Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
HALLDÓR EYJÓLFSSON,
Espigerði 2,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 29. september kl. 13.30.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Dagbjört Þórðardóttir,
Margrét Dögg Halldórsdóttir, Jakob Ragnarsson,
Kristfn Guðmundsdóttir,
Guðmundur Þ. Halldórsson, Helga Herbertsdóttir,
Guðrún Halldórsdóttir, Smári Einarsson,
Gróa Halldórsdóttir, Ingi Guðjónsson,
Ragnheiður Halldórsdóttir, Jón Sigurðsson,
Ómar Halldórsson, Margrét Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
HAFLIÐI SIGURÐSSON,
Laugavegi 1,
Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar föstu-
daginn 22. september.
Jarðsett verður frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 30. september kl. 14.00.
Jóhanna Vernharðsdóttir,
Fanney Hafliðadóttir, Sturlaugur Kristjánsson,
Vernharður Hafliðason, Hulda Kobbelt,
Hafliði Jóhann Hafliðason, Helga Magnea Harðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna.
+
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi,
JÓN HELGASON,
verður jarðsunginn frá Seltjarnameskirkju
fimmtudaginn 28. september kl. 13.30.
Minningarathöfn verður í Höfðakapellu við
Akureyrarkirkjugarð föstudaginn 29. september
kl. 14.00.
Jarðsett verður í Akureyrarkirkjugarði.
Gylfi Jónsson, Solveig Lára Guðmundsdóttir,
Jón Gunnar Gylfason, Benedikt Hermann Hermannsson,
Kristín Anna Hermannsdóttir.Vigdís María Hermannsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
KRISTÍNAR LINNET,
Álfaskeiði 32,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á krabbameins-
deild Landspítalans.
Þórður Einarsson,
Einar Þórðarson, Lilja Baldvinsdóttir,
Rósa Þórðardóttir, Elvar Helgason,
Þórður Þórðarson, Anna Hreinsdóttir,
Jórunn Þórðardóttir, Þórarinn Eldjárnsson,
Hafdfs Þórðardóttir, J. Trausti Magnússon,
Gunnar Þórðarson, Dagbjört Pálsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns og föður,
ÁRNA SIGURÐAR ÁRNASONAR
frá Akranesi,
Hlíðarási 8,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til gjörgæsludeildar og A-7 á Landspítalanum í Foss-
vogi, Grensásdeildar og síðast en ekki síst Líknardeildar Landspítalans í
Kópavogi, fyrir frábæra umönnun og elskulegheit.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hrafnhildur Jónsdóttir,
Karl Alex Árnason.
GÍSLI
TEITSSON
+ Gísli Teitsson
var fæddur í
Reykjavík 26. októ-
ber 1928. Hann lést í
Bruxelles 16. sept-
ember siðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Teitur Teitsson, sjó-
maður í Reykjavík
og kona hans, Anna
Gísladóttir. Systkini
Gísla voru Anna Sig-
ríður f. 2.4. 1922, d.
13.2.1979, maki Lár-
us Bjarnason, látinn
og Sigurður, f. 8.10.
1932, d. 17.1. 2000,
maki Guðrún Guðmundsdóttir.
þau eru bæði látin.
Hinn 23. júní 1956 gekk Gísli að
eiga Þóru bókasafnsfræðing, f.
2.5. 1933, dóttur Stefáns Stefáns-
sonar, bónda í Fagraskógi og al-
þingismanns og konu hans Þóru
Magneu Magnúsdóttur. Gisli og
Þóra eignuðust tvö
börn: Stefán, f. 26.11.
1956, húsasmiður að
mennt og starfar sem
flokksstjóri hjá Gatna-
málastjóra Reylq'avík-
urborgar, og Önnu
Þóru, f. 21.5. 1962,
rekstrarverkfræðing
og maður hennar er
Örn Amarson, húsa-
smíðameistari, f. 4.9.
1964.
Gísli lauk gagn-
fræðaprófí frá Ingi-
marsskóla 1946 og
prófi frá Samvinnu-
skólanum 1947. Hann hóf árið
1947 starf á skrifstofu húsameist-
ara Reykjavíkurbæjar og starfaði
þar í 12 ár. Árið 1959 hóf Gísli
störf hjá Innkaupastofnun Reykja-
víkurbæjar og starfaði þar í 15 ár,
þar af 11 ár sem skrifstofustjóri.
Árið 1974 tók hann við starfi fram-
kvæmdastjóra Heilsuvemdar-
stöðvar Reykjavíkur. I ársbyijun
1992 tók ríkið yfir rekstur Heilsu-
vemdarstöðvarinnar og gegndi
Gísli eftir það starfi framkvæmda-
stjóra hjá Heilsugæslunni f
Reykjavík þar til hann lét af því
starfi fyrir aldurs sakir hinn 1.
nóvember 1998. Eftir það gegndi
hann um sex mánaða skeið sér-
stökum verkefnum hjá Heilsu-
gæslunni f hálfu starfi, og hafði
hann þá starfað að heilsugæslu-
málum f aldarfjórðung. Gfsli aflaði
sér sérmenntunar á sviði heilsu-
gæslu og stjórnunar bæði innan
lands og erlendis, m.a. í Göteborg
hálsovárd 1981-1982. Hann vann
mikið að félagsmálum, sótti fjöl-
mörg þing BSRB, var í 4 ár í stjóm
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, þar af tvö ár sem varafor-
maður. Þá var Gfsli um tfma milli-
matsmaður, átti sæti f stjóm
Byggingasamvinnufélags starfs-
manna Reykjavíkurbæjar, og sat í
framkvæmdastjórn byggingar-
nefndar Laugardalshallar.
