Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 5 7 MINNINGAR MARGRÉT EMILSDÓTTIR Hver getur slíkum guðakrafti lýst, er gleði himins út um myrkrið brýst og flæðir yfir fjöU og byggð og höf, sem fengu lífið sjálft í morgungjöf. (Davíð St) + Margrét Emils- dóttir fæddist á Siglufirði 9. júlí 1941. Hún lést á heimili sínu á Akur- eyri 25. maí síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Glerárkirkju 2. júní. Elsku mamma mín. Það er skrítið að sitja og skrifa þér línur, en ég veit að þær eru tákn- rænar. Mig langar til að segja að þú varst mér meira en mamma, þú varst vinur minn. Ég mun ætíð minnast þín með gleði og hlýju. Það sem huggar mig mest af öllu er að þótt nú hafi orðið viðskilnaður munu verða endurfundir og gleðistund er við hittumst á ný hjá Drottni okkar á himnum. Mamma, þú hafðir þann eiginleika að finna alltaf hláturinn, sama hvað gekk á, og það var alltaf hægt að grín- ast með þér og á góðum stundum léstu hlátur- inn taka yfir og þú hreinlega grést úr hlátri. Sérstök stund var er þú áttir 50 ára afmæli og Kolla systir, Egill heitinn og krakkarnir og ég eyddum góðum tíma í að undirbúa gleð- istund íyrir þig, þú varst að koma frá út- löndum og vissir ekki á hverju þú ættir von. Ég man hvað þú varst glöð þegar ég, Linda, Anna og Einar Ingi sungum íyrir þig frum- samið lag og texta um lífshlaup þitt, og gerðum grín að okkur sjálfum. Þetta var ein af þessum stundum er tárin þín runnu fram sem fljót og hláturinn var sannur og innilegur. Svona vil ég minnast þín þangað til við hittumst á ný. Þinn sonur Valdimar Lárus. Ég vil í örfáum orðum kveðja syst- ur mína Margréti Emilsdóttur. En þótt við ælumst ekki upp á sama heimilinu voru tengslin milli okkar sterk. Magga hafði sterkan persónuleika og gífurlegan lífsþrótt. Hún laut samt að lokum í lægra haldi fyrir illvígum sjúkdómi eftir hetjulega og æðrulausa baráttu. Hún var afskaplega hrein og bein og lét mann bara hafa það og heyra ef henni mislíkaði eitthvað. Ég bið góðan Guð að veita ástvin- um hennar styrk á erfiðum tímum. I dögun verður lífíð öllum ljúft, sem h'ta upp og anda nógu djúpt. Að allra vitum ilmur jarðar berst þó enginn skilji það, sem hefur gerst. En hverri sál, sem eitt sinn ljósið leit, er líknsemd veitt og gefm fyrirheit. Því mun hún aldrei myrkri ofurseld, að minningin er tengd við dagsins eld. (DavíðSt) Björk Andersen og börn. Við sjáum, að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær ogfaðmijörðinaalla Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóstið þitt fái svala. (Davíð Stefánsson.) í dag kveð ég stóru systur mína, Margréti Emilsdóttur, en þrátt fyrir hetjulega baráttu hennar við erfið og langvinn veikindi báru þau hana ofur- liði. Þó að hennar nánustu gætu ímynd- að sér að hverju stefndi var það mikið áfall þegar fregnin barst, því hún svaraði ætíð að hún hefði það ágætt og kvartaði aldrei á hveiju sem gekk. Þrátt fyrir mikinn aldursmun okk- ar minnist ég hennar sem vinar sem auðvelt var að leita til þegar með þurfti fyrir litla stelpu og síðar ungl- ing að vaxa úr grasi á Akureyri. Skipti þá ekki máli hvort leitað var til hennar til að fá ráðleggingar eða á sorgarstundu, en við misstum föður okkar þegar ég var aðeins 11 ára og stóð hún þá sem klettur í hafi á þeim erfiðu tímum