Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.06.2000, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Grindvíkingar gæla við listagyðjuna Mist Þorkelsdóttir Þorkell Sigurbjörnsson Atli Heimir Sveinsson Menning og náttúruauðæfí er yfírskrift menningar- og listahátíðar sem haldin verð- ur í Grindavík, Svartsengi og við Bláa lónið dagana 4. til 17. júní. Orri Páll Ormarsson kynnti sér dagskrána og ræddi við menning- arfulltrúa Grindavíkur, Guðmund Emilsson. Guðmundur Emilsson MARGT er baukað í Grindavík. Þar eru sægarpar góðir, íþróttalíf í blóma og Bláa lónið, sjálf paradís ferðamannsins, á næstu grösum. Menning og listir koma þó ekki strax upp í hugann. „Það kann að vera rétt,“ segir Guðmundur Emilsson, menningar- fulltrúi bæjarins. „Það er hins vegar missldlningur að bærinn sé menn- ingarsnauður. Því fer víðs fjarri og alla 20. öld var hér auðugt menning- arlíf sem snerist í kringum Gunnlaug Scheving listmálara og Sigvalda Kaldalóns, ástsælasta sönglagaskáld þjóðarinnar, og fleiri stórmenni á sviði lista. Eitt mesta skáld okkar tíma, Guðbergur Bergsson, er frá Grindavík og starfar hér. Þetta er ekki ónýtur grunnur til að byggja á.“ Guðmundur tók við starfi menn- ingarfulltrúa í Grindavík fyrir um ári. Var honum þá meðal annars falið að hafa verkstjórn um menningar- hátíð. „Mér var falið að móta hugsunina á bakvið hátíð sem hefði það að markmiði að auðga mannlífið á svæðinu, laða gesti og gangandi í þetta fjölmennasta ferðamannahér- að þjóðarinnar og byggja brú yfir fjallið Þorbjörn, sem óneitanlega skiptir svæðinu í tvennt. Að sjálf- sögðu var lögð áhersla á að fá í heim- sókn góða listamenn, innlenda og er- lenda.“ Sett var á laggirnar fjögurra manna nefnd sem í voru fulltrúar að- ilanna þriggja sem tóku höndum saman um verkefnið, Grindavíkur- bæjar, Hitaveitu Suðumesja og Bláa lónsins, auk Guðmundar. Segir Guð- mundur starf nefndarinnar hafa ver ið með miklum ágætum. „Fyrstu tillögur voru settar fram í ágúst á síðasta ári. í þeim var gert ráð fyrir að hátíðin spannaði eina viku. Fljótlega fóru menn þó að ljá máls á því að skemmtilegt gæti verið að lengja hátíðina, gera hana viða- meiri, og tengja hana þremur stór- um helgum, sjómannadagshelginni, hvítasunnuhelginni og 17. júni. Til- lögurnar voru endurhugsaðar út frá þessu. Nýr rammi hátíðarinnar lá fyrir í lok mars, inntak og efnistök í aprfl og núna í maí höfum við verið að fínpússa þetta." fsinn brotinn Guðmundur segir undirbúning hafa tekið lengri tíma en menn reiknuðu með í upphafi en eftir á að hyggja þurfi það ekki að koma á óvart. „Það er verið að brjóta ísinn viða.“ Segir hann menn hafa verið mis- trúaða á að hátíð af þessu tagi gæti gengið. „Það er ekkert óeðlilegt. Menn þurfa að hugleiða svona hluti. Nú finnum við hins vegar fyrir byr og ef vel tekst til að þessu sinni erum við sannfærð um að það verður auð- velt að koma á annarri hátíð að ári, standi vilji manna til þess á annað borð.“ - En er Grindavík rétti vettvang- urinn fyrir hátíð af þessari stærðar- gráðu? „Mönnum fannst mörgum fráleitt að byggja Bláa lónið á sínum tíma. Úrtöluraddir voru háværar. í dag ef- ast enginn um að það hafi verið gæfuspor fyrir byggðarlagið og Is- land allt. Ég vona að eins fari fyrir menningarstarfinu hér, að það vaxi og dafni og nái sama stigi í metnaði og sérþekkingu og einkennir há- tækniiðnaðinn hér í Grindavík og- mannvirki hitaveitunnar í Svarts- engi og Bláa lónsins. Það er gríðariegur metnaður fyrir hönd íþróttalífs i bænum. Metnaðarfullt menningarlíf er kannski ekki óeðli- legt framhald stefnunnar sem fylgt hefur verið í atvinnu- og íþróttalífi á svæðinu." - Vonarðu að þetta frumkvæði leiði tíl vakningar víðar um land? „Hví ekki það? Ef þetta heppnast vel kynnu fleiri bæjar- og sveitar- félög á stærð við Grindavík að ráða til sín fólk til samstarfs og eflingar menningarlífs. Það er raunar mín skoðun að það sé almenn vakning í landinu um menningarverðmæti, hvort sem það er Sigvaldi Kaldalóns, Gunnlaugur Scheving og Guðbergur Bergsson í Grindavík eða eitthvað annað. Menning getur vakið áhuga þjóðarinnar á viðkomandi byggðar- lagi sem aftur leiðir til meiri sam- gangna og samskipta. Vestfirðingar voru til dæmis að skerpa á sérein- kennum sínum á ráðstefnu um dag- inn.