Morgunblaðið - 03.06.2000, Side 25

Morgunblaðið - 03.06.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 25 VIÐSKIPTI Skipurit íslandsbanka FBA hf Bankaráð Innri endurskoðun H Vatur Valsson Bjarni Ármannssson I ' f 81 Bjarni Ánnannsson L Framkvæmdastjórn Bjarni Ármannsson Valur Valsson Guðmundur Kr. Tómasson Jón Þórisson Haukur Oddsson Svanbjöm Thoroddsen Erlendur Magnússon Ásmundur Stefánsson Tómas Kristjánsson Björn Björnsson Valur Valsson Markaðsviðsklpti Guðmundur Kr. Tómasson • Miðlun • Gjaldeyrisviöskipti/ Peningamarkaður • Umbreyting/ verðbréfaútgáfa • Stöðutaka/ millibankaborð Talenta hf Bjarni Kr. Þorvarðarson Ráðgjöf hf Jóhann Magnússon Fyrirtækjaþjónusta Erlendur Magnússon • Atvinnugreinateymi • Ábyrgð á útlánum • Strúktúr »Greining og útgáfa • Markaðsmál • Netþróun • Bakvinnsla • Starfsmannaþróun Áhættu- og fjárstýring Tómas Kristjánsson . Upplýsingatækni Haukur Oddson Fjármálasvið Björn Björnsson Rekstrarsvið Ásmundur Stefánsson Lögfræðiþjónusta - Kynningarmál » Áhættustýring ► Fjárstýring * Rekstur og þróun kerfa * Stefna/samhæfing * Reikningshald/ áætlanagerð * Útlánaferii * Hluthafasamskipti > Starfsmannaþróun/ fræðsla * Gæðamál * Rekstur Viðskiptabanki Jón Þórisson • Úíibú • Heimabanki • Markaðsmál • Starfsmannaþróun • Míðvinnsla Einkafjármái Svanbjöm Thoroddsen • Verðbréf á netinu • Einkabankaþjónusta • R. Raphael • basisbank.dk VÍBhf Sigurður B. Stefánsson Glitnír hf Kristján Óskarsson gjör lykilþáttur í rekstri að upp- spretta fjármagns sé frá ólíkum efna- hagssvæðum, því í því felst nauðsyn- leg áhættudreifmg. Bankar fara yfirleitt ekki á hliðina vegna lágrar eiginfjárstöðu heldur vegna skorts á aðgangi að fjármagni," segir Bjami. Að sögn Bjama og Vals hefur sam- einingin mætt velvilja og áhuga er- lendis. Bankinn var með kynningar- fund í London í síðustu viku íyrir fjárfesta þangað sem um 60 aðilar komu víðsvegar að í Evrópu. „Við tókum eftir þrennu hjá erlendum að- ilum. I fyrsta lagi aðdáun á því hvað samruninn tók skamman tíma. Flest- ir erlendir bankar þekkja samruna- ferlið af eigin raun og vita að því lengri tíma sem það tekur því erfið- ara er það. I öðru lagi hvað íslenskt efnahagsumhverfi er gott. Það er mun sveigjanlegra og viðbragðsfljót- ara en víðast hvar erlendis, sem má þakka bæði stjómvöldum og eftirlits- aðilum. I þriðja lagi að Island verður séð í öðm samhengi í alþjóðlegu fjár- málaumhverfi þegar svona stór ein- ing, sem líkleg er til þess að geta lifað af stór áföll, er komin til sögunnar. A hinum Norðurlöndunum sjáum við stóra banka verða til við sameiningu innan fjármálageirans. Því hafa margir erlendir aðiiar beðið eftir uppstokkun í íslensku bankakerfi. Islandsbanki-FBA mun leggja áherslu á alþjóðlega útrás hjá bank- anum sjálfum auk þess sem við mun- um aðstoða viðskiptavini okkar við útrás. Stefnan þar hefur ekki verið mótuð en við horfum þar tii ýmissa þátta enda mörg tækifæri til fjárfest- inga erlendis þar sem við getum haft ákveðið virði, m.a. vegna reynslu, þekkingar og vöruþróunar. Þannig að það eru ýmis tældfæri fyrir hendi hvort heldur sém þau eru nýtt í sam- starfi við aðra eða ein sér,“ segja þeir. Njóta góós af erlendum bankasamruna Að sögn Bjarna er hægt að skipta bankaþjónustu í tvennt: Alþjóðlegar einingar og litlar einingar sem eru svæðisbundnar. „Við