Morgunblaðið - 27.09.2000, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐWKUDAGUR- 27. SEPTEMBBR 2000 45
arbústaðinn við Pingvallavatn og
vorum fastir gestir á Fornhagan-
um um jól og áramót. Um árabil
fórum við saman í haustlitaferðir,
tókum saman slátur og bjuggum
til laufabrauð. Gísli tók aldrei
beinan þátt í matargerðinni en
hann var jafnan nálægur ef okkur
kynni að vanta eitthvað úr búð eða
við þörfnuðumst hjálpar hans á
annan hátt.
Oftast var Gísli með þegar
bekkurinn okkar Þóru hélt hátíð-
leg stúdentsafmæli eða efndi til
fagnaðar af öðru tilefni. Þar var
hann aufúsugestur, alltaf tilbúinn
að taka þátt í gleðinni, ljúfur og
hnyttinn í tilsvörum ef sá gállinn
var á honum. Allra þessara góðu
stunda er ljúft að minnast og
þakka nú á kveðjustund.
Gísli var áreiðanlega mikill ham-
ingjumaður. Hann ólst upp á góðu
heimili og bar með sér andblæ
þess til hinstu stundar. Hann var
alltaf í áhugaverðu starfi og
kvæntist Þóru,þessari glæsilegu
öndvegiskonu. Börnin þeirra tvö
eru úrvalsfólk.
Þóra og Gísli bjuggu sér fallegt
og menningarlegt heimili. Þau
voru einstaklega samrýmd og
máttu vart hvort af öðru sjá og
áttu mörg sameiginleg áhugamál.
Þegar tók að vora og þau áttu
frístundir frá vinnu voru þau horf-
in austur í Grafning. Þar áttu þau
sumarbústað og allstórt land sem
nú er orðið mikill unaðsreitur. Á
þessum stað undu þau hag sínum
vel, veiddu silung, ræktuðu skóg
og voru óþreytandi að fegra og
bæta umhverfi sitt. Þau voru bæði
með græna fingur, allt óx og dafn-
aði sem þau lögðu hönd að. Þegar
vetur gekk í garð og ekki viðraði
lengur til útivistar fóru þau í leik-
hús, lásu góðar bækur og hlustuðu
mikið á tónlist, enda er af nógu að
taka í þeim efnum á heimilinu.
Söknuður Þóru, barna hennar
og tengdasonar er mikill. En tím-
inn, sá mikli galdrameistari, ber
með sinni líknandi hönd smyrsl á
sárin svo að á þau myndast hrúð-
ur. Verkurinn sem sárið olli dvínar
því smátt og smátt. Einn góðan
veðurdag öðlast lífið tilgang og
merkingu á ný og þá er hægt að
horfa vonglaður fram á veginn.
Vinirnir á Kaplaskjólsvegi og
Reynimel votta Þóru, Stefáni,
Onnu Þóru og Erni dýpstu samúð.
Að lokum vil ég gera orð Matt-
híasar Jochumssonar að mínum.
Skáldið mælti þetta ljóð af munni
þegar hann heyrði lát góðs vinar:
Aldrei er svo bjart
yfír öðlingsmanni,
að eigi geti syrt
eins sviplega og nú;
og aldrei er svo svart
yfir sorgarranni
að eigi geti birt
fyrir eilífa trú.
Ingibjörg Þórarinsdóttir.
Okkur samstarfsfólki og vinum
Gísla Teitssonar var mjög brugðið
við fréttina um sviplegt fráfall
hans. Það er ekki nema tæp tvö ár
síðan Gísli lét af störfum fram-
kvæmdastjóra hjá Heilsugæslunni
í Reykjavík fyrir aldurs sakir. En
það er nú svo að enginn veit sinn
næturstað og enginn veit hver
annan grefur.
Það var fyrir rúmum áratug að
éjj kynntist Gísla Teitssyni fyrst.
Eg hafði tekið við formennsku í
stjórn Heilsugæslustöðvarinnar á
Seltjarnarnesi þegar ríkið tók við
heilsugæslunni af sveitarfélögun-
um.
