Morgunblaðið - 02.11.2000, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framkvæmdastjóri LÍU segir stöðu útgerðar hrikalega eftir oliuhækkunina
Olíukostnaður eykst
um 800 milljónir kr.
HÆKKUN olíufélaganna um mán-
aðamótin á skipaolíu um 9,6% eyk-
ur olíukostnað útgerðarinnar í land-
inu um 800 milljónir króna, á
ársgrundvelli, og nálgast nú 9 millj-
arða króna. Framkvæmdastjóri
Landssamþands íslenskra útvegs-
manna, LÍÚ, Friðrik G. Arngn'ms-
son, segir stöðu útgerðarinnar
hrikalega og ljóst að grípa þurfí til
einhverra aðgerða. Friðrik útilokar
ekki að LÍU skoði enn frekar en
áður þann möguleika að kaupa ol-
íuna erlendis og selja hana beint á
skipin úti á sjó.
„í síðasta mánuði var það ekki
talið fýsilegur kostur þegar við bár-
um saman verð. Ef við sjáum færi á
því núna að fá olíuna með ódýrari
hætti munum við grípa það tæki-
færi. Menn þurfa auðvitað að hagn-
ast á svona aðgerðum. Þetta er
spurning um þjónustu og annað,
það er til dæmis ekki óskastaða að
taka olíu úti á sjó því þá tefjast
veiðar. Við þurfum engu að síður að
leita allra leiða. Olían vegur mis-
mikið milli útgerða en hjá sumum
er þetta spuming um hvort menn
binda ekki skipin við bryggju," seg-
ir Friðrik.
Skipaolía hækkaði nú um mán-
aðamótin um 9,6%, lítrinn fór úr
34,40 krónum í 37,70 krónur. Það er
með virðisaukaskatti, sem útgerðin
fær endurgreiddan, þannig að lítra-
verðið án skatts fór úr 27,63 krón-
um í 30,28 kr. Að sögn Friðriks
þýðir hver krónuhækkun um 300
milljóna kr. aukinn olíukostnað fyr-
ir útgerðina á ársgrundvelli. Með
hækkun upp á 2,65 krónur á hvern
lítra fer kostnaður því upp um tæp-
ar 800 milljónir króna um þessi
mánaðamót. Heildarolíunotkun út-
gerðarinnar hefur verið um 300
milijónir lítra á ári. Fyrir hækkun-
ina nú var olíukostnaður á ári talinn
um 8,2 milljarðar og eftir hækkun
fer sá kostnaður í um 9 milljarða
króna.
Tap fyrir kolmunnaveiðar
Friðrik segir hækkun skipaol-
íunnar að mestu tilkomna vegna
hækkunar á heimsmarkaði sem
ekki sé hægt að ráða við.
„Þar sem ekki eru opinberar
álögur á olíunni til okkar höfum við
verið að ræða við olíufélögin með
hvaða hætti megi hagræða og spara
í þeim rekstri. Það er Ijóst að sam-
keppni félaganna er ekki mikil. 01-
íuverð erlendis ráðum við ekki við
þannig að við þurfum að eiga við ol-
íufélögin,11 segir Friðrik.
Hann segir útgerð við sumar
veiðar rekna með tapi um þessar
mundir, t.d. kolmunnaveiðar sem
krefjast mikillar orku um leið og af-
urðaverð er lágt. Hækkun skipa-
olíunnar nú geti því riðið bagga-
muninn á mörgum stöðum.
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag-
fræðingur LÍÚ, segir útgerðina í
landinu vera að sigla inn í „meiri-
háttar áföll“ haldi verðþróunin
áfram með þessum hætti. Hækkun-
in nú sé ekki bara sláandi fyrir út-
gerðina heldur hagkerfið í heild
sinni.
„Þótt sumir vilji ekki kannast við
það að útgerðin skipti máli enn þá
þá er hún okkar fjöregg. Kol-
munnaveiðar eru nú í bullandi tapi.
Afurðaverð hefur rétt dugað fyrir
launum og olíu og er þá allt annað
eftir. Nú þurfa útgerðarmenn virki-
lega að horfa í pyngjuna áður en
lagt er í hann. Einn ónýtur túr er
bara meiri háttar áfall," segii'
Svéinn Hjörtur.
Fengu fjóra
farsíma í
afmælisgjöf
ÞÆR eru orðnar 12 ára, fjórbura-
systurnar Alexandra, Elín, Diljá og
Brynhildur Guðjónsdætur. Þótt þær
hafi átt afmæli í gær, 1. nóvember,
ætla þær ekki að halda upp á það
fyrr en eftir nokkrar vikur.
Þær búa í Vogunum og ganga í
Stóru-V ogaskóla.
Systurnar voru að leika sér við
vinkonu sína og passa hundinn
Gosa, sem þær fengu um síðustu jól,
þegar blaðamann bar að garði.
Þegar þær voru inntar eftir því
hvað þær hafi fengið í afmælisgjöf
kom í ljós að þær höfðu allar fengið
GSM-síma, einn á mann og auk þess
eitt sjónvarp hver. Þær eiga hver
sitt herbergi þannig að nú geta þær
setið í friði fyrir framan sjónvarpið
og haft það huggulegt. Það eru ekki
mörg tækifærin sem gefast til þess
að vera einn þegar maður er fjór-
buri.
Aðspurðar sögðust þær aðallega
senda hver annarri SMS-skilaboð
með símanum og höfðu þær sent
hver annarri hamingjuóskir með
daginn.
Eru á leiklistarnámskeiði
Þær sögðu að það gæti verið mjög
þægilegt að eiga GSM-sfma því ef
t.d. ein þeirra týndi lyklinum af hús-
inu gæti hún hringt í hinar og feng-
ið þær til þess að koma og opna.
