Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 56
56’ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Haukur Sigrurð- ur Daníelsson, vélstjóri, fæddist í Tröð í Súðavík 30. júní 1932. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Sunnuhh'ð í Kópavogi aðfaranótt sunnudagsins 28. júní sl. Foreldrar hans voru hjónin Soffía Magðalena Helgadóttir frá Súðavík, f. 28. nóv- ember 1910, d. 2. janúar 1986, og Daníel Rögnvalds- son, skipasmiður frá Uppsölum í Seyðisfirði, f. 11. maí 1902, d. 28. apríl 1974. Hann var þriðja barn þeirra hjóna, en eldri eru systurn- ar Kristín Ragnhildur, f. 10. júní 1928, búsett á Hólmavík, og Hall- dóra, f. 30. ágúst 1929, búsett á Isafirði. Haukur kvæntist hinn 29. des- ember 1956 eftirlifandi eiginkonu sinni, Valgerði Jakobsdóttur frá Reykjarfirði í Grunnavíkurhreppi, sem fædd er 27. júní 1936. Þau eignuðust fimm börn, sem eru: 1) Ari Dani'el, f. 23. maí 1957, prentsmiðjustjóri, bú- settur í Noregi, kvæntur Aud Hauks- son og eiga þau tvo syni; Petter, f. 1986, og Daniel, f. 1988. 2) Helgi, f. 11. maí 1960, inatvælatæknifræð- ingur, búsettur í Dan- mörku. 3) Kjartan Ja- kob, f. 11. desember 1961, kafari, búsettur í Kópavogi, kona hans er Claudia Venne- mann. Börn Kjartans eru Haukur Jakob, f. 1984, og Ásgerður Líf, f. 1985. 4) Soffía, f. 27. ágúst 1965, kaupmaður, búsett í Bolungarvík, gift Bergi Bjarna Karlssyni og eiga þau tvo syni, Karl Fannar, f. 1983, og Daníel Snæ, f. 1992.5) Ey- þór Páll, f. 5. október 1966, prent- ari, búsettur í Kópavogi, kvæntur Sigrúnu Eddu Eðvarðsdóttur, og eiga þau tvo syni; Eðvarð Þór, f. 1995, og Bjarna Geir, f. _1999. Haukur ólst upp á ísafirði frá tveggja ára aldri. Hann stundaði hefðbundið skyldunám við Barna- skóla Isafjarðar og síðar vélstjór- anám á ísafirði á árunum 1953-54. Haukur og Valgerður reistu sér hús á Tangagötu 20 árið 1960 og Skipagötu 8 á ísafirði árið 1976. Árið 1995 fluttu þau búferlum til Kópavogs og bjuggu sér heimili í Vallargerði 28. Hann var vélstjóri á hinum ýmsu bátum frá ísafirði og Súganda- firði. Hann stundaði handfæra- veiðar öðru hvoru á bátum sínum, Brimdísi og Tíbrá. Tíbrá smíðaði hann sjálfur að stórum hluta. Síð- ast átti hann vélbátinn Svaninn. Hann vann auk þess við skipasmíð- ar þjá Skipasmíðastöð Marsellíus- ar. Hann vann í þrettán vertíðir við Rækju- og niðursuðuverk- smiðjuna á fsafirði og samhliða því vann hann sem bflstjóri hjá Stein- iðjunni á ísafirði á sumrin. Hann vann einnig um tíma hjá Rafveitu ísafjarðar og Pólnum hf. Um margra ára skeið vann hann hjá Isafjarðarkaupstað, bæði á þunga- vinnuvélum og síðast sem áhalda- vörður við Áhaldahús Ísaíjarðar- kaupstaðar. Hann var mikið snyrtimenni og hagleiksmaður og eftir hann liggja fjölmargir falleg- ir smíðagripir úr timbri sem bera listrænu handbragði vitni. Haukur var mikill harmonikkuunnandi og var meðal annars einn af stofnfé- lögum Harmonikkufélags Vest- fjarða. Útför Hauks fer fram frá fsa- fjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. HAUKUR SIGURÐUR DANÍELSSON Elsku pabbi, oft stóðstu í dyrunum milli lífs og dauða, þú hafðir betur í rúma tvo áratugi og mamma stóð allt- af eins og klettur að baki þér. Minningamar leita á hugann og sárt er að kveðjast hinsta sinni þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. Aldrei heyri ég þig aftur spila „langa lagið“ eins og við kölluðum það. Orðin eru fátækleg en ég er viss um það að góður vinur þinn, hann Gummi Ing- ólfs, hefur verið í móttökunefndinni hinum megin og tekið hressilega á móti þér eins og hann var vanur. Kær kveðja, þín dóttir, Soffía. Elskulegur tengdafaðir minn, Haukur Daníelsson, er látinn eftir langvarandi veikindi. Mér er ofarlega í huga hve lífið getur stundum verið ósanngjarnt og lagt þungar byrðar á sumt fólk. Ég kynntist Hauki fljótlega eftir að ég og sonur hans, Eyþór Páll, fórum að vera saman árið 1992 en þá hafði hann nýlega gengið í gegnum aðra hjartaaðgerð en hin íyrri var gerð ár- ið 1982. Haukur var dagfarsprúður maður og hvers manns hugljúfi. Hann var rólegur að eðlisfari en óhætt er að segja að veikindi hans hafi fljótt markað djúp