Morgunblaðið - 02.11.2000, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
segja löggæslu f lágmarki
Ég ætti kannski líka að auglýsa á pólsku, þetta verður ekkert mál, Böðvar minn,
ef það fást fagmenn í klippiríið.
Landskrá lausafjár-
muna er ekki til
LANDSKRÁ lausafjármuna er ekki
til og lausafé er almennt ekki skrán-
ingarskylt að sögn Ingva Hrafns
Óskarssonar, aðstoðarmanns dóms-
málaráðherra. Hins vegar er hægt
að skrá lausafjármuni hjá viðkom-
andi sýslumanni ef manni býður svo
við að horfa.
Ástæða þess að Ingvi Hrafn er
spurður um Landskrá lausafjár-
muna er sú að Kristján L. Möller,
þingmaður Samfylkingarinnar,
spurði Sólveigu Pétursdóttur dóms-
málaráðherra að því í fyrirspurnar-
tíma á Alþingi á mánudag hvað liði
hugmyndum um flutning svonefndr-
ar Landskrár lausafjármuna til Ól-
afsfjarðar sem Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðar-og viðskiptaráðherra
hefði kynnt á borgarafundi þar í
skyndibitastaður
til sölu
18 lítra og 800 watta, nettur örbylgjuofn býðst nú á góðu verði.
Fínn í upphitun, prýðilegur í samlokugerð, góður fyrir ýmsa smárétti
og pottþéttur poppari. Staðsetning er mjög miðsvæðis og
opnunartlmi sveigjanlegur.
Verði þér að góðu
BRÆÐURNIR
ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
mars sl. Dómsmálaráðherra svaraði
því til að því miður hefði komið í ljós
að verkefnið myndi aðeins skapa
hálfsdagsstarf fyrir einn starfs-
mann.
Ingvi Hrafn upplýsir að skrár yfir
lausafjármuni séu víða til erlendis. í
þeim löndum sé skylt að skrá verð-
mæta lausafjármuni til að tryggja
aðgang að upplýsingum um það
hvort veð hvíli á fjármununum. Slík-
ar skrár hefðu með öðrum orðum
svipað hlutverk og skrár fasteigna -
sem eru í höndum sýslumanna hér á
landi - en í þeim skrám getur vænt-
anlegur kaupandi fasteigna t.d. nálg-
ast upplýsingar um það hvort veð
hvíli á fasteigninni. Sem dæmi gætu
lausafjármunir m.a. verið vélar eða
aðrir dýrir hlutir sem teljast ekki til
fasteigna eða fylgifjár þeirra.
Ingvi Hrafn segir að Þorsteinn
Pálsson, þáverandi dómsmála-
ráðherra, hafí lagt fram tillögu að
hugmyndum um landskrá lausafjár-
muna á Alþingi fyrir nokkrum árum
en sú tilllaga hafi ekki náð fram að
ganga. Síðan þá hafi ekki komið til
tals á Alþingi, svo Ingva Hrafni sé
kunnugt um, að koma á fót slíkri
landskrá.
----------------
135 stöðvaðir
fyrir of hraðan
akstur
135 ökumenn voru teknir fyrir of
hraðan akstur í sérstöku sólarhrings
hraðamælingaátaki lögreglunnar í
Reykjavík. Stóðu mælingar yfir um
alla borg frá því klukkan sjö á þriðju-
dagsmorgun og til sjö í gærmorgun.
Ökumaður bifreiðar sem mældist
á 120 km hraða í Garðabæ seint í
gærkvöldi reyndi að komast undan
lögreglu. Eftir skamma eftirför náði
lögreglan að stöðva för mannsins. Þá
hafði lögreglan í Hafnarfirði afskipti
af nokkrum bifreiðaeigendum, sem
ekki höfðu fært bifreiðir sínar til ár-
legrar ökutækjaskoðunar á tilskild-
um tíma.
Nýr framkvæmdastjóri Dómsfólaráðs
Mörg spennandi
verkefni bíða
NYLEGA tók til
starfa nýr fram-
kvæmdastjóri
Dómstólaráðs, Elín Sigrún
Jónsdóttir sem áður var
forstöðumaður Ráðgjafa-
stofu um fjármál heimil-
anna. Hún var spurð hvað
hið nýja starf fæli í sér?
„Dómstólaráð skipað
fimm mönnum var sett á
stofn með dómstólalögum
nr. 15/1998, til að fara með
veigamikla þætti í
stjórnsýslu héraðsdóm-
stólanna. Með dómstóla-
lögunum var leitast við að
skilja enn frekar á milli
framkvæmdavalds og
dómsvalds en verið hafði, í
því skyni að tryggja dóm-
stólunum meira sjálfstæði Elín
og gera þá óháðari hinum
þáttum ríkisvaldsins, þ.e. löggjaf-
ar- og framkvæmdavaldi.“
- Hefar þetta borið árangur?
„Já, við teljum að svo sé. Það
hefur verið starfandi fram-
kvæmdastjóri í rétt tvö ár og til-
gangur með þessu starfi er eink-
um að styrkja stöðu og sjálfstæði
dómstólanna. Dómstólaráð fer
með yfirstjórn dómstóla og hefur
með höndum stjórnsýsluverkefni
sem áður heyrðu undir dómsmála-
ráðuneyti og hefur einnig verið
falið ýmis ný verkefni. Helstu
verkefni ráðsins eru fjárreiður
héraðsdómstólanna og setning
samræmdra reglna. Ráðið fer og
með sameiginlegt forsvar dóm-
stóla gagnvart stjórnvöldum.
