Morgunblaðið - 27.09.2000, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
Leiðréttum
boðorðin tíu!
Frá Nús Gíslasyni:
í TILEFNI af því að nú höldum við
upp á nýtt árþúsund frá fæðingu Jesú
Krists, langar mig til að höfða til
þeirra sem bera ábyrgð á uppfræðslu
þjóðarinnar og fara fram á að boðorð-
in tíu verði gerð aðgengileg og kennd
eins og þau voru í upphafi gefin okkur
mönnunum.
Lengi hafa þau verið kennd þannig
að öðru boðorðinu hefur verið sleppt
og tíunda boðorðinu verið skipt í
tvennt til að þau væru enn tíu að tölu.
Þetta er hluti af þeim arfi sem
þjóðkirkjan fékk frá kaþólsku
kirkjunni í gegnum Lúther.
Það er ótrúleg lítilsvirðing við Orð
Guðs, að fella niður eitt ýtai'legasta
boðorðið og ótrúlegt hvað margir
lærðir og leikir hafa vitað það og látið
það h'ðast.
Nú vil ég höfða til réttlætiskenndar
og trúfesti ráðamanna kirkjunnar við
Orð Drottins og biðja þá að koma því
til vegar að þau börn sem fermd
verða á þessu nýja árþúsundi fái
tækifæri til að læra boðorðin rétt.
Eg vona að þessu verði vel tekið og
brugðisthrattvið.
Með ósk um blessun Guðs yfir
framtak ykkar.
Hér kemur texti boðorðanna úr 20.
kafla2. Mósebókar
1 „Ég er Drottinn Guð þinn, sem
leiddi þig út af Egyptalandi, út úr
þrælahúsinu. Þú skalt ekki hafa aðra
guði en mig. 2 Þú skalt engar líkn-
eskjur gjöra þér né nokkrar myndir
eftir því, sem er á himnum uppi, eður
því, sem er á jörðu niðri, eður því, sem
er í vötnunum undir jörðinni. Þú skalt
ekki tilbiðja þær og ekki dýrka þær,
því að ég, Drottinn Guð þinn, er vand-
látur Guð, sem vitja misgjörða feðr-
anna á börnunum, já í þriðja og fjórða
lið, þehra sem mig hata, en auðsýni
miskunn þúsundum, þéirra sem elska
mig og varðveita boðorð mín. 3 Þú
skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs
þíns við hégóma, því að Drottinn mun
ekki láta þeim óhegnt, sem leggur
nafn hans við hégóma. 4 Minnstu þess
að halda hvíldardaginn heilagan. Sex
daga skalt þú erfiða og vinna allt þitt
verk, en sjöundi dagurinn er hvíldar-
dagur helgaðm- Drottni Guði þínum.
Þá skalt þú ekkert verk vinna og ekki
sonur þinn eða dóttir þín, þræll þinn
eða ambátt þín eða skepnur þínar,
eða nokkur útlendingur, sem hjá þér
er innan borgarhliða þinna, því að á
sex dögum gjörði Drottinn himin og
jörð, hafið og allt sem í þeim er, og
hvíldist sjöunda daginn. Fyrir því
blessaði Drottinn hvíldardaginn og
helgaði hann. 5 Heiðra fóður þinn og
móður þína, svo að þú verðir langlífur
í því landi, sem Drottinn Guð þinn
gefur þér. 6 Þú skalt ekki morð
fremja. 7 Þú skalt ekki drýgja hór. 8
Þú skalt ekki stela. 9 Þú skalt ekki
bera Ijúgvitni gegn náunga þínum. 10
Þú skalt ekki girnast hús náunga
þíns. Þú skalt ekki gimast konu ná-
unga þíns, ekki þræl hans eða ambátt,
ekki uxa hans eða asna, né nokkuð
það, sem náungi þinn á.“
NÍLS GÍSLASON,
Skógarhlíð 35,Akureyri.
