Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 34
ERLENT MÖRGUNBLAÐIÐ 34 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 Eldflaugavarnir til umræðu í Evrópuheimsókn Bandaríkjaforseta AP Götusali hefur á boöstólum matrúskur með myndum leiðtoganna sem hittast í Moskvu í dag, Bills Clintons og Vladímírs Pútíns. Lítils vænzt af fundi Clintons og Pútíns The Washington Post. BILL Clinton Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín, forseti Rússlands, munu að öllum líkindum ekki gera stóran samning um takmörkun á vopnaeign ríkjanna þegar þeir hitt- ast á fundi í Moskvu nú um helgina. Líklegra þykir, að þeir leggi áherzlu á aðra, smærri samninga um viðvör- unarkerfi og gæzlu kjamorkuvopna- efna. Fréttaskýrendur vænta þess, að leiðtogarnir dusti rykið af og gangi endanlega frá fyrri samþykktum milli Rússlands og Bandaríkjanna um stofnun sameiginlegrar aðvömn- armiðstöðvar sem koma á í veg fyrir að röng skilaboð berist um að kjarnaflaug hafi verið skotið á loft. Þá muni leiðtogarnir koma sér saman um tímaáætlun fyrir hvom aðila um sig um eyðingu 34 tonna af umframbirgðum af plútóníumi. Einnig verði gengið frá samþykkt um að Bandaríkjamenn standi straum af kostnaði við endurbygg- ingu tveggja vörugeymsla í kjarn- orkustöðinni í Sarov í Rússlandi og að bandaríska orkumálaráðuneytið aðstoði við gæzlu kjamaefna í rúss- neskum herstöðvum. Þessir samningar em mun VLADIMÍR Pútín, forseti Rúss- lands, segir að hann muni á fundi sín- um með Bill Clinton Bandaríkjafor- seta nú Um helgina leggja til að ríkin tvö taki höndum saman í baráttunni gegn kjamorkuvæddum útlagaríkj- um. Sagði Pútín í sjónvarpsviðtali að vamir gegn kjamorkuvá væru mögu- leiki „ef við leggjum saman í púkk og einbeitum okkur að því að eyða ógn- inni sem steðjar að Bandaríkjunum, Rússlandi, bandamönnum okkar og Evrópu yfirleitt“. Bandaríkjamenn vilja koma upp takmörkuðu eldflaugakerfi til þess að verjast hugsanlegri árás svonefndra útlagaríkja er eiga kjamavopn, t.d. smærri í sniðum en Clinton og menn hans höfðu gert sér vonir um fyrir skömmu, er þeir töldu sig geta feng- ið Rússa til að samþykkja breyting- ar á sáttmálanum um bann við eld- flaugavömum (ABM-sáttmálanum) í þá vem, að Bandaríkjamenn gætu notað takmarkaða gerð eldflauga- varnarkerfis gegn því að minnka enn meira birgðir sínar af árásarvopn- um. Þegar vonir um þetta tóku að dvína um miðjan maí sagði talsmað- ur bandaríska utanríkisráðuneytis- ins við fréttamenn að fundur leiðtog- anna snerist ekki einungis um vopn og slík mál væm jafnvel ekki þunga- miðja fundarins. Michael McFaul, starfsmaður Al- þjóðafriðarsjóðs Canergie í Banda- ríkjunum, sagði aftur á móti að bandarískir ráðamenn hefðu „vonazt eftir stóram tíðindum en ekki lítil- ræði hvað varðar niðurskurð á vopnabúram." Áherzla á efna- hagsumbætur Sumir bandarískir sérfræðingar í utanríkismálum segja þetta vera fyrir beztu. Þetta verður fyrsti leið- Norður-Kóreu, íran og írak. Slíkt kerfi væri þó brot á sáttmálanum um takmörkun kjarnaflauga (ABM-sátt- málanum) frá 1972. Fréttastofa Reuters hefur eftir heimildamanni í Kreml, að Rússar muni á leiðtogafundinum ennfremur leggja til öðru vísi vamaráætlun en Bandaríkjamenn hafa gert, og feli togafundur Clintons og Pútíns og embættismenn leggja áherzlu á nauðsyn þess að Rússlandsforseti einbeiti sér að efnahagsumbótum og tryggi fjölmiðlafrelsi og lýðræði. Arásir Rússa á skrifstofur óháðr- ar fjölmiðlasamsteypu, sem oft hef- ur gagnrýnt Pútín, hefur valdið áhyggjum af takmörkuðu fjölmið- lafrelsi í landinu. Pútín hefur einnig vakið efasemdir um, hversu ákveð- inn hann sé í að auka lýðræði, með því að leggja til frekari völd til handa stjómvöldum í Moskvu. Á meðan Clinton dvelur í borginni hyggjast mannréttindasamtök birta nýjar skýrslur um voðaverk sem framin voru í stríðinu í Tsjetsjníju. „Framtíðarstefnan í rússneskum stjórnmálum skiptir meira máli en hvort um er að ræða 2500 eða 1500 [kjarnaodda]," sagði McFaul. „Ef Rússland verður orðið að lýðræðis- ríki eftir tíu ár, með frjálst efnahags- kerfi í tengslum við evrópskar stofn- anir, þá skiptir minna máli hversu margar eldflaugar era tO í landinu.