Morgunblaðið - 27.09.2000, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjasta hneykslið í Frakklandi sagt það mesta í sögu Fimmta lýðveldisins
Getur haft ófyrirsjáanlegar
afleiðingar fyrir stiórnvöld
París. AFP, Reuters. ^ ^
AP
Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, svaraði spurningum fréttamanna er hann var að fara á skyndifund
í ríkisstjórninni um hneykslismálið í fyrradag.
Kóreu-
ríkin lofa
sam-
starfi
Varnarinálaráðherrar Kóreu-
rílganna tveggja náðu sam-
komulagi um að herir land-
anna ynnu saman að því að
leggja járnbraut og veg yfir
landamæri ríkjanna á þriggja
daga fundi sem Iauk í gær.
Gert er ráð fyrir því að fram-
kvæmdunum ljúki eftir ár og
ráðherrarnir lofuðu meðal
annars samstarfi við að fjar-
lægja jarðsprengjur af landa-
mærunum. Áætlað er að millj-
ón jarðsprengna hafi verið
lögð á fjögurra km breiðu
belti við landamærin.
Ráðherrarnir samþykktu
einnig að halda áfram viðræð-
um um leiðir til að draga úr
hernaðarlegri spennu á Kór-
euskaga. Þetta var fyrsti fund-
ur varnarmálaráðherra ríkj-
anna tveggja í hálfa öld.
Ráðherrarnir eru hér á göngu
nálægt fundarstaðnum á suð-
ur-kóresku eynni Cheju.
Brighton. AFP, AP.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hét því í aðalræðu sinni
á flokksþingi Verkamannaílokksins
í gær að leiða flokkinn til sigurs í
næstu þingkosningum, þrátt fyrir
að íhaldsflokkurinn hafi tekið for-
ystuna í skoðanakönnunum síðustu
daga.
Blair viðurkenndi að síðustu tvær
vikur hefðu verið mjög erfiðar fyrir
Verkamannaflokkinn og vísaði til
eldsneytisdeilunnar, sem setti allt á
annatt endann í Bretlandi, vaxandi
óánægju með litlar úrbætur í lífeyr-
ismálum og vandræðagangsins
vegna Arþúsundahvelfingarinnar í
Lundúnum. „Þetta eru mál sem við
berum ábyrgð á og hafa reitt al-
menning til reiði, og við ættum að
vera tilbúin að viðurkenna það,“
sagði Blair og lýsti sig ábyrgan fyr-
ir þeim skakkaföllum sem flokkur-
inn hefði orðið fyrir vegna þessa.
DOMINIQUE Strauss-Kahn, fyrr-
verandi fjármálaráðherra Frakk-
lands, neitaði í gær, að hann hefði
tekið við myndbandsspólu með
spillingarásökunum á Jacques
Chirac, forseta landsins, sem umb-
un fyrir að taka vægilega á skatta-
málum tískuhönnuðarins Karls
Lagerfelds. Heldur hann því enn
fram, að hann hafi aldrei skoðað
spóluna og sé búinn að týna henni.
Hneykslið, sem snýst um ólöglega
fjármögnun stjórnmálaflokka, hef-
ur valdið mikilli úlfúð milli Chiracs
forseta annars vegar og ríkis-
stjórnar Lionels Jospins hins vegar
og telja fréttaskýrendur, að það
geti haft í för með sér ófyrirsjáan-
legar afleiðingar fyrir samstarfið
milli þeirra.
„Þetta er mesta siðferðilega
kreppa og hneyksli, sem komið hef-
ur upp í sögu Fimmta lýðveldisins,“
sagði hið vinstrisinnaða dagblað
Liberation í gær og fréttaskýrend-
ur sögðu, að hneykslið gæti haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir
yfirstjórn ríkisins en í Frakklandi
eru forseti og ríkisstjórn um þessar
mundir fulltrúar andstæðra stjórn-
málaafla. Þá segja þeir, að málið
geti orðið Frökkum til skammar á
alþjóðavettvangi og staðfest þá al-
mennu skoðun innanlands sem ut-
an, að hin pólitíska yfirstétt í
Frakklandi, hvaðan sem hún kem-
ur, sé í litlum tengslum við líf
venjulegs fólks. Frakkar fara nú
með forystuna í Evrópusamband-
inu en fréttaskýrendur segja, að í
öðrum Evrópuríkjum hljóti menn
að spyrja sig hvort frönskum
stjórnvöldum sé treystandi til að
beita sér fyrir nauðsynlegum um-
bótum innan ESB á sama tíma og
allt sé upp í loft hjá þeim.
Hneykslið kom upp í síðustu viku
er dagblaðið Le Monde birti út-
drátt úr því, sem fram kemur á
spólunni eða afriti af henni. Þar
segir Jean-Claude Mery, sem nú er
látinn en var á þessum tíma, 1966,
frammámaður í flokki Chiracs, að
hann hafi tekið við miklu fé frá
byggingarfyrirtækjum á níunda
áratugnum gegn því, að þau fengju
Forsætisráðherrann ítrekaði að
skattar á eldsneyti yrðu ekki lækk-
aðir, en lagði áherslu á að ríkis-
stjórnin tæki samt sem áður tillit til
skoðana almennings. Þó væri ekki
unnt að falla frá grundvallarstefnu
til þess að friða háværa mótmæl-
endur, eins og til dæmis að lækka
skatta þegar ljóst væri að það kæmi
niður á menntakerfinu. „Það er
ekki hrokafull ríkisstjórn sem for-
gangsraðar verkefnum, það er
óábyrg ríkisstjóm sem forgangs-
raðar ekki,“ sagði Blair.
