Morgunblaðið - 27.09.2000, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svar borgarendurskoðanda við fyrirspurn um skuldastöðu Reykjavíkurborgar
Skuldir jukust um
900 m. kr. milli ára
NETTÓSKULDIR Reykjavíkur-
borgar jukust um 889 milljónir milli
áranna 1999 og 2000, að því er fram
kemur í svari borgarendurskoðanda
við fyrirspurn Júlíusar Vííils Ingvars-
sonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokks, um skuldastöðu borgarinnar.
Júlíus Vífill segir í samtali við
Morgunblaðið að hann telji gagn-
rýnivert að fjárhagsáætlun skuli
hafa verið afgreidd án þess að fram
hafí komið hver þróun nettóskulda
borgarinnar er.
„Skuldastaða borgarinnar hefur
verið í mjög alvarlegu hámarki. Pað
er ekki nóg að líta aðeins til borgar-
sjóðs því aðrar stofnanir borgarinn-
ar, einkum Orkuveita Reykjavíkur,
hafa verið notaðar til að greiða niður
skuldir borgarsjóðs svo hægt sé að
bera á borð fyrir kjósendur að borg-
arsjóður standi betur en áður. Það er
vissulega rétt, en hins vegar stendur
Reykjavíkurborg miklu verr,“ segir
Júlíus Vífill.
Fólki talin trú um að ijárhags-
staðan sé betri en hún er
Hann segir að þessa stöðu megi að
mestu leyti rekja til þess að eigin-
fjárstaða borgarinnar hafi verið rýrð
og fyrirtæki skuldsett til að greiða
niður skuldir. Orkuveita Reykjavík-
ur hafi verið látin gefa út skuldabréf
upp á þrjá milljarða króna, sem not-
aðir hafa verið til að greiða niður
skuldir borgarsjóðs.
„Þetta er ekkert annað en bók-
haldsblekking og gert til þess að geta
talið fólki trú um að fjárhagsleg
staða Reykjavíkurborgar sé sterkari
en hún raunveralega er,“ segir Júlíus
Vífill.
Hann segir sérlega athugavert að
skuldastaða borgarinnar skuli
versna þetta mikið í góðæri, þegar
flestir séu að reyna að grípa tækifær-
ið og koma fjárhag sínum í gott lag.
Þar að auki hafi tekjur borgarinnar
aukist mikið, útsvar og gjaldskrár
hafi hækkað og eignir verið seldar,
þar á meðal Sjúkrahús Reykjavíkur
fyrir einn og hálfan milljarð króna.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segir í samtali við Morgun-
blaðið að svar borgarendurskoðanda
hafi verið lagt fram í borgarráði og I
því séu engar nýjar upplýsingar. Það
hafi legið fyrir við gerð fjárhagsáætl-
unar að nettóskuldir borgarinnar í
heild, borgarsjóðs og fyrirtækja,
hefðu aukist um tæplega 900 milljón-
ir.
„Þessi umræða um hvort skuldir
séu að hækka eða lækka er sígild og
kemur upp tvisvar á ári hér í borgar-
stjórn Reykjavíkur, í kringum fjár-
hagsáætlun og ársreikning. En stað-
reyndin er sú að það þarf ekkert að
deila um þetta, skuldir borgarsjóðs
eru að lækka og skuldir fyrirtækj-
anria hafa verið að hækka,“ segir
Ingibjörg Sólrún.
Hún segir að staða þeirra tveggja
aðila sem vega þyngst í fjármálum
borgarinnar, borgarsjóðs og Orku-
veitu Reykjavíkur, hafi legið ljós fyr-
ir þegar fjárhagsáætlun var gerð.
Bæði hafi verið ljóst að skuldir borg-
arsjóðs hefðu lækkað, meðal annars
vegna niðurfærslu á eigin fé Orku-
veitu Reykjavíkur og sölu á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur, og eins hafi legið
fyrir að skuldir Orkuveitunnar væru
að aukast, meðal annars vegna fyrr-
nefndrar niðurfærslu á eigin fé og
vegna fjárfestinga á Nesjavöllum.
