Morgunblaðið - 27.09.2000, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
J-------------------------------
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Kynbótamat Bændasamtakanna
Ungu hross-
in láta að
sér kveða
Kynbótamat Bændasamtakanna hefur
óumdeilanlega skipað sér sess sem einn af
hornsteinum metnaðarfullrar hrossarækt-
-------------------------------
ar. Ahugi og spenna er ávallt í kringum
sjálfa kynbótadómana sem matið byggist á
en síðan koma nýir útreikningar í kjölfar
dóma hvers árs eins og góður ábætir að
loknum dýrlegum aðalrétti. Valdimar
Kristinsson leit yfír nýju tölurnar glóðvolg-
> ar, nýkomnar frá Ágústi Sigurðssyni
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Staða Orra frá Þúfu er sem fyrr afar sterk í kynbótamatinu og nú þegar hann hefur hlotið Sleipnisbikarinn má
ætla að lítil breyting verði á fyrr en ævidögum hans verður lokið. Spurningin er hinsvegar sú hvort einhver
yngp-i hestur nær svipaðri eða betri stöðu í matinu en eins og er virðist enginn líklegur til þess að slá meistaran-
um við. En hér getur að líta afkvæmi hans sem lögðu grunn að heiðursverðlaunum hans á landsmótinu.
Gustur frá Hóli I hefur gefið afbragðsgóð afkvæmi og stóð á toppnum í
fyrsta verðlaunahópnum á landsmótinu í sumar. I kynbótamatinu er
Gustur í þriðja sæti og er ekki ólíklegt að hann muni berjast um Sleipn-
isbikarinn í fyllingu tfmans. Myndin er tekin af afkvæmum Gusts á
landsmótinu en sjálfur var hann fjarri góðu gamni.
Efstu stóðhestar með 50 eða fleiri dæmd afkvæmi
holtum I með 124/15, Páfi frá Kirkju-
bæ með 123/28, Toppur frá Eyjólfs-
stöðuml22/37, Safír frá Viðvík með
122/31 og Sólon frá Hóli með 122/26.
Nýtt nafn er komið á toppinn með-
al stóðhesta sem hafa færri en 15 af-
kvæmi og er það sigurvegari lands-
mótsins í flokki fjögra vetra
stóðhesta Ýmir frá Holtsmúla I sem
er með 133 í einkunn og að sjálfsögðu
ekkert dæmt afkvæmi frekar en
flestir aðrir hestamir í þessum flokki.
Næstur Ými er Hamur frá Þórodd-
stöðum með 131 en næstir koma með
130 stig Glaumur frá Auðsholtshjá-
leigu, Fannar frá Auðsholtshjáleigu,
Frami frá Svanavatni og Hljómur frá
Brún. Með 129 stig eru svo Seifur frá
Apavatni, Skorri frá Blönduósi og
hrossaræktarráðunaut.
ÁHERSLUR í íslenskri hrossarækt
hafa verið að breytast á síðustu árum.
Ræktunarstefnan hefúr tekið meira
mið af því hvaða eiginleikar selja
best, ræktendur eru með öðrum orð-
um famir að hugsa meira á markað-
slegum nótum en hugsjónamennskan
sem réð mjög ríkjum virðist óðum að
víkja. Besta dæmið þar um er að nú
er búið að taka prúðleika hrossa á
-%ax, tagl og hófskegg inn í dómana og
hægatöltið gefið upp leiðbeiningar en
ekki reiknað í aðaleinkunn. Um prúð-
leikann virðist ríkja mikill einhugur,
menn deila ekki um að hárprúð hross
faili kaupendum betur í geð en þau
snoðnu. Um fetið sem einnig hefur
verið tekið inn ríkir ekki alveg eins
mikOl einhugur en erfitt hefur verið
að neita þeirri staðreynd að ótrúverð-
ugt sé að kynna fjölhæfan hest með
fimm gangtegundir en síðan sé að-
eins lagt mat á fjórar þótt sú fimmta,
fetið, sé talsvert notuð og alls ekki
deilt um gildi hennar í þjálfunarferl-
inu.