Heilsugæsluastöðvarnar voru
sjálfstæðar stofnanir hver fyrir sig
og hver með sína stjórn. Til þess
að treysta samstarfið við Heilsu-
verndarstöðina og heilsugæslu-
stöðvarnar í Reykjavík var fram-
kvæmdastjóra Heilsuverndar-
stöðvarinnar, þ.e. Gísla Teitssyni,
boðið að sitja fundi stjórnarinnar á
Seltjarnarnesi. Það var gott að
sækja góð ráð til Gísla þegar við
vorum að stíga þessi fyrstu skref
og nutum við þar langrar reynslu
hans.
Þegar ég tók við starfi forstjóra
Heilsugæslunnar i Reykjavík vorið
1994 jókst samstarf okkar að mun.
Eftir það var Gísli einn af nánustu
samstarfsmönnum mínum og stað-
gengill.
Gísli bjó yfir mikilli þekkingu á
Heilsuverndarstöðinni og sögu
hennar frá upphafi, en í aldar-
fjórðung var hann frarrikvæmda-
stjóri, fyrst Heilsuverndarstöðvar-
innar og síðan Heilsugæslunnar í
Reykjavík, og fylgdist jafnvel með
byggingu Heilsuverndarstöðvar-
innar fyrir hálfri öld, en þá starf-
aði hann hjá Reykjavíkurborg. Og
hann kom með einhverjum hætti
að byggingu og allra heilsugæslu-
stöðvanna í borginni. Þessi þekk-
ing hans kom sér vissulega vel í
starfi hans.
Gísli gekk að störfum sínum
með þessari hæfilegu blöndu af al-
vöru og gamansemi. Létt, grípandi
fyndni hans lyfti oft lund okkar
hinna og jafnvel alvarlegir vinnu-
fundir fengu léttara yfirbragð með
nærveru hans. En spaugsemi og
létt lund breiddi ekki yfir þann
mikla áhuga sem Gísli hafði á
starfi sínu og hversu mjög hann
bar hag Heilsugæslunnar fyrir
brjósti.
Það er vissulega margs að minn-
ast þegar góður drengur er á
brautu. Við minnumst margra
góðra stunda í starfi og við önnur
tækifæri. Árshátíðirnar og aðrar
gleðistundir með Gísla og Þóru
eiginkonu hans eru ógleymanleg-
ar. En efst er þó í huga þakklæti
fyrir að hafa átt Gísla fyrir sam-
starfsmann og vin.
Við Dóra vottum Þóru og fjöl-
skyldu hennar innilega samúð og
biðjum þeim Guðs blessunar.
Guðmundur Einarsson.
JON JORUNDS
JAKOBSSON
+ Jón Jörunds Jak-
obsson var fædd-
ur í Reykjavík 26.
september 1929.
Hann lóst 7. septem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hans voru Jak-
ob Jónasson rithöf-
undur, f. 26.12. 1897,
d. 27.3. 1981, ogMar-
ía Guðbjörg Jóns-
dóttir frá Reykjanesi,
f. 14.9. 1902, d. 26.6.
1980.
Systkini hans;
Jenný Jakobsdóttir,
f. 14.4. 1931, d. 7.3.
1988, Haraldur Gunnar Jakobs-
son, f. 9.6.1934, d. 16.8.1975. Eft-
irlifandi systkini hans eru: Helga
Þóra Jakobsdóttir
verslunarmaður og
Jónas Jakobsson
skipstjóri.
Eiginkona hans
var Kristxn Þórarins-
dóttir, f. 4.4. 1927, d.
13.3. 1992. Börn
þeirra: Þórarinn J.
Jónsson, f. 1.12.
1960, sölufulltrúi.
Kona hans Jóhanna
Gunnarsdóttir stöðv-
arstjóri; Jakob Jör-
unds Jónsson, f. 23.2.
1968, stýrimaður.
Sonur Jakobs, Jón
Bragi Jakobsson, f. 11.8.1994.
