Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 56
56 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
------------------------------
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
arrqgance
QF POWER
R S
THE HUNTING OF
THESNARK
/in Agony in Eight Fits
by
Lewis Carroll
Illustrated by
Mervyn Peake
Forvitnilegar bækur
Angist
1 LltttL
flogum
THE HUNTING OF THE SNARK
A'*l Agony in Eight Fits, eftir Lewis
Carroll. Myndskreytt af Mervyn
Peake. Gefin út af Methuen Publ-
ishing Limited. London. 2000. 36
blaðsiður, en 72 með skissum Peak-
es. Fæst í Máli og menningu.
LEWIS Carroll, eða Charles
Lutwidge Dodgson, eins og hann
heitir réttu nafni, er eflaust fræg-
astur fyrir að hafa skrifað bækurn-
ar tvær um Lísu í Undralandi; Al-
icés Adventures in Wonderland og
Vhrough the Looking-Glass and
What Alice Found There. Bækurn-
ar nutu mikilla vinsælda á sínum
tíma meðal ungu kynslóðarinnar
en voru endurvaktar á hippatíman-
um sem fullorðinslesning þar sem
hippunum líkaði draumkenndur
fáránleikinn og þóttust sjá að
þarna hefði verið sýruhaus í bar-
áttu á móti kerfinu (t.d. er „White
Rabbit“ með Jefferson Airplane
tilvitnun í samnefnda stressaða
kanínu í Undralandi). Peir hefðu
náttúrlega ekki getað verið lengra
frá sannleikanum þar sem Dodg-
son var feiminn, miðaldra stærð-
fræðikennari við Oxford-háskóla
sem eyddi grunsamlega miklum
tíma með smástelpum (úps, heyrði
ég loftbólu springa?)
Hunting of the Snark er örlítið
breytt útgáfa af bók sem uppruna-
lega kom út 1941, 43 árum eftir
dauða Carroll. Bókin er aðeins eitt
langt ljóð og alls ekki einstök því
að Carroll gerði þó nokkrar barna-
ljóðabækur eins og t.d. Phantas-
magoria and other poems, Rhyme?
and Reason? og Sylvie and Bruno.
Og það er eiginlega synd hversu
gleymd og vanmetin þessi ljóð eru
því að mínu mati hafa vísurnar
alltaf verið hans sterkasta hlið.
Súrrealísk gamankvæði sem hylla
hið fáránlega og kjánalega, leikur
að orðum og rökfræði sem gæti
rotað hest úr undrun. Algjör for-
V§ri gáfulega „silly“ húmorsins
sem Monty Python tileinkuðu sér
seinnameir.
En Hunting of the Snark er ekki
bara skringileg og skemmtileg
lesning heldur er hún líka frábær-
lega myndskreytt af Mervyn
nokkrum Peake. Sá maður hefur
myndskreytt fjöldann allan af bók-
um auk mikilla bókmenntaafreka
en hann skrifaði hina frábæru,
gotnesku trílógíu um Gormenghast
kastalann, seríu sem líkt og Lísa í
Undralandi fetar milliveg barna-
e%is og fullorðinsbókmennta. Það
er líklega þess vegna sem ég er að
kynna þessa bók því að þarna hitt-
ast einir tveir merkustu og ímynd-
unarveikustu höfundar sem ég
þekki til að framkalla mjög stutta
og pervisna en 100% ánægjulega
lesningu.
Ragnar Egilsson
The Arrogance of Power: The
Secret World of Richard Nixon.
Höfundur: Anthony Summers.
Útgefandi: Viking. 640 bls.
ÆVINLEGA er tiltekinn einstakl-
ingur horfii- löngunai-augum til emb-
ætta tekur rotnunin að setja mark sitt
á framgöngu hans.“ Þessa speki um
vilja stjómmálamannsins til valda og
leit hans að upphafningu, sem svo oft
verður siðlaus, lét Thomas Jefferson
frá sér fara árið 1799, tveimur árum
áður en hann varð þriðji forseti
Bandaríkjanna.
Sá maður, sem átti eftir að verða
37. forseti þessa mikla ríkis, horfði
löngunaraugum til fjölmarga emb-
ætta á ævi sinni og rotnunin tók, að
sögn, snemma að gera vart við sig.
