Morgunblaðið - 03.06.2000, Side 68
LAUGARDAGUR 3. JUNI 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Er fimm daga deild nothæft
sjúkrahusurræði fyrir aldraða?
* “ Jit
Inniheldur 29 tegundir af
vítamínum, steinefnum og
Rautt Panax Ginseng.
APÓTEKIN
Upplýsingar í síma 567 3534.
Á undanförnum ár-
um hefur átt sér stað
mikil endurskipulagn-
ing og uppbygging í
öldrunarþjónustu
sjúkrahúsanna.
Landakot og Borgar-
spítali sameinuðu
öldrunarþjónustu sína
1995 og þáverandi
Landspítali og Sjúkra-
hús Reykjavíkur sam-
einuðu öldrunarsvið
sín 1997. Nú er rekið
eitt öfiugt öldrunar-
svið á Landspítala, há-
skólasjúkrahúsi á
Landakoti með sex
legudeildum, ásamt
dagspítala og móttökudeild. Sín
hvor bráðaöldrunarmatsdeildin er
síðan í bráðasjúkrahúsbyggingum
Landspítala, háskólasjúkrahúss
þ.e. í Fossvogi og við Hringbraut.
Á síðasta ári var sett á laggirnar
fimm daga öldrunarlækningadeild á
Landakoti til reynslu. Markmiðið
var að gera tilraun til að mæta sí-
vaxandi þörfum aldraðra sem
þyrftu sérstaklega á mati, ráðgerðri
meðferð og endurhæfingu að halda
svo þeir gætu búið áfram í heima-
húsum. Þessi hópur hafði nánast
ekki möguleika á slíku áður nema
bráðveikindi væru staðfest og kom-
ust þeir varla á öldrunarlækninga-
deild nema í framhaldi af innlögn á
bráðdeild sjúkrahúsanna. Á einu ári
komu á fimm daga öldrunarlækn-
ingadeild yfir 150 einstaklingar og
komu 2/3 þeirra beint úr heimahúsi
en hinir frá bráðadeildum sjúkra-
Anna Birna
Jensdóttir
LúðvíkH.
Gröndal
Atvinnurekendur!
Foreldrar! Ungmenni!
Nú er sumarvinnan hafin!
Hafið þið kynnt ykkur nýja reglu-
gerð um vinnu barna og unglinga?
Reglugerðin er sett til að tryggja
skynsamlega atvinnuþátttöku ungmenna og
koma í veg fyrir álagsmein og slys.
Reglugerðin kveður m.a. á um eftirfarandi:
• Störf, sem ungmenni mega vinna.
• Störf, sem eru of áhættusöm og ungmenni
mega ekki vinna.
• Persónuhlífar, sem nota skal við
mismunandi störf.
• Aldurstakmörk fyrir mismunandi störf.
• Reglur um vinnutíma og hvíldartíma.
• Skyldur atvinnurekenda.
Hægt er að sækja reglugerð um vinnu barna og
unglinga nr. 426/1999 á heimasíðu
Vinnueftirlitsins, www.ver.is
Vinnueftirlitið gefur fúslega nánari upplýsingar
og leiðbeiningar ef óskað er.
Tíí
VINNUEFTIRLITIÐ
Bildshöfða 16, 110 Reykjavík
Sími 550 4600 - Fax 550 4610
Netfang: vinnueftirlit@ver.is
húsanna. Þetta sama tímabil hafa
verið rannsökuð afdrif þessara ein-
staklinga og borin saman við afdrif
sjúklingahóps sem lagðist inn á sjö
daga öldrunarlækningadeild (þ.e.
þeir fóru ekki heim um helgar) á
Landakoti og komu þeir í 75% til-
vika frá bráðadeild.
Rannsóknin fól í sér mjög um-
fangsmikið mat á heilsufari og
hjúkrunarþörfum sjúklinganna.
Sömuleiðis voru könnuð viðhorf
sjúklinganna og aðstandenda þeirra
til öldrunarhjúkrunar og leitast var
við að kanna vísbendingar um gæði
umönnunar á deildunum tveim sem
og rekstrarlega útkomu.