Einnig sinnir það símenntun fyrir
dómara og aðra starfsmenn dóm-
stólanna og tölvu- og upplýsinga-
málum.Við tökum ákvörðun um
fjölda dómara við hvern héraðs-
dómstól og við söfnum upplýsing-
um um fjölda og afgreiðslu mála.
Almennt ber ráðinu að stuðla að
því að gætt sé skilvirkni og hraða
við rekstur mála.“
- Er nú eins mikill seinagangur
og áður var kvartað undan í dóms-
kerfí landsins?
Sigrún Jónsdóttir
► Elín Sigrún Júnsdöttir fæddist
22. apríl 1960 í Sandgerði og ólst
þar upp. Hún lauk stúdentsprófi
1979 frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti og embættisprófi í
lögum frá Háskóla Islands 1986.
Hún hefur starfað m.a. sem for-
stöðumaður Ráðgjafastofu um
fjármál hcimilanna, deildarstjóri
í félagsmálaráðuneytinu og sem
lögmaður BYKO en hefur nú
verið ráðin framkvæmdastjóri
Dómstólaráðs. Elín er gift séra
Sigurði Árna Þórðarsyni sem
starfar á Biskupsstofu og á hún
þrjú stjúpbörn.
ur nýverið sent frá sér tilmæli til
dómara um meðferð þeirra mála.
Reynslan sýnir að dómarar hafa í
auknum mæli nýtt sér þjónustu
Barnahúss þegar um yngstu
börnin er að ræða, síðan er mjög
góð aðstaða til yfirheyrslu barna
hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og
fyrirhugað er að koma upp slíkri
aðstöðu hjá Héraðsdómi Norður-
lands eystra og Héraðsdómi
Reykjaness.“
- Hvað starfa margir hjá hér-
a ðsdómstólum?
„Nei, slík erindi berast okkur
ekki og ljóst má telja að tekist hafi
að auka skilvirkni og hraða við
rekstur mála almennt."
-Hefur fólk tök á að fylgjast
með starfi dómstóla efþað vill?
„Við stefnum að því að almenn-
ingur geti aflað sér upplýsinga um
störf dómstólanna, dóma þeirra
og starfshætti almennt á aðgengi-
legri heimasíðu á Netinu. Unnið
er að þessu og gert ráð fyrir að
þetta verði að veruleika á næsta
ári. Það er verðugt verkefni Dóm-
stólaráðs að auka skilning og
fræðslu um störf dómstólanna.
Fólk er oft fáfrótt um störf og
starfsemi dómstóla hér og sumir
halda jafnvel að hér
starfi kviðdómur eins
og fólk þekkir úr
bandarískum bíómynd-
um.“
- Hefur dómskerfíð
að undanförnu tekið
einhverjum breyting-
um sem umtalsverðar
eru?
„Á síðustu árum hef-
ur stöðugleiki ríkt og starfsemi
dómstólanna ekki breyst að ráði,
hins vegar eru alltaf breytingar
innan einstakra málaflokka. Þar
sjáum við t.d. að einkamálum hef-
ur fjölgað töluvert á þessu ári og
jafnframt hefur orðið mikil fjölg-
un í stórum fíkniefnamálum."
-Hvað með barnaverndarmál,
hefur meðferðþeirra breyst?
„Það hefur verið mikil umræða
um yfirheyrslur yfir börnum, þá
hvort sú yfirheyrsla eigi að fara
fram hjá dómstólunum sjálfum
eða í Barnahúsi. Dómstólaráð hef-
„Þar starfa um 90 manns, hjá
Dómstólaráði er eitt og hálft
stöðugildi. Ráðið er skipað tveim-
ur dómstjórum, tveimur héraðs-
dómurum og einum fulltrúa dóms-
málaráðherra."
- Eru gerðar auknar kröfur til
þessara starfsmanna hvað mennt-
un snertir?
„Jafnt fyrir dómara sem og
aðra starfsmenn dómstólanna er
þörf á að sinna símenntun og það
er einmitt mikilvægur þáttur í
starfsemi Dómstólaráðs. Nýlega
hefur verið samþykkt símenntun-
aráætlun fyrir starfsmenn dóm-
stólanna. Sú alþjóðavæðing sem
við tökum þátt í krefst þess að
starfsmenn sinni end-
urmenntun og sofni
ekki á verðinum. Dóm-
stólaráð hefur einnig
verið með sérstök nám-
skeið fyrir ólöglært
starfsfólk dómstól-
anna. Nýverið héldum
við ráðstefnu fyrir alla
starfsmenn dómstól-
anna, sem bar nafnið
„Ásýnd héraðsdómstólanna". Þar
skoðuðum við hvaða viðmót mætir
fólki sem leitar til dómstólanna og
hver er líðan fólks sem kemur fyr-
ir rétt. I því sambandi fengum við
til okkar sálfræðing sem fjallaði
um líðan aðila, vitna og sakborn-
inga fyrir dómi og einnig fengum
við til okkar fanga sem sagði okk-
ur frá reynslu sinni af að koma
fyrir rétt sem sakborningur.
Dómstólaráðs bíða mörg og
spennandi verkefni og ég sem
framkvæmdastjóri hlakka til að
takast á við þau.
Dómstólaráð
sinnir stjórn-
sýsluverkefn-
um sem áður
heyrðu undir
dómsmála-
ráðuneyti