Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ
52 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
FRÉTTIR
ÍDAG
\
i
Fyrirlestur um
handanheima
v í miðaldaritum
FÉLAG íslenskra fræða efnir til
rannsóknarkvölds í Skólabæ við Suð-
urgötu, miðvikudagskvöldið 27. sept-
ember kl. 20.30. Fyrirlesari kvölds-
ins er Svanhildur Óskarsdóttir og
erindi hennar ber heitið „Fyrirgefðu,
en geturðu sagt mér hvar helvíti er?
Um handanheima í íslenskum miða-
ldaritum," segir í fréttatilkynningu.
Landafræði handanheima var
órjúfanlegur hluti heimsmyndar
miðaldanna og gegndi mikilvægu
hlutverki í þeim hugmyndum sem
-^menn gerðu sér um efstu daga. í íjt-
irlestrinum verður fjallað um dvalar-
staði framliðinna eins og miðalda-
menn hugsuðu sér þá og kannað
hvers konar upplýsingar um handan-
heima er að finna í íslenskum miða-
ldaritum. Þar koma við sögu paradís,
himnaríki, helvíti, hreinsunareldur
og limbó en ætla má að á miðöldum
hafi þessir staðir haft meiri og nær-
tækari þýðingu fyrir íslendinga en
varð síðar, í lúterskum sið.
Svanhildur Óskarsdóttir lauk BA-
prófi í íslensku og heimspeki frá Há-
skóla íslands 1988 og MA-prófi í
miðaldafræðum frá háskólanum í
Toronto, Kanada, ári síðar. Á árun-
um 1993-99 gegndi hún stöðu Hall-
dórs Laxness, lektors í nútímaís-
"'lensku við Lundúnaháskóla,
jafnframt því að vinna að doktorsrit-
gerð í norrænum fræðum við sama
skóla. Ritgerðina, sem nefnist Uni-
versal history in fourteenth-century
Iceland: Studies in AM 764 4to, varði
hún 2. júní síðastliðinn. Svanhildur
starfar nú við útgáfu á verkum Hall-
gríms Péturssonar á Stofnun Áma
Magnússonar.
Sunnlenskir kennarar
-M saman á haustþingi
Ný aðalnám-
skrá - breytt-
ur skdli
TVÖ svæðafélög Félags grunnskóla-
kennara, Kennarafélag Suðurlands
og Kennarafélag Vestmannaeyja,
halda sameiginlegt haustþing ásamt
Skólastjórafélagi Suðurlands í
íþróttahúsinu á Flúðum dagana 28. og
29. september.
Fyrri dag haustþingsins verður
haldin ráðstefna um skólamál og þær
breytingar sem verða í lqölfar nýrrar
aðalnámskrár á grunn- og framhalds-
^skólastigi. Framsögumaður verður
Bjöm Bjamason menntamálaráð-
herra. Einnig flytja fulltrúar foreldra,
kennara, skólastjómenda og sveitar-
stjómarmanna stutt erindi. I lok ráð-
stefnunnar verða pallborðsumræður.
Síðari dag haustþingsins verður
dagskráin með hefðbundnu sniði. Þar
verða flutt fjölmörg erindi, m.a. um
nýsköpun í skólastarfi, kynnt verða
þróunarverkefni og ýmis nýmæli í
kennslu og námsefni, segir í fréttatil-
kynningu.
í tengslum við þingið verður hald-
inn aðalfundur Kennarafélags Suður-
lands. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, for-
maður Félags grannskólakennara,
flytur erindi á fundinum um stöðuna í
•kjaramálum kennara.
Vetrarstarfíð í
Gjábakka og
Gullsmára
NU er að fara af stað fjölbreytt
starfsemi í félagsheimilunum Gjá-
bakka, Fannborg 8 og Gullsmára,
Gullsmára 13. Þessi tvö félags-
heimili eru sérstaklega ætluð fyrir
félagslíf þeirra sem eru hættir
Jaunavinnu enda þó'tt allir séu vel-
íkomnir. Félagsheimilin eru opin
alla virka daga frá kl. 9 til 17 og
utan opnunartíma eru áhuga-
mannahópar að störfum, segir í
fréttatilkynningu.
Starfsemi Félags eldri borgara í
Kópavogi fer einnig fram innan
veggja félagsheimilanna. Þar má
tjiefna Frístundahópinn Hana-nú
sem hefur umsjón með stuttum
menningarferðum t.d. í leikhús, á
tónleika o.fl. Sú nýbreytni verður í
vetur að menningarferðir Hana-nú
verða á sunnudögum.
I dagskránni er að finna göngur,
fjölbreytt námskeið, bobb, boccia,
leikfimi, jóga, dans, hringdans,
fjölbreytta handavinnu m.a. jap-
anskan pennasaum o.fl. Hádegis-
matur er alla virka daga í Gjá-
bakka en enn sem komið er er
matur aðeins á þriðju- og föstu-
dögum í Gullsmára. Heitt er á
könnunni og heimabakað meðlæti
er selt á vægu verði á opnunartíma
alla virka daga í báðum félags-
heimilum. Þar er hægt að lesa
dagblöðin, hlusta á útvarp og sjón-
varp og einnig er nokkuð til af
bókum. Dagskrár um starfsemina
liggja frammi í félagsheimilum.
Aðalfundur
Ahugahóps um
Sjögrens-sjúk-
dóminn
ÁHUGAHÓPUR um Sjögrens-sjúk-
dóminn heldur fræðsludag og aðal-
fund laugardaginn 30. september á
Hótel Lind, Rauðarárstíg 18,
Reykjavík. frákl. 10-17.
Áfundinum mun Bjöm Guðbjöms-
son, dósent í gigtarrannsóknum og
sérfræðingur við rannsóknarstofuna
í gigtarsjúkdómum, halda fyrirlestur
um algengi augn- og munnþurrks
meðal Islendinga og hvort heilkenni
Sjögrens sé algengt hér á landi. Að
því loknu flytur Sigrún Baldursdóttir
sjúkraþjálfari fræðsluerindi um
þreytu og verki. Aðalfundur áhuga-
hóps um Sjögrens-sjúkdóminn hefst
síðan kl. 15.30 og stendur til kl. 17,
segir í fréttatilkynningu.
Þátttökugjald er 1.800 kr. en inni-
falinn er léttur hádegisverður. Allir
velkomnir.
Felagsfundur
Ættfræðifé-
lagsins
FYRSTI félagsfundur Ættfræðifé-
lagsins í vetur verður haldinn
fimmtudaginn 28. september.
Fundarstaður er salur á 3. hæð í
gömlu Mjólkurstöðinni við Lauga-
veg, húsi Þjóðskjalasafnsins. Farið
er inn í portið og inn um dyrnar í
horninu til hægri. Þar er lyfta upp.
Fundurinn hefst klukkan 20.30 en
húsið verður opnað klukkan 19.30.
Erindi flytur Hólmfríður Gísla-
dóttir, hún talar um formóður
sína, Guðríði Hannesdóttur og
mennina í lífi hennar, segir í
fréttatilkynningu.
Boðið verður upp á kaffí og með
því og eru allir velkomnir.
LEIÐRÉTT
Sæmi sirkusslanga
Þau mistök urðu við birtingu um-
sagnar um barnaóperana Sæma
sirkusslöngu í blaðinu í gær að nöfn
leikstjóranna féllu niður en þeir era
Jóhann Smári Sævarsson og Jón
Páll Eyjólfsson. Beðist er velvirðing-
ar á mistökunum.
Fastráðinn til 31. október 1998
í grein minni í Morgunblaðinu i
gær birtist rangt ártal vegna mis-
skilnings í upplýsingum frá launa-
deild Þjóðleikhússins. Þar átti að
standa að fastráðningartíma Baltas-
ars Kormáks leikara hefði lokið við
Þjóðleikhúsið 31. október 1998 en
ekki 1999.
