Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
221. TBL. 88. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stjórnarandstaðan sakar ríkisstidrmiia um atkvæðaþjófnað
Kostunica útilokar
aðra umferð kosninga
Belgrad. Reuters, AFP, AP.
Hópur stjómarandstæðinga safnaðist saman í bænum Cacak í gær til að
mótmæla úrslitum forsetakosninganna. Blésu menn í flautur og höfðu
mótmælaspjöld á lofti.
VIJOSLAV Kostunica, frambjóð-
andi stjórnarandstöðunnar í forseta-
kosningunum sem fram fóru í Júgó-
slavíu á sunnudag, hafnaði því í gær
alfarið að efnt yrði til annarrar um-
ferðar forsetakosninga og sagði slíkt
„móðgun“ við kjósendur. Yfirkjör-
stjórn Júgóslavíu hafði fyrr um dag-
inn tilkynnt að Kostunica hefði hlotið
fleiri atkvæði en Slobodan Milosevic
Júgóslavíuforseti, en þar sem ekki
væri um hreinan meirihluta að ræða
yrði boðað til annarrar umferðar.
„Sósíalistarnir eru að reyna að
kaupa aðra umferð fyrir Milosevic
og slíku boði er hægt og verður að
hafna,“ sagði í yflrlýsingu sem Kost-
unica sendi frá sér. „Hér er um póli-
tískt svindl og atkvæðaþjófnað að
ræða.“
Að sögn yfirkjörstjórnar, sem
fyrst tjáði sig um úrslit kosninganna
í gær, hlaut Kostunica 48,2% at-
kvæða en Milosevic 40,2%. Að mati
Marko Blagojevic, talsmanns sam-
taka óháðra eftirlitsmanna á kjör-
stöðum (CESID), eru kjörtölur yfir-
kjörstjórnar „eintómur tilbúningur.
Eg get ekki sagt hvaða gögn yfir-
kjörstjómin notar en það er augljóst
að þeir eru að reyna að afbaka kjör-
tölur,“ sagði Blagojevic.
Kosningabandalag 18 stjórnar-
andstöðuflokka (DOS), sem Kostun-
ica er í framboði fyrir, hafði áður lýst
jrfir sigri er búið var að telja 97,5%
atkvæða. Hafði DOS eftir eftirlits-
mönnum á kjörstöðum að Kostunica
hefði hlotið 54,66% atkvæða en Mil-
osevic 35,01%. Þá sagði ríkissjón-
varp Serbíu kjörsókn hafa verið 64%
sem er ólíkt lægri tala en þau 74%
sem stjómarandstaðan segir hafa
mætt á kjörstað.
„Það er engin ástæða, hvorki sið-
ferðileg né pólitísk, til þess að við
sættum okkur við að það sé troðið á
vilja kjósenda," sagði Kostunica
seint í gær. „Sigurinn er augljós og
við munum verja hann jafnfriðsam-
lega og hægt er. Kjósendur eru bún-
ir að hafna Milosevic og hans stefnu-
málum og okkar fýrsta skylda er að
fýlgja þeim dómi eftir.“
Krafist fundar með kjörstjórn
Fyrr um kvöldið hafði Zoran
Djindjic, leiðtogi eins stjórnarand-
stöðuflokksins, þá krafist þess að
fundað yrði með yfirkjörstjóm og
útreikningar og atkvæðaseðlar skoð-
aðir. „Við eigum hér í stríði við
meiriháttar svindl og fölsun úrslita,"
sagði Djindjic og staðhæfði að ríkis-
stjómin hefði haft 400.000 atkvæði
af Kostunica og fært Milosevic helm-
ing þeirra. „Við vissum hverjar fýrir-
ætlanir þeirra voru því það var aug-
ljóst að þeir vom að bralla eitthvað
til að koma Milosevic a.m.k. í aðra
umferð kosninganna. Við höfum hins
vegar raunverulegar sannanir og
munum verja vilja kjósenda.“
Vladan Batic, leiðtogi annars
stjórnarandstöðuflokks, hvatti
stuðningsmenn Kostunica hins veg-
ar til að halda ró sinni, en óttast hafði
verið að til óeirða kæmi í Serbíu ef
Milosevic lýsti sig sigurvegara eða
boðaði aðra umferð forsetakosning-
anna. „Það verður engin önnur um-
ferð fýrir okkur. Við unnum á
heiðarlegan hátt og þeir sem fölsuðu
úrslitin verða að sæta ákæmm
vegna þessa,“ hafði AP-fréttastofan
eftir Batic.
■ Milosevic reynir/ 22
Bandarflán
Hæstirétt-
ur sammála
Microsoft
Washington. AFP.
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna
úrskurðaði í gær hugbúnaðarfyrir-
tækinu Microsoft í hag, er dómstóll
neitaði að fallast á að málaferli gegn
fýrirtækinu hlytu flýtimeðferð fyrir
rétti.
Felur ákvörðun hæstaréttar í sér
að áfrýjunardómstólar munu fjalla
um málið, líkt og yfirmenn Microsoft
hafa krafist, en sérfræðingar telja
fyrirtækið eiga betri möguleika á
sýknun fari málið fyrst fyrir áfrýjun-
ardómstól. „Beinni áfrýjun er neitað
og málinu vísað til áfrýjunardóm-
stóla í Kólumbíuríki," sagði í yfirlýs-
ingu hæstaréttar.
Ekki vom dómararnir níu þó allir
sammála og skilaði Stephen Bryer
séráliti, þar sem hann lýsti þeirri
skoðun sinni að málið ætti að heyra
beint undir hæstarétt þar sem það
hefði „veraleg áhrif á mikilvægan
geira efnahagslífsins".
