Morgunblaðið - 27.09.2000, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Samið um árangursstjórn-
un við heilbrigðisstofnanir
INGIBJÖRG Pálmadóttir, heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra,
undirritaði í gær samning um árang-
ursstjórnun við sjö heilbrigðisstofn-
anir. Þær eru Heilbrigðisstofnunin
ísafirði, Bolungarvík, Hólmavík,
Hvammstanga, Blönduósi, Siglufirði
og Vestmannaeyjum.
Ingibjörg rakti við tækifærið að-
draganda samninganna en þeir eiga
rætur sínar að rekja til faghóps sem
fyrir tveimur árum gerði ýmsar til-
lögur er sneru að samanburði milli
heilbrigðisstofnana. Einnig kom
fram að markmið samninganna er
margþætt og felur í sér auknar
gagnkvæmar skyldur þeirra stofn-
ana sem samið er við. Áhersla verður
lögð á að efla áætlanagerð og eftir-
litsþátt ráðuneytisins en auka jafn-
framt sjálfstæði og ábyrgð stofnan-
anna á rekstri sínum og þjónustu.
Samið við allar heilbrigðis-
stofnanir fyrir 2002
„Þetta er meira frelsi fyrir stofn-
anirnar en því fylgir að sjálfsögðu
meiri ábyrgð fyrir þær,“ sagði Ingi-
björg. Ingibjörg sagði í samtali við
Morgunblaðið að með þessum samn-
ingum væri verið að gera stjómun
heilbrigðisstofnana skilvirkari. „Það
mun einnig auðvelda okkur að gera
samanburð milli stofnana því að
Morgunblaðið/ Kristinn
Ingibjörg Pálmadóttir afhendir Guðjóni Brjánssyni og Magdalenu Sigurðardóttur frá ísafirði samninginn.
stefnan er að samræma aðferðir
þeirri við að skrá upplýsingar sem
varða rekstur og þjónustu. Þannig
getum við borið saman hliðstæða
kostnaðarliði á ólíkum stöðum.“
Ingibjörg segir að með þessum að-
ferðum ætti að vera hægt að forðast
raddir sem héldu því fram að meira
væri eitt í eina stofnun en aðra.
Samkvæmt samningunum á hver
stofnun að meta þörf fyrir heilbrigð-
isþjónustu á starfsvæði sínu og
hvemig henni verði best mætt. I því
skyni skal hún setja fram í áætlunum
sínum til ráðuneytisins skýr mark-
mið, m.a. töluleg, um leiðir að settu
marki um árangur og hvernig árang-
ur skuli metinn.
Þessi skilgreining á þjónustu mun
skila sér í betri þjónustu segir heil-
brigðisráðherra. „Við stuðlum þann-
ig að því að sjúklingar fái bestu þjón-
ustu sem er alltaf lokamarkmiðið,"
segir Ingibjörg.
Samningarnir eru hluti gæðaáætl-
unar og við undirritun þeirra kom
fram að stefnt er að því að hliðstæðir
samningar verði gerðir við allar heil-
brigðisstofnanir landsins fyrir árslok
2002.
Rekstrarkostnaður Landspítala - Háskólasjúkrahúss fer fram úr fjárlögum
Gert ráð fyrir 400 millj-
óna króna halla á árinu
HALLI á rekstri Landspítala - Há-
skólasjúkrahúss nam 287 milljónum
króna á fyrstu sex mánuðum ársins
og að sögn Önnu Lilju Gunnars-
dóttur, framkvæmdastjóra fjár-
reiðna og upplýsinga hjá Landspít-
alanum, eru helstu ástæður þess að
kostnaður á þeim deildum sem sinna
bráðaþjónustu hefur verið hærri en
gert var ráð fyrir, lyfjakostnaður
hefur hækkað og einnig hefur al-
mennur rekstrarkostnaður hækkað
vegna verðbólgu. Hún segir að þegar
þeir þættir sem ekki var gert ráð
fyrir á fjárhagsáætlun séu fram-
reiknaðir út árið megi gera ráð fyrir
því að hallinn á öllu árinu verði rúm-
lega 400 milljónir króna.
Anna Lilja segir að búið sé að gera
nákvæman samanburð á fjárhags-
áætlun Landspítalans fyrir árið 2000
og uppgjöri fyrir fyrstu sex mánuði
ársins, þar sem helstu frávik frá fjár-
hagsáætlun hafi verið greind. Þetta
hafi verið gert í samráði við yfir-
menn sviða á sjúkrahúsunum við
Hringbraut og í Fossvogi. Anna
Lilja segir að frávik frá áætlun hafi
helst verið að finna á þeim deildum
sem sinna bráðaþjónustu.
„Slysaaldan í ár hefur valdið miklu
álagi, sérstaklega á bráðadeildir.
