Morgunblaðið - 03.06.2000, Síða 8

Morgunblaðið - 03.06.2000, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skipulag Kristnihátíðaraefndar veldur óánægju: Minni söfnuðir vilja ekki í Hestagjá Davíð ætti þá ekki að verða í vandræðum með gott pláss fyrir stóðið sitt á hátíðinni. Samkeppnisstofnun um flugfélagið Go Aðhefst ekki frekar SAMKEPPNISSTOFNUN hefur ákveðið að aðhafast ekki frekar í máli breska Go flugfélagsins, en úr- lausnarefni stofnunarinnar var hvort félagið hefði brotið ákvæði 21. gr. samkeppnislaga um að óheimilt sé að veita rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar í auglýsing- um. Auglýsingar flugfélagsins höfðu verið taldar villandi, þar sem þær hefðu gefið til kynna að fleiri farm- iðar til London á 10 þúsund krónur væru til boða en raunin hefði verið. í úrskurði Samkeppnisstofnunar er vísað í niðurstöðu auglýsinga- nefndar, ráðgjafarnefndar sam- keppnisráðs, þar sem segir: ,A-Uglýsinganefnd bendir á að auglýst flugfargjöld verða í raun að standa neytendum til boða á þeim tíma sem auglýsing er birt, að öðr- um kosti er auglýsingin villandi sbr. 21. gr. samkeppnislaga. í ljósi þess að flugfélagið Go hafði aukið sætaframboð á lægsta far- gjaldi skömmu áður en auglýsingin birtist og að auglýsingunum hefur nú verið breytt telur auglýsinga- nefnd ekki ástæðu til að aðhafast frekar í málinu að sinni.“ Með vísan til þessarar niðurstöðu ákvað Samkeppnisstofnun að hafast ekki frekar að í málinu. NÁM5KEIÐAFRÉTTIR Samskipta og tjáningasmiðja FVBIR BðRM á aldrinum 8-12 ára verður starfirækt í sumar á vegum Hollráða. Sköpunargieðm og hugmyndaflugið njóta sín í nýstárlegri dagskrá sem gerir þátttakendur meðvitaðri um sjália sig og samfélagið. Fámennir hópar tryggja virka þátttöku svo hægt sé að sinna hverjum einstaklingi. Hér er nýr og spennandi vettvangur til að rækta hæfíleikana og uppgötva nýjar hiiðar á sjálfum sér og tilverunni. Leiðbeinendur hafa víðtækan bakgrunn úr skapandi starfi á sviði sálarfræði, lista og nýsköpunar. Áhersla er lögð á fjölbreytilcga nálgun viðfangsefna. Hvert námskeið er ein vika i senn 4 stundir á dag. Leitið nánari upplýsinga hjá Hollrábum. Opið einnig 10-14 laugard. ogsunnud. Helga Jóhann Ósk Sólveig Þórunn Ingveldur Helga Hollráð • Laufásvegi 17 • 101 Reykjavík • Sími 561 2428 • Fax 561 3328 • hollrad@hollrad.is Norræn öldrunarfræðaráðstefna A mótum tveggja heima Anna Birna Jensdóttir YFIRSKRIFT öldr- unarfræðaráð- stefnu sem verður haldin 4. til 7. júní í Há- skólabíói er; A mótum tveggja heima. Þetta er fimmtánda norræna ráð- stefnan af þessu tagi. Ráð- stefnan hefst klukkan 9 alla dagana, íyrsta daginn verður forráðstefna í sam- vinnu við amerísk samtök sem vinna að öldrunar- rannsóknum. Anna Birna Jensdóttir hjúkrunar- framkvæmdastjóri hefur ásamt undirbúningsnefnd haft veg og vanda af þess- ari ráðstefnu sem Öldrun- arfræðafélag fslands og Félag íslenskra öldrunar- lækna stendur fyrir. „Tilgangur þessarar öldrunarfræðaráðstefnu er að ná fram hápunkti þess nýjasta sem er að gerast í þekkingarþróun öldrunafræða í Ameríku og á Norðurlöndum.“ - Er mikið um að vera á þess- um vettvangi? „Já, það er það, núna eru viss tímamót í þessum efnum eins og yfirskriftin ber með sér, það má velta iyrir sér hvort miklar breyt- ingar séu ekki að verða í hópi aldraðra. Þeir sem fæddust nokkru fyrir seinna stríð eru að verða aldraðir í dag og þeir bjuggu við allt önnur skilyrði en t.d. þeir sem fæddust nokkru fyr- ir fyrra stríð.“ -Eru vandamál þessa fyrr- talda hóps talsvert önnur en þess síðartalda? „Já, þau eru öðru vísi. Krabba- mein og heilabilun eru t.d. vax- andi viðfangsefni þeirra sem sinna heilbrigðismálum í dag, áð- ur dó fólk fyrr, kannski áður en til þessara vandamála kom. A þing- inu verða fjölmargir fyrirlestrar sem tengjast þessu efni.