Útför Gfsla fer fram frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Þegar samferðamenn og vinir
kveðja leitar hugurinn til liðinna
ára og kallar fram ótal minningar.
Gísli Teitsson var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Heilsuverndarstöðv-
ar Reykjavíkur 1. febrúar 1974 og
síðar framkvæmdastjóri Heilsu-
gæslunnar í Reykjavík, en lét af
störfum á vormánuðum 1999.
Hann var yfirmaður minn og sam-
starfsmaður í 25 ár.
Til að byrja með vom starfs-
menn á skrifstofunni fáir og sam-
heldni mikil. Eftir því sem umfang
starfseminnar óx fjölgaði starfs-
fólkinu, en áfram ríkti samstaða og
eining og var það ekki síst Gísla að
þakka. Það var gott að starfa fyrir
Gísla. Hann var dagfarsprúður og
lét aldrei styggðaryrði falla. Hann
veitti stuðning þegar á móti blés,
lagði gott til mála og vildi bæta
það sem aflaga fór. Eg er afar
þakklát fyrir hvernig hann reynd-
ist mér í ýmsum erfiðleikum á
þessum samstarfsárum. Hann var
velgjörðarmaður minn og vinur.
Gísli mat starf sitt mikils og var
vakinn og sofinn um málefni
heilsugæslunnar. Hann gerði ætíð
miklar kröfur til sjálfs sín um
vandvirkni og reglusemi og vildi
að orð stæðu.
Ekki verður hjá því komist að
nefna hve vænt Gísla þótti um hina
veglegu byggingu, Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur. Var það honum
alla tíð mikið hjartans mál að hús-
ið héldi sínu upprunalega útliti og
byggingarstíl.
Við, gamlir vinnufélagar Gísla,
minnumst þess að yfir kaffistof-
unni sveif jafnan léttur andi þegar
hann var mættur. Skemmtilegar
tilvitnanir og spaugilega hliðin séð
á flestu því sem til umræðu var.
Ekki var það málefni til sem ekki
var hægt að ræða við Gísla, hvort
heldur það var starfstengt eða
persónulegs eðlis. Hann hafði ein-
staka hæfileika til að setja sig inn í
mál eða „leggjast yfir mál“ eins og
hann sagði stundum sjálfur. Ráð-
leggingar hans voru ævinlega af
heilum hug enda hafði hann ótrú-
lega fjölbreytta yfirsýn yfir hin
ýmsu málefni. í amstri hversdags-
ins þegar hver lægðin rak aðra á
veðurkortunum var Gísli ávallt
léttleikansmegin í tilverunni.
Sýndi fram á að það eru tvær hlið-
ar á hverju máli, jafnvel fleiri, og
að hverjum degi fylgir eitthvað
gott, mest um vert að vera léttur í
lund.
Gísli var mikill fjölskyldumaður.
Það fór ekki fram hjá okkur sem
unnum með honum hve ríka um-
hyggju hann bar fyrir fjölskyldu
sinni. Hann dáði Þóru konu sína
og var umhyggjusamur faðir, einn-
ig var hann í nánu sambandi við
systkini sín og venslafólk.
Á kveðjustund þakka starfs-
menn Stjórnsýslu Heilsugæslunn-
ar í Reykjavík Gísla góða samfylgd
og vináttu og votta fjölskyldu hans
einlæga samúð og hluttekningu við
sviplegt fráfall hans.
Jóna Lára Pétursdóttir.
„Öllu er takmörkuð stund og
sérhver hlutur undir himninum
hefur sinn tíma. Að fæðast hefur
sinn tíma og að deyja hefur sinn
tíma (pred.).“
Á þetta erum við mannfólkið
minnt öðru hverju og því oftar sem
aldurinn verður hærri. Nú er Gísli
látinn, óvænt og alltof snemma,
finnst okkur vinum hans. Þó hefur
ýmislegt bjátað á hvað heilsu hans
varðaði síðustu árin. En hann var
ekki kvartsár og dró aldrei af sér
svo enginn átti von á neinu í þessa
veru.
Ég kynntist Gísla þegar hann
kvæntist Þóru vinkonu minni og
skólasystur. Við vorum nágrannar
í áratugi og höfðum mikið saman
að sælda þegar börnin okkar voru
að vaxa úr grasi. Við mæðgin
heimsóttum fjölskylduna oft í sum-
+
Vinur okkar og frændi,
KRISTINN KRISTJÁNSSON
frá Vesturbotni,
Vesurbyggð,
lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar föstudaginn
22. september.
Jarðsett verður frá Sauðlauksdalskirkju laug-
ardaginn 30. september kl. 14.00.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Emma Kristjánsdóttir,
Sigríður Guðbjartsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar,
SÓLVEIGAR INDRIÐADÓTTUR,
frá Syðri-Brekkum
á Langanesi.
Fyrir hönd aðstandenda,
böm hinnar látnu.
Heilsugæslan í Reykjavík
Skrifstofa Stjórnsýslu
Heilsugæslunnar í Reykjavík,
Barónsstíg 47, Reykjavík
verður lokuð í dag,
miðvikudaginn 21. september, frá kl. 13
vegna jarðarfarar
Gísla Teitssonar
fyrrverandi framkvæmdastjóra.
Heilsugæslan í Reykjavík.
Heilsugæslan í Reykjavík
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík
Sími 585-1300 Fax 585-1313 www.hr.is