Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 64
Maestro
Heimavörn
%
SECURÍTAS
Sími: 580 7000
MORGUNBLAÐIB, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMIS69U00, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
9 • •
Eigendur Olgerðarinnar Egill Skallagrímsson ehf. vilja selja fyrirtækið
Leitað til
fjögurra að-
ila um tilboð
AÐALEIGENDUR Ölgerðarinnar
Egill Skallagrímsson ehf. hafa
ákveðið að selja öll hlutabréf sín í
fyrirtækinu, en þau nema tæpum
98% af skráðu hlutafé. Einungis er
m“ieitað til fjögurra fjármálafyrirtækja
varðandi tilboð í Ólgerðina og er þá
ætlunin að selja allan hlutinn í einu
lagi. Það verður síðan undir viðkom-
andi kaupanda komið hvert fram-
haldið verður.
Afkoma Ölgerðarinnar hefur að
sögn Jóns Snorra Snorrasonar fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins verið
með ágætum undanfarin ár og
stendur fyrirtækið vel í dag. Ars-
velta síðasta árs nam rúmum 2,4
milljörðum króna og hagnaður var
150 milljónir króna. Fyrirtækið var
stofnað árið 1913 af Tómasi Tómas-
syni og er eitt stærsta fjölskyldufyr-
irtæki landsins með 140 starfsmenn.
Þær fjórar fjármálastofnanir sem
gefinn var kostur á gera tilboð í fyr-
irtækið eru Landsbanki íslands,
Búnaðarbanki Islands, íslands-
banki-FBA og Kaupþing. Kynning-
arviðræður eru þegar hafnar við
hvert þessara fj ármálafyrirtækj a
fyrir sig og er ætlast tU að sent verði
kauptUboð í allan hlutinn sem er í
boði. Að sögn Jóns Snorra er það
skýrt tekið fram að öðrum aðilum en
þessum fjórum verður ekki boðið að
kaupa hlutabréfm og ekki verður
rætt við aðra aðUa í því sambandi að
svo stöddu. Jón Snorri segir að von-
ast sé tU að viðræður gangi vel fyrir
sig og að eigendaskipti gangi í gegn í
næsta mánuði.
Telja gott að selja núna
Aðspurður um ástæðuna fyrir söl-
unni sagði Jón Snorri að líklega
teldu eigendur það gott að selja
núna, en að þeir hefðu ekki tilgreint
neina eina ástæðu fyrir sölunni, og
sagðist hann ekki geta nefnt hugsan-
legt kaupverð fyrirtækisins.
„Eg geri nú ráð fyrir að menn hafi
gert sér eitthvað í hugarlund varð-
andi kaupverð. Eins og alltaf þegar
menn setja hlut í sölu, þá hafa þeir
einhverjar hugmyndir sjálfir, en að
öðru leyti var ákveðið að óska eftir
tilboðum frá þessum fjórum aðilum.“
Ekki náðist í gær í forsvarsmenn
þeirra fjögurra fjármálafyrirtækja
sem gefinn er kostur á að gera tilboð
í 98% hlut í Ölgerðinni.
A leið heim
úr skóla
STÚLKURNAR þrjár létu ekki
dblíða veðráttu á sig fá er þær
héldu heim á leið úr skólanum í
Reykjavík heldur brostu hressi-
lega og veifuðu létt til Ijósmynd-
ara Morgunblaðsins. Piltarnir
sem með þeim gengu létu sér
hins vegar fátt um finnast og
örkuðu áfram með vindinn í fang-
ið.
Um fimmtán þúsund nemendur
stunda nú nám við grunnskóla
Reykjavíkur. Er skólastarfið
komið vel á veg enda langt liðið á
septembermánuð. Eftir því sem
lengra líður á veturinn er lík-
legra að börnin fari að draga
fram hlýrri fatnað en mörg
þeirra setja einnig upp endur-
skinsmerki sem nauðsynleg þykja
í skammdeginu.
Morgunblaðið/RAX
Ríkisstiórnin samþykkir tillögu um Vatnajökuls- og Skaftafellsþjóðgarð
Stefnt er að opnun á al-
þjóðlegu ári fjalla
Netversl-
un SH sú
stærsta?
„ÞETTA er stærsta netverslun
,,Jandsins og líklega í heiminum í
' ’nski," segir Kristján Hjaltason,
framkvæmdastjóri SH-þjónustu,
dótturfyrirtækis SH, sem hefur
boðið upp á rafræn viðskipti fram-
leiðenda og markaðsfyrirtækja SH
frá áramótum.