Svo fór að lokum að maðurinn varð
gegnrotinn; öldungis siðlaus valda-
sjúklingur sigraði í forsetakosningun-
um í Bandaríkjunum haustið 1968 og
er hann hraktist með skömm úr Hvíta
húsinu rúmum fimm árum eftir að
hafa svarið embættiseiðinn, hafði
hann brotið flest þau lög, sem brjót-
anleg voru, logið, svikið og misnotað
svo gjörsamlega valdið, er honum var
treyst íyrir, að enn eru Bandaríkin
ekki söm eftir.
Richard M. Nixon brást öllum, sem
nærri honum stóðu. Hann brást
bandarísku þjóðinni, stuðningsmönn-
um sínum, aðstoðarmönnunum, vin-
um sínum og fjölskyldu. Og hann
brást sjálfum sér og foreldrum sín-
um, sem sennilega varð honum erfið-
asta reynslan þegar Watergate-fárið
var afstaðið og hann hóf varfæmis-
lega baráttu sína fyrir því að öðlast
virðingu á ný; baráttu, sem lauk með
sigri, er arftakar hans á forsetastóli
voru viðstaddir útför hans 20 árum
síðar, árið 1994.
Fréttamaðurinn Anthony Summ-
ers rekur þessa sögu alla í nokkuð ít-
arlegri nýrri bók um Riehard Nixon.
„The Arrogance of Power“ hefur vak-
ið nokkra athygli og fullyrðingar höf-
undarins um að Nixon hafi drukkið
ótæpilega og neytt lyfja, sem höfðu
áhrif á geð hans og persónu, hafa kall-
að fram mótmæli frá fjölskyldu for-
setans fyrrverandi. Þá hefur og verið
andmælt þeim fullyrðingum höfund-
arins að Nixon hafi oftar en einu sinni
lagt hendur á eiginkonu sína, Pat
Nixon, bandarísku fyrirmyndarhús-
móðurina, sem forsetinn var svo stolt-
ur af að hefði ítrekað verið lofsungin í
tímaritinu óviðjafnanlega Good
Housekeeping.
Ógeðfelldur valdasjúklingur
I bók Anthony Summers, sem er
einkum þekktur fyrir myrka sögu
sína um ævi J. Edgar Hoover og hef-
ur starfað fyrir BBC, er dregin upp
vægt til orða tekið ógeðfelld mynd af
37. forseta Bandaríkjanna. Ef lýsing
Summers er rétt var Richard Nixon,
drykkfelldur (og trúlega geðbilaður)
valdasjúklingur; maður, sem þekkti
engar siðferðisviðmiðanir og var með
öOu tilfinningalaus; einfari sem þjáð-
ist af ofsóknarbrjálæði. Nixon var
gjörsamlega siðlaus í allri sinni póli-
tísku framgöngu, þáði leynilegar pen-
ingagreiðslur frá glæpamönnum og
jafnvel morðingjum og þekkti engin
takmörk er hann hugðist klekkja á
andstæðingum sínum. Hann var
hrokagikkur, sem safnaði um sig sið-
leysingjum og ruddum, sem fóru í
einu og öllu að óskum hans; maður,
sem bar ekki minnstu virðingu fyrir
stjómarskránni og hefði jafnvel getað
steypt Bandaríkjunum í glötun.
Margt í bók Anthony Summers er
vel gert og víða er heimildasöfnunin
sannfærandi. Aðrir kaflar vekja hins
Ráðgáta
Var 37. forseti Bandaríkjanna siðlaus og
AP
Richard Nixon var maður sem bognaði oft en brotnaði aldrei enda
taldi hann mótlæti fallið til að herða þann sem fyrir því yrði. For-
setinn gefur sigurmerki er hann yfirgefur Hvíta húsið eftir afsögn
sína 9. ágúst 1974.
vegar upp efasemdir og tortryggni.
Saga þess efnis, að Nixon hafi í eitt
skiptið við opinbert tækifæri ekki
þekkt eiginkonu sína og heilsað henni
hljómar kunnuglega enda hefur hún
einnig verið sögð um Ronald Reagan,
sem ekki átti að hafa þekkt son sinn
er sá hinn sami útskrifaðist úr skóla.
Annað í bók Summers er betur
skjalfest og sumt verður tæpast dreg-
ið í efa. Þrátt fyrir að öðru væri jafnan
haldið fram drakk Nixon ótæpilega
og það sama gerði eiginkona hans á
köflum. Forsetinn þjáðist af viðvar-
andi svefnleysi og notaði áfengi og
svefnlyf svo ógætilega að oftlega
sofnaði hann í miðjum samtölum við
undirsáta sína.
