Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mistök við útsendingxi Visa-reikninga
Afkoma ríkissjóðs fyrstu átta mánuði ársins
Niðurstaðan hagstæð-
ari en reiknað var með
INNHEIMTAR tekjur ríkissjóðs
voru 5,2 milljörðum króna umfram
greidd gjöld á fyrstu átta mánuðum
ársins, að því er fram kemur í tölum
fjármálaráðuneytisins. I saman-
burði við áætlanir er þessi niður-
staða hagstæðari en reiknað hafði
verið með, að sögn ráðuneytisins.
Greiðsluafkoma
ríkissjóðs neikvæð
Hreinn lánsfjárjöfnuður var já-
kvæður um 3 milljarða króna, en á
sama tíma í fyrra var lánsfjárjöfn-
uðurinn hagstæður um 7 milljarða
kr. og árið 1998 um einn milljarð.
Þessi stærð gefur til kýnna hvaða
fjármagn ríkissjóður hefur til ráð-
stöfunar til að greiða niður skuldir.
A fyrstu átta mánuðum ársins námu
afborganir eldri lána 28,5 milljörð-
um króna en nýjar lántökur 25
milijörðum. Greiðsluafkoma ríkis-
sjóðs var því neikvæð um tæpan 'h
milljarð króna.
Þenslan í efna-
hagslífínu í rénun
Heildartekjur ríkissjóðs fyrstu
átta mánuði ársins námu 134,3
milljörðum króna, samanborið við
121.7 milljarða á sama tíma í fyrra
og 105,7 milljarða árið 1998. Hækk-
unin frá fyrra ári nemur 10,3%,
samanborið við 15,2% árið áður.
Breyting skatttekna milli ára er
svipuð, en þær hækka um 11%
fyrstu átta mánuði þessa árs, sam-
anborið við 16,3% hækkun í fyrra.
Segir ráðuneytið að minni tekju-
aukning á þessu ári samanborið við
síðastliðið ár sé ákveðin vísbending
um að þenslan í efnahagslífinu sé í
rénun.
Heildarútgjöld ríkissjóðs námu
um 129,1 milljarði króna á fyrstu
sjö mánuðum ársins og hækka um
14.7 milljarða, eða 12,8%, frá sama
tíma í fyrra. Tæpan þriðjung þess-
arar hækkunar, eða 4,3 milljarða,
má rekja til aukinna vaxtagreiðslna,
fyrst og fremst vegna sérstakrar
forinnlausnar spariskírteina á
þessu ári. Útgjaldahækkunin, án
vaxta, nemur um 9,8% milli ára,
sem er heldur hærra en sem nemur
almennum verðlagshækkunum og
hækkun launavísitölu á sama tíma.
Utgjöld til almennra
mála hækka
Útgjöld til almennra mála, en þar
falla undir æðsta stjórn ríkisins,
dómgæsla, löggæsla o.fl., hækka um
15% milli ára. Gætir þar m.a. áhrifa
sérstaks úrskurðar um launahækk-
un lögreglumanna, auk tímabundins
kostnaðar vegna sérstakra verk-
efna forsætisráðuneytis. Greiðslur
til utanríkisþjónustunnar standa
nánast í stað milli ára þrátt fyrir
aukinn rekstrarkostnað, þar sem á
móti vegur lækkun stofnkostnaðar.
15.000 manns fengu
ranga reikninga
VISA ísland sendi fyrir mistök út
um 15.000 ranga Visa-reikninga í
gær. Reikningarnir voru fyrh- úttekt
á kortum í síðasta mánuði og upp-
götvuðust mistökin ekki fyrr en
reikningar höfðu verið sendir til
korthafa í Hafnarfirði með póstnúm-
er 220 og þeirra sem hafa póstnúmer
þar fyrir ofan.
Halldór Guðbjarnason, forstjóri
Visa-ísland, sagðist í viðtali við
Morgunblaðið harma þessi mistök.
„Þetta voru mannleg mistök og við
munum bregðast skjótt við og senda
rétta reikninga og afsökunarbréf
með,“ sagði hann. Halldór segir að
um sé að ræða sjöunda hlut allra
korthafa hjá fyrirtækinu og aðeins
hafi verið um að ræða gíróseðla, en
ekki reikninga sem eru skuldfærðir
um mánaðamót. Hann telur þess
vegna ekki líklegt að nokkur hafi
þegar greitt rangan gíróseðil, en hafi
slíkt gerst muni Visa að sjálfsögðu
leiðrétta það jafnskjótt.
