Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 13
Lífsýni frá opinberum sjúkrastofnunum
Gefa ekki
einkarétt
á afnotum
SAMNINGAR þeir sem hafa verið í
undirbúningi milli nokkuira sjúkra-
húsa og líftækmfyrirtækisins Urðar
Verðandi Skuldar um aðgang að
lífsýnum vegna krabbameins-
rannsókna veita fyrirtækinu ekki
einkarétt á aðgangi að þeim lífsýn-
um. Guðríður Þorsteinsdóttir, lög-
fræðingur og skrifstofustjóri í heil-
brigðisráðuneytinu, sagði við
Morgunblaðið að hún vildi ekki tjá
sig um samningaviðræður við Urði
Verðandi Skuld, en tók fram að sam-
kvæmt nýjum lögum um lífsýnasöfn,
sem taka gildi um næstu áramót,
skuli setja reglur um hvernig
tryggja skuli jafnræði þeirra sem
óska eftir aðgangi að lífsýnasöfnum
vegna vísindarannsókna. Þar sé
fyrst og fremst haft í huga að
sjúkrastofnanir í eigu hins opinbera
mismuni ekki vísindamönnum. Þær
geti því ekki lofað einum aðila að
hann einn fái aðgang að tilteknum
sýnum.
Með fyrrgreindum reglum verður
tryggt að vísindamenn eða stofnanir
sem stunda vísindarannsóknir og
aflað hafa tilskilinna leyfa vísinda-
siðanefndar og tölvunefndar hafi
jafnan aðgang að lífsýnum sem
sjúkrahús hafa safnað. Líftæknifé-
lagið Urður Verðandi Skuld hefur
verið í samningum við Landsspítala
- háskólasjúkrahús og Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri um rann-
sóknir á krabbameini og er þar gert
ráð fyrir aðgangi að lífsýnum að
fengnum tilskildum leyfum.
Guðríður ítrekaði að hún vildi ekki
ræða sérstaklega fyrirhugaða samn-
inga Urðar Verðandi Skuldar en
sagði aðspurð að samkvæmt lögum
um lífsýnasöfn væri ekki heimilt að
veita aðgang að lífsýnum til rann-
sókna fyrr en aflað hefði verið leyfis
tölvunefndar og fyrir lægi rann-
sóknaáætlun samþykkt af vísinda-
siðanefnd eða siðanefnd viðkomandi
sjúkrastofnunar. Að uppfylltum
þessum skilyrðum væri það síðan
safnstjórn viðkomandi lífsýnasafns
sem veitti endanlegan aðgang. Sé
um að ræða lífsýnasafn sjúkrahúss
er safnstjórn ekki heimilt að mis-
muna vísindamönnum.
Öðru máli gegnir hins vegar um
einkaaðila, s.s. vísindamenn eða fyr-
irtæki, sem safnað hafa lífsýnum á
eigin kostnað vegna tiltekinna rann-
sókna. Að sögn Guðríðar er ekki
gert ráð fyrir að þeim verði skylt að
veita öðrum vísindamönnum eða fyr-
irtækjum aðgang að slíkum sýnum.
Hundakúnstir
á Seltjarnarnesi
VEÐRIÐ hefur verið með eindæm-
um milt undanfarna daga og hafa
margir nýtt sér það óspart til úti-
vistar, bæði menn og málleysingjar.
Á Seltjamarnesi í vikunni mátti
m.a. sjá að maður og hundur geta
oft átt náið samfélag og eru iðulega
bestu vinir. Þar lék Jóhanna við tík-
ina sína og lét hana gera hinar
ýmsu hundakúnstir eins og sjá má á
þessari mynd sem Ijósmyndari
Morgunblaðsins tók.
Menningarminjadagar verða á fslandi um helgina
Rannsóknir á merkustu
sögustöðum kynntar
Miklar rannsóknir hafa farið fram síðustu ár á fornleifum í Reykholti í
Borgarfirði. Þær verða kynntar á menningarminjadögum um helgina.
MARGRÉT Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður telur að ákvörðun Al-
þingis í sumar um að stofna kristni-
hátíðarsjóð eigi eftir að efla verulega
fornleifarannsóknir og fornleifa-
vörslu á íslandi. Um helgina verða
haldnir menningarminjadagar um
allt land í tengslum við menningar-
minjadag Evrópu. Hér á landi verð-
ur á þessum dögum beint sjónum að
merkustu sögustöðum íslands en
fyrirhugað er að fjármagn úr
kristnihátíðarsjóði verði m.a. varið í
fomleifarannsóknir á þeim.
Þetta er í annað sinn sem haldið er
upp á menningarminjadag Evrópu
hér á landi. Margrét sagði að á þess-
um degi vildi Þjóðminjasafnið leggja
áherslu á það fjölbreytta starf sem
unnið væri í fornleifavörslu um allt
land. Það væri mikil gróska í þessu
starfi og miklar vonir væm bundnar
við að það fjárframlag til rannsókna
í fornleifafræði sem Alþingi hefði
ákveðið að efna til með stofnun
kristnihátíðarsjóðs ætti eftir að
virka sem hvatning á þessu sviði.
Eins væm miklar vonir bundnar við
fyrirhugaða kennslu í fornleifafræði
við Háskóla íslands.
I þingsályktunartillögu Alþingis,
sem þingmenn samþykku á hátíðar-
fundi á Þingvöllum í sumar, vora
sérstaklega nefndir sögustaðirnar
Hólar, Skálholt og Þingvellir. Mar-
grét sagði að Alþingi kæmi til með
að fjalla frekar um útfærslu á þess-
ari tillögu í vetur en Þjóðminjasafnið
vildi á menningarminjadögum leit-
ast við að virkja almenning til þátt-
töku með fræðslu og umræðu. Þetta
væri liður í þeim undirbúningi sem
fram færi áður en rannsóknirnar
hæfust.
