Morgunblaðið - 27.09.2000, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þingvallavatnssiglingar ehf. telja sig hafa
misst viðskipti vegna kristnihátíðar
Krefja ríkissjóð
um skaðabætur
V eiðimálastj óri telur
vopn ekki rétt skráð
Ný miðlæg skotvopnaskrá tilbúin um næstu áramót
EMBÆTTI ríkislögreglustjóra hef-
ur sent ríkislögmanni erindi Þing-
vallavatnssiglinga ehf. vegna kristni-
hátíðar á Þingvöllum í sumar þar
sem ríkið er krafið skaðabóta vegna
meints tekjutaps af vegalokun til
fyrirtækisins á meðan hátíðin fór
fram. Fleiri ferðaþjónustuaðilar við
Þingvallavatn íhuga að leita réttar
síns af sömu ástæðu.
Þegar lokun afleggjarans til bæj-
arins Skálabrekku í Þingvallasveit,
þaðan sem báturinn Himbrimi er
gerður út til skoðunarferða, hafði
verið ákveðin sendu forráðamenn
fyrirtækisins kvörtun til ríkislög-
reglustjóra sem fór með skipulag
umferðarmála á kristnihátíð. Ríkis-
lögreglustjóri benti Þingvallabænd-
um á að senda erindið til fjármála-
ráðuneytisins sem vísaði málinu
aftur til ríkislögreglustjóra. Endan-
leg niðurstaða var að senda erindið
til ríkislögmanns þar sem farið er
fram á skaðabætur úr ríkissjóði. I
kröfu Þingvallavatnssiglinga kemur
m.a. fram, samkvæmt upplýsingum
frá ríkislögreglustjóra, að fyrirtækið
hafí orðið af viðskiptum þá helgi sem
kristnihátíðin fór fram þar sem leiðir
til fyrirtækisins voru tepptar. Ekki
hefðu verið tök á að selja í bátsferðir
og flytja fólk að Skálabrekku.
Fréttu af lokun fyrir tilviljun
Kolbeinn Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Þingvallavatnssigl-
inga, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að þau hefðu fregnað það fyrir
tilviljun á miðvikudegi fyrir hátíðina
að veginum til þeirra og fleiri bæja
og ferðaþjónustuaðila við vatnið yrði
lokað. Þá hefði undirbúningur fyrir
meirí umferð og viðskipti þessa helgi
staðið yfir.
„Það sem mér fannst verst við
þetta var að viðskiptin urðu minni
heldur en ef kristnihátíðin hefði ekki
farið fram. Við bjuggumst við meiru
vegna hennar en okkur fannst sárt
að það skyldi fara niður í ekki neitt.
Einnig fannst okkur sárt að ekki var
talað við neinn. Hefði verið samið um
þetta í vor eða síðasta vetur hefðum
við getað gert ráð fyrir því fyrir-
fram,“ sagði Kolbeinn.
Hann sagði reynsluna sýna að yfir
góða helgi í júlímánuði, í veðurblíðu
líkt og var á kristnihátíð, færu vel á
annað hundrað manns í siglingu með
Himbrima um Þingvallavatn. Tekju-
tap fyrirtækisins væri því augljóst.
Fleiri eru ósáttir
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins íhuga fleiri ferðaþjónustu-
aðilar í nágrenni Þingvallavatns að
leita réttar síns vegna lokunar vega
til þeirra á kristnihátíðinni. Forráða-
menn þjónustumiðstöðvarinnar á
Þingvöllum og Nesbúðar á Nesja-
völlum sögðust í samtölum við Morg-
unblaðið vera með sín mál hjá lög-
fræðingum.
VEIÐIMÁLASTJÓRI segir að
dæmi séu um að vopn séu ekki skráð
á rétta eigendur, en talið er að rúm-
lega 50 þúsund skotvopn séu í land-
inu. Áki Armann Jónsson veiðistjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið að
ástæðan fyrir þessu væri sú að illa
væri fylgst með skotvopnaviðskipt-
um á milli manna. Árni Albertsson,
aðstoðaiyfu-lögregluþjónn hjá Ríkis-
lögreglustjóraembættinu, segir að
um næstu áramót verði tilbúin mið-
læg skotvopnaskrá sem taki við af
dreifðum skotvopnaskrám um allt
land sem hafa verið jafnmargar og
lögregluembættin á landinu.