Ljóst virðist ennfremur að Summ-
ers hafi lagt fram trúverðug gögn um
að fjármál Nixons hafi lengstum ekki
staðist skoðun og að glæpamenn hafi
stutt hann með margvíslegum hætti.
Þá sýnist tæpast leika á því vafi að
Nixon spillti fyrir friðarviðræðum
Johnson-stjómarinnar og Norður-
Víetnama fyrir kosningarnar 1968 og
bar þannig á því ábyrgð að stríðið
dróst enn á langinn.
Lyíjanotkun
Athygli hafa vakið þær upplýsing-
ar í bók Summers að Nixon hafi löng-
um notað Dilantin, sem upprunalega
mun hafa verið flogalyf, til að vinna
gegn depurð og þunglyndi. Nú um
stundir þykir það tæpast óeðlilegt að
ráðamenn noti lyf til að auðvelda sér
lífið og er þess skemmst að minnast
er upplýst var að forsætisráðherra
Noregs hefði neyðst til að taka sér
leyfi frá störfum og sætti lyfjameð-
ferð sökum þunglyndis. Fyrir rúmum
20 árum voru slík lyf hins vegar mun
„grófari" en þau, sem nú eru notuð og
aukaverkanir í mörgum tilfellum
hastarlegar. Vart verður dregið í efa
að Nixon neytti lyfja og að sú neysla
var í meira lagi ógætileg. Forsetinn
þoldi illa áfengi og virðist oftlega hafa
verið drukkinn eða undir áhrifum
lyfja á mikilvægum stundum á ferli
sínum.
Upplýsingar þess efnis að forset-
inn hafi gengið í skrokk á konu sinni
eru hins vegar hvorki studdar ítarleg-
um né traustum heimildum.
Watergate-málið og endalok Nix-
on-tímabilsins er hér rakið á þokka-
lega ítarlegan hátt en fátt nýtt kemur
fram í frásögn Summers. Hann held-
ur því fram að mikill ótti hafi verið
tekinn að gera vart við sig í Hvíta
húsinu og á meðal þingheims síðustu
dagana og vikurnar, sem Nixon
gegndi embætti. Forsetinn hafi litla
sem enga stjóm haft hvorki á sjálfum
sér né umhverfínu og menn hafi ótt-
ast að hann blési jafnvel til hernaðar
án tilefnis.
Annað er kunnuglegt. Nixon hlaut
um margt undarlegt uppeldi. Sókn
sína til frekari pólitískra metorða hóf
hann með því að eyðileggja líf Alger
Hiss, starfsmanns utanríkisráðu-
neytis Bandaríkjanna, á þeim for-
sendum að hann væri sovéskur njósn-
ari. Enn í dag er deilt um hvort Hiss
hafi verið á mála hjá Sovétmönnum.
Kommúnistahræðslu Bandaríkja-
manna nýtti Nixon sér út í ystu æsar
og reyndi það jafnvel eftir að draga
tók úr móðursýkislegum ótta við
Sovétríkin, sem hann og menn á borð
við Joseph McCarthy ólu á af full-
kominni ósvífni.
Eftir þetta jókst rotnun persónu-
leika Nixons í réttu hlutfalli við þau
embætti, sem hann hafði löngun á,
svo vísað sé til orða Jeffersons.
Bók Anthony Summers er ekki
ævisaga í hefðbundinni merkingu
þess orðs. Hér er fjallað um skugga-
hliðarnar á persónu Nixons í réttri
tímaröð en h'tið sem ekkert sagt frá
framgöngu hans í embættum að öðru
leyti. Einungis er stuttlega minnst á
helstu afrek forsetans, „opnunina"
gagnvart Kína og slökunarstefnuna,
sem þeir Nixon og Henry Kissinger
innleiddu gagnvart Sovétríkjunum.
Raunar heldur Summers því fram að
slökunarstefnuna og samningana við
Kína og Sovétríkin megi einkum
rekja til aðdáunar Nixons á Charles
de Gaulle Frakklandsforseta.
Sverrisson segir frá nýrri bók um
Richard Nixon.
Þannig mætti áfram telja; í bók
Anthony Summers er ekkert jákvætt
að finna um Richard M. Nixon.
