Morgunblaðið - 24.08.2000, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
Það var rigningarlegt um að litast í miðborg Reykjavíkur í gær en sennilega geta ferðamennimir ekki komið við regnhlífunum
sinum meðan lægðin gengur yfír með hvössum vindi í dag.
Fyrsta haustlægðin komin
BÚIST var við fyrstu haustlægðinni upp að
landinu í nótt. Veðurspáin gerði ráð fyrir
hvössum vindi suðvestanlands enda ber lægðin
í sér leifar af fellibyl og hitabeltisstormi. Að
sögn Haralds Eiríkssonar, veðurfræðings á
spádeild Veðurstofu Islands, var lægðin dottin
niður fyrir fellibylsstyrk tveimur dögum áður
en hún kom hingað en var talin hitabeltis-
stormur og rann saman við lægð, sem var að
koma upp að landinu.
Samkvæmt veðurspánni var gert ráð fyrir að
hvessa færi með morgninum og sagði Haraldur
að vindur gæti náð 18-23 metrum á sekúndu,
8-9 vindstigum úr suðaustri, um sexleytið í
morgun. Síðan er gert ráð fyrir nokkuð stífum
vindi, um 15 metrum á sekúndu, fram eftir
degi. Mestum vindi var spáð suðvestanlands.
Haraldur sagði gert ráð fyrir að það rigndi
hraustlega meðan lægðin fer yfir og talsverð
hlýindi ættu að fylgja lægðinni með allt að 20
stiga hita norðaustanlands. Seinni part dagsins
í dag er hins vegar gert ráð fyrir að hlýja
veðrið verði gengið yfir og farið verði að kólna
niður í um 10 gráður vestanlands.
Tölvusamskipti auðvelda starfsemi Alþingis og utanríkisráðuneytis
Fjarfundabúnaður hefur
lítið verið notaður
FERÐUM sveitarstjórnarmanna
innanlands hefur fækkað nokkuð
með tilkomu tölvusamskipta og
fjarfundabúnaðar að sögn nokk-
urra forráðamanna sveitarfélaga í
Morgunblaðinu fyrr í vikunni.
Tölvusamskipti hafa einnig auð-
Stolið
skart
LÖGREGLAN í Reylgavík hefur
lagt hald á talsvert af skartgripum,
sem talið er að rúmenskur maður,
sem hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðahald til 8. september,
hafi stolið í innbrotum í skartgripa-
verslanir á höfuðborgarsvæðinu
undanfamar vikur. Myndin sýnir
þann hluta þýfisins sem lögreglan
kom höndum yfir í póstsendingu
sem talið er að maðurinn hafi ætlað
að senda til Rúmeníu.
veldað starfsemi utanríkisráðu-
neytisins og Alþingis en fjarfunda-
búnaður hefur ekki verið nýttur
svo nokkru nemi.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
ráðuneytisstjóri utanríkisráðun-
eytisins, segir að tölvusamskipti
hafi heldur dregið úr þeirri aukn-
ingu sem ella hefði orðið á ferða-
lögum starfsmanna. Ferðakostnað-
ur ráðuneytisins fari þó vaxandi.
„Við tökum þátt í geysimiklu al-
þjóðlegu samstarfi sem eykst ár
frá ári,“ sagði Sverrir. Möguleikar
til að draga úr ferðakostnaði eru
því takmarkaðir. Aðspurður um
möguleika á notkun fjarfundabún-
aðar segir hann að það sé afar
sjaldgæft að hægt sé að taka þátt í
alþjóðlegum fundum með fjar-
fundabúnaði. Þegar fulltrúar frá
mörgum þjóðum taki þátt í slíkum
fundum sé erfitt að koma því við.
Nú er verið að undirbúa upp-
setningu fjarfundabúnaðar í ráðu-
neytinu. Sá búnaður mun verða
nýttur til fundahalda á milli starfs-
manna utanríkisráðuneytisins og
sendiráðs íslands í Brussel, sem
fer með fyrirsvar gagnvart ESB.
