Morgunblaðið - 27.09.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 29
UMRÆÐAN
Sama gamla sagan
endurtekur sig
ALÞINGI ályktaði
hinn 3. mars árið 1999,
að „opinberum störf-
um fjölgi eigi minna
hlutfallslega á lands-
byggðinni en á höfuð-
borgarsvæðinu". Þetta
er afar skýrt markmið,
sem felur í sér gjör-
breytingu frá ríkjandi
ástandi. Þess var því
að vænta að átök hæf-
ust þegar farið yrði að
hrinda þessari stefnu-
mótun í framkvæmd.
Sú hefur og orðið
raunin.
Tilefni þessarar
ályktunar er meðal
annars athugun sem Haraldur L.
Hai-aldsson hagfræðingur vann að
ósk stjórnar Byggðastofnunar. Sú
rannsókn leiddi meðal annai's í ljós
að hlutfall stöðugilda er lægra en
hlutfall af íbúatölu í öllum kjör-
dæmum nema Reykjavík. Það er
ljóst að atvinnustefna hins opinbera
og ákvarðanir um hvar starfsemi
þess fer fram ræður miklu um bú-
setuþróun í landinu. Stöðugildi hjá
ríkissjóði og fyrirtækjum í meiri-
hlutaeign ríkisins samkvæmt rann-
sókn Haraldar voru tæplega 24
þúsund. Þar af tæp tvö af hverjum
þremur í höfuðborginni. Staðsetn-
ing opinberra starfa hefur því
bersýnilega haft sitt að segja um
búseturöskunina á síðustu árum og
áratugum.
Við vitum að oftar en ekki hefur
það gerst sem af gömlum vana að
starfsemi ríkisins er
sett niður á höfuð-
borgarsvæðinu. Fjar-
skiptabylting nútím-
ans og framfarir í
samgöngum hafa þar
litlu um breytt, því
miður.
Ný opinber störf á
landsbyggðinni?
Nú segja menn
mjög að best sé að
staðsetja ný verkefni
hins opinbera utan
höfuðborgarsvæðisins.
Þetta lögðum við
Tómas Ingi Olrich
raunar til í þingsályktunartillögu
sem við lögðum fram á Alþingi 15.
nóvember árið 1996. Þessi hugsun
rataði svo inn í byggðaáætlun sem
Alþingi samþykkti mótatkvæða-
laust og gildir fyrir árin 1999-2001.
Illa hefur hins vegar gengið að
framkvæma þessa hugmyndafræði.
Ekki það að opinber störf hafi ekki
fæðst. Ekkert hefur skort á það.
Þessum störfum hefur hins vegar
undantekningarlítið verið ætlaður
staður á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt
fyrir að um ný verkefni hafi verið
að ræða. Menn hafa einfaldlega
komið sér upp enn einni afsökun-
inni fyrir því að sniðganga sam-
þykkt Alþingis, með því að segja að
nýju störfin eigi sér forsögu á höf-
uðborgarsvæðinu, séu unnin innan
eða í tengslum við stofnanir sem
þar eru og þar fram eftir götunum.
Ríkisstofnanir
Hefur ekki alltaf orðið
djöfulgangur, spyr
Einar K. Guðfínnsson,
þegar áform hafa verið
um að hið opinbera
léti framkvæma
viðfangsefni sín utan
póstnúmera höfuðborg-
arsvæðisins?
Sú leið sem Morgunblaðið bendir á
í leiðara sínum og við Tómas Ingi
lögðum til í þingsályktunartillögu
okkar hefur ekki dugað af þeim
sökum, því miður.
Eilífðarvélin
Skemmst er líka að minnast þess
að á þessu sumri var tveimur nýj-
um stofnunum valinn staður í
Reykjavík, Persónuverndinni og
Lyfjastofnun. Báðar þessar stofn-
anir voru þó í eðli sínu nýjar. Þeim
var meðal annars ætlað hlutverk
sem ekki hafði verið sinnt áður, auk
þess að sjálfsögðu að sinna um
verkefni sem aðrar stofnanir (sem
auðvitað áttu heimilisfesti syðra)
höfðu áður haft með höndum. Stað-
setning þessara stofnana utan
Einar K.
Guðfinnsson
V atnaj ökulsþj óðgar ð-
ur - stórgóð hugmynd
fyrir stórbrotið land ?
HUGMYNDIN um
þjóðgarð varð fyrst að
veruleika árið 1872
með stofnun Yellow-
stone-þjóðgarðsins í
Bandaríkjunum. Mark-
miðið var að afmarka
landsvæði til verndun-
ar; takmarka inngrip
manna og leyfa við-
komandi svæði að
þróast sem allra mest á
náttúrulegum forsend-
um. Þetta var hug-
mynd sem gekk upp og
þjónaði samfélaginu á
mikilvægan hátt og er
fyrirmynd þeirra lið-
lega 2.000 þjóðgarða sem í dag finn-
ast í a.m.k. 130 ríkjum.
