Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 16

Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 16
16 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Posthúsinu á Flúðum lokað Hópurinn sem hefur unnið hjá pósthúsinu á Flúðum, störf sumra hafa verið lögð niður. Oánægja í sveitarfélaginu Hrunamannahreppi - Pósthús- inu á Flúðum var lokað nýlega en það var tekið í notkun í byrj- un október 1995, þá í nýju og veglegu húsi sem Póstur og sími byggði. Póstafgreiðslan flyst í útibú Búnaðarbankans sem er við hliðina á póssthúsinu. „Mikil og almenn reiði er hér í Hrunamannahreppi yfir þess- um ráðstöfunum. Þykir mörgum furðu sæta að þetta skuli hafa verið gert,“ sagði Loftur Þor- steinsson oddviti. Allnokkur hópur kom saman í pósthúsinu og þáði kaffi og tert- ur á lokunardaginn, hópur úr kirkjukórnum söng sálminn Kallið er komið og einhver dró póstfánann í hálfa stöng. Póstur í hreppinn verður nú framvegis lesinn í sundur á Sel- fossi en þaðan ekið annan hvern virkan dag en póstur borinn út daglega í þéttbýlinu á Flúðum. Aformað mun þó vera að koma pósti til skila á hverjum virkum degi með haustinu. Hér er um sparnaðarráðstöf- un að ræða hjá íslandspósti og hafa póstafgreiðslur víðar verið færðar til á Suðurlandi. V estfir ðingar - öðruvísi en annað fólk Bolungarvík - Á vel heppnuðu mál- þingi sem haldið var í Bolungarvík nýlega um séreinkenni Vestfirðinga voru flutt mörg og fróðleg erindi þar sem sérkenni Vestfirðinga og Vest- fjarða voru kynnt og rædd. Fjallað var um matarvenjur og verkunaraðferðir á ýmsum vestfirsk- um mat, vestfirskan húmor, þá var reynt að svara spurningum eins og hafa Vestfirðingar mótast af lands- laginu og/eða veðráttunni og era Vestfirðingar öðruvísi en annað fólk. Málþingið, sem haldið var í félags- heimilinu Víkurbæ, stóð frá kl. 10 til kl 18 en um kvöldið var síðan slegið upp vestfirskri stórveislu þar sem á hlaðborði voru vestfirskir sælkera- réttir. Flutt voru sextán erindi á mál- i þinginu um hin margvíslegu sérein- • kenni Vestfirðinga og Vestfjarða. Málþinginu var skipt í sjö flokka og í lok hvers erindaflokks voru pall- borðsumræður undir stjórn Sigmars B. Haukssonar sem jafnframt var i ráðstefnustjóri. Þá var í lok mál- í þingsins opnaður viðamikill vestfirskur ferðaþjónustu- og menn- ingarvefur, en þar er að finna gríðar- legt magn upplýsinga og fróðleiks fyrir þá sem stefna á ferðalag um fjórðunginn og aðra áhugamenn um útivist, menningararf og mannlíf á Vestfjörðum. Það var Magnús Ólafs Hansson sem setti málþingið, en hann átti hugmyndina að því og skipulagði það að öllu leyti. Landsfræga, kæsta skatan í fyrsta erindaflokknum voru tek- in fyrir verkun matvæla og neysla þeirra. Þorskur og aðrir fiskar. Þar fjallaði Ari ívarsson frá Pat- reksíu-ði um magála sem hollt og gott ljúfmeti, Halldór Hermannsson frá ísafirði fjallaði um kæstu skötuna sem landsfræg er orðin og Guðrún Pálsdóttir frá Flateyiá flutti erindi um íslenska hollustusælgætið harð- fiskinn. í erindaflokki tvö fjallaði Snorri Grímsson um óbyggðir, hálendi og náttúru Vestfjarða og svaraði að því loknu spurningum úr sal. Þriðji erindaflokkurinn hafði yfir- skriftina „Verkun og neysla villibráð- ar“. í>ar flutti Tryggvi Guðmundsson frá ísafirði erindi um