“ - Vbru menn ekkert smeykir við að láta hátíðina skarast við Listahá- tíð í Reykjavík? „Hátíð okkar um menningu og náttúruauðæfi er haldin í samvinnu við Reykjavík, menningarborg Evrópu árið 2000. Af því frumkvæði borgarinnar hljótum við að draga þá ályktun að öflugt menningarstarf hér sé af hinu góða. Við vonum því að gestir menningarborgarinnar, inn- lendir sem erlendir, bregði undir sig betri fætinum og líti líka til okkur.“ Fjölbreytt dagskrá Snar þáttur í hátíðinni er tón- skáldaþing, sex viðburðir alls, sem fram fara í Eldborg í Svartsengi. Frummælendur verða íslensku tón- skáldin Atli Heimir Sveinsson, Mist Þorkelsdóttir og Þorkell Sigur- bjömsson og bandarisku tónskáldin Mark Phillips, Gerald Shapii-o og William Harper. Efnt er til tón- skáldaþingsins til að heiðra minn- ingu Sigvalda Kaldalóns, staðartón- skálds Grindvíkinga. Heimsfrumfluttar verða nýjar hljóðritanir á verkum tónskáldanna sex sem segja frá verkum sínum. Atli Heimir ríður á vaðið á mánudag kl. 17. Atli Heimir kemur raunar víðar við sögu, enda sérstakur gestur Grindavíkurbæjar um sjómanna- dagshelgina. Á sunnudag verða Haf- gúur, Grindavíkurgjömingur hans, fluttar við Grindavíkurhöfn, og nýtt hljóðrit af tónverkinu Doloroso um kvöldið. Þá mun tónskáldið fjalla um Námur, fjöllistaverk 36 innlendra og erlendra listamanna unnið á árunum 1987-2000 í tilefni þúsaldar, kristni- töku á íslandi og landafunda í Vest- urheimi. Námur era reyndar í önd- vegi á hátíðinni. Atli mun einnig leika undir hjá barnakór Grindavflí- urkirkju. Af öðram tónlistarviðburðum má nefna að Sigrún Hjálmtýsdóttir kemur fram og Sigrún Eðvaldsdóttir og Atli Heimir Sveinsson leika lög eftir Sigvalda Kaldalóns. Andrea Gylfadóttir syngur við Bláa lónið og tónverkið Grameðlan eftir Mark Phillips verður flutt á sama stað af básúnuleikaranum Tony Baker. Bubbi Morthens mun syngja Bell- man-söngva þar og Lynn Helding syngur úrval amerískra ljóðasöngva. Þá verður flutt Dansasvíta eftir Ger- ald Shapiro og Karlakór Keflavíkur kemur við sögu. Illugi Jökulsson fer með ljóð á ljóð ofan í salarkynnum bláa lónsins og dr. Ilkka Oromo, prófessor við Síb- elíusar-akademíuna í Helsinki, flytur erindið Um menningu og náttúra- auðæfi. Á sunnudag verður opnuð sýning á verkum úr Námum, í tónum, tali, málverkum, handritum og ljósmynd- um. Þar á meðal era sýnishorn por- trettljósmynda Guðmundar Kr. Jó- hannessonar af Námafélaginu 1987-2000. Þá verða sýnd myndverk eftir Námalistamenn, þá Tolla, Gunnar Örn og Hallstein Sigurðs- son. Að auki verða til sýnis handrit Námaskálda og tónskálda. Allar standa þessar sýningar í Eldborg í Svartsengi hátíðina á enda. Matthías Johannessen skáld segir frá Gunnlaugi Scheving og fimm mannamyndir listamannsins frá Grindavíkuráranum verða afhjúpað- ar. Birna Bjarnadóttir talar um skáldskap Guðbergs Bergssonar. Þá mun Guðbergur sjálfm’ flytja þankabrot við þúsaldarmót í Eld- borg í Svartsengi á sunnudagskvöld, en orð hans era hluti af Námum XII, lokaverkum Náma. „Heit fjölskylduhátíð" verður í Svartsengi um hvítasunnuhelgina í tilefni af 25 ára afmæli Hitaveitu Suðurnesja. Mannvirki hitaveitunn- ar verða opin gestum og gangandi, þar