Morgunblaðið - 27.09.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 27
Þrjár sýningar í ASI
MYJVDLIST
Listasafn ASí,
Freyjugötn
BLÖNDUÐ TÆKNI
BRYNDIS JÓNSDÓTTIR,
GUÐRÚN MARINÓS-
DÓTTIR
og VIGDÍS KRIST-
JÁNSDÓTTIR
Til 1. október. Opið þriðjudaga til
sunnudaga frá kl. 14-18.
STÖLLURNAR Bryndís Jóns-
dóttir og Guðrún Marinósdóttir
skipta með sér safninu þannig að
Bryndís er á hæðinni en Guðrún í
gryfjunni svokölluðu. Báðar hafa
þær viðað að sér hugmyndum úr
sveitinni, Bryndís úr safni gamalla
búfjármarka en Guðrún úr hrosshári.
Bryndís teflir fram stórum leir-
kerum og meðalstórum sem að lögun
eru eins og staðlaðar grunnmyndir af
fjáreyrum með tilheyrandi mörkum.
Grunnmyndirnar eru ekki óáþekkar
bátum eða kirkjuskipum, en á hlið
eru kerin einna líkust eyjum sem rísa
úr sæ. Efniviðurinn er brenndur
steinleir, en Bryndís teflir fram
tveim ólíkum litbrigðum, postulíns-
hvítri húð og yfirborði dökku af kop-
aroxíði. Pannig virka kerin misþung
og ólík að inntaki þótt grunnefnivið-
urinn sé sá sami.
Sem form á gólfi salarins í ASÍ
taka hin gerðarlegu ker Bryndísar
sig vel út. I handmótuðum hliðunum,
þar sem enn má sjá fingurfarið milli
laganna sem mynda veggi ílátanna,
er falin sterk náttúruupplifun, enda
minna þessi eymamerktu form á
fuglabjörg landsins.
Það er langur vegur frá stórskom-
um keram Bryndísar til fínlegra
hrosshársverka Guðrúnar. Hún
byggir verk sín á evrópskri skreyti-
hefð þar sem mannshár - að öllum
líkindum kvenmannshár - vora flétt-
uð utan um vir og bundin í eins konar
kniplingavirki.
Sum verkin í gryfjunni era fest á
standprjóna á gólfinu meðan önnur
mynda snigilkappa á veggnum. Best
er þegar Guðrún fléttar úr háranum
blómkrónur og lætur þær mynda
eins konar stjömuþoku á langvegg
gryfjunnar. Þá er eins og hún leysi
aðferðina úr viðjum handverks og
gefi henni listrænan kraft sem nægir
til áhrifa. Þá er merkilegt að hára-
fléttumar era í eðli sínu „kitsch“ eða
fáfengilegt listlíki, sem Guðrúnu
tekst að blása í nýju og óvæntu lífi.
Þriðja konan í hópnum er Vigdís
heitin Kristjánsdóttir vefari, en
nokkur verk hennar úr fóram Lista-
safns ASI prýða herbergið við hlið
gryfjunnar. Vigdís var brautryðjandi
í íslenskum myndvefnaði sem kaus
að vinna að list sinni í kyrrþey. Verk
hennar lýsa afar vel rómantísku upp-
lagi hennar og náttúraást sem kom
fram í fjölda veggteppa af gróður-
sæld gróandans. Þá er á einum
veggnum hin smágerða myndlýsing
hennar af Kirkjunni á hafsbotni - La
Cathédrale engloutie - byggð á hinni
þekktu tíundu Prelúdíu úr Fyrstu
bók Debussy, en Vigdís var mikill að-
dáandi tónlistar og lék sjálf ágætlega
á píanó. Það er bragð að þessari litlu
en fallegu sýningu á vefmyndum Vig-
dísar.
Halldór Björn Runólfsson
Sýning í
Mokka
KATHLEEN Schultz hefur opnað
sýningu í Mokkakaffí. í fréttatil-
kynningu lýsir hún verkum sínum
svo: „Hugmyndin felst í listrænni
rannsókn á skynjun og ferli hennar.
Tilefnið er að upplýsa dularfullar
breytingar alheimsins, frá hinu
smæsta til hins stærsta. Vatnslita-
seríurnar mótuðust þegar ég fylgdi
breytingunum eftir blað fyrir blað.“
Sýningin stendur til 22. október.
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfs
Ein af vefinyndum Vigdísar Kristjánsdóttur.
Hrosshársverk í gryfjunni eftir
Guðrúnu Marinósdóttur.
Leirker Bryndísar Jónsdóttur,
byggð á búfjármörkum.
Draumasmiðjan
Fjögur ný
íslensk leikrit
FJÖGUR ný íslensk verk era á verk-
efnaskrá sjálfstæða leikhússins
Draumasmiðjunar í vetur.