Margrét sagði að söfn um allt land
yrðu opin um helgina en sérstök
dagskrá yrði í Reykholti í
Borgarfirði, Hólum í Hjaltadal,
Gásum í Eyjafirði, Skriðuklaustri á
Héraði og á Þingvöllum. Minjaverðir
og fræðimenn frá Þjóðminjasafninu
ásamt heimamönnum og
staðarhölduram á hverjum stað
myndu miðla af þekkingu og ræða
framtíðarrannsóknir.
Einnig yrði vakin athygli á
byggða- og minjasöfnum í hverjum
landsfjórðungi og merkum minja-
stöðum.
Fjölbreytt dagskrá um allt land
í Reykholti verður dagskráin á
laugardag og mun Guðrún
Sveinbjarnardóttir, fornleifafræð-
ingur Þjóðminjasafns Islands, lýsa
rannsóknum í Reykholti og Magnús
Á. Sigurðsspn, minjavörður Þjóð-
minjasafns íslands á Vesturlandi,
kynnir starfssvið sitt og helstu verk-
efni á svæðinu.
Dagskráin ber upp á dag Snorra
Sturlusonar og verður því bæði fjall-
að sérstaklega um Snorra og tíð
hans í Reykholti og um framhald
rannsókna á staðnum.
Á Hólum verður dagskrá í umsjá
Hólamanna á sunnudag þar sem
Árni Daníel Júlíusson sagnfræðing-
ur, Katrín Gunnarsdóttir fornleifa-
fræðingur, Þór Hjaltalín, sagnfræð-
ingur hjá Þjóðminjasafni íslands, og
Sigurður Bergsteinsson, nýskipaður
minjavörður Þjóðminjasafns Islands
á Norðurlandi vestra, munu flytja
erindi og svara fyrirspurnum.
Farið verður í skoðunarferð að
Gásum í Eyjafirði frá Minjasafninu á
Akureyri en Margrét sagði að
Gásar væra einstakir í íslenskri sögu
og afar merkilegir séð frá sjónarhóli
fornleifafræðinnar.
Á Skriðuklaustri verður dagskrá á
vegum Gunnarsstofnunar á laugar-
dag í samvinnu við Þjóðminjasafn
Islands og Minjasafn Austurlands,
þar sem flutt verða erindi með leið-
sögn. Þar verða frummælendur
Helgi Hallgn'msson náttúrufræðing-
ur, Steinunn Kristjánsdóttir forn-
leifafræðingur, Guðný Zoéga, minja-
vörður Þjóðminjasafns Islands á
Austurlandi, Friðrika Marteinsdótt-
ir jarðfræðingur, Svanhildur
Óskarsdóttir norrænufræðingur og
Skúli Björn Gunnarsson, forstöðu-
maður Gunnarsstofnunar.
Þá mun Þjóðminjasafnið skipu-
leggja ferð til Þingvalla nk. laugar-
dag í samvinnu við Þingvallanefnd
og félagið „Minjar og saga“. Þar
munu flytja erindi Sigurður Líndal
prófessor og sagnfræðingur og fom-
leifafræðingarnir Guðmundur Ólafs-
son og Orri Vésteinsson. Margrét
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður
tekur og þátt í umræðum og ræðir
um stefnumótun í fornleifarann-
sóknum á Þingvöllum.
Morgunblaðið/Golli
Dagnr
stærðfræðinnar
Hve marg-
ir bolt-
ar í bfl?
DAGUR stærðfræðinnar er í
dag en hann er haldinn í til-
efni af alþjóðlegu ári stærð-
fræðinnar. Flötur, félag
stærðfræðikennara, hefur
m.a. undirbúið daginn með því
að senda verkleg rúmfræði-
verkefni til grannskóla og
hvetja framhaldsskólakennara
til þess að standa fyrir stærð-
fræðiþrautum í tilefni dagsins.
í Menntaskólanum í Kópa-
vogi var komið fyrir Toyota
Yaris bifreið á mánudaginn
sem hafði verið fyllt af fótbolt-
um. Nemendur í skólanum
fengu það verkefni að reikna
út fjölda fótbolta inni í bílnum.
Jón Eggert Bragason stærð-
fræðikennari segir að nem-
endur hafi sýnt verkefninu
mikinn áhuga og þrautin hafi
verið mikið rædd í skólanum. I
dag kl. 14 verða veitt verðlaun
fyrir bestu lausnirnar. Ekki
nægir að giska á fjöldann því
tekið er mið af bestu aðferð-
unum við útreikningana.
Klukkan 17 í dag hittast
stærðfræðikennarar á fundi í
hátíðarsal Háskólans sem hef-
ur yfirskriftina: Stærðfræðik-
ennsla á villigötum? Fram-
mælendur á fundinum verða
Anna Kristjánsdóttir prófess-
or í Kennaraháskóla íslands,
Ellert Ólafsson framkvæmda-
stjóri Tölvu- og stærðfræði-
þjónustunnar og Lárus H.
Bjarnason rektor MH.
Eldur út frá
sprittkerti
TVENNT slapp ómeitt þegar eldur
kviknaði út frá sprittkerti í Engjaseli
í Reykjavík í fyi-rinótt. Húsráðandi
og barn vora sofandi þegar eldsins
varð vart og húsráðandi náði að
slökkva sjálfur eldinn áður en
slökkvilið kom á vettvang. Minni-
háttar skemmdir urðu á vegg og
lofti, svo og skemmdir vegna reyks.
Tilkynnt var um eldinn klukkan 4:50.