Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 67

Morgunblaðið - 03.06.2000, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 67~ + 3 UMRÆÐAN Lokaorð Þegar vinstri menn réðu ríkjum í LÍN fyrir 10 árum og samþykktu út- hlutunarregur íyrir skóiaárið 1990- 1991 hækkuðu þeir tekjuskerðing; arhlutfall námslána úr 50% í 75%. í skýrslu sem gefin var út í aðdrag- anda breytingarinnar mátti meðal annars finna eftirfarandi „gullkorn“ sem rökstuðning gegn lágu skerð- ingarhlutfalli: „Með því að hvetja námsmenn of mikið til þess að afla sér tekna með launaðri vinnu væri verið að mismuna námsmönnum eft- ir því hversu auðvelt þeir ættu með að verða sér úti um vel launuð störf. Einnig hefði þetta fyrirkomulag í för með sér þá hættu að námsmenn stunduðu vinnu jafnhliða námi, sem að öllum líkindum kæmi niður á námsárangri.“ Forræðishyggjan sem þessi til- vitnun frá árinu 1989 endurspeglar segir í raun allt sem segja þarf um þá áherslubreytingu sem varð í mál- efnum LÍN við stjórnarskiptin árið 1991. Síðan þá hef ég ásamt félögum mínum í stjórn LÍN átt þátt í því að lækka umrætt skerðingarhlutfall úr 75% í 40% frá og með næsta skóla- ári. Með því að draga úr tekjutilliti erum við auðvitað hvorki að hvetja námsmenn til eins eða neins, né að stofna hagsmunum þeirra á ein- hvern hátt í hættu. Með minni tekju- tengingu drögum við úr tilbúinni hindrun og letjum menn síður en áð- ur um leið og við sköpum þeim aukið svigrúm til sjálfsbjargar. Það er von mín að stefna byggð á þessu viðhorfi fái áfram að ráða ríkjum í málefnum LÍN. Höfundur er alþingismaður og formaður stjórnar LÍN. átt, en í tengslum við hann var gefin út viljayfirlýsing þar sem segir að sjálfbær beitarnýting sé skilyrði fyrir þátttöku í gæða- stýrðri sauðfjárframleiðslu. Binding kolefnis í jarðvegi Það málefni sem hæst ber í um- hverfisumræðunni á alþjóðavett- vangi er vafalaust loftslagsbreyt- ingar af mannavöldum. Þjóðir þurfa að draga úr útstreymi kol- tvíoxíðs og annarra gróðurhúsa- lofttegunda út í andrúmsloftið, en það er ekki síður mikilvægt að binda kolefni aftur úr loftinu í gróðri og jarðvegi. í þeirri útfærslu á Kyoto-bókun- inni við loftslagssamning Samein- uðu þjóðanna, sem nú er verið að semja um á alþjóðavettvangi, er viðurkennt að skógrækt sé leið til bindingar kolefnis sem tekið verði tillit til í kolefnisbókhaldi viðkom- andi ríkis. Kolefni má hins vegar binda í öðrum gróðri en trjám og ekki síður í jarðvegi. íslendingar hafa barist fyrir því á vettvangi loftslagssamningsins að tekið verði tillit til landgræðslu jafnt sem skógræktar í Kyoto-bókuninni. A alþjóðlegum ráðherrafundi um kol- efnisbindingu í Perth í Ástralíu fyrir rúmum mánuði lagði ég áherslu á mikilvægi landgræðslu sem viðurkenndrar bindingarað- ferðar. Samningaviðræður um þetta efni eru flóknar og mörg ljón á veginum áður en fleiri bindingar- leiðir en skógrækt verða sam- þykktar. Þetta mál er fráleitt í höfn, en ég tel að það væri slys ef landgræðslu yrði hafnað sem við- urkenndri bindingarleið á aðildar- ríkjaþingi loftslagssamningsins í Haag í Hollandi í nóvember nk. Umhverfisdagur SÞ 5. júní Nú á mánudaginn, 5. júní, er Umhverfisdagur Sameinuðu þjóð- anna, en hann er að þessu sinni helgaður árþúsundamótunum og þeim verkefnum sem bíða okkar á nýrri öld. Það er verðugt verkefni fyrir framsýna jarðarbúa að stuðla að jarðvegsvernd. Með henni auk- um við möguleika okkar á að brauðfæða vaxandi fjölda járðar- búa og draga úr skaðlegum lofts- lagsbreytingum. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Baldur Bjartmarsson efstur í sumarbrids Fimmtudagskvöldið 25. maí var Howell-tvímenningur. Miðlungur var 156 og efstu pör urðu: Hjálmar S. Pálss. - Steinberg Ríkarðss. 183 Unnar A. Guðmundss. - Gróa Guðnad. 179 Gunnl. Sævarss. - Hermann Friðrikss. 171 Birkir Jónss. - Guðmundur Baldurss.165 Geirlaug Magnúsd. - Torfi Axelss. 162 Föstudagskvöldið 26. maí var fremur rólegt, enda margir að spila í vormóti íslensku bridslandsliðanna. 12 pör spiluðu Howell, miðlungur 165. Efstu pör: Jóhannes Guðmannss. - Unnar Guðm.s. 194 Baldur Bjartmarss. - Valdimar Sveinsso 190 Þóranna Pálsd. - Ragna Briem 185 Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss 182 Helgi Samúelss. - Eyþór Haukss 167 Baldur Bjartmarsson er orðinn efstur í bronsstigum í sumarbrids en staðan er nú þessi: Baldur Bjartmarsson 71 Gylfi Baldursson 68 Birkir Jónsson 64 Hjálmar S. Pálsson 60 Steinberg Ríkarðsson 58 Jón Viðar Jónmundsson 56 Um næstu helgi verður spilað alla dagana, líka laugardag, enda heimstvímenningur á dagskránni. Alltaf verður byrjað kl. 19:00 og er sveitakeppni að loknum föstu- dags- og laugardagstvímenning- num. Allir eru hvattir til að taka þátt í heimstvímenningnum, skráning fer fram í BSÍ (s. 587 9360) eða hjá Matthíasi (s. 864 6358). Hjálpað er til við myndun para, sé þess óskað. Alheimstvímenningurinn 2000 Alheimstvímenningur var spil- aður um víða veröld í gærkveldi og verður einnig á dagskrá í Þönglabakkanum í kvöld, 3. júní. í fyrsta sinn verða úrslit send beint á Netið, þannig að hægt verður að fylgjast með hvernig hver spilari hefur staðið sig bæði á landsvísu og heimsvísu. Allar upplýsingar er hægt að nálgast á www.worldsbridge.org en þar verða úrslit uppfærð á klukku- tíma fresti. Þegar búið er að spila alls stað- ar í heiminum u.þ.b. kl. 10 næsta morgun verða spilin ásamt um- sögn Erik Kokish birt á síðunni. Að þessu sinni er ekki fyrirfram- gefin skor heldur gerður raun- verulegur samanburður á hverju spili. SpHamennska hefst kl. 19.00 í Þönglabakkanum, þátttökugjald er kr. 1.000 á mann og fylgir bók með spilunumMiðnætursveita- keppni verður eftir spilamennsku. i i 3 1 Frábærar sumarvörur opið alla helgina. .. ■ ip i i i Höfundur er umhverfisráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.