Áki Armann sagði að þegai' skot-
vopn væru keypt í verslun væru þau
skráð á kaupandann og að ríkislög-
reglustjóri fengi þær upplýsingar til
sín. Hann sagði að eftir þetta væri
hinsvegar lítið fylgst með skotvopn-
unum og að menn ættu hægt um vik
með að kaupa og selja skotvopn án
þess að skrá þau eins og lög gerðu ráð
fyrir.
Áki Armann sagði að því væri lík-
legt að í umferð væri fjöldi skotvopna
sem ekki væru skráð á rétta eigendur
og því erfitt eða ómögulegt að finna
þau eða eigendur þeirra. Hann sagði
að þetta gæti haft afdrifaríkar afleið-
ingar sérstaklega ef viðkomandi vopn
væri notað ólöglega, t.d. í tengslum
við afbrot.
Að sögn Áka Armanns er skráin
yfir skotvopnaleyfishafa einnig í
ólestri, en ríkislögreglustjóraemb-
ættið sér um hana. Hann sagði að ár-
ið 1995 þegar veiðistjóraembættið
hefði útdeilt veiðikortum hefði það
þurft á skotvopnaleyfisskránni að
halda og að þá hefði komið í ljós að
fjöldi manna sem fengið hafði skot-
vopnaleyfi var hvergi skrá. Hann
sagðist vita til þess að verið væri að
vinna að því að bæta þessi mál í dag,
en hann sagðist ekki vita hvernig
þeirri vinnu miðaði.
Miðlæg skotvopnaskrá
Árni Albeitsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn segir að fram að þessu ári
hafi verið til 27 skotvopnaskrár
dreifðar um landið, jafnmargar og
lögregluembættin. Fyrir tæpum
tveimur árum hafi hafist undirbún-
ingur að því á vegum Ríkislögreglu
stjóra að búa til nýja miðlæga skot-
vopnaskrá og tölvuforrit í kringum
SKIPULAGSSTJÓRI hefur enn
ekki fengið svör frá bæjaryfirvöldum
á Siglufirði við spurningum sem hann
sendi í bréfi í byrjun mánaðarins
vegna jarðrasks við undirbúning
jarðgangaframkvæmda í Héðinsfirði.
I samtali við Morgunblaðið vonaðist
skipulagsstjóri, Stefán Thors, til þess
að heyra í Siglfírðingum fljótlega.
hana. „Greiningunni lauk seint á síð-
asta ári og um mitt þetta ár var skot-
vopnaskráin tekin í notkun og öllum
embættum gert skylt að vera búin að
skrá inn öll vopn sem skráð væru í
þeirra embættum inn í þessa mið-
lægu skotvopnaskrá íÁTÍr 1. janúar
2001. Þá verður orðin til ein miðlæg
skotvopnaskrá. Þetta er afar fullkom-
in skrá þar sem haldið er utan um
hvert smáatriði í sambandi við skrán-
ingu á skotvopnum," segir Ái-ni.
Þetta séu því að verða gamlar upp-
lýsingar sem veiðimálastjóri beri á
borð. Erfitt sé að segja til um hvort
skotvopn séu skráð á ranga eigendur.
„Það er ekki hægt að fullyrða hvort
einhver úti í embættunum hafi ekki
skráð skotvopn á rangan aðila. Auð-
vitað á það ekki að gerast og ég þori
að fullyrða að í 99,9% tilvika séu skot-
vopn ski’áð á rétta aðila,“ segir Árni.
í bréfinu óskaði Stefán eftir upp-
lýsingum um málatilbúnað bæjaryf-
irvalda vegna framkvæmdanna og á
hvaða grundvelli þau veittu leyfi til
framkvæmda. Þegar svar Siglfirð-
inga berst mun skipulagsstjóri meta
hvort þessar framkvæmdir hafi verið
matsskyldar samkvæmt nýjum lög-
um um umhverfismat.