Stúlkumar sögðust vera á leik-
listaraámskeiði um þessar mundir.
Þær ætluðu þó ekki að verða leik-
konur þegar þær yxu úr grasi, en
hugur flestra þeirra stefndi á fórð-
unarfræði, enda eru þær pínulítið
farnar að mála sig.
Morgunblaðið/ Kristinn.
Elín, Alexandra, Diljá og Brynhildur ásamt hundinum Gosa.
16,6 milljónir fyrir þriðja
GSM-rekstrarleyfíð
LEITAÐ er lagaheimildar til
gjaldtöku vegna þriðja GSM 900-
leyfisins í frumvarpi sem sam-
gönguráðherra hefur lagt fram á
Alþingi. Er miðað við að heimil
skuli taka 16.600.000 kr. vegna
úthlutunar tíðni til starfrækslu
þriðja rekstrarleyfisins en fyrir
eru á markaðnum Tal og Lands-
síminn.
Fram kemur í greinargerð
með frumvarpinu að bæði Tal og
Landssíminn hafi greitt 15 millj-
ónir króna fyrir heimild til að
starfrækja farsímanet fyrir GSM
900 MHz-þjónustu. Sú fjárhæð
uppfærð miðað við vísitölu
neysluverðs sé 16,6 milljónir kr.
á núvirði og með því að inn-
heimta það gjald af handhafa
þriðja GSM 900-leyfisins séu
skilmálar þess leyfis sambærileg-
ir sem Landssímanum og Tali
voru settir.
Frumvarpinu fylgir útboðslýs-
ing vegna rekstrarleyfisins sem
Póst- og fjarskiptastofnun hefur
samið. Er tekið fram í greinar-
gerðinni að ákvörðun um þessa
tilhögun á gjaldtöku fyrir þriðja
GSM-leyfið sé alveg óháð um-
ræðu um þriðjukynslóðarfarsíma
og verðmæti tíðnirása.
Olíufélögin telja bfl-
stjóra beina mótmælum
sínum í ranga átt
„Verið að
hengja
bakara
fyrirsmið“
TALSMENN Olíufélagsins - Essó
og Skeljungs, sem Morgunblaðið
ræddi við í gær, sögðu ákvarðanir
ekki hafa verið teknar varðandi þá
kröfu samstarfshóps bílstjóra að fé-
lögin dragi verðhækkanir sínar um
mánaðamótin til baka, í síðasta lagi á
miðnætti í kvöld. Fulltrúar olíufélag-
anna voru allir á því að bflstjórar
væru að beina mótmælum sínum i
ranga átt, frekar ætti að beina þeim
að stjórnvöldum eða framleiðsluríkj-
um olíunnar, eða eins og einn fram-
kvæmdastjóra Skeljungs, Þórá' Har-
aldsson, orðaði það: „Það er verið að
hengja bakara fyrir smið.“
Gunnar Kvaran, upplýsingafull-
trúi Skeljungs, var sammála þessum
orðum Þóris. Hækkanirnar til þessa
endurspegluðu aðeins þróunina á
heimsmarkaði og í gengismálum.
Geir Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins, sagði að forsendur væru
óbreyttai' og afstaða hefði ekki verið
tekin til beiðni bflstjóranna.
Geir sagði aðgerðir bflstjóranna
beinast gegn röngum aðilum. Olíufé-
lögin réðu hvorki heimsgjaldmiðlum
né heimsmarkaðsverði á olíu.
„OlíuframleiðsluiTkin hafa ákveðið
beint því til neysluríkjanna að
minnka skatta. Þeirra vara í verð-
mynduninni sé það lítill hluti af út-
söluverðinu. Mér finnst alveg gild sú
spurning með skattheimtuna ef þessi
atvinnugrein bflstjóra á sér ekki
starfsgrundvöll. Þá breytir ein króna
til eða frá í olíuverði engu. Þegar allt
hefur verið gi'eitt er einhver ein
króna eftir fyrir olíufélögin."
Geir benti á að þegar olíufélögin
kynntu sex mánaða uppgjör sín á ár-
inu hefðu sérfræðingar á fjármála-
markaði sagt að félögin hefðu ekki
staðist væntingar. Búast hefði mátt {
við því að þau nýttu sér olíuverðið til
að bæta aíkomuna. „Þetta finnst mér
kvittun fyrir því að við höfum ekki
verið að breyta álagningu okkar
mikið. Enda má telja hana í aurum
frekar en krónum.“
-------*-4-*------
Tryggingamiðstöðin
Mikil viðskipti
með hlutabréf
MJÖG mikil viðskipti voru með {■
hlutabréf Tryggingamiðstöðvarinn- :
ar í gær. Samkvæmt yfii'liti Verð- {
bréfaþings íslands námu viðskiptin
rúmum 646 milljónum króna en jafn-
vel er talið að einhver viðskipti séu j
þar tvítalin.
Engin breyting varð á gengi bréf- |
anna en lokaverð þeirra var 49.
Alls námu viðskipti með hlutabréf
994,5 milljónum króna á Verðbréfa-
þingi í gær og lækkaði Úrvalsvísitala
aðallista um 2,71%. Vísitalan er nú
1.392 stig og hefur hún lækkað um
13,96% frá áramótum.
Blaðinu i dag
fylgir blað
frá Ótrúlegu
búðinni,
„Ótrúlega
búðin“. Ut-
gefandi er BJ
Trading.
4SIBIIK
Ríkharður byrjaði með giæsibrag
hjá Stoke /B3
Tvö stórlið á höttunum
eftir Snorra /B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
5