og reyndist mér vel. Magga átti og skapaði gott heimili, í fyrstu með Júlla, en þeirra leiðir skildu, og síðan með Herði, sem var við hlið hennar og reyndist henni mjög vel, allt fram á síðustu stundu. Hún var baráttukona, létt í skapi og lét allt flakka. Magga var ákveðin r kona og gekk ótrauð til allra verka. Margar góðar minningar á ég um Möggu. Ég minnist þess er hún var í einni af sínum mörgu ferðum hingað suður nú stuttu eftir áramót að hún kom til mín einn sunnudag ásamt Herði. Áttum við góða stund saman á heimili mínu í Garðabæ yfir vöfflum og kaffi. Magga lét sig hafa það að koma þótt það væri ekki auðvelt, en hún sýndi þá hve lífsvilji hennar var sterkur og hversu mikil persóna hún var. Elsku Magga mín. Ég kveð þig með söknuði en veit að nú líður þér vel og að vel verður tekið á móti þér. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláa voginn. (Davíð Stefánsson.) Ég og fjölskylda mín vottum þér, elsku Hörður, okkai' dýpstu samúð. Einnig aldraðri móður, börnum og öðrum ástvinum.Guð geymi ykkur. Þín systir Anna Halla. + Anna Sigrún Jó- hannsdóttir fæddist á Vörðufelli á Skógarströnd 3. júní 1919. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 26. maí siðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhann Ingi- berg Jóhannsson, f. 14.6. 1893 og kona hans, Marta Hjartar- dóttir, f. 1895. Anna var þriðja í röð þret- tán systkina. Fimm systur eru nú á lífi. Eiginmaður Onnu var Arsæll Jónsson, f. 25. 9. 1918, d. 12. 8. 1996, frá Arnarstapa á Snæfellsnesi. Börn Önnu og Ar- sæls eru: 1) Jón Trausti, f. 1942, maki Ingveldur Þorbjörnsdóttir, þau eiga tvo syni. Trausti á tvær dætur frá fyrra hjónabandi. 2) Jó- hann Arsælsson, f. 1943, maki Guðbjörg Róbertsdóttir, þau eiga fjögur börn. 3) Þórður, f. 1946, Sælustundir svífa létt á sólskinsvængjum hjá. Eftirþeimvérmænum með angurblíðri þrá. Minning þeirra er auðlegð, semaldreiglatastmá. Kringum okkur sveimar sorgin svörtum vængjum á, skilureftirskúradrög ogskuggaábrá. Stund hver finnst oss löng, er hún staðnæmist oss hjá. Fjársjóður erfrelsið, sem flestir vilja ná, eltaþaðákapphlaupum meðákefðogþrá. Menn leita þess oft lengst, er þeim leynist sjálfum hjá. Sakleysið er gimsteinn, semsérhvermaðurá, vöggugjöfin bezta, semböminlitlufá. - Geymum ekki glatkistunni gersemina þá. (Erla.) Guð veri með þér, amma mín. Þín Hafrún. Elsku langamma. Mér þykir vænt um þig en samt er gott að þú fórst tii langafa því þú varst búin að lifa lífinu. Takk fyrir að þú varst mér alltaf góð. Ég vona að þér líði vel hjá guði. Lítill drengur leggst á koddann lokarsinniþreyttubrá, uns í draumi er hann staddur maki Valdís Ingi- mundardóttir. Þórð- ur á fjóra syni. 4) Guðrún Marta, f. 1947, maki Baldur Ragnarsson. Þau eiga þrjár dætur. 5) Sigrún, f. 1954, maki Hafsteinn Sigurðs- son. Þau eiga eina dóttur. 6) Hjörtur, f. 1955, maki Ester Friðriksdóttir. Þau eiga þijár dætur. 7) Fróði, f. 1965, unn- usta hans er Hafdís Bára Þórðardóttir. Afkomendur Önnu og Ársæls eru 47. Anna og Ársæll liófu búskap sinn í Ólafsvík en fluttu síðan að Sveinsstöðum í Neshreppi. Lengst bjuggu þau í Viðvík á Hellissandi en sfðustu árin áttu þau heimili á Akranesi. IJtför Önnu var gerð frá Akra- neskirkju 2. júní. ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir - amma kyssir undurblítt á kollinn hans. Breiðist ást af öðrum heimi yfirbeðhinslitla manns. (JóhannesúrKötlum.) „Elsku Anna amma. Mér þykii- vænt um þig, þú varst svo góð við mig. Við sátum oft saman og þú sýnd- ir mér gamlar myndir og sagðir mér sögur. Anna amma, þú varst skemmtileg. - Eydís.“ Eva Björg, Eydís Sunna og Marvin Daði. Elsku Anna. Mig langar í fátæklegum orðum að kveðja þig því að þú og maður þinn, hann Ársæll heitinn, voruð mér sem foreldrar. Það fylgdi ykkur báðum svo mikil ró og friður að það var ávallt gott að koma í heimsókn til ykkar. Það eru margar minningar sem ég á um ykkur tvö, og þá sér- staklega þig Anna, en á þessari stundu er mér er efst í huga þakk- læti. Þakklæti fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig frá unga aldri. Þakk- læti fyrir umhyggju þína og kærleik sem þú sýndh- mér. Þú varst fróð kona og staður og stund gleymdust þegar setst var nið- ur til að spjalla. En þú varst ekki bara auðug af fróðleik og kærleik heldur fólst auður þinni líka í börnum þínum, þeirra mökum og barnabörn- um. Það er erfitt að trúa því, Anna, að þú sért farin frá okkur því það er svo stutt síðan ég var í heimsókn hjá þér. Þú tókst loforð af mér að koma aftur í heimsókn en því miður vannst okkm- ekki tími til þess. Við eigum eftir að hittast síðar. Blessuð sé minning þín. Þótt kveðji vinir einnogeinnogaðrir týnastmér, égáþann vinsemekkibregstog aldrei burtu fer. (Davíð Stefánsson.) Svanborg Tryggvadóttir. + Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, fósturföður, afa og lang- afa, STEFÁNS ÞÓRARINS SIGURÐSSONAR, Steiná, Svartárdal, Austur-Húnavatnssýslu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki öllu við Héraðssjúkrahúsið á Blönduósi fyrir umönnun og hlýhug. Jóna Anna Stefánsdóttir, Óiafur Blómkvist Jónsson, Sigurbjörg R. Stefánsdóttir, Sígurður Pálsson, Sigurjón Stefánsson, Katrín Grímsdóttir, Helga A. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ANNA SIGRUN JÓHANNSDÓTTIR + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA PÁLSDÓTTIR frá Siglufirði, Lindargötu 61, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 1. júní. Jóhann Kroger Egilson, Birgit Dam, Kristinn Páll Einarsson, Sóley Guðmundsdóttir, Elías H. Elíasson, Elísa Ásgeirsdóttir, Guðmundína Einarsdóttir, Halldóra Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, BJÖRN ÞORLÁKSSON lögfræðingur, Kaplaskjólsvegi 93, Reykjavík, lést fimmtudaginn 1. júní. Ellen Sigurðardóttir Waage, Ólafur Jóhann Ólafsson, Sigríður Egilsdóttir, Þorlákur Björnsson, Erna G. Agnarsdóttir, Kristín Helga Björnsdóttir, Loftur Ólafsson, Sigurður Kr. Björnsson, Margrét Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS SIGURÐUR STEFÁNSSON, Dvalarheimilinu Skálahlíð Siglufirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans fimmtu- daginn 1. júní. Útförin auglýst síðar. Maríanna Jónasdóttir, Jónína Jónasdóttir, Þórður <5 Anna Hugrún Jónasdóttir, Gísli H. ( Magnús Jónasson, Hrönn F; barnabörn og barnabarnab v *""" - L lafsson, auðmundsson, inndal. arn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna and- láts og útfarar GYLFA GUNNARSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hrafnistu í Hafnarfirði. Aðstandendur. 'JLSam
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.