Jarðraskið í Héðinsfírði
Skipulagsstjóri bíður svars
Þúsaldarráðstefna Breska vísindafélagsins
Margvíslegar birt-
ingarmyndir tímans
Hinar mörgu birtingarmyndir tímans voru
viðfangsefnið á Þúsaldarráðstefnu Royal
Society, þar sem Sigrún Davíðsdóttir hlust-
--------------------7--7-----------------
aði meðal annars á Ulf Arnason prófessor
rekja niðurstöður sínar um aldur mannsins.
Úlfur Árnason, prófessor í sameindaþróunarfræði við háskólann í
Lundi. Myndin er tekin í anddyri Royal Society í London.
GETUR maður fætt sjálfan sig?
Þetta var ein hinna fjölmörgu og
flóknu spurninga, sem velt var upp á
Þúsaldarráðstefnu Royal Society,
Breska vísindafélagsins, í London
fyrir helgi. Með þessar vangaveltur á
sveimi batt Roger Short, prófessor í
læknisfræði við háskólann í Mel-
boume og einn af skipuleggjendum
ráðstefnunnar, enda á tveggja daga
ráðstefnu um tímann og mælingar á
tímanum.
Short hikaði reyndar ekki við að
lýsa yfir sigri tímans eða svo kallaði
hann lokaþanka sína. Eins og ofan-
greind spuming ber með sér brá
Short upp svo sterkum myndum af
þversögnum tímans að óhætt er að
segja að ráðstefnugestir hafi reikað
út með aðkenningu af svima.
Tíminn er fleira en ferli á klukku.
Tímaferli náttúmnnar teygir sig frá
bakteríum upp í gegnum lífríki
plantna og dýra. Og við nánari athug-
un kemur í ljós að það er sólarhrings-
bundið, tunglbundið, árs- og árstíða-
bundið.
í hópi margra þekktra fyrirlesara
á ýmsum sviðum líf- og náttúmvís-
inda var Úlfur Ámason, prófessor í
sameindaþróunarfræði við háskól-
ann í Lundi. Af öðmm má efna kon-
unglegan stjömufræðing, Sir Martin
Rees, við Institute of Astronomy í
Cambridge og Paul Davies, prófess-
or í eðlisfræði við Imperial College í
London, en auk vísindarita hafa þeir
báðir skrifað metsölubækur um sín
svið fyrir almenning.
Virðuleiki hins gamalgróna Breska
vísindafélags, Royal Society, blasti
strax við ráðstefnugestum er borða-
lagðir herramenn tóku á móti þátttak-
endum. I svo gamalgrónu háskólaum-
hverfi, sem finna má í Bretlandi er
erfitt að lýsa því hve mikillar virðingar
þessi félagsskapur nýtm-. En hann er
ekki aðeins fyrir sérfræðinga. Vís-
indafélagið leggur metnað sinn í að
halda fyrirlestra og ráðstefnur fyrir
almenning jafnt sem sérfræðinga og
því var Þúsaldarráðstefnan öllum op-
in.
Erum líklega um 230 þúsund
árum eldri en við höldum
Fyrirlestur Úlfs Ámasonar var
einn af sautján fyrirlestmm á ráð-
stefnunni. Úlfur og samstarfsmenn
hans hafa undanfarin ár endurtíma-
sett aðskilnað ýmissa dýrategunda
og um leið komið með nýjar kenning-
ar um aldur mannsins. I stað þess að
maðurinn sem dýrategund sé 170
þúsund ára gamall álíta Úlfur og
samstarfsmenn hans að nærri lagi sé
að álíta manninn 300 þúsund ára.