á meðal Gjáin, tækniundur í iðr- umjarðar. Grindavíkurkirkja efnir til hátíðar sem stendur frá 4. til 17. júní en hún er liður í Kristnitökuhátíð í Grinda- vík. Meðal dagskrárliða era þema- vika með 7-9 ára börnum, ungir Grindvíkingar flytja tónlist, gospel- tónleikar fara fram, Páll Óskar Hjálmtýsson og kórar flytja Missa Millennium og fleira. I tilefni menningarhátíðarinnar efnir Veitingahúsið Jenný við Bláa lónið til Djassdaga 5. til 16. júní. Fyr- irhugaðir era sex tónleikar undir forystu Eyþórs Gunnarssonar með þátttöku þekktustu djassleikara þjóðarinnar. Öllum er heimill ókeypis aðgangur að viðburðum hátíðarinnar meðan húsrúm leyfir. Fimm efnilegir ballettdansarar Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Guðbjörg Halla Arnalds, Tinna Ágústsdóttir, Gyða Bergs og Kristín Una Friðjónsdóttir. Keppa í Svíþjóð og New York FIMM ungir og efnilegir ballett- dansarar era á leið til Svíþjóðar og New York til að taka þátt í alþjóð- legri keppni í listdansi. Guðbjörg Halla Arnalds, Tinna Ágústsdóttir og Gyða Bergs fóru í vikunni til Mora í Svíþjóð og taka þar þátt í norrænni danskeppni í klassískum listdansi og era þáttakendur nem- endur á aldrinum 15 -19 ára frá óp- eraballettskólum Norðurlanda. Keppnin hófst á fimmtudag og lýkur í dag laugardag. Keppnin er tekin upp af sænska ríkissjónvarpinu og sýnd í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Kristín Una Friðjónsdóttir og Gunnlaugur Egilsson vora valin af dómnefnd í New York til þess að taka þátt í New York International Ballet Competition og fóra þau utan í morgun. Það eru 24 pör víðs vegar að úr heiminum sem keppa á aldrin- um 17 - 24 ára. Þau dveljast í New York í þrjár vikur en á þeim tíma era þeim kenndir dansarnir sem keppt verður í. Keppnin sjálf byrjar 21. júní og stendur til 25. júní og lýk- ur með verðlaunaafhendingu og miklum hátíðarhöldum en þátttaka í þessari keppni er mjög eftirsótt og talin mikill heiður fyrir dansarana sem valdir era. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem íslenskir ballett- dansarar taka þátt í hvorri keppni um sig. [úta[átíti í RejLjav Hafnarborg. Sýning á völdum verkum Lou- isu Matthíasdóttur. www.centrum.is/hafnarborg Landsbókasafns íslands - Há- skólabókasafn. Sýning á bréfum og dagbókum frá 19. öld og fyrri hluta 20. ald- ar. www.bok.hi.is Ljósafossi við Sogið - List í orkustöðvum. Félag ísl. myndlistarmanna og Landsvirkjun standa fyrir mynd- listarsýningum í tveimur af virkjunum Landsvirkjunar Ljósafossi við Sogið og Laxárvir- kjun í Aðaldal. Sýningin í Lax- árvirkjun opnar 16. júní. www.umm.is (leitarorð FÍM). www.lv.is Sjávarlist á Akranesi. Akraneshlaupið kl. 10.30. www.akranes.is Laugardalshöll. Kl. 14. Tónleikar norrænu barnakór- anna. 100 raddir í sameiginlegum barnakórum. Aðgangur ókeypis. Reykjavíkurhöfn - Fíflaskipið. Sýningar á Miðbakkanum kl. 15 og kl. 20. Hafnarbakkinn. Fjöllistahópurinn M-2000 mun leika listir sínar á Hafnardögum í dag og á morgun, Sjómannadag. Þorláksvaka - Ölfus Fjölskyldudagur, unglingd- ansleikur um kvöldið. Dagskráin er hluti af samstarfsverkefni Menningarborgarinnar og sveit- arfélaga. www.olfus.is. www.reykjavik2000.is - wa- p.olis.is. Listahátíð Þjóðleikhúsið. Kl. 20.30. Englar alheimsins. Café Teat- ret frumsýnir leikgerð sína á skáldsögu Einars Más Guðmundssonar. Salurinn, Kópavogi. Kl. 17. Bréfið - sýning ítalska lát- bragðsleikarans Paolo Nani. www.artfest.is. Sameiginleg dagskrá Islenska óperan. Kl. 15 og kl. 20. Don Giovanni. Uppfærsla frá Þjóðarbrúðu- leikhúsi Tékklands í Prag. www.artfest.is Borgarleikhúsið. Kl. 16. Einhver í dyrunum. Síðasta forsýning á nýju verki eftir Sigurð Pálsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.