Það er ekki til einhlítt svar við
því hvað gerir landsvæði þess virði
að gera það að þjóðgarði. Land-
svæðið þarf að vera stórbrotið eða
einstakt á einhvern hátt. Það þarf
að búa yfir verðmætri náttúru eða
vera á einhvern hátt eftirsóknar-
vert til skoðunar. Það þarf að veru-
legu leyti að vera mótað af náttúr-
unnar hendi en minna af mann-
völdum. Það þarf að vera hægt að
vernda það með skilvirkum hætti
en jafnframt unnt að nýta það til
útivistar og vísindarannsókna án
þess að það skaðist.
Reynsla íslendinga af þjóðgörð-
unum þremur á Þingvöllum, í
Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum er
afar góð. Þessi staðir geyma perlur
úr íslenskri náttúru og eru jafn-
framt eftirsóttir áningastaðir og
unaðsreitir sem styrkja aðliggjandi
byggðir. Nú hillir undir nýjan
þjóðgarð á Snæfellsnesi sem ef-
laust mun verða bæði náttúruvernd
og útivist til góðs.
Það eru fjölmargir
staðir á Islandi sem
vel gætu staðið undir
nafngiftinni þjóðgarð-
ur. Vatnajökull og að-
liggjandi svæði eru
þar fremst í flokki.
Vatnajökull er stærsti
jökull Evrópu og í iðr-
um hans er eitt virk-
asta eldfjallasvæði
heims. Hann er ein-
stakur og stórbrotinn.
Allt um kring er
landslag stórt í snið-
um og fjölbreytt og
mótað af því mikla afli
sem í jöklinum býr.
Að undaförnu hafa komið fram
hugmyndir um að skynsamlegt gæti
verið að gera Vatnajökul og aðliggj-
andi svæði að þjóðgarði sem gæti
orðið stærsti og fjölbreyttasti þjóð-
garður Evrópu. Snemma árs 1999
samþykkti Alþingi tillögu til þings-
ályktunar um Vatnajökulsþjóðgarð
og síðan hefur umhverfisráðuneytið
haft málið til meðferðar. Síðar á ár-
inu 1999 varð það niðurstaða aðal-
fundar Landverndar að nauðsyn-
legt væri að fjalla ítarlega um
hugmyndirnar um Vatnajökulsþjóð-
garð. Það er í samræmi við störf og
stefnu Landvemdar að í umhverfis-
málum sé fræðsla, þekking og
gagnkvæmur skilningur grundvöll-
ur þess að ná megi skynsamlegri og
farsælli niðurstöðu.
í kjölfarið hafa samtökin, í sam-
starfi við fjölmarga aðila, undirbúið
efnismikla ráðstefnu sem haldin
verður á Kirkjubæjarklaustri 29.
september nk. A ráðstefnunni mun
vinnuhópur undir stjórn Ingu Rósu
Náttúruvernd
Skynsamlegt gæti verið,
segír Jón Helgason, að
gera Vatnajökul og að-
liggjandi svæði að þjóð-
garði sem gæti orðið
stærsti og fjölbreyttasti
þjóðgarður Evrópu.
Þórðardóttur, framkvæmdastjóra
Ferðafélags íslands, kynna hug-
myndir um mörk og skipulag hugs-
anlegs Vatnajökulsþjóðgarðs. Fyr-
irlesarar frá Háskóla Sameinuðu
þjóðanna og Norges Naturvernfor-
bund munu skoða hugmyndina um
Vatnajökulsþjóðgarð frá alþjóðlegu
sjónarhorni. Fulltrúar orkufýrir-
tækja, bænda, ferðaþjónustunnar,
Náttúruverndar ríkisins, Land-
græðslu ríkisins, vísindamanna og
sveitarfélaga munu fjalla um þá
fjölmörgu hagsmuni sem tengjast
landnýtingaráformum af þessu tagi.
Þá verður fjallað um siðfræðilegt og
menningarlegt gildi þjóðgarða og
umhverfisráðherra mun draga upp
þá framtíðarsýn sem stjómvöld
hafa í þessu máli.
Ég hvet alla þá sem telja sig hafa
eitthvað til þessara mála að leggja,
að taka þátt í ráðstefnunni. Frekari
upplýsingar um hana er að finna á
heimasíðu Landverndar (www.land-
vernd.is)
Höfundur er formaður Land-
verudar.