Að sögn Kristjáns vinnur lestun-
arfólk á annað hundrað pantanir
vikulega og tæplega hundrað gám-
ar eru hlaðnir auk reglubundinna
stórflutninga. Kerfið er nefnt
„e-services“ og segir Kristján að
um einstakt vinnutæki sé að ræða.
Öryggi, hraði og hagkvæmni séu
lykilorð í viðskiptum og kostir raf-
rænnar miðlunar gagna séu ótví-
ræðir fyrir alla. „Og Netið lækkar
kostnað, en það hlýtur að vera
••krafa til allra.“
■ Stærsta netverslun/Cl
------*-+-*--
Guðrún
keppir til
úrslita í dag
GUÐRÚN Arnardóttir keppir í úr-
slitum 400 metra grindahlaupsins
á Ólympíuleikunum í Sydney
klukkan 9:55 árdegis. Guðrún var
áttunda stúlkan inn í úrslitahlaup-
og önnur tveggja sem komust
inn á tíma. Tími hennar í milliriðl-
inum var sjötti besti tíminn. Guð-
rún hleypur á annarri braut í dag
og verður hlaupið sýnt í beinni út-
sendingu sjónvarpsins.
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gær tillögu Sivjar Frið-
leifsdóttur umhverfisráðherra um
stofnun Vatnajökuls- og Skaftafells-
þjóðgarðs sem nái tíl Vatnajökuls og
Skaftafellsþjóðgarðs. Áður en form-
lega verður unnt að ganga frá stofnun
þjóðgarðsins þarf að skýra betur
eignarhald á svæðinu og samræma
hugmyndir um landnýtíngu.
Alþingi samþykktí þingsályktun í
mars í fyrra um að fela umhverfis-
ráðherra að láta kanna möguleika á
að stofna Vatnajökulsþjóðgarð.
Skýrsla um niðurstöður þessarar
könnunar var lögð fyrir Alþingi sl. vor
og voru þar kynntar tillögur nefndar
sem falið var að vinna að málinu.
Nefndin taldi mögulegt að taka
ákvörðun um stofnun Vatnajökuls-
þjóðgarðs á þessu ári, ef mörk hans
verði látín fylgja jaðri jökulsins og
mörkum Skaftafellsþjóðgarðs, en
bentí jafnframt á að mörg mál þurfi
að leysa áður en tíl formlegrar stofn-
unar þjóðgarðsins getur komið.
Siv Friðleifsdóttir sagði í samtali
við Morgunblaðið að umhverfisráðu-
neytið hefði óskað eftir því við
óbyggðanefnd að hún tæki Vatnajök-
ulssvæðið til meðferðar og úrskurðaði
um þjóðlendumörk Vatnajökuls.
Nefndin hefði orðið við ósk ráðuneyt-
isins að því er varðar hluta svæðisins,
þess sem er innan sveitarfélagsmarka
Hafnar í Homafirði. Hún upplýsir
aukinheldur að fjármálaráðuneytinu
hafi verið tilkynnt um ákvörðun
óbyggðanefndar og veittur frestur til
15. nóvember nk. til þess að lýsa kröf-
um sínum um þjóðlendur á svæðinu.
Heimamenn binda miklar
vonir við stofnun þjóðgarðs
Ýmsar hugmyndir um mörk þjóð-
garðsins hafa verið til skoðunar að
undanfómu, en einnig möguleikar á
samspili við aðra landnýtingu á svæð-
inu, svo sem ferðaþjónustu og hugs-
anlega þjónustukjama.
2002
„Það er Ijóst að heimamenn binda
miklar vonir við stofnun þjóðgarðs á
svæðinu og aukna möguleika til upp-
byggingar ferðaþjónustu í tengslum
við þjóðgarðinn, sérstaklega þar sem
landbúnaður á svæðinu hefur dregist
saman og byggð stendur höllum
fæti,“ segir m.a. í minnisblaði um-
hverfisráðherra til rfldsstjómarinnar
vegna þessa máls.
Siv segir að ákvörðun rfldsstjóm-
arinnar sé mjög mikilvæg og í raun sé
um að ræða afar mikilvægt skref í
umhverfismálum hér á landi. „Það er
mjög brýnt að stofna þennan þjóð-
garð, þetta er mjög fallegt og merld-
legt svæði út frá sjónarmiðum náttúr-
unnar. Því munum við leggja okkur
fram í þeirri vinnu sem framundan er,
svo unnt verði að opna þjóðgarðinn
sem fyrst. Árið 2002 er alþjóðlegt ár
fjalla og það færi vel á að opna hinn
nýja þjóðgarð formlega á því ári.“
Maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT