Morgunblaðið - 27.09.2000, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Boðað til annarrar umferðar kosninganna í Júgóslavíu
Milosevic reynir að
vinna sér tíma
London. The Daily Telegraph.
NU hefur það komið á daginn, sem
margir spáðu, að Slobodan Milos-
evic myndi ekki láta af forsetaemb-
ættinu í Júgúslavíu þegjandi og
hljóðalaust, þrátt fyrir að allt bendi
til að stjórnarandstaðan hafi unnið
stórsigur í kosningunum á sunnu-
dag. Stjómarandstaðan og óháðir
eftirlitsmenn fullyrða að Vojislav
Kostunica, forsetaframbjóðandi
kosningabandalags stjórnarand-
stöðuflokka, hafi náð öruggum
meirihluta í fyrstu umferð, en yfir-
kjörstjórn tilkynnti þó í gær að
hvorki hann né Milosevic hefðu náð
50% markinu og því yrði önnur
umferð kosninganna haldin 8. októ-
ber næstkomandi.
Eftir að sigur stjórnarandstöð-
unnar virtist í höfn hafa stjórn-
málaskýrendur sagt að Milosevic
ætti þrjá meginvalkosti í stöðunni,
en enginn þeirra virðist sérstak-
lega ákjósanlegur fyrir hann.
Einn af þessum kostum er að
boða til annarrar umferðar, eins og
Milosevic hefur nú gert. Það myndi
veita honum færi á að hleypa kappi
í stuðningsmenn sína og beita
stjórnarandstöðuna þvingunum,
eða jafnvel að undirbúa ennþá um-
fangsmeiri kosningasvik en uppvíst
varð um á sunnudag. Þetta gæti þó
snúist í höndunum á forsetanum,
enda fengi stjórnarandstaðan vita-
skuld einnig tíma til að safna liði,
og framkvæmd kosninganna yrði
undir smásjá erlendra fjölmiðla.
Raunar er óvíst að stjórnarand-
staðan muni taka þátt í seinni um-
ferðinni, enda hefur Kostunica lýst
yfir sigri og heitið því að hann
verði varinn. Þá er miklum vafa
undirorpið að vestræn ríki viður-
kenni að réttmætt sé að boða til
annarrar umferðar, enda líta þau
svo á að Kostunica hafi þegar unn-
ið sigur.
Neitar hugsanlega að láta af
embætti fyrr en á næsta ári
En jafnvel þótt forsetinn verði
nauðbeygður til að viðurkenna
ósigur eftir seinni umferðina er
viðbúið að hann neiti að segja af
sér fyrr en eftir marga mánuði.
AP
Stjómarandstæðingar hrópa vígorð gegn Slobodan Milosevic Júgóslaviuforseta á Qöldafundi í Belgrad í fyrra-
kvöld. Rúmlega 40.000 manns komu þá saman í mióborginni eftir að stjórnarandstaðan hafði lýst yfir sigri í
kosningunum um helgina.
Forsætisráðherrann Momir Bulat-
ovic lýsti því yfir í síðustu viku að
Milosevic hefði stjórnarskrárvarinn
rétt tU að sitja í embætti þar til
kjörtímabil hans rennur út um mitt
næsta ár. Þessi kenning þykir í
meira lagi vafasöm, enda boðaði
forsetinn sjálfur til kosninganna,
en meðferð málsins fyrir dómstól-
um gæti tekið marga mánuði. Það
gæfi Milosevic möguleika á að færa
völd frá embætti forseta sambands-
ríkisins Júgóslavíu til stjórnarinnar
í Serbíu, þar sem hann gæti síðan
tekið við stjórnartaumunum. Þá
yrði forsetaembættið sem félli í
hlut Kostunica nær valdalaust.
Ólíklegt þykir þó að MUosevic
kæmist upp með sÚk brögð.