Útför Jóns Jörunds fór fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Mig langar í örfáum orðum að fá
að kveðja þig, Daddi minn, eins og þú
varst alltaf kallaður. Þú varst kvadd-
ur svona skyndilega á brott og mér
finnst gott til þess að vita að Stína
þín, amma, afi, pabbi og Jenný séu
þama öll og hafi tekið á móti þér. Al-
veg frá því að ég man fyrst eftir mér
upplifði ég þig sem mjög sérstakan,
dulan og einrænan mann. En þú og
þín yndislega kona, Kristín Þórar-
insdóttir, sem lést árið 1992, áttuð
sérstakan sess í hjarta mínu. Og mér
þótti alltaf vænt um að heimsækja
ykkur og drengina ykkar tvo, Þórar-
in og Jakob. Þegar ég var lítil voruð
þið með mig í nokkurn tíma. Eins og
gengur muna fæstir eftir sér frá 2ja
ára aldri en ég gleymi því aldrei þeg-
ar þú leyfðir mér að stýra bílnum
þínum og þeyta flautuna en ég náði
varla upp fyrir stýrið. Og hvað við,
ég, þú og Stína gátum hlegið þegar
þið voruð að rifja upp bátsferðina á
Þingvallavatni og atvikið þegar Stína
sagði um leið og hún sleppti af mér
hendinni: „María, vertu alveg kjur
því ég ætla að kveikja mér í sígar-
ettu,“ en um leið og hún sleppti mér
henti ég mér út í vatnið.
Líf þitt snerist um að vinna og aft-
ur vinna, og þess vegna hefur þú
sennilega ekki látið þér nægja að
vera meistari í einni iðngrein, heldur
varstu menntaður húsa- og bifreiða-
smíðameistari. En það var ekki fyrr
en í jarðarförinni að ég heyrði að þú
hefðir unnið til verðlauna fyrir húsa-
teikningar. Ég sem hélt að allir ætt-
ingjamir hefðu verið á bakvið tré
þegar Guð úthlutaði listrænum hæfi-
leikum, en það var líkt þér að segja
ekki frá þessu sjálfur. í gegn um árin
vorum við oft í símasambandi og þú
talaðir við mig um strákana þína og
hversu stoltur þú værir af þeim, þó
að því miður hafir þú ekki sagt það
oft við þá sjálfa. Kannski að þér hafi
fundist það hálfgert sjálfshól að hæla
þínum eigin sonum. En ég veit það
,Daddi minn, hversu vænt þér þótti
um þá báða. Þú gafst aldrei neinum
færi á þér og það fór enginn inn fyrir
skelina þína, þú varst bara þannig.
Sem unglingur man ég að þú og
Stína voruð alltaf að fara með ömmu
og afa í utanlandsferðir, en eftir að -
þú misstir Stínu þína ferðaðist þú
ekki. En lífið heldur áfram, Daddi
minn, og nú ertu kominn til Stínu
þinnar og vonandi heldur ferðalagið
áfram hjá ykkur. Ég kveð þig núna í
hinsta sinn ,kæri frændi. Elsku Jak-
ob og Þórarinn, ég bið góðan Guð að
vaka yfir ykkur og blessa ykkar líf.
María Haraldsdóttir.
sími 533 3634 gsm 897 3634
Allan sólarhringinn.
Hagasel - raðhús 262 fm rað-
hús á tveimur hæðum ásamt kj./jarð-
hæð.Vandað hús með innb. bílsk. Ar-
inn. Stórar flísalagðar suðursvalir með
heitum potti og sóistofu. Mögul. á stórri
3ja herb. aukaíb.
Mururimi - parhús Vandað par-
hús á tveimur hæðum ásamt innbyggð-
um bílskúr. Vandaðar sérsmíðaðar ma-
hóní-innréttingar, baðherbergi fallega
flísa-lögð. Stór herbergi og rúmgóðar
stofur.
Vesturberg - einbýlishús Vor-
um að fá í einkasölu gott pallabyggt 187
fm einbýlishús auk 29 fm bílskúrs. 4 rúm-
góð svefnherb. Stórt eldhús. Björt og góð
stofa. Mikið útsýni. f kjallara er möguleiki
á lítilli aukaíbúð með sérinngangi. Verð
18,9 millj.______________________.
Lambastekkur - Gott ein-
býlishús Vandað og skemmtilegt
246 fm einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt 37 fm bilskúr og góðri sólstofu.
Tvær bjartar og rúmgóðar stofur. Tveir
arnar í húsinu. Gegnheilt parket og
flísar. Stór sólstofa með arni. Stórar
suð/vestursvalir. Fallegur ræktaður
garður og gróðurhús. Aukaíbúð í
kjallara. Gott útsýni.