Leiksýningin „Ég sé...“ sem var
framsýnd í mars á þessu ári hefur
verið boðin þátttaka á listahátíð í
tengslum við IETM-fund sem verður
haldinn í Reykjarik dagana 4.-8 októ-
ber 2000. „Ég sé...“ verður svo sýnd
út nóvember í Möguleikhúsinu við
Hlemm fyrir leikskólana og grann-
skólana. Sýningin er flutt á tveimur
tungumálum samtímis, íslensku og
táknmáli. Einnig er hún óvenjuleg að
því leyti að hún höfðar sérstaklega
vel til ungra bama þar sem hið sjón-
ræna skipar svo stórt hlutverk í sýn-
ingunni. Arstíðaskiptin era í aðalhlut-
verkinu en við fáum að fylgjast með
uppvexti lítils álfabarns og hvernig
það þroskast við hver árstíðaskipti.
Margrét Pétursdóttir er höfundur og
leikstjóri en Elsa Guðbjörg Bjöms-
dóttir, Gunnar Gunnsteinsson og Ólöf
Ingólfsdóttir leika. María Ólafsdóttir
hannaði leikmynd og búninga, Skúli
Gautason samdi tónlistina og Alfreð
Sturla Böðvarsson sá um lýsinguna.
Draumasmiðjan æfir nú „Góðar
hægðir" eftir Auði Haralds og verður
það sýnt á leiklistarhátíðinni Á
MÖRKUNUM sem er samvinnu-
verkefni Sjálfstæðu leikhúsanna og
Reykjavíkur - menningarborgar
2000. Að sögn aðstandenda sýningar-
innar er þetta kolsvört kómedía um
ástir eldra fólks og hvernig börn
þeiiTa bregðast við er upp kemst um
sambandið. Gunnar Gunnsteinsson,
Soffía Jakobsdóttir og Erlingur
Gíslason era í aðalhlutverkum. í öðr-
um hlutverkum era Erla Rut Harð-
ardóttir, Sveinn Þórir Geirsson og
Margrét Pétursdóttir.
María Ólafsdóttir sér um leikmynd
og búninga, Alfreð Sturla Böðvar-
sson um lýsingu og Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson semur tónlist og hljóð.
Framsýning er 26. október 2000 kl.
20 í Tjarnarbíói. Fleiri framsýningar
er fyrirhugaðar í vetur, m.a. einleikur
í Kaffileikhúsinu á vormánuðum og
„Benedikt búálíúr“ eftir Ólaf Gunnar
Guðlaugsson, en Leikfélag íslands
mun framleiða þá sýningu og er áætl-
uð framsýning í Loftkastalanum í
Ur sýningu Draumasmiðjunnar
á „Ég sé...“.
febrúar 2001. Draumasmiðjan og
Æskan hafa gengið til samstarfs um
að gefa út Stubbana (Teletubbies) út
á myndbandi. Nú fyrir áramót munu
þrjár spólur koma á markað og verða
þær eingöngu seldar í verslunum
H agkaups. _______
Nýjar bækur
• PP FORLAG hefur gefið út bókina
Kokkur án klæða eftir Jamie Oliver í
þýðingu Lóu Aldísardóttur. í frétta-
tOkynningu PP foriags segir að Jam-
ie Oliver sé einn hæfileikaríkasti ung-
kokkur Bretlands., ,Aðeins átta ára
gamall hóf Jamie feril sinn í eldhús-
inu og hefúr hann síðan unnið með
mörgum af frægustu matreiðslu-
mönnum Bretlands. Hann hlaut þjálf-
un í Westminster Collegeog hefur
starfað í Frakklandi og á ítah'u. Auk
þess hefur hann unnið með mörgum
af frægustu kokkum Bretlands, m.a.
Antonio Carluccio og Ruthie Rogers
og Rose Gray á River Café. Þetta er
hans fyrsta bók og hann var 23 ára
þegar hún kom fyrst út í Bretlandi.
I bókinni, Kokkur án klæða, beitir
Jamie eftirfarandi lögmáli á alla rétt-
ina: „Berstrípið uppskriftina og fáið
hana svo til að ganga upp.“ Reglan
nær yfir allt frá salötum til steika, eft-
irréttum til pasta,“ segir m.a. í frétta-
tilkynningu. BBC hefur gert
sjónvarpsmyndaflokk með Jamie Oh-
ver.
Bókin er 260 blaðsíður að lengd.
Leiðb. verð: 3.980 kr. ISBN: 9979-
760-00-1
Örfá sæti laus vegna forfalla.
Einugis til sölu í dag og til hádegis
á morgun, fimmtudag.
Lágmúla 4: slmi 585 4000, græni númer: 800 6300,
Kringlan: sfmi 585 4070, Kðpavogi: sfmi 585 4100,
Keflavík: sfmi 585 4250, Akureyri: sími 585 4200,
Selfoss: sfmi 482 1666
- og hjá umboðsmönnum um land allt.
www.urvalutsyn.is