svartfuglsegg, meðhöndlun þeirra og neyslu. Pétur Guðmundsson frá Ófeigsfirði fjallaði um selkjöt og verkun og Hulda Egg- ertsdóttir frá Bolungarvík útskýrði fyrir málþingsgestum hvernig góð sjófuglasúpa væri matreidd. Að lok- um fór Konráð Eggertsson frá ísa- firði yfir sögu hrefnuveiða og verkun og neyslu hrefnukjöts. Vestfirska laufaviðarmynstrið I fjórða erindaílokknum voru tek- in fyrir „siðir og venjur á Vestfjörð- um“. Þar flutti Kiistín Magnúsdóttir frá Bolungarvík erindi um bolvísk þorrablót, Jón Jónsson úr Steinadal í Strandasýslu fjallaði um galdra á Vestfjörðum, Gísli Hjartarson frá Isafirði sagði frá vestfirskum húmor og Sigrún Guðmundsdóttir frá ísa- firði lýsti hinu sérstæða prjóna- mynstri sem kallað hefur verið vest- firska laufaviðarmynstrið sem notað Kennslustofnun fyrir heilbrigðisstarfsfólk Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Frá undirritun samningsins, Jóhann Ágúst Sigurðsson, forseti lækna- deildar Háskóla íslands, Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, Magnús Stefánsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi og Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, læknir og umsjónarmaður með kennslu læknanema. Selfossi - Heilbrigðisstofnunin á Selfossi verður kennslustofnun fyr- ir heilbrigðisstarfsfólk í tengslum við læknadeild Háskóla Islands. Samningur þessa efnis var undir- ritaður á miðvikudag á Selfossi, af Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigð- isráðherra, Jóhanni Ágústi Sig- urðssyni, forseta læknadeildar Há- skóla íslands, og Magnúsi Stefánssyni, framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunarinnar á Sel- fossi. Stofnunin mun uppfylla faglegar kröfur sem heilbrigðisyfirvöld gera til menntunar starfsfólks, tækja, búnaðar og starfshátta. „Það er mikill áhugi hér fyrir stefnumótun fyrir stofnunina og nýja gerð af starfsemi hér,“ sagði Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, yfirlæknir lyflæknissviðs, sem mun hafa um- sjón með verklegri kennslu lækna- nema. Læknar HSS munu nýta aðstöð- una á stofnuninni til þess að sinna verklegri kennslu í heimilislækn- ingum og munu ráðstafa tíma sín- um í þeim tilgangi í samráði við yf- irlækna HSS. Læknadeild Háskóla íslands veitir því heilbrigðisstarfs- fólki við HSS sem jafnframt er kennarar við Háskólann faglega að- stoð og aðgang að fagbókasafni og kennslugögnum skólans. Kennsla, rannsóknir og vinna við fagleg þróunarverkefni fara fram á venjulegum vinnutíma HSS, enda er það liður í þjónustuhlutverki stofnunarinnar sem skuldbindur sig til að tryggja nemum og náms- læknum vinnuaðstöðu. Nemar og námslæknar fá verklega og bóklega kennslu á HSS. Verkleg kennsla, svo sem stundun sjúklinga, verður á fulla ábyrgð kennara. Yfirlæknar og kennslustjórar HSS verða í for- svari fyrir faglega þróun HSS varðandi kennslu og fræðilega starfsemi, í samráði við læknadeild. Samningurinn við HSS er fyrsti samningurinn sem gerður er við heilsugæsluhluta heilbrigðiskerfis- ins um kennslu og rannsóknir. Ófeigur Tryggvi sagði gott að kynna læknanemum starfsemi heilsugæslu á Selfossi, um væri að ræða fimm starfandi heilsugæslu- lækna með öfluga starfsemi og sjúkrahús með ýmsa sérhæfingu. Nálægðin við höfuðborgarsvæðið gæfi möguleika á að starfa að kennslunni með þai' og hún gerði nemum einnig auðvelt um vik að fara á milli staða byggju þeir í Reykjavík og nágrenni. Hann sagði að kennslan yrði fyr- ir 5. árs læknanema og þriggja mánaða verklegan tíma kandidata. Markmiðið væri að fá nema í sér- fræðinám í heimilislækningum. Hann sagði að kallað yrði eftir samstarfi við alla aðila, sveitar- stjórnir og almenning á Suðurlandi til stuðnings starfinu. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Maturinn var glæsilega framreiddur á veislukvöldinu, en Sjöfn Guðmundsdóttir, Lilla í Finnabæ, á mestan heiðurinn af honum. var við prjónaskap á vettlingum og öðrum skjólfatnaði I fimmta kafla málþingsins fjallaði Pétur Bjarnason frá Isafirði um mót- un Vestfirðingsins, lundarfar hans, tjáningu og tungumál. Sjötti erindaflokkurinn bar yftr- skriftina „Vestfirskur sælkeramat- ur“, þar flutti erindi Aðalsteinn Ósk- arsson í forföllum föður síns, hins kunna hákarlsverkanda Óskars Friðbjamarsonar úr Hnífsdal, sem hann kallaði „Hákarl, meðal og lost- æti“. Bima Pálsdóttir frá Bolungarvík flutti erindi um kúttmaga sem árstíð- arbundið sælgæti og Steinunn Guð- mundsdóttir í Bolungarvík, í forföll- um föður síns Guðmundar Hraunbergs Egilssonar, fjallaði um útálát Vestfirðingsins, hnoðmörinn. Að síðustu var svo fjallað um reka- við á Vestfjörðum þar sem Pétur Guðmundsson frá Ófeigsfirði fræddi menn um hvernig rekaviður hefur verið nytjaður á Vestfjörðum fyrr og nú. Vestfirsk sælkeraveisla Þetta viðamikla málþing um sér- einkenni Vestfirðinga þótti takast í alla staði mjög vel, milli sextíu og sjötíu manns sátu allt málþingið, sem var, eins og sést af framansögðu, yf- irgripsmikið og fróðlegt. Þá tókust pallborðumræðurnar afar vel þar sem gestum gafst tækifæri á að varpa fram spurningum til frummæl- enda í lok hvers erindaflokks. Fjölmargir sóttu síðan vestfirsku sælkeraveisluna um kvöldið þar sem í boði var á veisluhlaðborði hákarl, harðfiskur, skata, sjófuglasúpa, hnoðmör, selkjöt, svartfuglsegg og magáll svo fátt eitt sé nefnt. Þá skemmtu vestfii’skir listamenn veislugestum en veislustjóri var Sigmar B. Hauksson. Magnús Ólafs Hansson, skipu- leggjandi málþingsins, kvaðst vera mjög ánægður með hvemig til tókst. „Það kom mér alveg sérstaklega á óvart hversu vönduð og fróðleg er- indi voru flutt þarna. Frummælend- ur höfðu greinilega lagt mikla vinnu í erindi sín og færi ég þeim mínar bestu þakkir fyrir það,“ sagði Magn- ús. „Þá vil ég alveg sérstaklega vekja athygli á því hversu glæsilega matur- inn vai’ fram reiddur á veislukvöld- inu, en þar á hvað stærstan heiðurinn Sjöfn Guðmundsdóttir, Lilla í Finna- bæ, en hún er ættuð úr Ófeigsfirði á Ströndum og var lengi vel búsett ásamt eiginmanni sínum Ragnari Jakobssyni í Reykjafirði á Horn- ströndum. Þá var afar mikilvægt að fá til liðs við okkur listamanninn, já og Strandamanninn, Sigmar B. Hauks- son sem stýi’ði málþinginu af mikilli röggsemi og færi ég honum mínar bestu þakkir sem og öðrum þeim sem á einn eða annan hátt lögðu hönd á plóginn til að af þessu málþingi gæti orðið, en það finnst mér alveg ljóst, eftir þessa umræðu, að Vestfirðingar eru öðruvísi en annað fólk og þurfa ekkert að skammast sín fyrir það,“ sagði Magnús Ólafs Hansson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.