Morgunblaðið - 03.06.2000, Síða 76

Morgunblaðið - 03.06.2000, Síða 76
76 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Athugasemd frá sam- gönguráðuneytinu ■ Tilskipanir um öryggi í farþega- ferjum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá sam- gönguráðuneytinu vegna fréttar í Ríkisútvarpinu: „Fréttin fjallaði um stöðu Is- lands við að fullgilda reglur sem eiga að gilda á evrópska efnahags- svæðinu ojg stjórnvöld hafa þegar fallist á. I fréttinni kom fram að íslendingar standi sig verr en áður að fullgilda þær reglur. Meðal annars var vikið að því að tilskip- anir um öryggi um borð í farþega- ferjum og skráningu farþega á siglingaleiðum sem eru lengri en 30 sjómílur hafi ekki verið af- greiddar af íslands hálfu. Tilskipun ráðsins 98/18 frá 17. mars 1998 um öryggi farþegaskipa hefur að geyma ítarlegar reglur um smíði og búnað farþegaskipa. Samgönguráðuneytið hefur lokið öllum undirbúningi að fullgildingu tilskipunarinnar, en hins vegar hefur samgönguráðuneytið ekki verið í aðstöðu til að birta efni til- skipunarinnar þar sem þýðing hennar á íslensku liggur ekki fyr- ir, en tilskipunin er mjög umfangs- mikil og tæknilegs eðlis. Tilskipun ráðsins 98/41/EB frá 18. júní 1998 um skráningu farþega á farþega- skipum sem sigla til eða frá höfn- um aðildarríkja Evrópusam- bandsins. Tilgangur hennar er að tryggja öryggi og björgun farþega og áhafnar á farþegaskipum sem sigla til eða frá höfnum í aðildarríkjum í Evrópusambandinu og tryggja að leit og björgun fari fram á sem skilvirkastan hátt. Tilskipunin kveður á um að áður en farþega- skip leggur úr höfn, óháð stærð skips og farsviði sem og lengd siglingar skipsins, skuli fara fram kerfisbundin talning farþega og niðurstöður talningar skuli hafa borist til skipstjóra fyrir brottför skips, sem og til sérstaks tilnefnds starfsmanns í landi. Ef lengra en 20 sjómílur er til hafnarinnar sem sigla á til skal skrá nafn farþega, kyn farþega og hvort um er að ræða fullorðinn eða barn og hvort farþegi þarfnast sérstakrar aðstoðar í neyðartilfell- um. Samgönguráðuneytið hefur lokið öllum undirbúningi að fullgildingu tilskipunarinnar, en hins vegar hefur samgönguráðuneytið ekki verið í aðstöðu til að birta efni til- skipunarinnar þar sem þýðing hennar á íslensku hefur ekki legið fyrir.“ Hátíð hafsins við Reykja- víkurhöfn HÁTÍÐ hafsins verður haldin hátíð- leg annað árið í röð við Reykjavík- urhöfn nú um helgina, 3. og 4. júní. Laugardagurinn er tileinkaður hafnardeginum og sjómannadagur- inn verður haldinn hátíðlegur á morgun, sunnudag. Fjölbreytt há- tíðardagskrá verður báða dagana á Miðbakka í Gömlu höfninni sem er sniðin að þörfum allrar fjölskyld- unnar, segir í fréttatilkynningu. Heiðursgestur hátíðarinnar er Jör- gen Niclasen, sjávarútvegsráðherra Færeyja, sem flytur hátíðarræðu á sjómannadaginn. Hátíð hafsins er haldin til að vekja athygli á gildi sjómennsku, sjávarútvegs, hafnarstarfsemi höf- uðborgarinnar og hinum sterku tengslum hvers íslendings við hafið og