Hávar Sigurjónsson.
Nafn ljósmyndarans vantaði
Þau mistök urðu við birtingu ljós-
myndar, sem fylgdi grein Guðrúnar
Emilsdóttur um Sólvangssvæðið og
birtist í blaðinu sl. laugardag, að það
láðist að geta þess hver tók myndina
af Sólvangi. Ljósmyndarinn er Gísli
Jónsson prófessor, en hann lést á
síðasta ári.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kannast ein-
hver við þessa
barnagælu?
SIGURRÓS hafði samband
við Velvakanda og langaði
hana að vita hvort einhver
kannast við eftirfarandi
barnagælu.
Henni finnst endilega að
það vanti erindi inn í hana.
Hún söng þessar gælur
alltaf fyrir börnin sín þegar
þau voru lítil.
Hættu að gráta heillin
mín hérna kem ég með
gullin þín.
Eg vil engin gull mig
langar út æ vilt þú lána mér
hettuklút.
Þú átt enga sokka, þú átt
enga skó en úti er bleyta og
forin nóg.
Ég stíg yfir bleytu og
stikla yfir for á stekkin ég
kem með þér í vor.
Hann boii er úti og bítur
þig hann baulaði áðan og
hræddi mig.
Ég hræðist hann bola ég
hræðist hann ei ég hef þá
með mér hann Valda grey.
Hann Valdi er svo kjark-
laus og kraftasmár karl-
mennsku vantar og ráða
fár.
Ég held að hann pabbi
hjálpi mér ég hlusta ekki á
þetta bull í þér.
Svo fékk Sigríður sokka
og skó þá varð hún kát og
skellihló.
Svo fóru þær út og léku
sér leituðu að blómum og
tíndu ber.
Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar hafi samband við
Erluísíma 569-1117.
V atnsendamálið
ÞEGAR útivistarfólk er á
gangi, hjólandi eða á hlaup-
um um Vatnsendabyggðina
þá hugsar það að skaparinn
hafi verið ansi örlátur hér.
Síðan eru sótsvartir íhalds-
menn sem telja sig tilheyra
Kópavogi, eins og Kópa-
vogur væri staðsettur ein-
hvers staðar nálægt Palest-
ínu. Þar sem skæruliðar
með sín eyðileggingaröfl
ráða ríkjum. Það er eitt
stórt höfuðborgarsvæði
hvort sem það heitir
Reykjavik, Kópavogur,
Hafnarfjörður, Vatnsendi
eða Mosfellsbær. Á höfuð-
borgarsvæðinu þurfa allir
að taka tillit til hver annars
og lifa í sátt við hver annan.
Ef það eiga að rísa blokkir
á Vatnsendahæð væri það
listrænn harmleikur. Það
ætti þá frekar að kalla
Vatnsendahæðina eftir það
Golgata, því þá væru eftir
fáar náttúruperlur í ná-
grenni við höfuðborgina
sem gæfu frá sér jákvæða
orku og hleðslu. Fólk þyrfti
að keyra óraleið til að geta
verið í nánum tengslum við
náttúruna án sjónmengun-
ar og bílamengunar.
Halldóra María
Steingrímsdóttir.
Ruslpóstur
VIÐ tökum ofan fyrir
Hreggviði Jónssyni vegna
aðgerða hans gegn
ruslpósti.
Hann framkvæmir það
sem við mörg hver höfum
verið að ergja okkur yfir og
nöldrað um í kunningja-
hópi.
Þar sem við höfum bæði
búið og ferðast töluvert er-
lendis þá teljum við okkur
þekkja þetta fyrirbrigði
nokkuð, sérstaklega í
Þýskalandi. Þar geta menn
beðist undan þvi að fá
þennan auglýsingapóst,
sem engum er merktur, í
póstkassana. Er það ýmist
gert með tilkynningu til
pósthúss hverfisins eða
með þvi að setja miða á
póstkassann þar sem segir
að ekki sé óskað eftir
auglýsingapósti. Slíkar
beiðnir virðast nær undan-
tekningalaust vera virtar.