Afrek og persónugallar
Svarar bók Anthony Summers
áleitnustu spurningunum varðandi
Richard Nixon? Þótt rakið sé hvemig
persónugallar hans, skapofsi og
hneigð til ofsóknaræðis mótuðu við-
brögð hans og framgöngu á mörgum
mikilvægum stundum gerh- höfund-
urinn enga tilraun til að setja þessi
persónueinkenni í samhengi við þann
mikla árangur, sem Nixon náði á
mörgum sviðum. Það vill oft gleym-
ast, að Nixon breytti miklu í Banda-
ríkjunum og að hann var í raun held-
ur „frjálslyndur" forseti. Nixon hafði
t.a.m. forustu um lögvemduð lág-
markslaun og það var hann, sem
fylgdi eftir löggjöf um jöfn borgara-
réttindi kynþáttanna. Nixon batt og
enda á herskyldu í Bandaríkjunum.
Um þessa hlið á persónu forsetans
fjallar höfundurinn ekki og hann leið-
ir nær algjörlega hjá sér framgöngu
Nixons í Kína og Sovétríkjunum og
þau tímamót, sem þeim ferðum
fylgdu. Hefði þó mátt ætla að þar
væri úr nógum efniviði að vinna.
Anthony Summers segir lesendum
sínum aukinheldur ekkert um það
hvernig það gerðist að jafn hæfur og
stólpagreindur maður og Richard M.
Nixon fylltist slíku hatri og hefndar-
þorsta, sem kallaði yfir hann svo nið-
urlægjandi endalok og það gjörsam-
lega að óþörfu. Að auki gerir
höfundurinn nánast enga tilraun til
að skýra hvemig svo slægur og illa
innrættur maður, miðað við lýsingu
Anthony Summers, gat gert svo fár-
ánleg mistök, sem Watergate-inn-
brotið var og þó einkum hljóðritan-
irnar, sem endanlega urðu til þess að
steypa Nixon í glötun.
Líklegasta skýringin á hatri og
hefndarþorsta Nixons er ósigur hans
í forsetakosningunum árið 1960 þeg-
ar vinir Kennedy-klíkunnar stálu
mjög trúlega af honum sigrinum og
fengu hann í hendur John F. Kenn-
edy. í huga Nixons varð Kennedy-
fjölskyldan og hin frjálslynda „stjóm-
mála-elíta“ austurstrandarinnar sam-
nefnari fyrir allt það, sem hann hataði
og fyrirleit. Beint og röklegt fram-
hald af þessu var síðan fyrii-litning
hans á fjölmiðlum, sem hann taldi til
hættulegustu óvina sinna. Tengsl
hneigðar stjómmálamanna til ofsókn-
aræðis og frjálsrar fjölmiðlunar er að
sönnu merkilegt rannsóknarefni.
Umfjöllun Anthony Summers um
þetta er ófullnægjandi að því leyti
sem hún leiðir fátt nýtt í ljós og skort-
ir dýpt.
Ekki verður um það deilt að
Richard Nixon var stórkostlega gall-
aður maður, sem kallaði raunvem-
lega ógæfu yfir þjóð sína að því marki
sem Watergate-málið leiddi til þess
að traust á stjórnmálamönnum í
Bandaríkjunum beið mikinn hnekki.
Um áhrif þessa era menn enn að rita
lærðar bækur í Bandaríkjunum.
(Áhugamönnum um áhrif Water-
gate-málsins skal bent á nýjustu bók
Bob Woodward, „Shadow“, útg. Sim-
on & Schuster 1999).
En Nixon var jafnframt margbrot-
inn og flókinn persónuleiki, einstakur
maður, sem hafði rómantískar hug-
myndir um leiðtogann og hlutskipti
hans og taldi lífið endalausa baráttu.
Þær níu bækur, er hann lét eftir sig
hafa margar að geyma lífspeki og
heimssýn, sem er allrar athygli verð.
Bók Anthony Summers er heldur
ógnvekjandi lesning og víst er að þar
er að finna mörg atriði, sem rannsök-
uð verða nánar á komandi áram.
Heimildavinna sýnist á köílum ekki
vera nægilega traust að því mai-ki
sem víða er stuðst við orðróm, sögu-
sagnir og fullyrðingar hatursmanna
forsetans. Þá skorti hann vitanlega
ekki og augljóslega er ævisöguritara
Nixons vandi á höndum einfaldlega
sökum þess hversu ótalmargt nei-
kvætt hefur verið sagt og birt um
manninn.
„The Arrogance of Power“ er langt
frá því að vera tæmandi ævisaga en
setur stjórnmálaferil 37. forseta
Bandaríkjanna í nánast skelfilegt
samhengi siðleysis, persónugalla og
valdhroka. Lýsingin er hins vegar
einhliða og greininguna skortir dýpt.
Því fer fjairi að ráðgátan Richard M.
Nixon hafi verið leyst.