Keimur af kosningum
Ræða forsætisráðherrans þótti
bera keim af því að kosningar væru
í nánd, en margir eiga von á að boð-
að verði til þingkosninga á næsta
ári, þrátt fyrir að kjörtímabilið
renni ekki út fyrr en í maí 2002.
Blair lofaði umbótum á sviði heil-
verksamninga í París en þá var
Chirac borgarstjóri þar. Segir
hann, að Chirac hafi átt beinan þátt
í þessu og setið fund þar sem hann,
Mery, hafi afhent um 57 millj. ísl.
kr. frá byggingarfyrirtækjunum.
Þessu neitar Chirac og stuðn-
ingsmenn hans telja hugsanlegt, að
um sé að ræða samsæri og ófræg-
ingarherferð gegn honum með til-
liti til næstu kosninga.
Önnur sprengja í þessu máli féll
svo sl. sunnudag er tímaritið
L’Express sagði á heimasíðu sinni,
að það hefði komist yfir yfirlýsing-
ar, sem lykilvitni í málinu, skatta-
lögfræðingurinn Alain Belot, hefði
gefið fyrir dómara. Sagði tímaritið,
að Belot hefði séð um upptökuna á
játningum Merys 1966 og tjáð dóm-
aranum, að hann hefði látið
Strauss-Kahn fá spóluna gegn því,
brigðismála, menntamála og at-
vinnumála, en búist er við að
Verkamannaflokkurinn muni leggja
höfuðáherslu á þessa málaflokka í
kosningabaráttunni. „Forgangsat-
riði almennings eru okkar for-
gangsmál. Þetta er hugsjón fyrir
annað kjörtímabil sem er þess virði
að berjast fyrir,“ sagði Blair. Hann
tók undir yfirlýsingu fjármálaráð-
herrans Gordons Browns frá því á
að hann greiddi fyrir Lagerfeld
vegna gífurlegra skattaskulda
hans. Hann hefði skuldað rúmlega
þrjá milljarða ísl. kr. en skattayfir-
völd látið hann sleppa með 550
milljónir kr.
Strauss-Kahn neitar þessu harð-
lega og segir, að engin tengsl séu á
milli spólunnar og niðurstöðunnar í
skattamálum Lagerfelds. Hann
hafi vissulega tekið við spólunni en
aldrei skoðað hana þótt mörgum
kunni að finnast það ótrúlegt. Nú
sé hann búinn að týna henni.
Leitað hjá Strauss-Kahn
Lögreglan leitaði spólunnar á
skrifstofum Strauss-Kahns í fyrra-
kvöld en ekki var ljóst hvort eitt-
hvað kom út úr því. Vill hún komast
yfir frumeintakið til að kanna hvort
þvl ber saman við afritin, sem nú
mánudag um að reynt yrði að koma
til móts við kröfur ellilífeyrisþega,
og hét því að herða baráttuna gegn
glæpum.
Ávarpi Blairs var vel fagnað af
fundarmönnum, en ýmsir hafa haft
á orði að þetta sé ein mikilvægasta
ræða sem hann hefur flutt á ferlin-
um, því áframhaldandi stjórnarseta
Verkamannaflokksins eftir kosn-
ingar sé í húfi.
eru í umferð. Strauss-Kahn sagði af
sér sem fjármálaráðherra í nóvem-
ber sl. vegna annars hneykslismáls.
Jospin forsætisráðherra reyndi
að losa sig og ríkisstjórnina út úr
þessu hneyksli í fyrrakvöld er hann
lýsti yfir, að honum kæmi umrædd
spóla ekkert við. Vegna aðildar
Strauss-Kahn að málinu bæri hon-
um að gefa þær upplýsingar, sem
um væri beðið. Frammámenn í
flokki Chiracs segjast hneykslaðir
á þessum yfírlýsingum Jospins og
segja útilokað, að hann hafi ekkert
um málið vitað.
Le Monde sagði í gær, að lög-
reglan hefði fundið í bankahólfi tvö
bréf frá Mery til Chiracs. Hafi þau
verið skrifuð 1995 og 1996 og í þeim
kvarti Mery yfir því, að „loforð",
sem honum hafi verið gefin fyrir að
þegja, hafi ekki verið efnd.
Hákarlar
verða
tveimur
að bana
HÁKARLAR drápu tvo menn við
suðurströnd Ástralíu í fyrradag og
á sunnudag, 17 ára gamlan, ástr-
alskan ungling og Nýsjálending,
sem var í brúðkaupsferð. Til jafn-
aðar verðureinn maður hákörlum
að bráð við Ástralíu árlega og það
hefur ekki gerst í meira eri 20 ár, að
aðeins hafi liðið dagur á milli at-
burða af þessu tagi.
Nýsjálendingurinn Cameron
Bayes var á brimbretti 50 m undan
ströndinni þegar hákarlinn, fjög-
urra til fimm metra langur að sögn
vitna, kastaði honum af því. Tékst
honum að komast upp á það aftur
en hákarlinn gerði aðra atlögu og
dró manninn og brettið í kaf. Kom
hann síðan aftur upp með brettið
eitt í kjaflinum og hristi það burt.
Bayes var í brúðkaupsferð og er
kona hans á sjúkrahúsi en hún varð
fyrir alvarlegu áfalli.
Ástralski unglingurinn var einn-
ig í um 50 metra fjarlægð frá
ströndinni er hákarl réðst á hann.
Líka beggja mannanna var leitað í
gær.
Tony Blair flytur aðalræðu sína á þingi Verkamannaflokksins
Forsætisráð-
herrann í
varnarstöðu
Tony Blair veifar til þinggesta ásamt Cherie, konu sinni, eftir að hann
flutti ræðuna í gær.