CLUELLE
frrá^Ý&knttlnÁi
2ja hluta dragt
100% polyester - stretch
Jakki fóðraður
Stærðir 34 tit 46
Verðtilboó kr. 9.900
3ja hluta dragt
65% Polyester
35% Viskose
Jakki og vesti fóðrað
Verðtilboð kr. 9.900
Dragt
100% Polyester
- Stretch
Jakki fóóraður
Stærðir 36 til 50
Verðtilboð
kr. 9.900
Jakki
100% Potyester
Sidd 88 cm.
Stærðir 36 til 46
Verðtilboó kr.
3.990
Jakki
100% Polyester
Fóðraður
Verðtilboð kr. 4.500
2ja hluta dragt
Jakki og pits
100% Polyester stretch
Verðtilboð kr. 10.900
QUELLE - VERSLUN
DALVEGUR 2 • KÓPAVOGUR • S 564 2000
þessi mál hér á landi og konur því
illa upplýstar og betur má ef duga
skal. Við erum í alþjóðahóp sem læt-
ur sig þessi mál varða og fáum allar
nýjustu upplýsingar um þau mál.
Við höfum síðan sent heilbrigðisyf-
Frá Sigrúnu G. Sigurðardóttur:
VON er hópur sem hefur verið
starfandi síðan 1998, hann hefur það
markmið að vera hagsmunahópur
fyrii- konur sem gengist hafa undir
brjóstastækkanir eða brjóstaupp-
byggingu eftir veikindi.
Okkur langar til að byrja á því að
fagna því að Morgunblaðið birti
grein um sílikonpúða í blaðinu sínu
sl. laugardag og var sú frétt frá
Reufers-fréttastofunni, reyndar
hefur verið allt of lítið fjallað um
Gæti það verið...?
Frá Guðrúnu Þóru Hjaltadóttur:
TÍSKAN breytist, ekki eingöngu
hvað útlitið varðar heldur einnig
hvað varðar þrif á fötunum okkar.
Innan í nær öllum
fötum eru upplýs-
ingar um hvaða
efni er í flíkinni og
einnig hvernig
eigi að meðhöndla
flíkina.
Þessar merk-
ingar eru mjög
nauðsynlegar til
Guðrún Þóra þess að við getum
HjaUadóttir þvegið eða látið
hreinsa flíkina.
Nú á síðustu tímum hefur verið
mikið um að ekki megi þvo né
hreinsa flíkina en stundum má
strjúka yfir flíkina með rökum klút.
Flíkur sem ekki má þvo eða
hreinsa geta því alveg orðið einnota
flík, það er að segja ef við missum
eitthvað ofan á okkur eða á einhvern
hátt fáum blett sem ekki má strjúka
eða kroppa úr.
Það gæti verið að tískan í framtíð-
inni yrði sú að einungis ætti að nota
föt einu sinni og þá væri þeim fleygt,
eins og flestum öðrum umbúðum, en
höfum við efni á því? Þá er ég ekki
einungis að hugsa um peningana (því
margir Islendingar virðast eiga nóg
af þeim) heldur umhverfislega séð.
Meiru verður hent og að sjálfsöðu
verður þar af leiðandi meira fram-
leitt, það er ekki hægt að búast við
því að íslendingurinn læri nokkurn
tímann að „nýta vel“ og spara.
Þessi „merkilegu" einnota föt fást
í mörgum verslunum, jafnvel „betri“
búðum og þessar vörur seljast. Því
að sjálfsögðu ræður lögmálið að það
sem hægt er að se]ja höldum við
áfram að framleiða til að geta grætt
nógu mikið.
Gæti það verið að þú lesandi góður
vissir ekki af þessari merkingu á föt-
unum sem þú eða hitt heimilisfólkið
er að kaupa?
Oft er það þannig að ekki er litið á
þessar merkingar fyrr en flíkin er
orðin óhrein og þá jafnvel farið með
hana í hreinsun, þeir í hreinsuninni
vita vel hvað má og hvað má ekki.
Flíkina má ekki hreinsa né þvo og þú,
lesandi góður, keyptir þér flík fyrir
dágóða upphæð, segjum 16 til 18 þús-
und ki-ónur og þú varst svo mikill
„kjáni“ að þú keyptir einnota flík.