Meðal þess sem í ljós kom í þess-
ari samanburðarrannsókn var að
yfir 60% sjúklinganna voru konur
og var meðalaldur um 80 ára á báð-
um deildunum. Stærsta vandamál
þessa sjúklingahóps var skert
hreyfifærni og sjálfsbjargargeta en
verulegur munur var þó á færnis-
skerðingunni, þ.e. þeir sem voru á
sjö daga deild þurftu mun meiri að-
stoð við athafnir daglegs lífs en þeir
sem voru á fimm daga deild. Áber-
andi var að bráðveikindi hrjáðu
sjúklingana á sjö daga deildinni,
þótt innlagnarástæða væri mat og
endurhæfing, sumir voru svo veikir
í innlögninni að þeir náðu ekki bata
og létust. Enn aðrir eru það lélegir
til heilsunnar að þeir bíða varan-
legrar vistunar á hjúkrunarheimili.
Sjúklingarnir á fimm daga deildinni
komust hins vegar heim til sín um
helgar í 94% tilvika, og virtist ekki
skipta máli hvort fólk bjó eitt eða
með öðrum. Ástæða þess að 6%
komust ekki heim um helgar eins og
áætlað var voru að ný veikindi
gerðu vart við sig. Mjög jákvætt
viðhorf aðstandenda og sjúklinga
var til starfseminnar hvort heldur
Oldrunarþjónusta
Veruleg forvörn felst í
þyíaðvinna með öldruð-
um, segja Anna Birna
Jensdóttir og Lúðvík
Gröndal, við að meta
heilsufar, endurhæfa
sjálfsbjargargetu og
auka hreyfífærni.
sem var á fimm daga deild eða sjö
daga deild. Töldu þeir að sjúklingar
væru í öruggum höndum hjúkrun-
arfræðinga og sjúkraliða og treysta
mætti þjónustunni. Hins vegar
þótti miður ónæði af hávaða frá um-
hverfinu s.s. frá starfsfólki og öðr-
um sjúklingum. Lítið er um sérbýli
og sjúkrastofur ýmist tveggja eða
þriggja manna og skýrir það ónæði
fyrst og fremst. Það er því ekki
mikil hvíld fólgin í því að dveljast á
sjúkrahúsi. Reksturinn á fimm
daga deildinni var mun hagkvæm-
ari, bæði í mannafla og rekstrarfé,
og var hann t.d. 37% ódýrari eða 15
milljónum króna lægri þegar litið er
til launakostnaðar hjúkrunarfræð-
inga og sjúkraliða á ársgrundvelli.
Sjúklingar á fimm daga deild þurftu
að jafnaði fimm hjúkrunarklukku-
stundir á sólarhring fimm daga vik-
unnar, en sjúklingar á sjö daga
deild þurftu sjö hjúkrunarklukku-
stundir á sólarhring sjö daga vik-
unnar. Ekki var teljandi munur á
launakostnaði sjúkraþjálfara, iðju-
þjálfa, félagsráðgjafa, sálfræðings
og lækna en þessir aðilar veita fyrst
og fremst þjónustu virka daga vik-
unnar hvort heldur um er að ræða
fimm daga eða sjö daga deild.
Það er ljóst að fimm daga öldrun-
arlækningadeild sinnir mikilvægu
starfi á afar hagkvæman hátt.
Veruleg forvörn felst í því að vinna
með öldruðum við að meta heilsu-
far, endurhæfa sjálfbjargargetu og
auka hreyfifærni. Þannig má forða
mörgum frá ótímabæru heilsuleysi
og sporna gegn stofnanavistun. Sjö
daga öldrunarlækningadeild sinnir
hins vegar bæði bráðveiku fólki og
þeim sem þarfnast lengri og flókn-
ari endurhæfingar. Þessar mismun-
andi deildir anna þó hvergi nærri
eftirspurn og er biðlisti álíka langur
á þær báðar. ítarlegar niðurstöður
úr þessari rannsókn verða kynntar
á 15. norrænu öldrunarfræðaráð-
stefnunni 4.-7. júní nk. í Reykjavík.
