Morgunblaðið - 27.09.2000, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Olafur og Bjarki festa niður gangbrautarstaur í EyjaQarðarsveit.
Gangbrautarstaurinn festur
FÉLAGARNIR Ólafur Kjartansson og Bjarki Árna-
son voru í óðaönn að reisa upp gangbrautarstaur
við veginn milli leik- og grunnskólans á Hrafnagili í
Eyjaijarðarsveit. Staurinn fauk um koll og lagðist
yfir veginn í miklu roki sem gekk yfir í Eyjafirði
síðasta vor. Nú þegar skólastarf er hafið og börn á
ferð yfir veginn er því brýnt að reisa staurinn en
þeir Ólafur og Bjarki unnu við það að festa hann
kyrfilega niður svo óhapp líkt og í vor hendi síður
aftur.
Langþráðar framkvæmdir við
Amtsbókasafnið boðnar út fljótlega
Framkvæmdir
hefjast ekki fyrr
en næsta vor
EKKI er gert ráð fyrir að fram-
kvæmdir við viðbyggingu Amtsbóka-
safnsins á Akureyri og breytingar á
eldra húsnæði safnsins hefjist fyrr en
næsta vor. Hins vegar er stefnt að því
að bjóða verkið út í lok október eða
byrjun nóvember nk. að sögn Magn-
úsar Garðarssonar, eftirlitsmanns
framkvæmda hjá Akureyrarbæ.
Viðbyggingin við Amtsbókasafnið
verður um 1.400 fermetrar að stærð
og heildarstærð hússins eftir að
nýbyggingin er risin tæpir 2.600 fer-
metrar. Magnús sagði að gróft áætl-
að yrði kostnaður vegna fram-
kvæmda við safnið í kringum 250
milljónir króna.
Hann sagði ekki skynsamlegt að
fara í mikið jarðrask á lóð Amtsbóka-
safnsins fyrr en með vorinu, auk þess
sem mikil þensla væri á bygginga-
markaðnum í bænum um þessar
mundir. Hann taldi að með því að
bíða með framkvæmdir til vors gæti
bærinn átt von á að fá hagstæðari til-
boð í verkið. „Meiningin er að bjóða
pakkann út í heilu lagi en þarna er
um að ræða umfangsmiklar breyt-
ingar í gamla húsinu, viðbygginguna
og heilmikla vinnu í lóðinni."
Verður mjög dýrt hús
Magnús sagði ráðgert að vinna
verkið á tveimur til þremur árum.
„Mér sýnist þetta ætla að verða ansi
dýrt hús og hallast því frekar að því
að framkvæmdir taki þijú ár. Gróft
áætlað er verið að tala þama um verk
upp á um 250 milljónir króna.“
Eins og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu er saga viðbygging-
arinnar við Amtsbókasafnið orðin
ansi löng og trúlega sú lengsta innan
bæjarkerfisins í langan tíma, ef ekki
frá upphafi. Bæjarstjórn samþykkti í
lok ágúst 1987 að stækka hús safns-
ins, í tilefni af 125 ára afmæli bæjar-
ins. Árið 1988 var efnt til samkeppni
um hönnun nýbyggingarinnar og
hlaut tillaga Guðmundar Jónssonar
arkitekts, sem starfar í Noregi,
fyrstu verðlaun. í kjölfarið var gerð-
ur samningur við Guðmund um arki-
tektavinnu vegna hönnunar viðbygg-
ingarinnar en fleiri aðilar komu að
verkinu m.a. vegna tæknilegra verk-
efna.
Mikil óánægja með
seinaganginn
Frá þessum tíma hefur lítið gerst í
málinu, þar til á síðustu mánuðum og
enn er beðið eftir því að hönnuðir
ljúki sinni vinnu. Síðastliðið vor lýsti
framkvæmdanefnd bæjarins yfir
megnri óánægju með seinaganginn
við hönnunina, enda hefði verið
ákveðið að fara af stað með verkið á
þessu ári. Það mun ekki ganga eftir
en hins vegar er útlit fyrir að hægt
verði að bjóða verkið út eftir 1-2 mán-
uði og hefja framkvæmdir næsta vor,
14 árum eftir að samþykkt var í bæj-
arstjóm að stækka safnið.
Vetrarstarf Akureyr
arkirkju að hefjast
Ákvörðun byggingarnefndar vegna húseignarinnar að
Helgamagrastræti 10 felld úr gildi
Nefndin taki umsókn um
byggingarleyfí fyrir að nýju
Morgunblaðið/Kristján
Húsið við Helgamagrastræti 10.
VETRARSTARF Akureyrarkirkju
hefst næsta sunnudag, 1. október, og
markar fjölskylduguðsþjónusta sem
hefst kl. 11 upphafið að því. Sunnu-
dagaskólaböm fá afhentan fyrsta
hlutann af því efni sem verður til um-
fjöllunar í barnastarfinu næstu mán-
uði.
Kynning í
Kompaníinu
KYNNING verður í Kompaníinu,
Hafnarstræti 73 á Akureyri, á föstu-
dag, 29. september, frá kl. 14 til
16.30 á því sem í boði er fyrir ungt
fólk í bænum. Kompaníið er upplýs-
inga-, þjónustu- og menningarmið-
stöð ungs fólks á aldrinum 16 til 25
ára.
Þeir sem kynna em ýmis félög,
klúbbar og fyrirtæki á Akureyri, en
markmiðið er að kynna fyrir ungu
fólki þá möguleika sem leynast í
skólabænum Akureyri hvað varðar
afþreyingu og þjónustu við aldurs-
hópinn. Ungt fólk sem nýflutt er í
bæinn er sérstaklega hvatt til að
mæta. Boðið verður upp á Axels-
skúffuköku, kakó, kók og prins póló.
