Morgunblaðið - 17.06.2000, Qupperneq 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000
\>
Framtíðarstarf
Sérfræðingur
hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar
Sérfræðingur - lausaf járstýring
SPH Fyrirtæki og fjárfestar, eitt af framlínusviðum Sparisjóðsins auglýsir
eftir viðskiptafræðingi með sérþekkingu á sviði fjármála til starfa við
lausafjárstýringu. Starfið felur í sér stýringu fjárflæðis, skammtíma-
lántöku og lánveitingu, viðskipti á millibankamarkaði, gerð framvirkra
samninga og afleiðuviðskipti. Leitað er að viðskipafræðingi eða
starfsmanni með sambærilega menntun. Tveggja ára starfsreynsla af
fjármála- eða verðbréfamarkaði æskileg. Viðkomandi þarf að geta unnið
sjálfstætt og eiga auðvelt með mannleg samskipti. Starfsstöð er í
Reykjavík.
SPH Fyrirtæki og fjárfestar veitir fyrirtækjum, stofnanafjárfestum og
einstaklingum alhliða f jármálaþjónustu. Þar fer einnig fram fjárstýring
fyrir SPH og ýmis sérhæfð þjónusta.
Upplýsingar veitir Magnús Ægir Magnússon forstöðumaður SPH
Fyrirtækja og f járfesta.
Umsóknum skal skila til starfsmannahalds Sparisjóðs Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-io, 220 Hafnarfirði. Umsóknarfrestur er til 10. júlí nk.
Sparisjóður Hafnarfjarðar er
vaxandi þekkingarfyrirtæki
þar sem starfa rúmlega
hundrað manns.
Sparisjóðurinn iítur á mann-
auðinn sem mikilvægustu
auðlind fyrirtækisins og
leggur mikla áherslu á að
bjóða starfsfólki sínu
hvetjandi starfsumhverfi
og tækifæri til að þroskast
í starfi.
SPARISJÓÐUR
HAFNARFJARÐAR
m
t®
M | m '
Apótekið opnaði fýrst á
Smiðjuvegi árið 1996,
sem brautryðjandi að
lægra lyfjaverði.
I dag eru Apótekin 10.
Markmið Apóteksins eru
lipur þjónusta, lægra
lyfjaverð og góðar
staðsetningar.Allt í þágu
viðskiptavina. í Apótekinu
er mikið úrval vandaðra
vara á góðu verði, er
tengjast heilsu og útliti.
Vandað vöruúrval krefst
fagþekkingar. Við gerum
kröfur til starfsfólks
okkar um faglega
þekkingu og að það veiti
viðskiptavinum
fyrirmyndar þjónustu.
Starfsfólk óskast
í framsækið fyrirtæki:
Apótekið Smáratorgi
Lyfjatækna og starfsfólk í lyfjaafgreiðslu - vaktavinna.
Starfsfólk í afgreiðslu - vaktavinna.
Apótekið Suðurströnd
Lyfjafræðing í fullt starf.
Lyfjatækni, 50 - 100% staða.
Starfsmann í afgreiðslu, 50 - 100% staða.
Apótekið Smiðjuvegi
Starfsmann I afgreiðslu - hlutastarf.
Apótekið Spönginni
Lyfjafræðing í afleysingar frá I .september,
í u.þ.b. 6 mánuði.
Hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og
fagmennska eru nauðsynlegir eiginleikar öllum þeim
sem starfa hjá Apótekinu.
Umsóknir þurfa að berast til Morgunblaðsins
merkt Apótekið fyrir 30.júní nk.
Aðstoð á
tannlæknastofu
laus er staða aðstoðarmanns á tannlæknastofu
í Kópavogi frá og með 1. ágúst. Um er að ræða
80—90% stöðugildi. Umsóknir sendist Morgun-
blaðinu með upplýsingum um menntun og
Ufyrri störf fyrir 26. júní.
Móttökuritari
Sjúkraþjálfunarstöð miðsvæðis í Reykjavík
óskar eftir að ráða móttökuritara sem fyrst.
Starfið felst m.a. í móttöku viðskiptavina og
símavörslu. Möguleiki á hlutastarfi.
Umsóknir berist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 26. júní merktar: „A — 9784".
Nýherji leitar öflugra einstaklinga af báðum kynjum til
að manna Þjónustuver sitt. Þjónustuverið hefur það
hlutverk að tryggja einfalt aðgengi viðskiptavina að
víðtækri þjónustu Nýherja innan upplýsingatækni. Dagleg
störf felast í miklum samskiptum við viðskiptavini, góðum
tengslum við starfsmenn Nýherja, þjónustueftirliti og
upplýsingamiðlun. Einnig þarf viðkomandi að vera virkur
þátttakandi í mótun og innleiðingu þjónustuferlis Nýherja.
Viðkomandi þarf að hafa mikla þjónustulund, eiga auðvelt
með mannleg samskipti og gott með að tileinka sér
tölvunotkun.
Sími EíAQ 7777
þjónustuvers: JU7 # # / #
Netfang ...
þjonustuvers: ver@nyhei*ji.is
} v*. r. Sr r V % i í y,- r " í flr~ ,C r % : V\ '.* v r t- fvx 4 '•
r' * •• ;
ry. >.? v *•C.ú.v'.í, ,
. " t • • ' • *./ í** .:. •- >
>■■** V'ú-C-Vff-K ' »> '•>.:■* .»,* f - V v->VV'* • t' " •< VvV
/ ■■ :< ■ •- > • •'-■ •■:}",l.r,
V" íí •■_■;.'. .. ■ ■■ ■■ ■:■. : ■ ":■’■■:
•' '• '■• •. //«• 'ft *[■ ' l - :’■ : ■
Borgartún 37
105 Reykjavík
Sími: 569 7700
www.nyherji.is
NÝHERil
EFTIRLITSMENN
AKUREYRI EÐA
SAUÐÁRKRÓKI
Tvær stöður eftiriitsmanna hjá framkvæmdadeild
Vegagerðarinnar með aðsetri á Akureyri eða
Sauðárkróki eru lausar til umsóknar. Laun skv.
kjarasamningi SFR.
Starfssvið:
• Verkefni felast í upplýsingaöflun á ástandi
vega og skráningu gagna í gagnagrunn.
• Vinna við gæðaeftirlit í sumar og vetrar-
þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Iðnmenntun, stúdentspróf eða sambærileg
menntun.
• Æskileg reynsla af tölvunotkun og þekking
á vegagerð eða verklegum framkvæmdum.
1 • Góðir samstarfshæfileikar og sjálfstæði í
I vinnubrögðum.
-o
| Nánari upplýsingar veita Jón Birgir Guðmunds-
.! son í síma 461-4440 og Magnús Haraldsson
| í síma 533-1800 frá kl. 9-12.
§ Vinsamlegast sendið umsóknir til
s‘ Ráðgarðs á Akureyri eða í Reykjavík
| fyrir 26. júní n.k. merktar:
I a.
« „Vegagerðin - framkvæmdadeild“
'<íy/i
V
VEGAGERÐIN