En nú er það spennan í kringum
nýja útreikninga kynbótamatsins að
loknum síðsumardómum.
Orri frá Þúfu hefur sem fyrr
trygga forystu er með 135 stig en er
þó heldur á niðurleið frá uppfærslu á
síðasta ári en þá var hann með 137
stig. Að öðru leiti vísast til meðfylgj-
andi töflu um efstu stóðhesta með
fleiri en 50 afkvæmi. Þar getur að líta
Nafn
Orri frá Þúfu
Þokki frá Garði
Kolfinnur frá Kjarnholtum I
Baldur frá Bakka
Stígandi frá Sauðárkróki
Kjarval frá Sauðárkróki
Stígur frá Kjartansstöðum
Hrafn frá Holtsmúla
Snældu-Blesi frá Árgerði
Ófeigur frá Flugumýri
í fremsta dálk aðaleinkunn hestanna,
þá skráð afkvæmi, dæmd afkvæmi og
öryggi.
í flokki stóðhesta með 15 til 49
dæmd afkvæmi stendur efstur Krafl-
ar frá Miðsitju með 129 stig og 36
dæmd afkvæmi. Trostan frá Kjart-
135 357 139 99
125 389 99 98
121 438 90 98
120 290 65 97
119 365 74 98
119 531 159 99
119 298 111 98
119 912 449 100
118 208 56 98
118 530 210 100
ansstöðum fylgir fast á hæla hans
með 128 stig og 25 dæmd afkvæmi.
Gustur frá Hóli II er í þriðja sæti með
127/28, Oddur frá Selfossi fjórði með
126/41, Óður frá Brún er með 125 í
fimmta sæti og 18 dæmd afkvæmi.
Næstir koma Kolskeggur frá Kjarn-
Hrókur frá Glúmsstöðum II.
Af hryssum er Þrenna frá Hólum
efst með 135 stig. Stjaman frá lands-
mótinu Gleði frá Prestbakka er kom-
in í annað sæti eftir frábæra frammi-
stöðu á árinu með 133 stig ásamt
Þilju frá Hólum og Rauðhettu frá
Kirkjubæ. Bringa frá Feti kemur
næst með 131 stig. Jafnar með 130
stig eru svo Þeysa frá Hólum, Trú frá
Auðsholtshjáleigu, Gletting frá Hotl-
smúla I, Vigdís frá Feti og Orða frá
Víðivöllum fremri.
Nánar verður gluggað í kynbóta-
matið í hestaþætti síðar. Á mbl.is er
hægt að sjá allar einkunnir 10 til 12
efstu hrossanna í hverjum flokki með
því að fara inná íþróttir og þaðan inn
á hesta.
Iþróttamdt á Ingólfshvoli
Einkunna-
skalinn
leikinn hátt
og lágt
Morgunblaðið/V aldimar
Esjar frá Holtsmúla og Siguröur Sæmundsson féllu vel í kramið hjá eina
dómara mótsins, Skúla Steinssyni, og hlutu 7,84 í fimmgangi sem ekki er
ólíklegt að sé meteinkunn í greininni.
Morgunblaðið/Valdimar
Ennþá nýtur Sigurbjörn Bárðarson höfðingsskapar Hafliða Halldórssonar
og hefur hinn mikla gæðing hans, Valíant frá Heggstöðum, að láni. Unnu
þeir félagar léttan sigur í töltinu á Ingólfshvoli.
^LENGI er von á einu móti og nú
um helgina var haldið eitt lítið á
Ingólfshvoli þar sem boðið var upp
á fjórar greinar innanhúss. Keppt
var í tölti, fjórgangi, fimmgangi og
skeiði í gegnum Ólfushöllina þar
sem tímataka hófst við innkomu og
klukkan stöðvuð við úthlaupið, lík-
lega einir 60 metrar.