Við munum meta reynsluna af
því með það í huga hvort þessi
búnaður, sem er tiltölulega dýr,
gagnist starfsemi ráðuneytisins
gagnvart öðrum sendiráðum og
fastanefndum," segir Sverrir.
Hjá Alþingi fengust þær upp-
lýsingar að gerðar hafi verið til-
raunir með fjarfundabúnað en þó í
litlum mæli. Helgi Bernódusson,
aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis,
segir það nokkuð mikla fyrirhöfn
að halda slíka fundi. „Það þarf auð-
vitað bæði viðbúnað hér og á þeim
stað þar sem fundir fara fram,“
segir Helgi. Einhverjar ferðir hafi
þó sparast. Hann segir að skrif-
stofa Alþingis muni fylgjast vel
með tækniþróun á þessu sviði.
Hafdís Olafsdóttir, forstöðumað-
ur nefndarsviðs Alþingis, segir
þingnefndir ekki nýta sér fjar-
fundabúnað svo nokkru nemi. Þó
hafi verið gerðar tilraunir með
slíka fundi, sem hafi tekist ágæt-
lega. Hafdís segir að tölvupóstur
spari starfsmönnum jafnt sem
þingmönnum mikinn tíma og fyrir-
höfn en erfitt sé að fullyrða nokk-
uð um hvort tæknin hafi dregið úr
ferðakostnaði Alþingis.
Campylobakter í
vatnsbólum á Patreks-
fírði og Bfldudal
Fiskvinnsl-
um lokað -
unnið að
úrbótum
FISKVINNSLUM á Patreksfirði
og Bíldudal hefur verið lokað vegna
campylobakter-sýkingar í vatnsból-
um byggðarlaganna. Um er að
ræða fremur vægt afbrigði bakter-
íunnar, sem talið er að borist hafi í
vatnsbólin með fuglum.
Að sögn Jóns Gunnars Stefáns-
sonar, bæjarstjóra Vesturbyggðar,
er verið að gera ráðstafanir til að
finna og einangra meinsemdina svo
finna megi leiðir til að miðla heil-
næmu og hollu vatni til neytend-
anna. Sýni var tekið úr vatnsbólun-
um á þriðjudag og liggur niðurstaða
fyrir á morgun, föstudag.
„Okkur þykir miður að þetta
skuli hafa komið hér upp og við höf-
um þegar giápið til aðgerða sem
gætu orðið til að við losnum við
þessa sýkingu," segir bæjarstjór-
inn.
Eldri lagnir gætu
borið bakteríuna
„Öðru vatnsbóli Bíldudals var
lokað strax á þriðjudag en það þótti
líklegi-a til að valda menguninni.
Ekki er eins skýrt hvað veldur
menguninni á Patreksfirði. Við höf-
um þó lokað fyrir vissar aðveituæð-
ar. Eins eru eldri leggir sem gætu
borið bakteríuna og við erum að
kanna hvort ekki megi aftengja þá.
Einnig er verið að undirbúa fram-
kvæmdir sem kæmu varanlega í
veg fyrir sýkingu, svo sem geislun á
vatninu, en það tekur töluverðan
tíma að koma slíkum búnaði fyrir.
Nýtt sýni var síðan tekið úr vatn-
inu í gær en niðurstöður úr því
liggja fyrir á mánudag. Við búum
því við óvissuástand fram að því,“
segir Jón Gunnar.
■ Fiskvinnslum lokað/26
Kvartað til
Tölvunefnd-
ar vegna
golfkorta
UM þessar mundir eru á
sjöunda þúsund manns að fá
svokallað golfkort óumbeðið en
það er fullgilt greiðslukort. Það
eru meðlimir í golfklúbbum
landsins sem fá kortið sent
heim í pósti.
Tölvunefnd hefur þegar
fengið nokkrar kvartanir sím-
leiðis sem m.a. lúta að því hvort
leyfilegt sé að gefa út kredit-
kort á einstaklinga án sam-
þykkis þeiiTa.
■ Á sjöunda þúsund/24
Morgunblaðið/Ásdís
| Sérblöð í dag
33teii
Átján íþróttamenn fara
til Sydney/Cl
Morten Olsen hefur valið hópinn
sem mætir íslandi / C1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is