spor í persónuleika hans, en hann var ekki nema rétt tæp- lega fimmtugur þegar hann fékk fyrra áfallið. Hann lagði ávallt mikinn metnað í allt sem hann tók sér fyrir hendur hvort sem það var að takast á við veik- indin eða handverkið sem hann vann, allt var unnið af einstakri alúð og ná- kvæmni. Mér er minnisstætt sumarið 1994 þegar ég dvaldist hjá ykkur Deddu á Isafirði. Þá varstu ýmist í bflskúmum að smíða eða laga eða úti á heflsubót- argöngu því aðgerðarleysi átti ekki við þig. Bflskúrinn var sem þitt annað heimili og þar bar allt vott um mikið skipulag og snyrtimennsku og aðst- aða öll var tfl fyrirmyndar. Eru mér einnig minnisstæð þaðan kvöldin þegar þú sast í eldhúsinu í Skipagötunni og hlustaðir af mikilli innlifun á harmonikkutónlistina óma í útvarpinu, og einnig hvemig þú vannst að endurbótum á Svaninum, bátnum þínum. Einnig þegar þú smíðaðir vöggu handa fyrsta barni okkar Eyþórs, sem nýjasta bama- bamið, Bjami Geir, nýtur góðs af í dag. Þá sást vel að þú varst sannur völundur sem allt lék í höndunum á. Mikið dáðist ég að þér hvað þú varst duglegur, baráttuþrekið var mikið og óhætt að segja að allt hafi verið lagt undir til að öðlast betri heilsu. Eftir að þið fluttuð í Kópavoginn íjölgaði samverastundunum og ófáa daga átti hann Eddi, sonur okkar, sem og önnur bamaböm með þér við smíðar í bflskúmum og afraksturinn lét ekki á sér standa. Ýmsir bátar litu dagsins ljós og voru allflestir merktir IS 530, gamla skráningarmerkinu þínu. Elsku Haukur, það er svo margs að minnast og erfitt að henda reiður á öllum okkar góðu minningum sem við áttum með þér og Deddu. í gegnum árin hefur Dedda staðið bjargföst eins og klettur við hlið þér og gert allt sem í hennar valdi hefur staðið til að styðja þig og styrkja. Eitt skiptið, þegar ég kom að heim- sækja þig á Landspítalann með strák- ana með mér og sá yngri var aðeins nokkurra mánaða gamall, rifjaðir þú upp fyrir mér þegar þú fæddist að þá hefðir þú aðeins verið ígildi þriggja pela flösku eða um sjö merkur, þá al- klæddur. Þú náðir þér hins vegar fljótt á strik enda var lífskrafturinn alla tíð mikill. Það sama má líka segja um hin síðustu ár því þótt þú hafir lengi vel búið við heilsuleysi þá stóðstu jafnan uppi sem sigurvegari eftir hverja þraut. Þrautsegjan, seigl- an og kjarkurinn var óbilandi, það sýndi sig best á þeim tíma sem við átt- um saman og var mun lengri en margur þorði að vona. Elsku Dedda, megi góður guð styrkja þig á þessum erfiðu tímum. A GARÐH EIM/4 .ÓMABÚD ■ STí-KKJARBA m ^^SÍMI 540 3320 l v/ Possvo0ski»*kju0a>*ð J V Sími: 554 0500 UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst aila þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynsiu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. Blessuð sé minning Hauks Daníels- sonar. Sigrún Edda Eðvarðsdóttir. Elsku afi, mér þykir erfitt að kveðja þig í svona stuttu máli því þeg- ar ég hugsa um þig þá kemur svo margt fallegt mér í hug. Þú varst allt- af svo góður við alla hvort sem það vora menn eða dýr. Ég man t.d þegar við fóram í Kattholt og voram að skoða ketti þá var erfitt að fara út því við vildum helst taka alla kettina og eiga þá. Svo varstu alltaf að smíða eitthvað fallegt lyrir mig, allt frá bát- um í dúkkurúm. Þegar ég var yngri fannst mér svo gaman þegar þú tókst upp harmonikkuna þína og byrjaðir að spila og ég söng með ef ég kunni lögin, en þegar ég varð eldri þá hlust- aði ég á án þess að syngja með, en það var samt alveg jafn gaman. Ég vil að þú vitir, afi minn, að ég kveð þig með mikilli ást og miklum söknuði og mér finnst gott að vita að nú loks líður þér vel. Bless, elsku afi minn. Þín Líf. Elsku afi, nú hefur þú kvatt og ert kominn á góðan stað. Ég kveð þig með allri minni ást og hlýju, þú munt alltaf eiga þér stað í hjarta mínu. Þær stundir sem við höfum átt saman era mér ómetanlegar. Þú varst alltaf til staðar, ég mim aldrei gleyma því hve góður þú varst öllum. Það er mér mikils virði að heita í höfuðið á þér. Ég kveð þig með þakk- læti fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Þinn, Haukur Jakob. Fyrsta vitneslqa mín um Hauk Daníelsson