Morgunblaðið - 24.08.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Og að endingu skal
sagt hafa...
NÝVERIÐ var auglýst, að ef fólk
kæmi til starfa við vinnu á peninga-
kössum matvöruverslunar yrðu
byrjunarlaun þeirra
töluvert hærri en hjá
reyndum starfsmönn-
um geðdeilda. Ég tek
fram og segi það með
fullri virðingu öllum
þeim sem vinna á
kassa í matvöruversl-
unum að ég tel laun
þeirra á engan hátt
vera of há, ef eitthvað,
mættu þau vera hærri.
En ef sett á vogar-
skálina, getur það
virkilega verið að við
metum dauðan pen-
ingakassa hærra en lif-
andi einstakling. Eru
störf heilbrigðisstarfs-
manna svo lítils metin
að við kærum okkur ekki um að
' -----'-«^*v»nr»rH laiin?
borga þeim maiiiibæmaiiw*
Þegar talað hefur verið um ófag-
lærða starfsmenn á geðdeildum
undanfarið virðist það hafa gleymst
að í flest öllum tilvikum er um að
ræða háskólamenntaða starfsmenn
sem hafa valið að vinna á geðdeild-
um vegna áhuga og umhyggju fyrir
skjólstæðingum spítalans.
Starfið virðist aldrei hafa verið
metið til fjár sem er reyndar alveg
óskiljanlegt þegar hugsað er um
eðli starfsins. Starfsmenn lifa í
hringiðu breyskleikans og þarf
sterkar persónugerðir til að standa
með höfuðið klárt og sinna aðhlynn-
ingu fárveikra einstaklinga.
Sjálfsagt er ein af ástæðunum
fyrir því að geðdeildir landsins hafa
starfað með þeirri fagmennsku sem
hún gerir er samvinna ólíkra hópa.
Olík sjónarmið birtast oft á tíðum
sem ekki hefðu komið fram ef ekki
væri um svo ólíka hópa um að ræða.
Olíkir skjólstæðingar leggjast inn á
geðdeildir og einungis ætti það að
vera rökrétt að ólíkir einstaklingar
vinni á deildum til að geta sinnt
þeim sem þar eru.
Læknar eru þeir einu sem ættu
að stjórna meðferð sjúklings.
Greinarhöfundi flnnst það vera
frekar óskiljanlegt að þetta atriði
skuli vera spurningaratriði hjá ein-
hverjum. Hver og einn ætti að geta
skilið að ófaglærðir heilbrigðis-
starfsmenn vinna á öðrum vett-
vangi. Ófaglærðir starfa undir
hjúkrunarsviðinu og vinna störf sín
þar samhliða sjúkraliðum undir
stjórn hjúkrunarfræðings.
Allar starfstéttir geðdeilda þjóna
mismunandi tilgangi. Allar eru þær
mikilvægar á sinn hátt og krefjast
mikillar færni af þeim einstakling-
um sem velja sér þennan starfsvett-
vang.
Guðmundur
Sævar Sævarsson
Óminni virðist hins vegar þjaka
þá sem hafa með launamál starfs-
manna að gera, sér í lagi það stétt-
arfélag sem stendur í
forsvari fyrir starík-
menn geðdeilda. Á
meðan kjör annarra
virðast hækka eru
hlægilegir samningar
gerðir og samþykktir.
Eina heilbrigða og
hugsanlega skýringin
er sú að starfsmenn
séu hreinlega að gef-
ast upp.
Starfsmenn stoppa
stutt og hafa ekki þrek
og/eða áhuga til að
berjast fyrir betri
kjörum. Stefnt er á
betri slóðir og margir
eru þeir peningakass-
arnir sem hægt er að
hlúa að í þessu landi þar sem hver
matvöruverslunin á fætur annarri
sprettur upp. Gott iyfir Vll S"
segja, ef það er vettvangur sem fólk
vill starfa á.
Við má bæta að mikil manna-
skipti á starfsfólki geta verið mjög
erfið fyrir einstakling sem þjáist af
geðrænum sjúkdómi.
Geðsjúkir
Skilaboðin eru skýr,
segir Guðmundur
Sævar Sævarsson. Við
metum okkur hærri til
launa ef við höfum í
höndunum dauð verð-
mæti frekar en lifandi
ástvini okkar.
Öruggt umhverfí er oft á tíðum
það besta sem einstaklingi getur
hlotnast þegar á bjátar og hann
þarf að leggjast inn á geðdeild. Um-
hverfi þar sem hann þekkir og
treystir starfsmönnum þess. Þetta
umhverfi er töluvert erfiðara að
mynda með nýjum starfsmönnum
sem endast einungis fram að fyrsta
launaseðli.