Hollusta hersins fer dvínandi
I þriðja lagi gæti Milosevic huns-
að úrslit kosninganna alfarið, lýst
yfir sigri og beitt hernum til að
bæla stjórnarandstöðuna niður. En
þrátt fyrir að hann hafi ekki skirrst
við að beita valdi áður er búist við
að hann hiki við það nú, af ýmsum
ástæðum. Margt bendir tU að holl-
usta hersins og öryggislögreglunn-
ar við forsetann fari dvínandi og
stjómmálaskýrendur telja að hann
geti ekki lengur treyst á stuðning
þeirra. Samstaða innan stjómar-
andstöðunnar er meiri en áður og
alþjóðasamfélagið fylgist betur en
nokkm sinni með framvindu mála í
landinu.
Hvort sem Milosevic tekst að
vinna tíma eður ei virðist því margt
benda til að valdaskeið hans renni
senn á enda.
Viðræður Baraks og Arafats
Vinsamlegur fund-
ur en árangurslítill
Jerúsalem. AP, AFP.
ENGINN áþreifanlegur árangur
varð af fundi Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, og
Ehuds Baraks, forsætisráðherra
Israels, í fyrradag enda var fyrst
og fremst litið á hann sem undir-
búning undir væntanlegar viðræð-
ur í Bandaríkjunum. Palestínu-
menn segjast þó reiðubúnir að
bíða í „rnánuði" eftir nýjum friðar-
samningi fallist ísraelar á frekari
brottflutning frá Vesturbakkan-
um.
Mjög vel fór á með þeim Arafat
og Barak á fyrsta fundi þeirra í tvo
mánuði en hann fór fram á heimili
Baraks í Tel Aviv. Ræddu þeir í
raun ekki helstu deilumálin, sem
eru brottflutningur Israela frá
Vesturbakkanum, framtlð palest-
ínskra flóttamanna, staða Jerú-
salems og yfirráð yfir helgum
stöðum í borginni, einkum Mu-
sterisfjallinu. Israelskir fjölmiðlar
segja, að Barak sé að skoða
bandaríska tillögu um, að Muster-
isfjallið verði undir stjóm Samein-
uðu þjóðanna en Palestínumenn
hafa lagt tíl, að nokkur íslömsk
ríki taki að sér gæslu þar. Banda-
ríkjastjóm er nú að undirbúa frið-
artillögur, sem byggjast á því, sem
fram kom á fundi Israela og Pal-
estínumanna í Camp David í sum-
ar og síðar, og verða þær ræddar
með samninganefndum hvorra
tveggja nú í vikunni. Verða þær
hugsanlega lagðar formlega fram í
næstu viku en þó því aðeins, að lík-
legt sé, að þær verði samþykktar.
Háttsettur palestínskur emb-
ættismaður, sem óskaði nafn-
leyndar, sagði í viðtali við AFP-
fréttastofuna, að Palestínumenn
væm tilbúnir að bíða „mánuðum
saman“ eftir nýjum friðarsamn-
ingi ef ísraelar héldu strax áfram
brottflutningi sínum af Vestur-
bakkanum. Israelar hafa aftur á
móti hreyft þeirri hugmynd, að
gerður yrði friðarsamningur, en
sum helstu deilumálin, t.d. staða
Jerúsalems og yfirráðin yfir helg-
um stöðum í borginni, geymd til
betri tíma. Palestínumenn vísa því
á bug og segja, að annaðhvort
verði undirritaður endanlegur
samningur eða enginn.
Munu karlar
geta átt börn
saman?
London. The Daily Telegraph.
SAMKYNHNEIGÐIR karlar
munu í framtíðinni geta getið
börn saman með svipaðri tækni
og notuð var til að koma kindinni
Dolly í heiminn, að því er virtur
breskur líftæknifræðingur full-
yrðir.
Dr. Calum MacKellar, sem
kennir lífsiðfræði og lífefnafræði
við Edinborgarháskóla, telur að
frekari rannsóknir á einræktun
geti leitt til þróunar tækni, sem
gerði karlkyns pörum kleift að
geta börn saman, án þess að nota
erfðaefni úr konu. Þó væri fyrir-
sjáanlegt að kvenkyns „leigumóð-
ir“ þyrfti eftir sem áður að ganga
með barnið.
MacKellar fullyrðir að mögu-
legt verði að búa til nokkurs kon-
ar „karlegg" með því að fjar-
lægja kjarnann úr gjafaeggi frá
konu og setja kjarnann úr sáðfr-
umu karlmanns í staðinn. Þetta
„egg“ yrði svo unnt að frjóvga
með sæði úr öðrum karlmanni og
barnið myndi þá eiga tvo líffræði-
lega feður.
