Morgunblaðið - 27.09.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 25
Nýjar bækur
• Hin hvftu segl er skáldsaga
eftir Jóhannes Helga, byggð á
sjóferðaminningum föðurbróður
höfundar,
Andrésar P.
Matthíassonar,
frá Haukadal í
Dýrafirði
(1895-1985).
Andrés hóf
sjómennsku
vart af barns-
aldri og lifði lífi
sínu á heimshöf-
unum í hálfa
öld, fyrst á segl-
skipum suður
fyrir miðbaug og síðar á togurum,
þar af vargöld tveggja heimsstyrj-
alda. I formála höfundar segir
m.a.:
„Bók þessi kom út hjá Setbergi
fyrir 38 árum og þá skilgreind sem
æviminningar, svo sem þá tíðkað-
ist. Heimildaskáldsaga var þá lítt
þekkt hugtak, en það á við um
þessa sögu og raunar gott betur.
Lesandinn mun enda strax sjá
við lesturinn að bygging sögunnar
og efnistök, þ.á m. hugrenningar
gamla sjómannsins frá náttmálum
til dagrenningar, bera skýr ein-
kenni skáldsögu. Efniviðinn sótti
ég í söguforða föðurbróður míns,
Andrésar Péturssonar Matthías-
sonar sjómanns frá Haukadal í
Dýrafirði (1895-1985).
Andrés var sögumaður góður,
manna harðastur af sér og annál-
aður sjómaður. Þegar samræður
okkar fóru fram glímdi hann enn
við Ægi konung og stóðst yngri
mönnum fyllilega snúning, kominn
hátt á sjötugsaldur, og hafði þá
stundað sjóinn í hálfa öld, seinni
árin á vélbátum og togurum, en á
yngri árum sigldi hann á skútum
og þar næst um heimshöfin á há-
möstruðum seglskipum og gisti
fjarlæg lönd.“
Helgi.
TONLIST
Salurlnn
SÖNGTÓNLEIKAR
Einsöngslög, aríur og dúettar eftir
Purcell, Sigvalda Kaldalóns, Schu-
mann, Brahms og Rossini; 20 lög úr
Ljóðakomum (1981) eftir Atla
Heimi Sveinsson. Hulda Björk
Garðarsdóttir sópran, Sigríður Að-
alsteinsdóttir mezzosópran; Jónas
Ingimundarson, píanó. Sunnudag-
inn 24. september kl. 20.
TÍBRÁRÖÐ Tónlistarhúss
Kópavogs, Við slaghörpuna, gat
státað af tónleikum á sunnudags-
kvöld sem með réttu hefðu ekki að-
eins átt að laða margfalt fleiri
áheyrendur en létu sig sjá í varla
þriðjungsfullum salnum, heldur
hefðu einnig mátt fara víðar, og
jafnvel um nágrannalöndin í land-
suðri. Að vísu var efnisskráin sum-
part frekar hefðbundin en þó víða
skemmtileg. Hitt var þó veiga-
meira, að söngkonurnar voru eftir
öllu að dæma á þvílíkri uppleið, að
raungæðin virtust komin langt
fram úr þeim takmarkaða orðstír
sem miðlungsaðsóknin benti til.
Gefur slíkt enn sem oftar tilefni til
að harma hversu lítið sýnist vera
um forvitna hlustendur i klassísku
músíklífi hér sem þora að taka
áhættu, í stað þess að einblína á
lummur og lárviðarnöfn.
Hulda Björk Garðarsdóttir og
Sigríður Aðalsteinsdóttir hafa áður
sungið saman með góðum árangri,
enda hæfa raddirnar hvor annarri
ljómandi vel. Þær hófu tónleikana á
glaðlegum nótum með fyrsta af
þrem dúettum eftir Henry Purcell í
umritun Brittens, Sound the
Trumpet úr Afmælisóð Purcells til
Maríu Bretadrottningar, Lost is my
quiet úr The Indian Queen og What
can we poor females do?, sem upp-
haflega var fyrir sópran og bassa en
neðri röddinni hér væntanlega lyft
upp um áttund. Fyrsti dúettinn var
svolítið hrár og sá næsti hefði kall-
að á ögn sléttari tónmyndun í sam-
ræmi við angurværan barokkstíl,
Reuters
Saga o g menning
Brasilíu
SÝNINGARGESTUR virðir hór
fyrir sér höfuðbúnað eins brasil-
ísks ættbálks á sögusýningunni
Brasilía í 500 ár, sem þessa dag-
ana stendur yfir í borginni Sao
Paulo í Brasilíu. Menning og listir
þjóðflokkanna sem byggja landið
eru þar skoðuð yfir það 500 ára
tímabil sem liðið er frá því Portú-
galar fyrst stigu fæti á brasilíska
grund.