sjávarfang. Aðstandendur hátíð- arinnar eru sjómannadagsráð, Reykjavíkurborg, Reykjavíkurhöfn og LÍÚ - Útvegsmannafélag Reykjavíkur. Fjölbreytt dagskrá Dagskráin hefst kl. 10 í dag, laugardaginn 3. júní á Miðbakka m.a. með dorgveiðikeppni bama og nýja hafrannsóknaskipið Árni Frið- riksson veður til sýnis. Fyrir hádegi verður Hátíð hafsins hringd inn á Miðbakka með skipsklukkunni úr nýsköpunartogaranum Ingólfi Arn- arsyni og öll skip í Gömlu höfninni flauta hafnardaginn inn. Ymislegt skemmtilegt verður um að vera all- an daginn og má þar nefna íslan- dsmót í handflökun, björgunar- tækjasýningu björgunarsveitarinnar Ársæls, sigl- ingakeppni Brokeyjar og skemmt- ilsiglingu fjölskyldunnar með skóla- skipinu Sæbjörgu. Klukkan 14:30 hefst skemmtidag- skrá á hátíðarpalli þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi Ship of Fools eða skip fáránleikans er mjög sérstakt skip en um borð eru 11 fjöllistamenn sem ferðast um heimsins höf á gömlu hollensku strandferðaskipi með skemmtisýn- ingar. Skipið hefur heimsótt yfir 100 bæi og borgir í Evrópu. Sýn- ingin sem boðin er á Hátíð hafsins er frísklegur kabarett þar sem siglt er í gegnum mannkynsöguna á einni klukkustund. Sýningar verða báða dagana kl 15 og 20. Listahópurinn, sem er al- þjóðlegur og er frá Amsterdam, hefur getið sér gott orð víða um Evrópu fyrir líflegar og hressandi sýningar sem fara fram við skips- hlið. Skip fáranleikans kemur hing- að í samvinnu við aðstandendur Há- tíðar hafsins og Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu árið 2000. Um kvöldið verður hið árlega sjó- mannadagshóf á Broadway, meðal skemmtiatriða er stórsýningin Bee Gees ásamt Hljómsveit Gunnars Pórðarsonar. Bryggjuball Nausts- ins verður á Miðbakka frá kl 21-24 þar sem Geirmundur Valtýsson ásamt hljómsveit heldur uppi sjó- mannasveiflu. Litríkur sjómannadagur Sjómannadagurinn hefst í fyrra- málið, sunnudaginn 4. júní, með því að fánar verða dregnir að húni í öll- um skipum í höfninni. Klukkan 10 hefst minningarathöfn við minning- aröldu Sjómannadagsráðs í Foss- vogskirkjugarði þar sem biskup ís- lands, hr. Karl Sigurbjömsson, minnist látinna sjómanna. Klukkan 11 hefst sjómannaguðsþjónusta í Dómkirkjunni. Formleg hátíðarfhöld hefjast kl 14 á Miðbakka og meðal ræðu- manna eru heiðursgestur hátíðar- innar, Jörgen Niclasen, sjávarút- vegsráðherra Færeyja, og Ámi M. Mathiesensjárvarútvegsráðherra. Fjölbreytt fjölskyldudagskrá hefst kl. 15 Auk skemmtiatriða kynnir fjöldi stofnana, félaga, skóla og fyr- irtækja starfsemi sína í sýningar- tjöldum á hafnarsvæðinu báða dag- ana. Ýmsar sýningar er tengjast sjó- mannslífi og hafinu em í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, í Þjóð- arbókhlöðunni, í Sjóminja- og smiðjumunasafni Jósafats Hinriks- sonar í Skútuvogi 4, Sjóminjasafni Islands, í Sjóminjasafni Islands í Hafnarfirði og gamla Aðalbjörgin er til sýnis á Miðbakka. Kaffísala á Sjó- mannadaginn SLYSAVARNADEILD kvenna í Reykjavík er 70 ára á þessu ári og var deildin stofnuð af