Morgunblaðið - 03.06.2000, Síða 49
f
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 49
ningarinnar í Hannover og mikil aðsókn að sýningunni í íslenska skálanum
Morgunblaðið/Kristinn
3on klippir á borðann og opnar íslenska skálann formlega.
slenski skálinn fallegur.
Mikil tæknivinna að baki
„Við notumst við mörg kerfi,“ segir
Kristján Magnússon, tæknistjóri ís-
lenska skálans. „Sum þeirra eru keyrð
af DVD-diskum, stóra myndin er keyrð
af hörðum diski, sérstakri „high defin-
ition“-sjónvarpstölvu, myndvarpinn í
tjöminni er sá stærsti og öflugasti sem
til er, tæki upp á 14 milljónir. Öllu er
þessu stjómað með sérstökum sýning-
arstjómunarhugbúnaði. Þetta er al-
gjörlega sjálfvirkt, svo lengi sem ekk-
ert kemur upp á. Ég verð voðalega
glaður ef ég þarf ekki að gera neitt í
sumar,“ segir hann og hlær.
„Ég set í gang í morgnana og slekk á
kvöldin. Ég kom með hengirúmið með
en það er verst að .ég kem því ekki fyrir
því víraflækjan er svo mikU.“
Það tók um mánuð að setja upp sýn-
inguna tæknilega fyrir þrjá menn. ,Að
baki liggur mikil undirbúningsvinna
heima,“ segir Kristján. „Við höfum
unnið að þessu síðan í haust og komum
með flestöll tækin samsett og tilbúin.“
Er hann sáttur við afraksturinn?
„Ég er mjög ánægður með langflest,“
svarar hann. „Það er alltaf eitthvað
sem betur má fara og við eigum eftir að
vinna að því smátt og smátt, en ég held
að þetta sé samt nokkum veginn það
sem við vorum beðnir um og hönnuður-
inn sá fyrir sér.“
Heimsókn utanríkis-
ráðherra lokið
Heimsókn Halldórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra og eiginkonu hans,
Sigurjónu Sigurðardóttur, ásamt
fylgdarliði, hófst á miðvikudag og lauk í
gær. Auk þess að opna íslenska skál-
ann fyrir gestum á miðvikudag og al-
menningi á fimmtudag og taka á móti
Gerhard Schröder, kanslara Þýska-
lands, hefur Halldór náð að skoða
nokkrar sýningar.
Hann skoðaði sýningar Sviss,
Liechtenstein, Japans, Vatíkansins og
endurvinnslufyrirtækisins Duales
System á fimmtudag og í gær skoðaði
hann sýningar Þýskalands og hinna
Norðurlandaþjóðanna, Danmerkur,
Noregs, Finnlands og Svíþjóðar.
Þá var hann gestgjafi í hátíðarkvöld-
verði á fimmtudagskvöld fyrir þá sem
stóðu að þátttöku Islands, þar sem
hann lauk lofsorði á sýninguna og sagði
aðstandendur hennar hafa sýnt fram á
að ísland gæti spjarað sig í samfélagi
þjóðanna. Ennfremur sagði hann að
dregin væri upp raunsönn mynd af ís-
landi: „ísland er fegurðardrottning. Ef
sagan er sögð eins og hún er kemst það
til skila.“
Kláfar, séð frá þýska skálanum.
Eins og í teikni-
myndasögu
ALDREI hafa verið fleiri þátttöku-
þjóðir á heimssýningunni en þeirri sem
hófst í Hannover á fimmtudag.
150 þúsund manns mættu á opnun-
arhátíð heimssýningarinnar ÉXPO
2000. Þýskir fjölmiðlar halda vart vatni
yfir því hversu vel tókst til, og sagði í
Die Welt að byrjunin væri eins og í
teiknimyndasögu. Þó eru sumir
svartsýnni, ekki síst þegar tekið er með
í reikninginn að spáð var að meðalað-
sókn á sýninguna yrði um 260 þúsund
manns á dag. Færri sóttu sýninguna í
gær en á opnunardaginn, enda var þá
ekki frídagur, en búist er við að að-
sóknin glæðist aftur um helgina.
Aldrei fleiri þátttökuþjóðir
Mikið var um dýrðir á opnunardag-
inn, alveg frá því að Johannes Rau, for-
seti Þýskalands, klippti á borðann og
100 þúsund blöðrur svifu til himins.
Hvarvetna á svæðinu voru tónleikar og
fjörlegar uppákomur, og meðal annars
mátti sjá brasilískan dans í anda kjöt-
kveðjuhátíðarinnar, loftfimleikamenn í
tjaldinu Big Tipi og flugeldasýningu í
ljósaskiptunum við EXPO-vatnið.
Þátttakendur hafa aldrei verið fleiri í
heimssýningu en nú, því hvorki fleiri né
færri en 173 þjóðir og 14 alþjóðasam-
tök sýna á 160 hekturum lands fram til
31. október. Það er þó eftir því tekið að
Bandaríkjamenn eru ekki á meðal
I austurríska hvíldarskálanum.