Kenningar Úlfs hafa gengið þvert
á margar viðteknar kenningar í sam-
eindaþróunarfræði. Þó vísindamenn
hafi sannleikann að leiðarljósi er ekki
alltaf jafnauðvelt að koma nýjum
kenningum á flot og það hafa Úlfur
og samstarfsmenn hans margoft
mátt reyna. Boðið til Úlfs um að
halda fyrirlestur á jafnvirðulegum
vettvangi og Þúsaldarráðstefnan er
sýnir að kenningar hans njóta vax-
andi hljómgrunns, enda eru þær að
sögn sérfræðinga vel rökfærðar og
koma þar að auki heim og saman við
aðrar vísbendingar eins og stein-
gervinga.
Tímaferðir og
melatónin
Það voru bæði eðlisfræðingar,
læknar og líffræðingar, sem veltu
fyrir sér birtingarmyndum tímans þá
tvo daga sem Þúsaldarráðstefnan
stóð. Paul Davies velti fyrir sér tíma-
ferðum og möguleikum þeiira. Nið-
urstaðan var að út frá forsendum eðl-
isfræðinnar væru þær ekki
óhugsandi, en vísast fremur dýrar í
framkvæmd.
Fyrir óinnvígða áhugamenn eru
þessar hugmyndir býsna stórar í
sniðum, en hvort afkomendur okkar
eiga í framtíðinni eftir að freista
slíkra ferðalaga mun tíminn leiða í
ljós. En eins og Davies benti á með
bros á vör þá væri ein leiðin til fjár-
mögnunar auðvitað sú að snúa aftur
til 1987 eða svo, þegar verðbréfa-
markaðir heimsins tóku djúpa dýfu,
kaupa bréfin, sem við vitum að áttu
eftir að hækka og nota svo afrakstur-
inn til að fjármagna tímaferðirnar.
Áþreifanlegri niðurstöður komu
fram í fyrirlestri Gerald Lincoln, við
MRC Centre for Reproductive Bio-
logy í Edinborg, er fjallaði um áhrif
melatóníns í spendýrum, þar með
töldum manninum. Melatónín hefur
dregið að sér vaxandi athygli undan-
farin ár. Efnið hefur áhrif á svefn og
hefur því verið haldið á lofti sem nátt-
úrulegu svefnlyfi, til dæmis sem
lækningu á tímavillu, er margir finna
fyrir á langferðum, sem liggja yfir
mörg tímasvæði.
Lincoln benti hins vegar á að þó
melatónín hefði vissulega þessi áhrif
þá væru áhrif þess greinilega mjög
víðtæk og því spurning hvort ekki
væri verið að fitla við býsna marg-
slungna líkamsstarfsemi með því að
taka melatómn til að aðlaga líkamann
að áhrifum langferða. En hvort slíkar
viðvaranir vísindamannsins ná fram
er annað mál. Melatónín er núorðið
til sölu lyfseðlalaust víða um heim
sem náttúrulyf og eftirspurnin er
gríðarleg, enda hafa spunnist margs
konar kenningar um ágæti þess,
meðal annars í baráttu gegn þeim ill-
skeyttu áhrifum tímans, ellinni.
Sigrast á tímanum:
Að fæða sjálfan sig
Roger Short fór í lokin í huganum
með ráðstefnugesti íheimsókn í garð
hins sænska Carl von Linné (1707-
1778) er á sínum tíma lagði grunninn
að flokkunarkerfi jurta. Linné kom
sér upp sérkennilegri blómaklukku.
Hann hafði plantað blómum sem
nokkurs konar úrskífu, eftir því hve-
nær dagsins þau opnast og hvenær
þau loka sér. Með því að tengja sam-
an dagstakt blómanna og tíma klukk-
unnar fléttaði Linné saman tíma
náttúrunnar.
Þessum hugleiðingum Linnés er
ekki erfitt að fylgja, en það er öllu
flóknara að fylgja eftir þeim hugleið-
ingum að einstaklingur geti fætt sjálf-
an sig. Þá er hugmyndin sú að tekin sé
fruma, henni skipt í tvennt, annar
helmingurinn frystur og hinn helm-
ingurinn látinn mynda einstakling.
Þegar sá einstaklingur er orðinn fúll-
vaxta er hinum helmingnum komið
fyrir í honum og hann látinn fæða
sjálfan sig - og þá væntanlega aftur
eða hvað?