dugmiklum konum sem hafa sýnt það á liðnum ámm að þeirra var virkilega þörf og beindist starfsemi deildarinnar strax í upphafi að öflun fjár til slysavarna og björgunarstarfa. Ein aðalfjáröflun Slysavarna- kvenna í Reykjavík hefur á liðnum ámm verið kaffisala á sjómanna- daginn þá hafa félagskonur bakað og gefið kökur. Seinustu tvö árin hafa Slysa- varnakonur verið með kaffisölu á þrem stöðum og gefist vel. Kaffi og kökuhlaðborð hefur verið í Höllubúð Sóltúni 20 og em þar miklar og góðar kræsingar á borð- um sem félagskonur hafa útbúið. Sæbjörgin er á sjómannadaginn í siglingum og þar gefst almenn- ingi tækifæri á að sigla um sundin blá og kaupa gott kaffi og meðlæti Á hafnarbakka eru sölutjöld og þar eru slysavarnakonur með kaffi og nýbakaðar vöfflur til sölu ásamt góðgæti fyrir þá yngstu. Sú nýbreytni verður í ár að á Hafnardaginn sem er nk. Laugar- dag verða kvennadeildarkonur með kaffi og heitar vöfflur til sölu í Sæbjörginni. Það er von okkar að Reykvíking- ar og aðrir landsmenn líti til okkar slysavarnakvenna næstkomandi sjómannadag 4. Júní árið 2000. Utivistardag- skrá hafín í Viðey REGLUBUNDIN útivistardag- skrá sumarsins hefst í dag í Viðey og stendur fram í september. Fyrsta gönguferðin verður í dag kl. 14.15 þegar „tvö-báturinn“ er kominn. I þetta skipti verður gengið um suðaustureyna. Ferðin byrjar við kirkjuna og gengið sem leið liggur austur á Sundbakka, þar verður Tankurinn skoðaður, félagsheimili Viðeyinga, rústirnar af „Stöðinni“, þorpinu sem þarna var á fyrri hluta aldarinnar, geng- ið með varúð um æðarvarpið yfir á Þórsnes, um Kríusand og upp í Kvennagönguhóla, en þaðan aftur heim á staðinn. Gangan tekur um tvo tlma. Menn ylja sálinni við fróðleik og gamanmál meðan notið er þeirrar yndislegu náttúru, sem þarna er, segir í fréttatilkynningu. Á sunnudag verður staðarskoð- un kl. 14.15 og tekur um klukku- tíma. Hún er öllum auðveld, engin erfið ganga, en Viðeyjarstofa, kirkjan og umhverfi þeirra ræki- lega skoðað og reynt að miðla bæði sögu og skemmtun. Á þriðjudagskvöld verður ganga um sömu slóðir. Þetta eru rað- göngur. Þeir, sem koma fimm ferðir í röð, sjá allt það helsta í eynni. Sumaráætlun Viðeyjarferjunnar C Fðtakynning Helgi Benediktsson, fjallaleiösögumaður, sýnir ngju línuna frá CINTAMANI og leiðbeinir um val á fatnaði í JlSUr íslenskri náttúru |) Kex frá Kexverksmiðjunni Ferðakgnningar Ferðafélag íslands kgnnir ferðaáætlun FÍ f sumar FJALLALEIÐSÖGUMENN kgnna ferðir fgrirtækisins og sgna mgndir frá fgrri ferðalögum «■ Gönguskó kgnning SKÓSTOFAN DUNHAGA Lárus Gunnsteinsson, skósmiður, gefur innsgn f uppbgggingu og notagildi gönguskóbúnaðar ■oAgj.maMJ TŒZETA $'3Cm0fl Jmm 11 iL . UÆA * m BJT • |TAlllllfc oONOUtKO« irAL«m oöNOumo* Mgndasýning frá NEPAL Glaöningur meö gjaldeyrinum Ert þú á leiðinni í frí? Ef þú kaupir gjaldeyri hjá Islandsbanka fyrir 30.000 krónur eða meira, eignastu mjúkt og litríkt baðhandklæöi! Islandsbiinki er hluti af Íslandsbanka-EBA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.