Jdn Helgason
landsbyggðarinnar var núna m.a.
réttlætt með því að ekki mætti slíta
rótfasta starfsemi úr þeim jarðvegi
sem hún hefði sprottið. Með þess-
um rökum er hægt að rökstyðja út
í hið óendanlega, að ríkisstofnanir
séu alltaf og ævinlega á höfuðborg-
arsvæðinu. Spennandi verður því að
sjá hvort verkefni vegna Schengen-
samningsins, sem óumdeilanlega
eru þó ný, verði unnin innan eða ut-
an landsbyggðarinnar.
Verkefni - ekki
stofnanir út á land?
Stundum er lika rætt um að ekki
eigi að setja niður stofnanir, heldur
skilgreind verkefni rQdsins úti á
landi. Með því væri komið í veg fyr-
ir óþarfa röskun og umrót. En
þessi röksemd er ekki heldur
vatnsheld. I dag er þessum verk-
efnum sinnt af starfsmönnum opin-
beira stofnana. Flestum hverjum á
höfuðborgarsvæðinu. Yrðu þau
verkefni unnin annars staðar fylgir
þeirri ákvörðun vitaskuld röskun
fyrir þá starfsmenn sem áður hafa
annast þau. Gott dæmi um þetta er
þegar stjórn Byggðastofnunar
ákvað að verkefni sem þróunarsvið
Byggðastofnunar í Reykjavík sá
um yrðu unnin af þróunarsviði
sömu stofnunar á Sauðárkróki. Það
varð uppi fótur og fit. Alveg eins og
núna, þegar rætt er um að fela
Sparisjóði Bolungarvíkur nokkur
verkefni sem nú er sinnt hjá
Byggðastofnun. Þannig var það þá,
þannig er það nú og þannig verður
það.
Fyrirséð viðbrögð
Hér er nefnilega verið að takast
á um mikla hagsmuni. Fólkið í
byggðunum úti á landi unir því ein-
faldlega ekki að hafa ekki sömu
möguleika til þátttöku í opinberri
starfsemi og aðrir landsmenn. Við
vitum öll að fjarlægðarrökin, masið
um einangrun og fjarlægð, eiga
ekki lengur við. Það er því ekki að
undra að menn utan höfuðborgar-
innar séu að tvíeflast í kröfunni um
að „opinberum störfum íjölgi eigi
minna hlutfallslega á landsbyggð-
inni en á höfuðborgarsvæðinu".
Fáránleg, ofsafengin og fordóma-
full viðbrögð gegn fyrirætlunum
um að fela traustri og virtri fjár-
málastofnun í Bolungarvík nokkur
verkefni fyrir eina ríkisstofnun
voru á margan hátt fyrirsjáanleg.
Hefur ekki alltaf orðið djöful-
gangur þegar áform hafa verið um
að hið opinbera léti framkvæma
viðfangsefni sín utan póstnúmera
höfuðborgarsvæðisins? Hafa hinir
sjálfskipuðu álitsgjafar á fjölmiðl-
unum ekki alltaf viðrað fordóma
sína þegar menn hafa gert tilraunir
til þess að jafna hlut landsbyggðar-
innar? Svar: Jú, í hvert einasta
skipti. Þess vegna voru viðbrögðin
nú fyrirsjáanleg og í stíl við annað.
Það er því ekki frekar ástæða til
þess að kippa sér upp við þau að
þessu sinni en endranær. Sama
gamla sagan endurtekur sig nefni-
lega alltaf þegar að þessum málum
kemur.
Þá varð allt vitlaust - auðvitað
Athyglisverð er hins vegar þögn
hinna sömu um að fjármálaumsýsla
opinberra sjóða fer almennt fram á
höfuðborgarsvæðinu, án útboðs.
Gamla Húsnæðisstofnunin fól ára-
tugum saman undirstofnun eins
viðskiptabankanna innheimtu
skulda, sem voru margfaldar að
umfangi, miðað við fjármála-
umsýslu Byggðastofnunar. Þar var
ekki byggt á útboði heldur beinum
samningum. Mér er ekki kunnugt
um að viðskiptabankasambandið
hafi hótað hörðum viðbrögðum
vegna þess arna. Þar til að því kom
að færa verkefnið út fyrir höfuð-
borgarsvæðið. Þá varð allt vitlaust
- auðvitað.
Höfundu r er alþingismaður og situr í
stjórn Byggðastofnunar.
cJ\Ci\eky/'<
- Gœðavara
Gjafavdra,— niatar- og kaííistell.
Allir veróflokkai.
Hciinsfiægir liönnii()ii
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laiigavegi 52, s. 562 4244.