getum ekki fellt okkur undir einungis annan þáttinn þar sem Islandsbanki-FBA býður upp á alla þá þjónustu sem stóru bankamir eru með. Aftur á móti er okkar banki miklu minna íyrirtæki og við ætlum að nýta okkur þann sveigjanleika sem jafnframt gerir okkur að eftirsóknarverðum sam- starfsaðila á svæðum sem stórir aðil- ar eru ekki á og meðal lítilla aðila sem ekki vilja láta stóra alþjóðlega banka gleypa sig. Því má segja að samruni stórra banka gefi okkur tækifæri á alþjóðlegum fjármálamarkaði," segir Bjami. Íslandsbanki-FBA verður rekinn áfram um sinn sem tvær sérstakar rekstrareiningar undir nöfnum Isl- andsbanka og FBA. Valur og Bjami segja að bankamir sinni mismunandi markhópum og það þurfi mismunandi leiðir til þess. „Jafnvel áður en til sameiningar kom vomm við hjá íslandsbanka komin með F&M sem stefndi að því að sinna sama hlutverki og FBA. Þessi tvö svið, íslandsbanki annars vegar og FBA hins vegar, hafa mis- munandi þarfir og nýta ólíkar dreifi- leiðir. Vegna þessa gengur mjög vel upp að vera með Íslandsbanka-FBA á tveimur meginstoðum. Svo eram við með sameiginlegar þjónustu- deildir fyrir báða aðila. Töldum við skynsamlegt að leggja af stað með þessum hætti því þannig raskast sambandið við viðskiptavini sem minnst. Eitt af meginmarkmiðum okkar var að láta samskipti við þá ekki traflast vegna sameiningarinn- ar,“ segir Valur. Ergo.is - nýjung í verðbréfa- viðskiptum einstakiinga „Við eram að fara á stað með verð- bréfaviðskipti á vefnum undir nýju vöramerki; ergo.is. Sú þjónusta verð- ur viðskiptabankamegin þar sem áherslan verður á verðbréfaviðskipt- um einstaklinga. Miðlarar ergo.is og starfsmenn VIB munu starfa saman en öll hlutabréfaviðskipti einstakl- inga verða í gegnum ergo.is. Þrátt fyrir að um verðbréfaviðskipti sé að ræða er þetta ekki innan FBA þar sem um verðbréfaviðskipti einstakl- inga er að ræða en ekki félaga. Hið sama á við um einkabankaþjónust- una sem FBA var með. íslandsbanki sinnir um 100 þúsund viðskiptayinum en FBA um eitt þúsund. íslan- dsbankanafnið verður notað yfir við- skiptabankaþjónustuna en FBA yfir verðbréfaþjónustu og síðan er íslan- dsbanki-FBA heiti sameinaðs banka og verður það notað á alþjóðlegum markaði," segir Bjami. Forstjórar Íslandsbanka-FBA era sammála um að svo mikil verðmæti liggi í vöramerkjum bankanna tveggja að það borgi sig ekki að fóma þeim með því að nota eingöngu vör- umerki sameinaðs banka út á við, því með því væri meiri hagsmunum fóm- að fyrir minni. Nýtt afkomutengt launakerfi í athugun í starfssamningum hjá FBA var tekið fram að ef bankinn yrði yfir- tekinn eða hann rynni saman við ein- hvem annan legðist EVA-greiningin, sem m.a. tengir laun starfsmanna við afkomu íyrirtækisins og notuð hefur verið hjá FBA, niður. Að sögn Bjama hefur það verið gert enda grandvöllur forsendna þess brostinn. „Það er hinsvegar full- ur vilji fyrir því að taka upp afkomu- tengt launakerfi innan nýju einingar- innar sem miðar að því að hagsmunir starfsmanna og hluthafa fari saman. Það er verkefni okkar Vals að koma með útlínur að því kerfi til bankaráðs. En þær útlínur liggja ekki fyrir og það tekur öragglega sumarið að hanna þær. Niðurfelling- in hefur áhrif á launakjör þeirra starfsmanna sem koma frá FBA. En við höfum verið það heppin að samr- uninn hefur notið mikils velvilja starfsmanna, viðskiptavina, hluthafa og stjórnvalda, svo starfsmenn hafa tekið þessum breytingum mjög vel.