Hún tekur jafnframt fram að Orku-
veitan sé eftir sem áður afar stönd-
ugt fyrirtæki og að fjárfestingarnar
á Nesjavöllum séu mjög arðbærar og
eigi eftir að skila Orkuveitunni og
viöskiptavinum hennar ávinningi á
komandi árum.
Reykjavíkurborg og Gallup kynna þjálfunaráætlun um aukinn sveigjanleika á vinnumarkaði
Leitað að
jafnvægi milli
vinnu og
einkalífs
REYKJAVÍKURBORG og Gallup
hafa ákveðið að standa í sameiningu
að framkvæmd ESB-verkefnisins
„Hið gullna jafnvægi" en verkefnið
felur í sér að 25 fyrirtækjum í Reykja-
vík verður boðið að taka þátt í
fræðslu- og þjálfunaráætlun sem mið-
ar að því að koma á auknum sveigjan-
leika í fyrirtækjum og finna hið gullna
jafnvægi milli vinnu fólks og einkalífs
þess. Samstarfssamningur var undir-
ritaður í gær og þá kynntu fulltrúar
Gallup jafnframt helstu niðurstöður
nýrrar rannsóknar sem fyrirtækið
hefur gert en þær sýna að sveigjan-
legri vinnutilhögun er Islendingum
ofarlegaíhuga.
„Hið gullna jafnvægi" er liður í
ESB-verkefninu „Striking the bal-
ance“ en það fer fram í fjórum lönd-
um samtímis, Bretlandi, Grikklandi,
Þýskalandi og á íslandi. Kom fram í
máli Hildar Jónsdóttur, jafnréttisráð-
gjafa Reykjavíkurborgar, að tildrög
þess að Reykjavík tekur þátt í verk-
efninu væru þau að boð hefði borist
um það frá Lundúnasveitarfélaginu
Kingston upon Thames.
Tuttugu og fimm fyrirtækjum eða
stofnunum býðst að taka þátt í verk-
efninu og er öllum fyrirtækjum með
starfsemi í Reykjavík frjálst að sækja
um. Þátttökngjald er 150 þúsund kr.
en fyrirtæki fá heimild til að nota
mertó verkefnisins í kynningarstarfi
sínu. Ahersla verður lögð á fjölbreyti-
lega samsetningu í valinu á þátttöku-
fyrirtækjunum.
Sveigjanleiki ekki aðeins
fyrir konur og bamafólk
Hildur lagði áherslu á að sveigjan-
leiki í starfi skipti alla á vinnumark-
aðnum máli. „Fólk getur af alls konar
ástæðum haft þörf fyrir sveigjanleika
í starfi,“ sagði hún. „Sveigjanleiki í
starfi er ekki bara fyrir konur og
barnafólk. Fólk getur þarfnast sveigj-
anleika vegna annarra þátta eins og
símenntunar eða félagslífs utan
vinnustaðar."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri tók undir þetta viðhorf.
„Jafnréttispólitík er ekki fyrir neinn
sérstakan hóp. Svona verkefni gagn-
ast öllum. Fyrirtækin eru að hagnast
á þátttöku en fóma ekki neinu,“ sagði
hún. Kom fram í máli borgarstjóra að
þær niðurstöður rannsókna Gallups,
að karlar ekki síður en konur vilji
Morgunblaðið/Knstmn
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Svafa Grönfeldt frá Gallup skrifa undir samstarfssamninginn.
hafa tækifæri til að vinna meira
heima við, hefðu vakið athygli hennar.
Gallup mun kynna frekari niður-
stöður rannsóknarinnar á upphafs-
ráðstefnu verkefnisins „Hið gullna
jafnvægi", 6. október næstkomandi.
