum og eins að vekja athygli á nauðsyn endurhæfingar fyrir krabbameinssjúklinga. Allir þeir sem vilja kynna sér starfsemi Krabbameinsfélags Ak- ureyrar og nágrennis eru vel- komnir. rnnJisrÍB ENDINGl Kerrur og vagnar í ölLum stærðum Auðveld og fljótleg Lokun Oruggasta kúpLing á markaðinum Rúnnaðar hjóLskálar " bílhjól og feLga sterkur botn S O L U STAÐIR Brenderup Island Dalvegi 16b, Kópavogur Sími 544 4454 • Fax 544 4457 Bílasala Akureyrar Freyjunesi 2, Akureyri Sími 461 2533 • Fax 461 2543 Verslunarhúsnæði um eða yfir 200 fm Óska eftir að taka á leigu vel staðsett verslunar- húsnæði á Akureyri sem fyrst. Góð aðkeyrsla nauðsynleg. Traustir aðilar. Lysthafendur sendi upplýsingar á auglýsingadeild Morgunblaðsins merkt "Verlsunarhúsnæði Akureyri" Akureyrarbær auglýsir Um sölutjöld og söluvagna 17. Júní nk. Samkvæmt 8. grein reglna um útimarkaði og sölutjöld á Akur- eyri er öllum öðrum en þeim, sem standa fyrir hátíðahöldunum 17. júní, bönnuð öll sala varnings og veitinga á opnum svæðum og sölureitum þann dag. Byggingafulltrúi Akureyrar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.