Vesturberg - 4ra Góð m fm íbúð
í áiklæddu húsi með yfirbyggðum svölum,
fallegt parket á gólfum, rúmgóð herbergi,
glæsilegt útsýni. Stutt er í alla þjónustu og
skóla. fbúðin losnar eftir ca 1 mánuð.
Arnarsmári - bílskúr sériega
vönduð 4ra herbergja ibúð á 1. hæð
ásamt bílskúr. Góð gólfefni og innrétting-
ar. Rúmgóður bilskúr. Vel staðsett og
með góðu útsýni.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA eht.
Simi 5624250, Borgartáni 31
Opið mánud.-föstud. kl. 9-18
Hilmar Óskarsson, Sigurður Jónsson, Guðjón Sigurjónsson.
Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl.
Hlaðbrekka - bílskúr ca 90 fm
sérhæð ásamt 33 fm bílskúr með mikilli
lofthæð. Stór stofa, nýleg falleg eldhús-
innrétting, góður garður með leiktækjum
fyrir börn.
Rjúpufell - nýtt í sölu Vorum að fá
i einkasölu mjög bjarta og góða 109 fm 4ra
herb. íbúð í nýklæddu fjölbýlishúsi. 3 góð
svefnherb. Góð stofa með yfirb. stórum
svölum. Rúmgott eldhús, sérþvottahús
innaf. Parket og flisar. Húsið er nýklætt að
utan með áli og svalir yfirbyggðar. Stutt í
fjölbreytta þjónustu.
2ja og 3ja herbergja íbúðir
Flétturimi - bílgeymsla Faiieg ca 100
fm 3ja herb. (búð á 2. hæð í góðu tjölbýlishúsi.
2 góð svefnh. Stór og björt stofa. Gott eldhús
með vandaðri Alno- innréttingu. Þvottahús i
íbúð. Vönduð gólfefni og innréttingar. Innan-
gengt úr stigag. í bílgeymslu.
Spóahólar - bflskúr Vorum að
fá í einkasölu góða 3ja herb. íbúð á 1.
hæð í litlu fjölbýlishúsi ásamt góðum
innb. bíiskúr. 2 góð svefnherb. Rúm-
gott eldhús. Björt og góð stofa. íbúð-
in er laus.
Gyðufell - nýtt í sölu góö 67 fm
íbúð á 2. hasð í nýklæddu fjölbýl-ishúsi.
Björt og góð stofa með yfirbyggðum
svölum. Stórt svefnherb. Allt í góðu
ástandi. íbúðin er laus fljótlega.
Barðastaðir 7 - glæsileg
lyftuhús Stórar og glæsilegar 3ja-4ra
herb. og „penthouse“-íbúðir í nýju 6
hæða lyftuhúsi. ibúðirnar verða afhentar
fullbúnar með glæsilegum innréttingum
en án gólfefna nema á þvottahúsi og baði
verða flísar. Rúmgóð svefnherb. Góðar
stofur. Allar íbúðir með sérþvottahúsi.
Fallegt umhverfi. Einstakt útsýni. Stutt á
golfvöllinn. (búðirnar verða afhentar i
febrúar. Bygglngaraðili er Byggingafé-
lag Gylfa og Gunnars. Teikningar og
nánari upplýsingar hjá sölumönnum.
Gott skipulag. Frábær staðsetning.
Brúnastaðir - raðhús Aðeinstvö
hús eftir [ smíðum sérlega vel útfærð og
góð 193 fm raðhús á tveimur hæðum m.
innb. bílskúr. Húsin verða afhent fokheld
en fullbúin að utan með grófjafnaðri lóð.
Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölu-
mönnum.
Naustabryggja 21-29 - frábær staðsetning
Erum að hefja sölu á nýjum og glæsilegum 2ja til 8 herb. íbúðum á þessum skemmtilega stað. (búðimar verða
afhentar fullbúnar með sérlega vönduðum innréttingum en án gólfefna nema á þvottahúsi og baðherbergi
verða flísar. Rúmgóð svefnherb. Góðar stofur. Allar íbúðimar verða með sérþvottahúsi. Bílgeymslur fylgja
flestum íbúðunum. Að utan verða húsin álklædd. Einstök staðsetning við smábátahöfnina. Fyrstu íbúðirnar
verða afhentar í maí nk. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upp-
lýsingar hjá sölumönnum.
*