Sýningin hefur vakið mikla at-
hygli í heimalandi sfnu, en hátt f
tvær milljónir gesta hafa þegar
sótt hana. Á næstu mánuðum
munu því valdir sýningarhlutir
verða til sýnis í New York, Lond-
on, París, Lissabon og Moskvu.
Horfinn á 60
sekúndum
LEIKLIST
Sambfóin Álfabakka,
Stjörnubfð, Laugar-
ásbfð, Borgarbíð Ak-
ureyri, Nýja bíð
Kcflavík
HULDUMAÐURINN
„HOLLOW MAN“
Leikstjórn: Paul Verhoeven. Hand-
rit: Gary Scott Thompson og
Andrew W. Marlowe. Tónlist: Jerry
Goldsmith. Aðalhlutverk: Kevin
Bacon, Elisabeth Shue, Josh Brolin,
Kim Dickens, Greg Grunberg, Joey
Slotnick og William Devane.
Columbia. 2000.
NÝJASTI spennutryllir Paul Ver-
hoevens, Huldumaðurinn eða „Holl-
ow Man“, fjallar um vísindamann,
ekki beint bijálaðan en ofvirkan
sannarlega sem getur gert sig ósýni-
legan. Hann heitir Sebastian Caine
og hefur gert tilraunir á dýrum hing-
að til en núna langar hann að prófa
efnið á sjálfum sér og púff, hann verð-
ur ósýnilegur á andartaki. Við það
breytist nokkuð eðli hans og hann
verður þessi brjálaði vísindamaður
sem í honum leyndist. Hann gerist
frakkur mjög í kvennamálum, við sjá-
um það í fýrsta atriðinu að það blund-
ar í honum gægjufikn og áður en lýk-
ur gerist hann morðóður í þokkabót.
Verhoeven gerði áður „Basic In-
stinct“ og „Showgirls" svo það kemur
ekkert sérstaklega á óvart þótt það
fyrsta sem vísindamaðurinn gerir eft-
ir að hafa öðlast ósýnileika er að káfa
á bijóstunum á aðstoðarkonu sinni á
meðan hún lúrir. Enn eitt mikilvægt
spor stigið fyrir mannkynið þar, býst
ég við. Það sem Verhoeven ætlar sér
að gera, en fer óþarflega klaufalega
að, er að fjalla um hvaða áhrif það
hefur á mann eins og Sebastian að
geta gert það sem hann vill án þess að
nokkur sjái til hans. Það er ótrúlegt
hvað maður getur gert þegar maður
þarf ekki lengur að líta framan í sig í
spegli, segir vísindamaðurinn á ein-
umstað.
Ur þessari athugasemd reynir
Verhoeven sem sé að vinna en það
gengur treglega. Ósýnileikinn virðist
helst tengjast kynhormónum því vís-
indamaðurinn getur hreinlega ekki
séð kvenfólk í friði. Loks hleypur í
hann mikilmennskubijálæði og hann
verður svona skrýmsli eins og í Tor-
tímandanum sem neitar að deyja.
Svo Huldumaðurinn verður fljót-
lega spennutryllir án nokkurs raun-
verulegs innihalds og hin mikla
breyting á Sebastian úr valmenni í
ómenni verður aldrei sannfærandi.
Myndin virkar í sjálfu sér ekki illa
sem dellutryllir. Tæknibrellumar eru
mjög skemmtilegar því hugmyndin
er að sýna nákvæmlega hvað gerist
taug fyrir taug þegar vísindamaður-
inn verður ósýnilegur. Og þegar hann
er orðinn ósýnilegur finna handrits-
höfundamir margar góðar aðferðir til
þess að gera sér mat úr því.
Kevin Bacon er ágætlega brattur í
hlutverki vísindamannsins og Elisa-
beth Shue er fín sem kvenhetjan er
gengur harðast fram í því að bjarga
málunum. Aðrir leikarar em að
mestu fóður fyrir Sebastian eftir að
hann hefur tapað sér.
Það hefði mátt vinna mun betur úr
þeirri hugmynd sem farið var af stað
með en fyrst.það var ekki gert er eins
gott bara að halla sér aftur og láta
hamaganginn skemmta sér.
Með kappi
íkinn
en annars var vel og samtaka sung-
ið af smitandi ferskleika.
Hulda Björk söng næst fjögur lög
eftir Sigvalda Kaldalóns með reisn
og aðdáunarverðum skýmm texta
af sópran að vera, og bar af túlkun
hennar í Ég lít í anda liðna tíð, sem
skilaði depurð lagsins án minnsta
votts af þeirri væmni sem stundum
vill fylgja. Sigríður tók upp Kalda-
lónsþráðinn með öðrum þrem lög-
um hans og náði hæst með meitlaðri
og hæfilega tilfinningahlaðinni
útlagningu af Betlikerlingunni.