Komið hefur fram að ofbeldi eigi
sér stað á geðdeildum. Auðvitað á
ofbeldi sér stað á geðdeildum, að
neita því væri argasta firra og hálf-
hlægiiegt að halda öðru fram. Á
ekki ofbeldi sér stað þegar okkur
líður sem verst. Það sem er hins
vegar rangt að mínu mati er að
tengja saman ofbeldi og geðsjúk-
dóma.
Geðsjúkur einstaklingur er ekki
líklegri til að efna til ofbeldis frekar
en einstaklingur heilbrigður á geði
og í mörgum tilvikum minni líkur.
Sálarangist manna getur orðið
slæm og oft á tíðum í slíku ástandi
er skjólstæðingurinn ekki í standi
til að vera einn, hvað þá að hann fari
að berja þá frá sér sem þar eru. En
umhverfi geðdeilda er lítið og fár-
sjúkt fólk leggst þar inn, árekstrar
eiga sér stað þegar einstaklingar
eru svo veikir að þeir vita ekki hvað
þeir eru að gera, sjá ógn sem við
hvorki sjáum né skiljum til fulln-
ustu.
I slíkum tilvikum sem eru undan-
tekningar frá reglunni þarf að sjálf-
sögðu að huga betur að öryggismál-
um, en hins vegar verður að vera
jafnvægi á milli öryggismála og
meðferðar skjólstæðinga spítalans.
Það sem starfsmenn þurfa nú er
að sameinast um að launamál þeirra
verði rædd og rödd þeirra heyrð í
baráttu sinni. Þó gerist það einung-
is ef sú rödd er málefnanleg og rök-
stutt án hleypidóma og fáfræði.
Allir sérfræðingar í örryggismál-
um ættu að hafa það hugfast, að
geðdeild Landspítalans sér um
lækningu og hjúkrun veikra ein-
staklinga og í sumum tilvikum fár-
veikra.
Grunnþekking starfsmanna ætti
ekki að vera atriði er varðar hand-
tök í átökum heldur er varðar
frumatriði í samskiptum svo hægt
sé að komast hjá átökum. Þegar
starfsmenn hafa þá þekkingu í
gegnum sína starfsreynslu og
fræðslu er hægt að snúa sér að því
sem kallast vörn gegn ofbeldi.
Allar stéttir starfa undir sama
þaki og ganga sömu ganga, en það
sem virðist hafa gleymst að ófag-
lærðir þurfa að greiða sömu reikn-
inga og allar aðrar stéttir hvort sem
það er innan spítalans eða á öðrum
starfsvettvangi. Má kannski segja
að ef á að nefna ófaglærða starfs-
menn sem huldufólk þá mætti setja
það í samhengi við þeirra laun.
Störf á geðdeildum eru í öllum til-
vikum einn sá mest þroskandi og
lærdómsríkasti vinnustaður sem
völ er á í dag.
Bæði er starfið krefjandi líkam-
lega og andlega og ætti að vera
greitt í samræmi við það. Ófaglærð-
ir starfsmenn sem helga sig þessu
starfi ganga til þess á fagmannleg-
an hátt, öðruvísi endist enginn á
þessum vettvangi. Það virðist því
vera frekar sorglegt hve lítt hann
virðist vera metinn af þeim sem
stjórna launamálum þeirra sem þar
starfa.
Höfundur er vaktmaður/starfsmað-
ur á geðdeild Landspítalans.
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2000 63
Hitastilltu Mora Mega blöndunartækin
fyrir bað og sturtu tryggja öryggi og
þægindi. Mora Mega er árangur margra
ára vöruþróunar og betrumbóta.
Mora - sænsk gæðavara
ÆMi iMl>
w...ItHi-JIHt..■■
T€Í1GI
■ nnrniiiii—■>
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is
BmSw
í fyrsta sinn á íslandi
,p6tða 2a R
Sýnum í fyrsta skipti Isuzu Trooper á 44"
breytingum auk allra breytinga, 32",
33", 35", 36" og 38".
Ótrúlegt tilboðsverð á breytingum
á Isuzu dögum.
Stórsýning hjá Bílheimum
Opið til kl. 20:00 í kvöld
Bílheimar ehf.
jiw tnti Sœvarhöföa 2a Sími:525 9000
mvw. bilheimar. is
Umboösmenn um allt land