Við höfum nú gert til-
raun með að setja slíkan
miða á okkar póstkassa og
bíðum spennt eftir að sjá
hvort hann ber árangur.
Við erum ekki hissa á því
að Hjörtur Guðnason
prentari skuli vera hrifinn
af auglýsingapóstinum.
Það er jú hans lifibrauð að
framleiða hann.
Svana og Gunnar.
Húrra fyrir Ríkis-
sjónvarpinu
LOKSINS hefur Ríkis-
sjónvarpinu tekist að finna
sjónvarpsmynd þar sem
ekki er verið annaðhvort að
berja, drepa fólk eða sam-
farasenur með fárra mín-
útna bili. Hér á ég við
myndaflokkinn Hálanda-
höfðingjann sem sýndur er
á sunnudagskvöldum.
Hann er vel leikinn og pers-
ónurnar venjulegt fólk í fal-
legu umhverfi og með góð-
an húmor. Ég vona að Rás
1 fari að leita að betra og
vandaðra efni, en verið hef-
ur upp á síðkastið.
6171-2380.
Rósa á Skjá einum
KONA hafði samband við
Velvakanda og var veru-
lega sár yfir því að þáttur-
inn Rósa hefði verið tekinn
af Skjá einum og Djúpa
laugin sett i staðinn og ekki
nóg með það, heldur eru
þetta gamhr þættir. Rósa
tók á hinum ýmsu málum,
sem ekki eru almennt rædd
í íslensku þjóðfélagi. Henni
finnst það verulega slæm
skipti. Rósu aftur á Skjá
einn.
Tapad/fundid
Lítið hálsmen
fannst
LITIÐ hálsmen með dökk-
bláum steini og gullfesti,
fannst á bílastæðinu við
Gufuneskirkjugarð, laugar-
daginn 23. september sl.
Upplýsingar í síma 568-
5271.
Seðlaveski tapaðist
LÍTIÐ samanbrotið seðla-
veski tapaðist miðvikudag-
inn 20. september sl,
sennilega í Stangarholti. I
veskinu voru öll skilríki.
Upplýsingar í síma 897-
0032, Þórhildur.
Taska og jakki
týndust
HINN 21. september týnd-
ust taska og jakki. Taskan
er svört með ól. I veskinu
var gsm-sími, hús- og bíl-
lyklar og aðrar persónuleg-
ar eigur. Finnandi vinsam-
Iega hafi samband í síma
552-7180 eða skili eigunum
í vörslu lögreglu eða þar
sem eigandi getur nálgast
þá.
SKAK
Umsjón Helgi Áss
Grélarsson
STADAN kom upp í
Norðurlandamóti taflfé-
laga sem haldið var á Net-
inu. Svart hafði Færeying-
urinn Herluf Hansen
(2047) gegn Norðmannin-
um Harald Borchgrevink
(2175). 24. ...Bxe4! 25.
Dxe4 Hxg3+! 26. Khl 26.
hxg3 Dxg3+ hefði einnig
leitt til máts. 26.
...Hgl+ og hvítur
gafst upp enda verð-
ur hann mát í næsta
leik. Lokastaða
mótsins varð þessi:
1. Taflfélagið Hellir
17% vinning af 24
mögulegum 2. Ber-
gens Schakklubb,
Noregi 12% v. 3.
Tauras Finnlandi
11% v. 4. SK Ny-
köbing, Danmörku
5. Havnar tefling-
arfelag, Færeyjum.
Ast er...
... að láta hennar
föt ná yfír í þinn
hluta skápsins.
Víkverji skrifar...