“ Bjarni og Valur segja brýnt að greina þarfir bankans í húsnæðismál- um fljótlega. Hætt hafi verið við þá byggingu sem fyrirhuguð var á Kirkjusandslóðinni á næstunni. FBA á lóð í Borgartúni og liggur fyrir teikning að byggingu á henni. Sú lóð er enn í eigu bankans en ekki liggur fyrir hvort sú lóð verður seld. Að þeirra sögn gefur sameiningin sem slík ekki tilefni til þess að bæta við húsnæði. Það er hins vegar framtíð- arsýn bankans sem veldur því að hús- næðismál era í athugun. Unnið að endurskipulagningu úti- búanets bankans Íslandsbanki-FBA rekur 31 útibú, þar af 20 á höfuðborgarsvæðinu og 11 á landsbyggðinni og þá rekur Islandsbanki 36 hraðbanka. Að sögn Vals er fjölgun útibúa ekki í undirbúningi en sífellt er unnið að endurskipulagningu útibúanetsins. „Þau verða í framtíðinni enn ódýrari í rekstri og einfaldari í uppbyggingu; þjónustan breytist og bankaútibú verða fyrst og fremst þjónustustaðir en ekki afgreiðslustaðir. Vel getur verið að við eigum eftir að fjölga úti- búum en þau yrðueinfaldari í sniðum en þau era í dag. Áður en samraninn varð að veraleika voram við hjá íslandsbanka búin að taka út úr úti- búunum alla bakvinnslu og sameina hana innan höfuðstöðva. Við munum halda áfram að hagræða rekstri þeirra og er Netið mikilvægur þáttur í því. Við verðum einnig áþreifanlega vör við mikla spurn eftir persónulegri þjónustu sem snýr að greiðsluþjón- ustu og eignarstýringu einstaklinga og þar er vöxturinn í þjónustu við ein- staMinga á meðan afgreiðsluhluti úti- búa verður sífellt minni. Ergo.is er viðbót sem vekur áreið- anlega mikinn áhuga og sú þjónusta verður rekin á Netinu og í gegnum símaþjónustu bankans en ekki verð- ur sett upp sérstakt útibú vegna erg- o.is. Fjárfestingar einstaklinga, bæði innan lands sem utan, í gegnum Net- ið munu öragglega stóraukast á næstu misseram og áram og við er- um að svara þeirri þörf með ergo.is," segirValur. Mannlegi þátturinn skiptir mestu í sameiningarferlinu Bjami og Valur era sammála um að mannlegi þátturinn sé langstærsti þátturinn í sameiningarferli Islands- banka og FBA. Það hverjir eigi að vera í hvaða stöðum og deildum hafi kallað á miklar tilfærslur og breyt- ingar hjá nánast öllum starfsmönn- um í höfuðstöðvum bankans sem era ýmist að koma í nýtt umhverfi, nýjar deildir eða að fá nýtt samstarfsfólk og þetta séu þættir sem skipta miklu máli. „Þetta hefur gengið ótrúlega vel en auðvitað hafa komið upp árekstrar sem eftir aðstæðum hefur gengið einstaklega vel að leysa úr. Við teljum að við höfum fundið við- fangsefni og tækifæri sem allir geta sætt sig við en það var eitt af megin- markmiðunum í samrunaferlinu. Að sjálfsögðu hafa undanfarnar vikur reynst sumum erfiðar og má búast við að svo verði eitthvað lengur en það sem skiptir miklu er hversu starfsfólk hefur verið jákvætt yfir breytingunum," segja þeir Bjami Ár- mannsson og Valur Valsson, forstjór- ar Íslandsbanka-FBA sem var form- lega stofnaður í gær, 63 dögum eftir að ófoi-mlegar viðræður þeirra um sameiningu íslandsbanka og Fjár- festingarbanka atvinnulífsins vora tilkynntar. IB. wtl - >. li»l »800 20. maí - 8. Júní www.artfest.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.