Hann viðurkennir að enn séu
margar genafræðilegar hindranir
í veginum fyrir því að þetta verði
hægt, og nefnir til dæmis að
ákveðin gen frá móður séu nauð-
synleg til að fóstur spendýra
þroskist eðlilega. MacKellar seg-
ist þó telja að framfarir f Ifftækni
verði svo örar að þessar hindran-
ir verði fljótlega yfirstignar. Þá
væri fræðilegur möguleiki á að
tveir karlar gætu eignast barn
saman.
„Það er ekki langt sfðan al-
mennt var litið á þá tækni sem
notuð var til að einrækta kindina
Dolly sem hugarburð í ætt við
vfsindaskáldskap,11 sagði MacKell-
ar. „Nú er hún hins vegar raun-
veruleg og nauðsynlegt er að lög
verði endurskoðuð í samræmi við
það.“
Archer
ákærður
YFIRVOLD í Bretlandi
ákærðu í gær rithöfundinn
Jeffrey Archer fyrir að hafa
beðið vin
sinn um að
bera ljúg-
vitni í meið-
yrðamáli
sem hann
höfðaði
gegn
dagblaðinu
Daily Star
Jeffrey Archer fiTÍr 13 ár“
um. Archer,
sem lengi var í miklum metum
hjá Ihaldsflokknum, var
ákærður fyrir meinsæri og fyr-
ir að hafa hindrað framgang
réttvísinnar, að því er talsmað-
ur Scotland Yard greindi frá.
Hneykslismál Archers náði
hámarki í nóvember á síðasta
ári er hann viðurkenndi að hafa
beðið vin sinn um að bera ljúg-
vitni um samband sitt við
vændiskonu. Kom játning
Archers í veg fyrir framboð
hans í kosningunum um emb-
ætti borgarstjóra Lundúna
sem fram fóru í vor.
Réttur til
einkalífs
varinn
ÞEKKTIR einstaklingar eru
víða taldir almannaeign sem
ljósmyndarar og fjölmiðlar hafi
rétt á að elta. Siðanefnd norska
fjölmiðlasambandsins varði
hins vegar nýlega rétt krón-
prinsins Hákonar til einkalífs
eftir að Dagbladet, eitt stærsta
dagblað Noregs, birti á forsíðu
mynd af prinsinum kyssa kær-
ustu sína, Mette-Marit Tjess-
em Hoiby, í afmælisveislu
sinni.
,Áfiýjunarnefndin getur ekki
fallist á að afmæliskoss frá
kærustu teljist mikilvægur fyr-
ir þjóðfélagið,“ sagði í dómi
siðanefndar, sem taldi Dag-
bladet bijóta gegn siðareglum
fjölmiðla með myndbirting-
unni.
Sotheby’s
til sölu?
SVO kann að fara að Alfred
Taubman, sem á meirihluta í
Sotheybýs-uppboðsfyrirtæk-
inu, selji hlut sinn sem metinn
er á einar 309 mUljónir dollara,
eða tæpa 25 milljarða króna.
Taubman sagði af sér embætti
sem stjórnarformaður fyrir-
tækisins í febrúar sl. vegna
rannsóknar á meintu verðlags-
samráði Christie’s og Sothe-
býs, sem ráða í sameiningu yfir
um 95% uppboðsmarkaðarins.
Þýska
velferðarkerf-
inu breytt
WALTER Riester, atvinnu-
málaráðherra Þýskalands,
kynnti í gær áætlanir um að
einkavæða hluta þýska velferð-
arkerfisins. Breytingarnar sem
Riester hefur hug á að koma í
framkvæmd yrðu tengdar líf-
eyrisgreiðslum, sem ríkis-
stjómin hefur þegar viður-
kennt að séu orðnar henni
ofvaxnar. „Það yrðu margir
sigurvegarar," sagði Riester og
kvað aukin einkaframlög og
minni ríkisframlög, sem gildi
tækju árið 2011, henta þjóðfé-
laginu vel.