EKKI verður sagt að það sé
beint skemmtilegt að verða
fyrir því að vera staðinn að verki við
hraðakstur. Víkverji varð hins veg-
ar fyrir því á dögunum, í annað sinn
á ökumannsævi sinni (hef nú verið
bílstjóri í 31 ár!) og var það hin ár-
vökula Blönduóslögregla sem þar
var að verki.
Leiðin lá frá Akureyri til Reykja-
víkur og var Víkverji á lánsbíl sem
var nokkuð fótfrár. Hafði Víkverji á
ferð sinni fram Oxnadalinn tekið
eftir að honum var mjög hætt við að
fara yfir 90 km mörkin ef hann
fylgdist ekki því betur með mælin-
um. Það gerir Víkverji reyndar yf-
irleitt (þótt hann segi sjálfur frá) og
veit nokkurn veginn upp á hár á
hvaða hraða hann er hverju sinni.
Vitanlega gætti hann sín því á þess-
ari ferð á síðkvöldi í síðustu viku en
eftir að komið var fram hjá Blöndu-
ósi varð Víkverji fyrir andartaks
hlé eða truflun og því fór sem fór:
Bláu ljósin blikkuðu á móti og Vík-
verji var beðinn að setjast yfir í lög-
reglubílinn og hafa með sér öku-
skírteini. Þar blikkaði mælir
lögreglubílsins á 119 km og Víkverji
gat enga björg sér veitt og gerði
ekki tilraun til að útskýra framferð-
ið, hafði bara ekki fylgst með hrað-
anum. Hann hafði reyndar verið svo
grandalaus að þegar hann sá bláu
ljósin fyrst hélt hann að eitthvað
væri að fram undan, flutningabíll
með breiðu hlassi í lögreglufylgd
eða eitthvað slíkt. Ekki hvarflaði að
honum að honum að nokkuð væri
athugavert við eigið framferði!
Afleiðingin er 10 þúsund króna
sekt sem lækkar þó í 7.500 kr. sé
hún greidd innan tilskilins tíma.
Fram hjá þessu verður ekki komist
en Víkverja sárnar eigin aulaháttur
mun meira en sektin sjálf, að hafa
ekki fylgst betur með bæði hraðan-
um og ferðum lögreglunnar.
Það er hins vegar ekki hægt ann-
að en kyngja þessu, taka ofan fyrir
Blönduóslögreglunni og virða eftir-
lit hennar og annarra lögreglu-
manna sem er auðvitað til þess gert
að halda aftur af okkur í umferð-
inni. Meðan hraðamörkin eru 90 km
á þjóðvegunum verðum við að halda
okkur við þau. Hins vegar ætti að
vera hægt að endurskoða þau á
ákveðnum köflum á hringveginum
því sums staðar - og meðal annars í
umdæmi Blönduóslögreglunnar -
eru langir og beinir kaflar með
rennisléttu slitlagi og góðu útsýni
til allra átta. Þar hlýtur að vera
hægt að leyfa ökumönnum að
spretta örlítið meira úr spori. Er
endilega nauðsynlegt að 90 km
mörkin gildi allan hringveginn?
xxx
HUN er skemmtilega frumleg sú
herferð landlæknis að minna
okkur á að eiga samfundi hvert við
annað með erindinu úr Hávamálum
þar sem segir að maður sé manns
gaman. Við eigum að fara og finna
oft þann vin sem við vel trúum. Við
getum eflaust verið sammála um að
þetta sé sannleikur og sjálfsagt er-
um við líka mörg í þeirri stöðu að
rækta þetta ekki nógu vel. Það þarf
nefnilega tíma og ákveðna vinnu til
að halda í vinina og gæta þess að
sambandið við þá rofni ekki.
Ekki er víst að aðstaða sé alltaf
til að hitta vinina ótt og títt en þá
grípa menn til nútímatækjanna eins
og símans og tölvupósts eða gamal-
dags bréfaskrifta. Nógu fróðlegt
væri nú að vita hvort slík samskipti
eiga enn uppá pallborðið hjá nú-
tímamanninum.