Að lokinni guðsþjónustu verður
opið hús í Safnaðarheimilinu. Boðið
verður upp á veitingar og þar fer
fram kynning á því sem verður í boði
í safnaðarstarfinu í vetur auk þess
sem ýmis sjálfstæð félög og hópar
sem hafa aðstöðu í húsakynnum
kirkjunnar kynna starfsemi sína.
Meðal þess sem kynnt verður er
sunnudagaskólinn, æskulýðsfélagið,
bibh'ulestrar, Samhygð, samtök um
sorg og sorgarviðbrögð, sjálfshjálp-
arhópur foreldra, mömmumorgnar,
tónlistarstarfið, samverur eldri
borgara, kvenfélag kirkjunnar, nám-
skeið á hennar vegum, félag ein-
stæðra foreldra, starf 12-spora hópa
og heimsóknarþjónusta.
Ósýnilegi vinurinn
Kynningin fer fram í Safnaðar-
heimilinu til kl. 14 um daginn, en kl.
16 verður leiksýning í Akureyrar-
kirkju. Stoppleikhópurinn sýnir
leikritið Ósýnilega vininn sem bygg-
ist á bók Kari Vinje og Vivian Zahl
Olsen. Leikritið er ætlað bömum á
aldrinum 2-8 ára og tekur sýningin
um 40 mínútur. Leikendur eru Egg-
ert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir.
Foreldrar eru velkomnir með böm-
um sínum og er aðgangur ókeypis.
ÚRSKURÐARNEFND skipulags-
og byggingarmála hefur fellt úr
gildi í heild sinni ákvörðun bygg-
inganefndar Akureyrar frá því í
apríl í vor, vegna húseignarinnar að
Helgamagrastræti 10 á Akureyri.
Eigendur húseignarinnar kærðu þá
ákvörðun bygginganefndar og sam-
þykkt bæjarstjórnar að synja um-
sókn um byggingarleyfi fyrir þeim
hlutum húseignarinnar að Helga-
magrastræti 10 sem em austan
eignarinnar og um að fjarlægja
skuh byggingarhluta I og II fyrir
15. júní. Jafnframt var kærð
ákvörðun um að leggja dagsektir,
kr. 50.000, verði teikningum að
breytingum á eigninni ekki skilað
inn fyrir 15. maí 2000.
Úrskurðamefnd skipulags- og
byggingarmála hafnaði hins vegar
kröfu kærenda um að staðfest verði
að ekki sé heimilt að fjarlægja um-
rædda hluta byggingarinnar að
Helgamagrastræti 10 og að bygg-
inganefnd beri að veita leyfi fyrir
þeim. Úrskurðamefndin leggur fyr-
ir bygginganefnd að taka umsókn
kærenda um byggingaleyfi til með-
ferðar að nýju og Ijúka afgreiðslu
hennar í samræmi við gildandi
ákvæði skipulags- og byggingarlaga
og að gættum ákvæðum
stjómsýslulaga.
I niðurstöðu úrskurðamefndar
kemur fram að kærendur hafi reist
umfangsmiklar viðbyggingar við
hús sitt að Helgamagrastræti 10 án
þess að hafa fengið leyfi bygginga-
nefndar til þeirra framkvæmda.
Verði helst ráðið af málsgögnum að
framkvæmdir þessar hafi staðið
með hléum allt frá árinu 1992 og
fram til haustsins 1997. Með þessum
framkvæmdum hafi verið gróflega
brotið gegn ákvæðum þágildandi
byggingalaga um byggingaleyfi og
fleira og gegn ýmsum ákvæðum
þágildandi byggingareglugerðar.
Ýmsar athugasemdir gerðar
Úrskurðarnefnd gerir athuga-
semdir við ýmsar ákvarðanir í bæj-
arkerfinu. Eftir að bæjarlögmaður
hafi tilkynnt formlega um stöðvun
framkvæmda í september 1997 og
eigendum gert að fjarlægja ólög-
mæta byggingarhluta, hafi ekki ver-
ið gerð úttekt á verkstöðu á bygg-
ingarstað sem þó hafi verið
nauðsynlegt.
Þá telur úrskurðarnefnd að bygg-
ingarfulltrúi hafi átt að fylgja eftir
hótun um að höfða opinbert mál,
þegar ljóst var að kærendur sinntu
ekki kröfum um brottnám hinna
ólögmætu framkvæmda, ef ætlun
hans var að knýja fram niðurrif
hinna ólöglegu byggingarhluta.
Hefði í slíku máli fengist dómsúr-
lausn um kröfur byggingaryfirvalda
um brottnámið. Með því að láta
undir höfuð leggjast að hlutast til
um málshöfðun verði að telja að
byggingarfulltrúi hafi í raun fallið
frá því að beita úrræðum bygging-
arlaga, sérstaklega þegar haft er í
huga að honum var einungis heimilt
en ekki skylt að krefjast niðurrifs.
Verði því ekki við úrlausn kærum-
álsins litið til þeirra ákvarðana sem
teknar höfðu verið um að beita kær-
endur þvingunarúrræðum haustið
1997.
JHor0tml>laí>íí> Blaðbera
vantar • í Móasíðu á Akureyri Morgunblaðið Kaupvangsstræti 1 Akureyri > sími 461-1600.
0) 0 ó Tj u r ö-.jf verdur aö r-efj&sT. urn le\ö og rAaöiö oæmr-. Góöur góngutúr sern borg&r sig.