Það hefur dregið úr heimilis-
fræðikennslu undanfarin ár en neyt-
endafræðsla hefur verið kennd í
heimilisfræðitímunum. Verklegum
kennslustundum hefur fækkað enda
er íslenska þjóðin svo ánægð með allt
sem hún getur og kann að óþarfi sé
að hafa jafnnauðsynlega kennslu í
grunnskólum landsins. Nútíma Is-
lendingur sækh' þetta bara á Netið.
Eins og ein vh’t kona sagði fyrir fá-
um árum „að óþarfi væri að kenna
börnum að stoppa í sokkana sína þar
sem ódýrara væri að fara í Bónus og
kaupa þá“.
Leiðbeiningastöð heimilanna hef-
ur gefið út þvottaspjald með öllum
þessum táknum á sem gott væri að til
væri á hverju heimili. Þau fást hjá
Leiðbeiningastöðinni Túngötu 14 og
hjá betri verslunum sem selja
þvottavélar.
GUÐRÚN ÞÓRA
HJALTADÓTTIR,
Kvenfélagasambandi Islands,
Túngötu 14, Reykjavík.
Skortur á fræðslu um
skaðsemi sílikonpúða
irvöldum þær upplýsingar sem við
teljum nauðsynlegtað þau fái og má
þá nefna heilbrigðisnefnd Alþingis,
heilbrigðisráðherra og landlæknis-
embættið, þannig að vitneskja um
þessi mál er til hér á landi.
En við höfum unnið að þessum
málum í sjálfboðavinnu sem hópur,
en það sem við gerðum okkur ekki
grein fyrir í upphafi var að þessi
vinna byggðist mest upp á netnotk-
un. Því fylgir mikill kostnaður sem
við höfum reynt að kosta sjálfar en
svo kom að því, því miður, að við gát-
um ekki staðið undir þessum kostn-
aði einar og var því lokað bæði fyiir
síma og Netið, en í dag erum við að
vinna í þeim málum þannig að hægt
verði að halda áfram því það bíður
okkar verðugt verkefni. Sem dæmi
þá vorum við eina Norðurlandið sem
var beðið að senda greinargerð um
ástand þessara mála til Evrópuráðs-
ins í Brussel og var það tekið fyrir
sl. vor og verður tekið fyrir aftur á
haustdögum. Verður afar fróðlegt
að vita hvernig þau mál fara.
Fyrir þær konur sem hafa reynt
að ná til okkar varðandi Dow Corn-
ing þá var málinu vísað áfram til
æðra dómstigs í Bandaríkjunum
þannig að það mun dragast eitthvað
lengur að afgreiða það mál, en það
er enn í gangi. Við vonumst til að fá
Netið aftur, þannig að við getum
fengið nánari fréttir af gangi mála.
Einnig langar okkur til að bæta
því við að verið er að gera á vegum
FDA (lyfjaeftirliti Bandaríkjanna)
afar stóra rannsókn vegna sílikon-
púða og taka 13.500 konur þátt í
þeirri rannsókn. Munu niðurstöður
þeirrar rannsóknar verða birtar ár-
ið 2001 og ætti þá að liggja fyrir
hvort sílikonpúðar valdi skaða eður
ei, þannig að ekki hefur tekist aií
sanna enn í dag að þeir séu skað-
lausir.
Ef fólk hefur áhuga á að lesa sér
til um þessi mál er hægt að fara inn
á slóðir og lesa margt afar áhuga-
vert t.d. á http://www.info-im-
plants.com/com einnig http://www.-
MAMNSIF@prodigy.net en þar er
einnig hægt að biðja um að fá senda
bæklinga sem gott er að lesa yfir áð-
ur en konur taka ákvörðun um að fá
sílikonpúða. Við vonum að þessar
upplýsingar komi einhverjum að
gagni svo vonumst við til að mál
okkar leysist á farsælan hátt, þv*r *
þetta málefni þarfnast umræðu.
Einnig þarf að birta fleiri greinar en
tengjast þessu máli.
F.h. VONAR, SIGRÚN
G. SIGURÐARDÓTTIR,
Krummahólum 4, Reykjavík.
4