Það er að segja gjörgæsluna, slysa-
deildina og legudeildirnar. Þarna
hefur verið meira álag en gert var
ráð fyrir.“
Kostnaður vegna lyfja
hefur hækkað um 11,3%
Anna Lilja segir að lyfjakostnaður
hafi hækkað um 11,3% frá því á sama
tíma í fyrra og það eitt valdi um 50
milljóna króna fráviki frá fjárhags-
áætlun. Hún segir að það megi að
hluta til skýra með því að kostnaður
við ný og dýr lyf og tilkynningaskyld
lyf hafi verið færður frá Trygginga-
stofnun til spítalans, án þess að fjár-
veiting fylgdi með. Þetta eigi eftir að
leiðrétta og segir hún að viðræður
um það standi nú yfir við heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið.
Hún segir að auk þess hafi al-
mennt verðlag hækkað meira en
gert hafi verið ráð fyrir í fjárlögum,
eða um 5,5% í stað 3%, en það leiði til
þess að útgjöld vegna rekstrarvara
hækki töluvert. Hún segir að fyrir
hvert prósentustig sem almennt
verðlag hækki, hækki útgjöld spítal-
ans um 50 til 60 milljónir króna.
„Þannig að ef við skoðum muninn
milli 3% og 5,5%, er um 130 milljónir
að ræða og við erum líka í viðræðum
við ráðuneytið um að þetta verði leið-
rétt,“ segir Anna Lilja. Hún segir að
ýmsar launaleiðréttingar hafi þar að
auki verið gerðar um mitt árið, til
dæmis hjá sjúkraliðum.
Með leiðréttingTim og sparnaði
stendur reksturinn undir sér
Anna Lilja segir að viðræður
standi yfir við ráðuneytið um leið-
réttingu vegna áðumefndra þátta,
en hún segir að aukinn kostnaður
vegna þeirra nemi um 330 milljónum
króna.
„Ef þetta verður leiðrétt og að-
gerðir okkar til sparnaðar duga, eig-
um við að ná rekstrinum ekki langt
frá núllinu," segir Anna Lilja.
Hún segir að sparnaðaraðgerðir
við spítalana felist meðal annars í því
að viðhaldi hafi verið seinkað, sem og
opnun legudeildar í Fossvogi, eftii-
viðhaldsframkvæmdir. Einnig hafi
starfsemi legudeilda við Hringbraut
verið endurskipulögð þannig að
starfsemi göngu- og dagdeilda hafi
aukist, ásamt því sem dregið hafi
verið úr starfsemi bamadeildarinnar
í Fossvogi um helgar.
Útgerð Breiðafjarðarferjunnar Baldurs hf. skrifar Vegagerðinni
Gerir athugasemdir við útboð
BREIÐAFJARÐARFERJAN Baldur hf. sem
hefur rekið samnefnt skip í áætlunarsiglingum á
Breiðafirði, hefur ákveðið að gera formlegar at-
hugasemdir við framkvæmd Vegagerðarinnar á
nýafstöðnu útboði vegna Breiðafjarðarferju. Hef-
ur fyrirtækið krafist upplýsinga um útreikning
kostnaðaráætlunar Vegagerðarinnar og hvaða
forsendur liggi þar að baki.
í bréfi sem Breiðafjarðarfeijan Baldur hefur
sent Vegagerðinni er bent á að samkeppnisráð
hafi árið 1994 kveðið á um að samkeppnisrekstur
og ríkisstyrktur rekstur ferjufyrirtækja af þeim
toga sem um ræði í þessu útboði, skuli fjárhags-
lega aðskilinn. Vegagerðin sé eins og aðrir bundin
af lögum í því efni.
Um var að ræða úrskurð um samkeppnisað-
stöðu Djúpbátsins, sem rak Fagranesið á Isafjarð-
ardjúpi, en Fagranesið var þá nýtt til flutninga í
samkeppni við aðra utan þess tíma sem skipið var í
áætlunarsiglingum. Samkeppnisráð byggði niður-
stöðu sína á því að Djúpbáturinn hf. nyti umfangs-
mikilla ríkisstyrkja og því vemdar í skilningi sam-
keppnislaga.
Kappkostað að vera
ekki í samkeppnisrekstri
Að fyrirtækinu Breiðafjarðarferjunni Baldri
standa ríkissjóður, sveitarfélög við Breiðafjörð og
nokkrir einstaklingar. I bréfinu til Vegagerðar-
innar segir lögmaður fyrirtækisins að það hafi
kappkostað á undanförnum árum að vera ekki í
samkeppnisrekstri og talið sér óheimilt að gera í
tilboðinu ráð fyrir tekjum af notum m/s Baldurs í
öðrum rekstri utan áætlunarsiglinga sem réttlætt
gætu minni þörf fyrir ríkisstyrk.
Nú hafi lægstbjóðandi í útboði vegna Breiða-
fjarðarferju upplýst opinberlega að hann hyggist
afla tekna af rekstri Baldurs m/s í samkeppni á
markaði og nýta þær tekjur til að afla samlegðar-
áhrifa í rekstri. Því virðist mega áætla að mun á
tilboðum megi í það minnsta að einhverju leyti
rekja til þessa.