Þýski kanslarinn heimsækir íslenska skálann.
skálann svaraði Iialldór: „Við stung-
um upp á því að hann kæmi hér. Því
var afskaplega vel tekið og þetta er
annar skálinn sem hann heimsækir á
þessum degi, þannig að hann, fyrir
hönd þýsku þjóðarinnar, sýnir ís-
lensku þjóðinni mikla virðingu, með
því að koma hingað."
Á meðal annarra sem tóku á móti
Schröder voru Sverrir Haukur Gunn-
laugsson, ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráðuneytisins og formaður verkefnis-
stjóniarinnar, Sigríður Sigurðar-
dóttir, framkvæmdastjóri íslenska
skálans, og sendiherrahjónin Ingi-
mundur Sigfússon og Valgerður Vals-
dóttir, ásamt fleiri aðstandendum
sýningarinnar.
þátttökuþjóða, þar sem fyrirtæki þar í
landi sýndu því ekki nægan áhuga.
Kostnaður við sýninguna er áætlaður
um 230 milljarðar króna og er áætlað
að um 40 milljónir manna muni sækja
hana. Eins og áður segir var almenn
ánægja, jafnt meðal fjölmiðla sem
stjórnmálamanna, og sagði Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands, við
blaðamenn: „Heimssýningin er á góðri
leið.“
Mótmæli í Hannover
Ekki eru þó allir á eitt sáttir, frekar
en um önnur mannanna verk, því um
hundrað mótmælendur söfnuðust sam-
an í Hannover á svipuðum tíma og sýn-
ingin hófst, en lögreglan leysti upp
mannsöfnuðinn, án þess að nokkur
væri handtekinn. Síðar um daginn
mótmæltu 400 manns, sem hentu m.a.
grjóti og brunnum flugeldum, og voru
100 handteknir. Þá var kveikt í um 30
ruslagámum og 30 manns hlekkjuðu
sig saman með hjólreiðalásum til að
hindra umferð um brú yfir eina af
helstu umferðaræðunum að EXPO.
Einnig hentu mótmælendur logandi
hjólbörðum á lestarteina til að hindra
samgöngur og ollu hálftíma töfum. Það
eru vinstri samtök sem standa fyrir
mótmælunum og álíta að fjármunum
þeim sem eytt hefur verið í EXPO
hefði verið betur varið í velferðarkerf-
ið, en áætlað er að tap á sýningunni
verði rúmir 13 miHjarðar. Alíta mót-
mælendur að sýningin sé dýrðaróður
til kapítalismans. Bii’git Breuel, fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar, sagði eft-
irfarandi í opnunarerindi sínu, sem
skoða má sem svar við gagnrýninni:
„EXPO er gerð af fólki fyrir fólk - gesti
okkar. Sýningin er ekki sýndarveru-
leiki; henni er ætlað að vera áþreifan-
leg.“
Þá hefur verið gagnrýnt að of dýrt sé
inn á hátíðina (um 2.700 krónur) og
veitingar og samgöngur á svæðinu séu
í dýrari kantinum. Skipuleggjendur
hátíðarinnar veittu 30 þúsund skóla-
bömum í nágrenninu og 6 þúsund
starfsmönnum EXPO ókeypis aðgang
á opnunardaginn, til þess að auka að-
sókn. Engu að síður var ekki búist við
að 150 þúsund myndu mæta á opnunar-
daginn, þrátt fyrir að miðar væru mun
dýrari, og var aðsóknin framar vonum.
Samgöngukerfið reyndist anna full-
komlega þeim gestafjölda sem lagði
leið sína á sýninguna. Einn þeirra sýn-
ingarskála sem vöktu mesta athygli
var sá þýski, þar sem er að finna 45
risastórar myndir af andlitum Þjóð-
verja er sett hafa mark sitt á þýskt
samfélag, jafnt stjómmálamanna sem
íþróttamanna á borð við Steffi Graf. Þá
er sýnd kvikmynd og nær sýningarflöt-
urinn yfir alla veggi og gólf skálans.
Samkvæmt yfirmanni skálans mættu
40 þúsund gestir fyrsta daginn og
þurftu sumir að bíða í allt að fimm tíma
til að komast inn.
Hús úr pappír
Þá vöktu Hollendingar athygli með
skála sínum, sem er í öllum regnbog-
ans litum, og var heimsóttur af 35 þús-
und manns, og margir skoðuðu skála
framtíðarsýnar, þar sem hægt er að fá
innsýn í 21. öldina. Japanski skálinn
þykfr vel heppnaður, en aðstandendur
þeirrar sýningar þurftu sérstakt bygg-
ingarleyfi, því að þar hefur verið reist
fyrsta húsið í Þýskalandi sem gert er
úr pappír. Nepalska sýningin er haldin
í sambræðingi af búddísku og hind-
úísku hofi. Hægt er að fara í kláfferju
enda á milli á sýningunni fyrir tæpar
200 krónur og nýttu sextíu þúsund
manns sér þá þjónustu. Auk þessa eru
ótal uppákomur og viðburðir á dag-
skrá, eða alls 15 þúsund, þar til yfir lýk-
ur í október, þar á meðal sameiginlegir
tónleikar rokksveitarinnar Scorpions
og Berlínarfílharmóníunnar og 21 tíma
löng uppfærsla á „Faust“ eftfr Goethe.
i
*