Svafa Grönfeldt, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Gallups, greindi hins
vegar frá því í gær að rannsóknin
staðfesti niðurstöður erlendra rann-
sókna þess efnis að fyrirtæki högnuð-
ust margfalt á því ef starfsfólk teldi
sig búa við sveigjanleika í vinnutil-
högun. Starfsánægja væri meiri og
sömuleiðis tryggð starfsfólksins við
fyrirtækið, auk þess sem mjög drægi
úr streitu hjá því og þeim neikvæðu
áhrifum sem starfsálag getur haft á
einkalíf starfsmanna.
Með þátttöku í verkefninu fá fyrir-
tæki m.a. hagnýtar leiðbeiningar um
fyrstu skrefin til að auka starfsánægj-
una á vinnustaðnum, leiðbeiningar
um hvemig ná megi betri árangri við
að ráða og halda hæfu starfsfólki og
einnig öðlast þau þekkingu á breyttu
lagaumhverfi á vinnumarkaði. Munu
fyrirtækin sem taka þátt í verkefninu
og íslenskir samstarfsaðilar fá að-
gang að endanlegri gerð fræðsluefnis
að verkefninu loknu.
„Þetta verkefni er mjög spennandi
ef maður skoðar þróun á vinnumark-
aði í Evrópu, og sérstaklega hér á ís-
landi,“ sagði Gylfi Dalmann Aðal-
steinsson, stjómunarráðgjafi hjá
Gallup. „Við eram að sjá heilmiklar
breytingar á vinnumarkaði. Það er að
eiga sér stað mikil vakning í starfs-
mannamálum, mannleg stjómun er
orðin rauður þráður í stjómun ís-
lenskra fyrirtækja. Það er mikil sam-
keppni um vinnuafl, við þekkjum það,
og eitt erfiðasta viðfangsefni í stjóm-
un starfsmannamála í dag er að laða
að og halda góðu fólki. Það er því
mjög mikilvægt fyrir fyrirtæki að
geta boðið upp á aðlaðandi vinnuum-
hverfi," sagði hann.
Bætti hann því við að af þessum
sökum væri mjög jákvætt að fara af
stað með þetta verkefni nú.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp
á níu milljónir ísl. króna
Eins og áður kom fram var það
breska Lundúnasveitarfélagið King-
ston upon Thames sem hratt verkefti-
inu af stað. Fræðsluefnið, sem notað
verður hér á landi, hefur verið þróað í
samvinnu við breska vinnumarkaðs-
fræðinga en er lagað að íslenskum að-
stæðum. Kostnaðaráætlun verkefnis-
ins hér á landi hljóðar upp á níu
milljónir króna og er verkefnið fjár-
magnað með framlögum frá ESB,
Reykjavíkurborg og Gallup, auk þátt-
tölúigjalds fyrirtækja.
Sérstök upphafsráðstefna verður
haldin í Súlnasal Hótels Sögu föstu-
daginn 6. október og hafa fyrirtæki
síðan viku til viðbótar til að sækja um
aðild að verkefninu. Ennfremur verð-
ur heimasíðu komið upp á Netinu í
tengslum við verkefnið, www.hid-
gullnajafnvaegi.is, og er stefnt að því
að hún verði komin í gagnið á morg-
un, fimmtudag.