“ Heimsækir Jeltsín En ef afvopnunarmál verða ekki þungamiðja fundar leiðtoganna og áætlun Rússa í sér að kjamorkuflaug- ar verði skotnar niður þegar þær séu á leið upp, í stað þess að ráðist sé á þær úti í geimnum, líkt og áætlanir Bandaríkjamanna feli í sér. „Þetta er alveg ný tillaga, sem markar þáttaskil," sagði Alexander Golts, vamarmálasérfræðingur rúss- neska tímaritsins Itogi þegar frétt- ekki heldur alþjóðlegur fjárstuðn- ingur við Rússland, um hvað ættu leiðtogarnir þá að tala? spyr banda- ríska blaðið Washington Post í leið- ara. Bandaríkjaforseti ætti að leggja áherslu á trú- og fjölmiðlafrelsi, seg- ir blaðið, því að Pútín hafi ekki tekið þessi málefni mjög alvarlega. Hann hafi talað um að reka kjörna ráða- menn og setja þá undir yfirráð manna, sem hann hafi sjálfur út- nefnt, og hafi tengsl við leynilögregl- una og herinn. I ljósi þessa ætti Clin- ton að ítreka mikilvægi lýðræðis og frjálsra kosninga. Clinton heldur til Rússlands frá Þýzkalandi í dag og mun eiga kvöld- verðarfund með Pútín. Á morgun munu þeir eiga formlega fundi í Kreml og að þeim loknum gefa út yf- irlýsingar. Þá mun Clinton koma fram í útvarpsþætti og mun hlust- endum gefast kostur á að hringja og spyrja forsetann spurninga. Á mánudag mun Clinton svo ávarpa Dúmuna, neðri deild rúss- neska þingsins, heimsækja Boris Jeltsín, forvera Pútíns og heilsa upp á starfsfólk bandaríska sendiráðs- ins. astofa Reuters bar undir hann um- mæli heimOdamannsins í Kreml. Bandaríkjaforseti heldur til Rúss- lands í dag en í gær var hann í Þýzka- landi þar sem hann átti m.a. fund með Gerhard Schröder kanzlara. Sagði Schröder á fundinum að Evrópumenn hefðu áhyggjur af því, að létu Banda- ríkjamenn verða af því að koma upp eldflaugavamakerfi gæti það leitt til þess að vopnakapphlaup færi af stað á ný og óstöðugleiki vaxið í Rússlandi. Clinton brást ekld beinlínis við áhyggjum Schröders, en Samuel Berger, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, sagði að alls ekki væri um að ræða alvarlegan ágrein- ing mOli Clintons og Schröders. „Mambo- kóngur“ látinn TITO Puente, einn af helstu brautryðjendum „salsa“ djass- og danstónlistar, lést á mið- vikudag, 77 ára að aldri. Hann var lagður inn á sjúkrahús í New York fyrr um daginn til að gangast undir hjartaaðgerð. Puente fæddist árið 1923 og vora foreldrar hans frá Puerto Rico. Hann starfaði um árabil sem hljóðfæraleikari, höfundur og stjórnandi hljómsveita. Hann átti stóran þátt í því að gera mambo- og cha cha-dans- tónlistina vinsæla um hinn vestræna heim og eftir hann liggja meira en eitthundrað hljómplötur. Kvikmyndin „Mambo Kings“ fjallaði um fer- 0 Puntes. Kosningar í Japan FORSÆTISRÁÐHE RRA Japans, Yoshiro Mori, leysti í gær upp japanska þingið og boðaði tfl kosninga 25. júní. Þrátt fyrir að Mori njóti sam- kvæmt skoðanakönnunum lítils fylgis meðal Japana, er stjóm- arflokkunum engu að síður spáð sigri í kosningunum. Vin- sældir Moris döluðu mjög í kjölfar orða sem hann lét falla nýlega. Þá sagði forsætisráð- herrann að Japanir væra „guð- leg þjóð“ og að keisarinn væri „kjarni þjóðarinnnar". Þótti mörgum þessi orð minna óþægflega mikið á yfirlýsingar japanskra stjórnmálamanna frá fjórða og fimmta áratug 20. aldar, þegar drottnunarstefna Japans leiddi ómældar hörm- ungar yfir íbúa Suðaustur-As- íu. Hope á sjúkrahúsi BANDARÍSKI gamanleikar- inn Bob Hope liggur nú á sjúkrahúsi í Kaliforníu þar sem hann gekkst undfr aðgerð vegna veikinda í meltingarfær- um. Læknir Hopes, dr. Gary Annunziata, sagði í yfirlýsingu að líðan sjúklingsins væri eftir atvikum góð. „Hann á í höggi við vandamál sem er mjög al- gengt meðal þeirra sem eldri era. Það er ekki lífshættulegt. Það er læknanlegt," sagði í yfir- lýsingunni. Búist er við því að Hope muni dvelja á sjúkrahús- inu í viku meðan hann er að jafna sig eftir aðgerðina. Bob Hope fæddist í Bretlandi en fluttist ungur að áram til Bandaríkjanna þar sem hann átti sjötíu ára feril sem gaman- leikari og „brandarakarl". Bush frestar aftöku GEORGE W. Bush, ríkisstjóri í Texas og frambjóðandi til emb- ættis forseta Bandaríkjanna, frestaði á fimmtudag aftöku dæmds nauðgara og morðingja í Texas. Aðeins 30 mínútum áð- ur en taka átti Ricky McGinn af lífi, ákvað Bush að fresta aftök- unni meðan framkvæmd yrði ný DNA-rannsókn í tengslum við morð á 12 ára stúlku sem McGinn var sakfelldur fyrir. Talið er ákvörðunin tengist for- setaframboði Bush en í ríkis- stjóratíð hans hefur alls 131 verið tekinn af lífi í Texas. Washington, Bcrlfn. AFP, Los Angeles Times. Pútín býður samvinnu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.