Robert Schumann skrifaði þó-
nokkuð af samsöngslögum fyrir
kvenraddir, og fluttu þær stöllur
saman tvo dúetta, hina glettnu róm-
önzu Erste Begegnung (upphaflega
fyrir sópran og barýton?) sem lét
ljúft og frísklega í eymrn, og hinn
ljúfsára Liebesgram, þar sem
víbratóið var hins vegar fullblóm-
legt að smekk undirritaðs. Johann-
es Brahms lét einnig vel að semja
fyrir kvenraddir, enda stjórnaði
hann Frauenchor síðustu árin sín í
Hamborg, og dúettarnir Die Meere,
sjarmerandi bátssöngur, og þó sér-
staklega Die Schwestern í polka-
skoppandi bæheimskum þjóðlaga-
stíl voru sungnir af eldhressu fjöri
og gáska, er hefðu sómt sér hið
bezta í líflegri óperettuuppfærslu á
t.d. Sumar í Týról.
Þess var ekki getið í tónleikaskrá
hvort, og þá hvað, hefði verið umrit-
að af dúettunum fyrir sópran og alt,
og kannski tittlingaskítur að fara
fram á slíkt, þó að sagt geti sitthvað
um upprunalega hugsun á tilurðar-
tíma. Né heldur var frá greint, að
smálögin tuttugu eftir Atla Heimi
Sveinsson, sem mynduðu meiripart
dagskrár eftir hlé, voru úr 31 lags
barnasöngvasafni hans Ljóðakorn
(1981), sem Kristinn Sigmundsson
gerði fleygt eftir að það hafði legið
óbætt hjá garði um árabil. Síðan
hefur sýnt sig að míníatúrur þessar
eiga sér fleiri túlkunarmöguleika en
halda mætti, þótt láti lítið yfir sér
við fyrstu sýn. Söngvarinn, og raun-
ar píanóleikarinn líka, þurfa þar að
bregða hami á sannfærandi hátt
með stuttu millibili, og þótt fáir
skáki Kristni í þeim efnum, var eft-
irtektarvert hvað þær Sigríður og
Hulda fengu fram margar ólíkar
hliðar úr þessum örperlum. Að vísu
jafnaðist umstillingarvandinn
nokkuð við að þær sungu allt til
skiptis (en lítilsháttar saman í síð-
ustu lögunum), og fékk hvor þannig
aukið ráðrúm til að undirbúa sitt
næsta gervi.
Sem von var náði sumt hærra en
annað, enda lögin flest stutt, og
sum örstutt, en geta mætti á stangli
af hálfu Huldu Bjarkar gáskans í
Við stokkinn og Afí gamli, hins
frumlega Fiskiróðurs, Desembers
fyrir fallegan sléttsöng og Hausts
fyrir vel með farinn talsöng. Úr hlut
Sigríðar mætti nefna andrúmsríkið
í Oll börn sofa (= Sofa urtubörn á
útskerjum), líðandi slétta og fallega
tónmyndun í Ljóð, innlifaða túlkun
hennar á snjallri tónsetningu Atla á
hinu íbyggna litla ljóði Sigurðar A.
Magnússonar Krotað í sand og
húmorinn í Kisa mín. Þar síðast var
píanóið raunar í sterkasta lagi, og
sömuleiðis í Bráðum kemur, Afi
gamli, Fína kisa og Eignir karls, og
kann fyrri samvist við þrumubassa
Kristins þar að hafa setið eftir í
annars tillitssömum og oft bráð-
smellnum undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar.
Síðast sungu þær stöllur tvo
söngva frá sjávarsíðu eftir Rossini
og gerðu glimrandi vel, fyrst báts-
sönginn La Pesca, en fóru síðan á
kostum, bæði raddlega og með við-
eigandi kómískum fettum, í La reg-
ata veneziana, þar sem heitmeyjar
tveggja ræðara fylgjast með unn-
ustum sínum frá landi og hleypa
þeim kapp í kinn, og var það ekki
ónýt tímasetning nú á yfirstandandi
Ólympíuleikum í Sydney.
Ríkarður Ö. Pálsson
Arnaldur Indriðason
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
5 gerðir - margir litir
60 ára frábær revnsla.
Einar
Farestvert & Co hf
Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900
NETVERSLUN M ■
www.hillur.is
Ef þig uantar hillur eöa hillukerfi
fyrir lagerinn, uerslunina,
heimiliö, skrifstofuna, bílskúrinn...
Þú skoöar í rólegheitum, pantar og viö sendum um hœl.
Umboös- og heildverslun
Nethyl3-3a -110 Reykjavik
Sími 5353600-Fax 5673609
www.isold.is