„Margii- korthafar uppgötvuðu
strax að reikningarnir voru eitthvað
skrýtnir," sagði Halldór. „Eflaust
hafa þó einhverjir andað léttar fyrst í
stað og aðrir orðið mjög þungbúnir."
Þrjár ungar snótir í sundlauginni í Borgarnesi.
Nýtt kvikmynda-
ver í Grafarvogi
Eigendur
íhuga sölu
EIGENDUR nýja tvö þúsund fer-
metra kvikmyndaversins sem reist
hefur verið í Grafarvogi telja að ekki
séu forsendur lyrir rekstri kvik-
myndaversins eins og sakir standa
og íhuga nú sölu á því. Að sögn Jóns
Þórs Hannessonar, forstjóra Saga-
Film, eins stærsta eiganda kvik-
myndaversins, hafa nokkrir aðilar
sýnt áhuga á því að kaupa verið til
annarra nota en kvikmyndagerðar.
Jón Þór segir einkum þrjár ástæð-
ur fyrir því að eigendur versins meti
það sem svo að ekki séu lengur for-
sendur fyrir rekstri versins. I fyrsta
lagi sé óvissa um framkvæmd nýrra
laga um tímabundnar endurgreiðsl-
ur vegna kvikmyndagerðar á íslandi
sem samþykkt voru á Alþingi vorið
1999. Markmið laganna var eins og
kunnugt er að laða að erlenda aðila
til að framleiða kvikmyndir eða
sjónvarpsefni hér á landi með því að
endurgi-eiða tímabundið hluta af inn-
lendum framleiðslukostnaði. Vegna
athugasemda Eftirlitsstofnunar
ESA við lögin hafa þau enn ekki öðl-
ast gildi og þar með ekki náð tilgangi
sínum. I öðru lagi hafi áhugi ís-
lenskra kvikmyndagerðarmanna á
kvikmyndaverinu verið lítill og í
þriðja lagi segir Jón Þór að áform
borgaryfirvalda um að reisa fjölnota
hús í Laugardalnum dragi úr mögu-
leikum til að leigja verið út til ann-
arra nota en til kvikmyndagerðar,
samkeppni frá boi-garyfirvöldum
hafi kippt stoðunum undan þessum
hluta rekstursins.
Fyrsta skóflustungan að byggingu
versins var tekin 14. ágúst 1999 og
voru miklar væntingar bundnar við
rekstur versins þegar framkvæmdir
við það hófust. Jón Þór segir það því
vonbrigði að kvikmyndagerðarmenn
hafi ekki sýnt því meiri áhuga. „Það
hefur sýnt sig að verið er mjög góður
og þægilegur vinnustaður,“ segir
hann og telur ennfremur að menn
geri sér ekki grein fyrir því hve gott
sé að hafa aðgang að slíku veri við
gerð kvikmyndar. Það geti til að
mynda dregið úr kostnaði við gerð
kvikmyndarinnar.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Dagurinn
styttist
ÞRJÁR ungar snótir böðuðu sig í
sundlauginni í Borgarnesi á dögun-
um og nutu bliðviðrisins sem leikið
hefur um þorra landsmanna undan-
farna daga. Blóðrautt sólarlagið
speglaðist í sundlaugarvatninu þótt
ekki væri orðið áliðið og minnir
okkur á að þrátt fyrir góða tíð er
skammdegið ekki langt undan.
•
IVERINU i dag er greint frá netþjónustu framleiðenda •
og markaðsfyrirtækja SH, sagt frá ársfundi NAFO, S
fjallað um fískeldisfyrirtækið Máka á Sauðárkróki og J
farið yfir mælingar á hafsbotninum suður af landinu. •
Stoke sló út úrvalsdeildarlið
Charlton / B2
Aftureldingu spáð sigri
í 1. deild karla / B9
Þ Teiknimyndasögur
► Myndir
► Þrautir
► Brandarar
► Sögur
► Pennavinir
1