“ - Hvað ber hæst í þessarí um- fjöllun? „Það er athyglisvert að oft er ekíd samasemmerki milli líðanar fólks og mælanlegs heilsufarsá- stands. Þeim getur liðið ágætlega sem eru sannanlega með marg- vísleg mein en hinum sem kannski ætti að líða betur út frá heilsufarssjónarmiði líður stund- um illa.“ -Er þá andlegt ástand þeirra sem líður svona illa mjög slæmt? „Já, það er mikið um depurð og það tengist meira og minna vangaveltum einstaklingsins um þýðingu lífsins. Það hvað fólk hef- ur gott samband við sína nánustu skiptir mjög miklu máli hvað líð- anina snertir. Þeir sem eru mjög illa farnir líkamlega geta verið sáttir við lífið og lifað ánægjulegu lífi ef tengsl þeirra við náið fólk og samskipti eru góð.“ - Hverjir eru helstu framsögu- menn á ráðstefnunni? „Dr. Einar Stefánsson, próf- essor í augnlækningum, talar um öldrun og augnsjúkdóma út frá ís- lenskum athugunum. Dr. Barbara Bowers, prófessor í öldrunar- hjúkrun, fjallar um hjúkrun út frá sjónar- miðum hins aldraða og tengslih á milli stefnu- mörkunar í heilbrigðis- þjónustu og gæða þjónustunnar, sérstaklega gagnvart þeim sem eru hrumastir. Dr. Lewis Litsitz öldrunarlæknir ræðir um svima og byltur hjá öldruðum sem eru mjög algeng vandamál. Dr. Alan Jette, prófessor í sjúkraþjálfun, ræðir um hvernig aldrað fólk get- ur risið upp úr vangetunni með ► Anna Birna Jensdóttir fæddist 17.12.1958 í Reykjavík. Hún lauk prófi frá Hjúkrunarskóla ís- lands 1981 og framhaldsnámi frá háskólanum í Árósum í hjúkrun- arfræðum og stjómun 1987. Hún hefur starfað sem hjúkmnar- fræðingur og hjúkmnar- framkvæmdastjóri öldrunar- þjónustu hjá háskólasjúkrahúsi Landspítalans, Landakoti. Anna Bima er gift Stefáni Svarberg Gunnarssyni rafmagnstækni- fræðingi og eiga þau þijá syni. aðstoð sjúkraþálfara og annarra í öldrunarteymi, (teymi er hópur fólks úr mismunandi greinum heilbrigðisstétta sem sameinar krafta sína). Þá mun dr. Edgar Bordenhammer prófessor fjalla um hvernig má létta öldruðu fólki lífið síðustu daga þess með þvi að lina þjáningar þess. Auk þessara aðalerinda em um 300 styttri er- indi sem íslenskir og erlendir fag- menn halda.“ -Hver eru helstu vandamálin sem veríð er að kljást við í öldrun- arhjúkrun í dag? „Auk heilabilunar, sem er mik- ið vandamál, er beinþynning og afleiðingar hennar, þunglyndi og skert sjálfsbjargargeta vegna stoðkerfisvanda aðalviðfangsefn- in.“ - Hvað er hægt að gera fyrír þetta fólk? „Það er hægt að veita öflugan stuðning og hjálpa fólki að takast á við daglega lífið með öðrum að- ferðum þrátt fyrir heilsufars- vanda þannig að fólki fái sem mest út úr lífinu. Kjarkurinn vill bila þegar fólk eldist og missir maka og systkini, þá er mjög nauðsynlegt að þeir sem næstir standa og fulltrúar heilbrigðis- kerfisins hjálpi til áður en fólk sekkur í djúpt þunglyndi. Það er ánægjulegt hvað fólk er orðið langlífara en það verður að gæta þess að gamalt fólk lifi skemmti- legu lífi eftir þvi sem nokkur föng em á, það geta hinir yngri hjálpað til við. Þeir sem ungir eru skilja oft ekki hvað það er mikil gjöf að fá að ræða við og tengjast þeim sem orðnir era gamlir, lífsreynsla þeirra og viska getur gefið hin- um yngi’i mikið.“ -Eru lyf þýðingar- mikil í baráttunni við að láta gömlu fólki líða vel? „Já, þau em mjög þýðingar- mikil og hafa breytt miklu fyrir þá sem era hrjáðir af andlegum og líkamlegum kvillum - en lyf eru vandmeðfarin og sjónir manna hafa í ríkari mæli beinst að öðrum aðferðum. Það verður að gæta þess að gamalt fólk lifi skemmti- legu lífi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.