Þótt þátttaka hafi ekki verið
mikil vekur þetta nokkra athygli
að bjóða upp á mót á þessum tíma
með svo stuttum fyrirvara. Ætla
má að þátttaka hefði orðið mun
meiri ef menn hefðu vitað með
Wangri fyrirvara um þetta mót því
Ijóst er að hross eru all víða í þjálf-
un og sjálfsagt hefðu einhverjir
beðið með að rífa undan hestum
sínum ef þetta hefði verið vitað.
Aðeins einn dómari dæmdi og var
þar að störfum Skúli Steinsson
sem er þekktur að því að nota
dómskalann all ítarlega. Veigrar
'hann sér ekki við að fara hátt þeg-
ar honum þykir sériega vel að
verki staðið en að sama skapi refs-
ar hann grimmilega sé einhver
klaufaskapur á ferðinni og seilist
þá í hin dýpstu djúp skalans. Má
sjá þetta á einkunnum þeirra sem
voru í úrslitum en þær spönnuðu
býsna vítt svið, allt frá 7,95 niður
5,00.
Ekki er neinum blöðum um það
aðfletta að sú þróun sem átt hefur
sér stað síðustu ár heldur áfram.
Bæði keppnistímabilið er að lengj-
ast og ekki bara það því fólk
stundar útreiðar í ríkari mæli en
tíðkast hefur. Ætla má að með
bættri aðstöðu líði ekki langur tími
þar til hestamennskan fer að verða
heilsárs viðfangsefni.
Sigurbjörn Bárðarson náði 7,95 í
einkunn í úrslitum á Valíant frá
Heggstöðum sem telst til tíðinda
og sömuleiðis var Sigurður Sæ-
mundsson í miklum ham á stóð-
hesti sínum Esjari frá Holtsmúla
og hlutu þeir 7,84 í fimmgangi.
Að sögn Steindórs Guðmunds-
sonar hjá Tölthestum er ekki í ráði
að bjóða upp á fleiri mót í Ölfus-
höllinni að sinni en hinsvegar
munu hefjast sölusýningar á veg-
um Tölthesta og Hrossaræktar-
samtaka Suðurlands og verða þær
haldnar hálfsmánaðarlega, sú
fyrsta 30. september. Hinsvegar
benti hann á að fyrirhugað væri að
halda mót 30. desember! Ekki væri
búið að ákveða með hvaða formi
það mót yrði en það kæmi í ljós
síðar. En úrslit mótsins á Ingólfs-
hvoli urðu annars sem hér segir:
Tölt
1. Sigurbjöm Bárðarson á Valíant frá
Heggstöðum, 7,952.
2. Reynir Aðalsteinsson á Keflvíkingi frá
Ketilsstöðum, 7,103
3. Axel Ómarsson á Spuna frá Torfunesi,
6,634.
4. Hallgrímur Birkisson á Bróður frá Rifs-
halakoti, 5,335.
5. Anne Crompe á Krapa, 5,00
Fjórgangur
1. Sigurbjörn Bárðarson á Hauki frá Ak-
urgerði, 6,842.
2. Snorri D. Sveinsson á Tuma frá Tjörn,
6,663.
3. Reynir Aðalsteinsson á Keflvíkingi frá
Ketilsstöðum, 6,604.
4. Eva Katarina á Rauð, 5,945.
5. Hallgrímur Birkisson á Bróður frá Rifs-
halakot, 5,60
Fimmgangur
1. Sigurður Sæmundsson á Esjari frá
Holtsmúla, 7,842.
2. Snorri D. Sveinsson á Sólkötlu frá
Langholtsparti, 7,413.
3. Reynir Aðalsteinsson á Vísi frá Sig-
mundarstöðum, 6,874.
4. Hrafnkell Guðnason á Fjalari frá Glóru,
6,205.
Ánna B. Ólafsdóttir Mána frá Innri-Kleif,
5,94
Ölfushallarskeið
1. Páil Bragi Hólmarsson á Frosta frá
Fossi, 5,992
2. Daníel Jónsson á Rósu frá Ingólfshvoli,
6,303.
3. Ólafur Ásgeirsson á Óðni frá Þúfu, 6,50