Anim Birna er hjúkrunar-
framkvæmdastjóri.
Lúðvík er hjúkrunard eildars tjóri
Landspítala, háskólasjúkrahúss
Landakoti.
J afn vægisstj órnun og
brot hjá öldruðum
DETTNI og brot
sem stöðugt verða tíð-
ari meðal aldraðs fólks
er fjárhagsleg byrði á
heilbrigðiskerfi hins
vestræna heims. Eng-
in ein orsök dettni hef-
ur fundist þótt léleg
jafnvægisstjórnun sé
talin eiga þar þátt.
J afnvægisstj ór nun
er ferli samhæfra
hreyfinga sem byggist
á nægjanlegum upp-
lýsingum frá jafnvæg-
iskerfi í innra eyra,
augum, vöðvum, lið-
umbúnaði og il, ásamt
úrvinnslu boðanna í
miðtaugakerfinu. Hrörnunarbreyt-
ingar tengdar auknum aldri hafa
fundist í öllum þessum kerfum.
Jafnvægiskerfi innra eyra stjórn-
ar hreyfingum augna. Auk þess
greinir það stöðu og hreyfingar
höfuðs og sendir boð til stöðuvöðva
líkamans til að bregðast við óvæntri
jafnvægisröskun svo sem því að
hrasa eða skrika fótur. I rannsókn-
um mínum við háskólann í Lundi,
Brandtex fatnaður
Ella Kolbrún
Kristinsdóttir
Svíþjóð, kom fram að
minni starfsemi jafn-
vægiskerfis í öðru eyr-
anu héldur en hinu var
algeng meðal heil-
brigðra aldraðra ein-
staklinga (37%). Tíðni
slíks misræmis var
miklu hærri meðal ein-
staklinga sem höfðu
dottið og mjaðmar-
brotnað (68%) eða
úlnliðsbrotnað (76%).
Margir þeirra sem
höfðu dottið og
mjaðmar- eða úlnliðs-
brotnað höfðu áður
dottið og brotnað. Slík
fyrri brot voru aðal-
lega meðal þeirra sem höfðu mis-
ræmi í starfsemi jafnvægiskerfis
innra eyra. Misræmið brenglar
boðin frá jafnvægiskerfinu og er þá
erfitt að bregðast rétt við og verj-
ast falli sem oft var í átt að eyra
með minnkaða starfsemi.
Minnkað skyn í fótleggjum er
fylgifískur öldrunar, þó ekki aldri í
árum talið. Aldraðir með gott skyn
voru álíka stöðugir og yngri ein-
Oldrun
Nauðsynlegt er að fylgj-
ast með skyni í fótleggj-
um aldraðra, segir Ella
Kolbrún Kristinsdóttír,
og starfsemi jafnvægis-
kerfís innra eyra.
staklingar, en hjá þeim sem höfðu
minnkað skyn var jafnvægið skert.
Aldraðir eiga jafnframt erfiðara
með að nýta sjón til að bæta jafn-
vægi.
Nauðsynlegt er að fylgjast með
skyni í fótleggjum aldraða og starf-
semi jafnvægiskerfis innra eyra.
Hvoru tveggja mætti reyna að
bæta með þjálfun og ef til vill
minnka þannig líkur á falli og brot-
Höfundur erdósent í sjúkraþjálfun
við Háskóla Islands.
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
^öökaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónleikar — sýningar—kynningar og fl. og fl. og fl.
j fcröpildl = «©8§tasðf@[ldL
..og ýmsir fylgihlutir
Ekki treysta á veðrið þegar
skipuleggja á eftirminnilegan viðburö -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald
á staðinn - það marg borgar sig.
T|öld af öllum stœrðum frá 20 - 700 m2
Einnig: Borð, stólar, tialdgólf
og tjalahitarar.
QeQgæ sDtíto
..með skátum á heimavelli
sími 562 1390 • fax 552 6377 • bls@scout.is
Nýbýlavegi 12, sími 5544433