Neysla mengaðs ísbergsalats líklegasta orsök salmonellufaraldursins
Utbreiðsla annarrar teg
undar af salati könnuð
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Haraldi
Briem, sóttvarnalækni, Landlækn-
isembættinu, Grími Ólafssyni,
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og
Sjöfn Sigurgísladóttur, Hollustu-
vernd ríkisins:
„Vegna fjölmiðlaumræðu um að
Dole ísbergsalat sem flutt var inn
til landsins í lok ágústmánaðar hafi
valdið faraldri af Salmonella typ-
himurium skal eftirfarandi tekið
fram:
Hinn 16. september sl. stöðvaði
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
dreifingu og innkallaði þegar selda
vöra af Dole salati vegna rökst-
udds gruns um að Dole isbergsalat,
sem kom til landsins 24. ágúst og
fór í dreifingu 26. ágúst, hafi verið
mengað af Salmonella typhimur-
ium fjölónæmum stofni. Þegar
þessi ákvörðun var tekin lágu eftir-
farandi staðreyndir máls fyrir:
Fullvíst var talið að sýkillinn eigi
ekki uppruna sinn hér á landi
vegna sérkenna hans. Faraldurinn
hófst um mánaðamótin ágúst/sept-
ember. Þróun faraldursins benti til
þess að hann hafi átt uppruna sinn
í mengaðri matvöru á markaði í lok
ágústs og fyrstu vikuna í septem-
ber. ítarlegar spurningar, sem
lagðar voru fyrir þá sem sýktust,
leiddu í ljós að matarneysla á
skyndibitastöðum og veitingahús-
um væri sameiginleg flestum
þeirra sem höfðu sýkst. Sá matur
sem neytt var og var sameiginleg-
ur flestum sjúklingum var salat.
Þegar gripið var til áðurnefndrar
innköllunar höfðu flestir nefnt til
sögunnar tvo veitingastaði þar sem
matar var neytt í byrjun septem-
ber. Hægt var að gera samanburð-
arrannsókn á neyslu þeirra sem
veiktust og veiktust ekki á öðrum
þessara veitingastaða hjá hópi
manna sem borðaði þar á sama
tíma. Leiddi sú rannsókn í ljós töl-
fræðilega marktækt samband veik-
inda og neyslu á ísbergsalati. Þeg-
ar í ljós kom að hinn
veitingastaðurinn, sem oftast var
nefndur til sögunnar af sjúkling-
um, hafði notað ísbergsalat úr
sömu sendingu samkvæmt upplýs-
ingum dreifingaraðilans var gripið
til áðurnefndrar innköllunar.
Þar sem geymsluþol á matvöra-
makaði er stutt voru líkurnar á því
að finna salat af sama toga og
tengdist sýkingunni litlar. Veit-
ingahús, skyndibitastaðir og versl-
anir sem notað höfðu ísbergsalat í
byrjun september áttu það ekki
lengur til þegar ákvöðun um inn-
köllun var tekin. Hins vegar fund-
ust nokkur salathöfuð í heimahús-
um bæði af bandarískum og
evrópskum uppruna. Ekki var vit-
að hvort þau væru úr sömu send-
ingu eða hluta úr þeirri sendingu
sem gat verið mengaður. Ræktun-
arniðurstöður hafa ekki leitt í ljós
salmonellumengun í þeim.
Síðar hefur komið ljós að önnur
sending af ísbergsalati, sem er
ekki frá Dole, hafi verið send til
prafu á sömu tvo veitingastaði og
áður voru nefndir á svipuðum tíma.
Verið er að kanna útbreiðslu þess
salats en það er erfiðleikum háð
vegna þess að það var gefið en ekki
selt og því ekki til neinar sölunót-
ur. Fullvíst er talið að þetta salat
sé farið úr umferð fyrir all nokkru.
Niðurstaðan er því á þessari
stundu að neysla mengaðs ísberg-
salats sé líklegasta orsök far-
aldursins. Líkurnar á því að sanna
það með ótvíræðum hætti, með
ræktun frá salatinu sem var í um-
ferð í byrjun september sl., eru
hverfandi. Því verður ekki fullyrt
að mengað Dole salat hafi verið or-
sök þessa faraldurs. Rannsókn
málsins heldur áfram og engir
möguleikar á mengun matvæla úti-
lokaðir. Eins og áður segir er hér
um mjög sérstæða salmonellu að
ræða. Hennar hefur einnig orðið
vart sumstaðar á Englandi um
þessar mundir. Eru vonir bundnar
við að alþjóðleg samvinna varpi
ljósi á þetta mál.“