er úr bréfi frá móður minni sem hún skrifaði er hún var sjúklingur á Landspítalanum í Reykja\ók veturinn 1955. Þar sagði hún að komið hefði til sín ungur mað- ur með blómvönd í hendi og heilsað henni heldur feimnislega og tjáð sér að Valgerður yngsta dóttir hennar væri unnusta sín. Móðir minni leist vel á unga manninn, fast handtakið traust og hlýtt og ég veit ekki betur en það traust hafi enst meðan bæði lifðu. Haukur ólst upp á ísafirði við fjör- una og sjóinn og kynntist seinna sjó- mennskunni, sem stundum heillar en reynir líka á kjark og þor. Heimili þeirra Hauks og Valgerðar var líka reist á eyrinni við fjörðinn. Þangað var gott að koma. Það var líka eftirminnilegt að fá þau Valgerði systur og Hauk í heim- sókn í Reykjahh'ð með bömin sín. Ég minnist þess að eitt sinn er þau vora stödd hér vildum við hjónin skemmta gestum okkar og hvöttum til ferðar að Dettifossi og niður Hólmatungur. Að heiman fóram við í blíðskaparveðri en er leið á daginn fór að hellirigna og vegarslóðinn varð eitt forarsvað. Þá tók Haukur fram keðjur úr farang- ursgeymslunni og setti undir bflinn sinn, eftir það urðu forarpollamir ekki til trafala. Þannig var Haukur í mínum huga viðbúinn að mæta vegatálmunum á lífsbrautinni. En þeir urðu æði margir farartálmamir á lífsleið Hauks. Allt það sjúkdómsstríð verður ekki rakið hér, en þess aðeins minnst að hug- rekkið til að reyna að komast þann þunga og illfæra veg er ekki öllum gefið. En hann stóð ekki einn, hún Val- gerður kona hans var stoð hans og stytta. Ég vil minnast þess með þakk- læti að eiginmaður minn og Haukur nutu þess að hittast og ræða málin á léttum nótum og þegar þeim tókst að stilla saman harmonikkumar sínar á góðri stund sér og öðram til ánægju á ættingjamóti fýrir fáum árum naut Haukur þess að vera gleðigjafi. Þann- ig vil ég minnast hans og biðja honum guðs blessimar. Vinskapur, greiðvikni og tryggð era þakkarefni. Elsku Valgerður systir, Ari, Helgi, Kjartan, Soffia, Eyþór og ijölskyldur. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Erfiðleikamir þroska og líða hjá en björtu minningamar life. Guðrún Jakobsdóttir. Hin langa þraut er liðin, nú loksins Waustu friðinn, ogallterorðiðrótt Nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, enþaðerGuðsaðvilja og gott er allt sem Guði er fra. (V. Briem.) Elsku Haukur, þó svo að þú sért búinn að vera veikur svona lengi og hefur eflaust verið farinn að þrá hvíld- ina, þá er alltaf erfitt að kveðja. Við viljum alltaf halda fast í ástvini okkar, en ég sá það þegar ég heimsótti þig á laugardaginn, að það var mjög af þér dregið, en granaði samt ekki að þú færir þá um nóttina, þú hefur svo oft risið upp aftur eftir erfið tímabil. Eins og þú sagðir sjálfur þá varstu búinn með fleiri líf en kötturinn hefur. Þú varst alltaf traustur og góður frændi, skaplaus varstu ekki, en það sat ekki lengi í þér. Fjölskyldan var þér allt, Dedda, bömin og bamaböm- in. Þá vil ég að öðram ólöstuðum nefna Hauk og Líf, þú talaðir oft um það hversu mikils virði það væri fyrir þig að þau væru svona mikið hjá ykk- ur Deddu. Það fór heldur ekki fram- hjá neinum hversu hænd þau vora að ykkur. Þú varst mjög ósáttur í vetur þegar Gummi vinur þinn fór á undan þér, en þú lést hann ekki bíða lengi, og núna hafið þið félagamir hist á ný, amma og afi hafa öragglega líka tekið á móti þér. Ég sé þig fyrir mér bros- andi og hraustan með nikkuna þína, lausan við allar þrautir. Takk fyrir okkar samvera hér, elsku Haukur, sjáumst síðar. Elsku Dedda, þú hefur verið klett- urinn í lífi Hauks, í öllum hans veik- indum hefur þú staðið við hlið hans og stutt hann, og er það okkur óskiljan- legt hvaðan þú hefur fengið allan þennan kraft, því baráttan hefur oft verið erfið. Við Rikki, Aníta og Símon Þór sendum ykkur öllum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hver minnmg dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Hvfl í friði. Þín frænka, Sigríður Rósa. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blað- inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú er- indi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.