Ríkisstyrktur rekstur aðskilinn
eða útboðið afturkallað
Krefst fyrirtækið þess að Vegagerðin krefjist
þess af bjóðendum við mat tilboða að þeir skilji að
ríkisstyrktan rekstur og samkeppnisrekstur. Að
öðrum kosti er þess krafist að Vegagerðin aftur-
kalli útboðið og láti nýtt útboð fara fram með lög-
boðnum hætti.
í útboði Vegagerðarinnar var lægsta tilboðið í
rekstur Breiðafjarðarferju frá Sæferðum í Stykk-
ishólmi ehf., 166,1 milljón. Breiðafjarðarferjan
Baldur ehf. í Stykkishólmi bauð 184,7 milljónir og
Nýsir hf. Reykjavík bauð 198,9 milljónir króna.
Kostnaðaráætlun er upp á 136 milljónir króna.
Sex þúsund
farþegar með
Lagarfljóts-
orminum
UM sex þúsund ferðamenn hafa nýtt
sér ferðir farþegaferjunnar Lagar-
fljótsormsins í sumar, að sögn Sig-
urðar Ananíussonar, framkvæmda-
stjóra reksturs ferjunnar, en hún hóf
áætlunarferðir um Lagarfljótið í
sumar í byrjun júní. Sigurður segir í
samtali við Morgunblaðið að rekstur
ferjunnar gangi ágætlega og telur að
hún sé komin til að vera þótt enn sé
ekki búið að greiða niður stofnkostn-
að rekstursins.
„Það er spurning um að rekstur-
inn þrauki áfram í þrjú til fjögur ár í
viðbót en þá hefur væntanlega náðst
að greiða niður stofnkostnaðinn."
Aætlunarferðir Lagarfljótsorms-
ins um fljótið hófust 1999 en það
sumar nýttu um átta þúsund ferða-
menn sér ferðir ferjunnar. Astæðan
•fyrir því að um 2.000 færri ferða-
menn fóru með feijunni í sumar en í
fyrra segir Sigurður vera þá að í
júnímánuði hafi verið fremur kalt í
veðri á Austurlandi en einnig segir
hann að verkfall bifreiðastjórafé-
lagsins Sleipnis í sumar hafi spilað
þarna stórt hlutverk. Vel hafi þó
gengið að fá ferðamenn til að nýta
sér ferjuna í ágústmánuði. Gert er
ráð fyrir því að áætlunarferðir Lag-
arfljótsormsins í sumar leggist af um
mánaðamótin en eftir þann tíma
verður hægt að leigja bátinn.
------^----------
Nýtt fyrirtæki
í rekstri upp-
lýsingakerfa
FLUGLEIÐIR, Eimskip og Tölvu-
Myndir hyggjast stofna nýtt fyrir-
tæki í rekstrarþjónustu upplýsinga-
kerfa. Tölvurekstrardeildir Eim-
skips og Flugleiða og Skyggnir,
dótturfélag Tölvumynda, munu
renna inn í hið nýja fyrirtæki sem
stefnt er að að taki til starfa um
næstu áramót. Hið nýja fyrirtæki
mun bjóða þjónustu sína á almenn-
um markaði.
í fréttatilkynningu frá fyrirtækj-
unum segir að erlendis færist það sí-
fellt í vöxt að þjónustufyririækjum
sé falin heildarábyrgð á rekstri upp-
lýsingakerfa. Slík fyrirtæki taka
einnig að sér umsjón með hugbúnaði
með því að selja eða leigja notkun
hans til viðskiptavina sinna. Eftir því
sem starfsemi fyrirtækja verður
háðari góðum upplýsingakerfum
verður góð notendaþjónusta sífellt
mikilvægari.
í fréttatilkynningu segir að með
sameiningu tölvurekstrardeildanna
verði sett á fót eitt stærsta fyrirtæki
í rekstri upplýsingakerfa hér á landi,
með um 45-50 starfsmenn. Starfs-
mönnum deildanna verður boðið
starf í hinu nýja félagi. Samkvæmt
fréttatilkynningunni mun styrkur
hins nýja félags liggja í reyndum
starfsmönnum með breiðan þekk-
ingargrunn og í góðum viðskipta-
mannahóp.
-----------------
Forsætisráð-
herra til Kanada
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
heldur í opinbera heimsókn til Kan-
ada 16. október nk. Heimsóknin
hefst í Minneapolis en þaðan heldur
forsætisráðherra til Winnipeg þar
sem hann verður m.a. viðstaddur
opnun íslenska bókasafnsins í há-
skólanum í Winnipeg en hann mun
einnig taka við heiðursdoktorsna-
fnbót við skólann. Þá mun forsætis-
ráðherra taka þátt í hátíðarhöldum í
Gimli til að minnast fyrstu íslensku
landnemanna sem þangað komu fyr-
ir 125 árum.