Steven Ballmer, framkvæmda-
stjóri Microsoft, sagði í viðtali við
CWBC-sjónvarpsstöðina að hann
væri ekki viss um að úrskurðurinn
breytti miklu. „Þetta er aðeins eitt
skrefið enn í ferlinu. Við eram enn
jafn sannfærð um lagalega stöðu
okkar og munum með ánægju kynna
hana fyrir áfrýjunardómstólnum,"
sagði Ballmer.
Málsókn fyrir áfrýjunardómstól
hefst 5. október nk., en það var í apríl
sl. sem dómstólar úrskurðuðu að
Microsoft misnotaði einokunarstöðu
þá sem Windows-stýrikerfið skapaði
íýrirtækinu og í júní var fyrirtækinu
skipað að skipta starfsemi sinni í
tvennt.
Evrudeilan í Danmörku
Hippar halda
gjaldmiðli sínum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÍBÚAR Kristjaníu, svokallaðs frí-
ríkis í Kaupmannahöfn, hyggjast
ekki leggja niður eigin gjaldmiðil
hver svo sem úrsht þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar um aðild að
evrópska myntbandalaginu
verða. Gjaldmiðillinn lpn (laun)
var tekinn í notkun í Kristjaníu
árið 1998 og greiði Danir evranni
atkvæði sitt, verður gengi laun-
anna 7,7 á móti evrunni, að því er
einn íbúanna fullyrðir í samtali
við Reuters-fréttastofuna.
Hippar settust fyrst að í Krist-
janíu, þar sem danski herinn hafði
áður aðsetur, árið 1971 og reynd-
ust tilraunir danskra yfirvalda til
að reka þá á brott árangurslaus-
ar. Þau gáfust að endingu upp og
viðurkenna yfirráðarétt íbúanna
á svæðinu, en Kristjanía er einn
vinsælasti áfangastaður ferða-
manna sem leggja leið sína til
Kaupmannahafnar.
Ein laun samsvara 500 íslensk-
um krónum, eða tímalaunum í
Kristjaníu. Laun era mynt með
snigli á annarri hliðinni sem á að
tákna hversu rólegir í tíðinni
íbúamir era. Á hinni hliðinni er
konuhöfuð undir yfirskriftinni
Lifðu lífinu lifandi.
íbúar Kristjaníu era yfirlýstir
andstæðingar evrannar og til
marks um það er borði sem
strengdur hefur verið yfir aðalút-
gangi fríríkisins en þar stendur:
Þú ferð nú inn í ESB.
Aðrir íbúar Danmerkur era
ekki eins eindregnir í afstöðu
sinni og sýna skoðanakannanir
síðustu daga að mjög dregur sam-
an með andstæðingum og íýlgis-
mönnum aðildar þó þeir fýrr-
nefndu séu enn í meirihluta.
Þjóðaratkvæðagreiðslan um
evrana fer þó fram á morgun og
era leiðtogar danskra stjórnmála-
flokka ekld á einu máli um hvort
kjósa skuli á ný um aðild að
evrópska myntbandalaginu að
nokkram árum liðnum, hafni
Danir evranni í þessum kosning-
um.
■ Kosið um ESB/ 33
*
Oeirðir skygfgja á fund Alþjóðabankans og IMF
Þúsundir
manna börðust
við lögreglu
Prag. AP, Reuters.
ÓEIRÐIR skyggðu á setningu ár-
legs fundar Álþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins (IMF) og Alþjóðabankans
(World Bank) í Prag, höfuðborg
Tékklands, í gær. Að sögn lögreglu
tóku um 5.000 manns þátt í mótmæl-
unum og grýttu svartklæddir mót-
mælaseggir lögreglu með bensín-
sprengjum og götusteinum.
Aðgerðimar voru þær ofbeldis-
fyllstu sem komið hefur til í tengsl-
um við fundinn og kviknaði í klæðn-
aði nokkurra lögreglumanna er
bensínsprengja sprakk. Að sögn yf-
irvalda í Tékklandi hafa hátt í 70
manns særst í átökunum, sem áttu
sér stað í nágrenni ráðstefnumið-
stöðvarinnar sem hýsir fund IMF og
Alþjóðabankans og hefur lögregla
haldið aftur af mótmælendum með
táragasi, vatnsflaumi og höggbylgju-
handsprengjum.
Ekki tóku þó allir þátt í óeirðunum
og mótmæltu sumir á friðsamari
máta, m.a. með skiltum með áletran-
um á borð við „Heimur okkar er ekki
til sölu“ og aðrir kyrjuðu: „Opnið
landamærin, eyðileggið IMF“.
Trevor Manuel, fjármálaráðherra
Suður-Afríku og fundarstjóri, taldi
miður að mótmælaaðgerðimar hefðu
þróast í óeirðir þó að hans mati væri
óljóst hverju var verið að mótmæla.
Alþjóðavæðing ekki
afturkallanieg
Fjármálaleiðtogar heimsins vör-
uðu þá, að sögn AP-fréttastofunnar,
við að það væri tilgangslaust að
reyna að afturkalla alþjóðavæðingu.
Að sögn James Wolfensohn, banka-
stjóra Alþjóðabankans, eiga bæði Al-
þjóðabanldnn og IMF þó enn ýmis-
legt ólært um hvemig best megi
berjast gegn fátækt.
„Utan þessara veggja er ungt fólk
að mótmæla alþjóðavæðingu," sagði
Wolfensohn í opnunarræðunni. „Eg
AP
Lögregla í Prag heldur mótmæl-
endum frá fundarstað Alþjdða-
bankans og IMF.
trúi því sannarlega að margt þess sé
að spyrja góðra og gildra spuminga
og ég fagna fylgni þessarar kynslóð-
ar í baráttunni gegn fátækt.“
MORGUNBLAÐK) 27. SEPTEMBER 2000