Morgunblaðið - 02.11.2000, Síða 14

Morgunblaðið - 02.11.2000, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lögreglumenn með lausa samninga og hafa kynnt helstu kröfur sínar Krefjast lækkunar starfs- aldurs og hærri launa Morgunblaðið/Jim Smart Landssamband lögreglumanna stóð fyrir félagsfundi í gær þar sem farið var yfir baráttumál lögreglumanna. LANDSSAMBAND lögreglu- manna setur fram kröfur um lækk- un starfsaldurs, aukna starfs- menntun lögreglumanna og að grunnlaun verði að lágmarki 150.000 krónur á mánuði en þau eru nú 102.441 kr. Heildarlaun lög- reglumanna eru hins vegar að meðaltali 240-260 þúsund kr. á mánuði. Kjarasamningar lögreglu- manna eru lausir frá og með gær- deginum. Lögreglumenn kynntu kröfurnar á blaðamannafundi í gær en fyrr um daginn stóð Landssambandið fyrir almennum félagsfundi þar sem farið var yfir helstu baráttu- mál lögreglumanna. Boðað hefur verið til fvrsta samningafundar í dag og er það fyrsti fundur lög- reglumanna og samninganefndar ríkisins. Lögreglumenn 5-7 árum skammlífari en aðrir Meginkrafa lögreglumanna er lækkun starfsaldurs. Fram kom á blaðamannafundinum að kannanir bentu til þess að lögreglumenn séu 5-7 árum skammlífari að meðaltali en aðrir íslendingar. Bent var á sambærilegar kannanir í Svíþjóð, Þýskalandi og víðar sem allar sýni að lögreglumenn séu ekki jafnlang- lífír og aðrir. Einnig var bent á að komið sé að ákveðnum hættumörk- um þar sem búast megi við að fímmti hver lögreglumaður verði sextíu ára eða eldri innan örfárra ára. Jónas Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, sagði að stjórnvöldum hefði verið kunn þessi staðreynd um nokkurt skeið. Rannsóknir og kostnaðarút- reikningar lægju fyrir en viðbrögð hefðu engin verið. Á fundinum var vísað til saman- burðar við aðrar þjóðir hvað varð- ar starfsaldur lögreglumanna. Fram kom að á meðan íslenskir lögreglumenn þurfa að starfa til 70 ára aldurs til þess að njóta fulls og óskerts lífeyris geti lögreglumenn í nágrannalöndunum látið af störf- um á aldrinum 58-62 ára án þess að lífeyrir þeirra skerðist og í Eng- landi eftir 30 ára starf. Omenntaðir lögreglumenn óþekkt fyrirbrigði í Evrópu Lögreglumenn gera kröfu um að allir lögreglumenn hafi menntun til síns starfs. Jónas benti á að 1989 hefði verið sett í lög að ómenntaðir lögreglumenn mættu aðeins starfa yfir sumarmánuðina en þessi heim- ild hefði verið víkkuð út með breyt- ingum á lögreglulögum 1996. Síð- astliðinn þriðjudag voru, að sögn Jónasar, 99 afleysingamenn við störf af 685 stöðugildum. Þegar verst lætur er hluti ómenntaðra við störf mjög stór og þeir oft einir að störfum á vettvangi. í júlímánuði sl. hefðu verið 171 ómenntaður lög- reglumaður að störfum á götum landsins. Jónas sagði að það væri óþekkt með öllu í Evrópu að menn gætu klæðst einkennisbúningi og haft afskipti af borgurunum án þess að hafa fengið til þess mennt- un. Fyrr á árinu lét Landssamband- ið Gallup vinna fyrir sig skoðana- könnun þar sem almenningur var inntur eftir viðhorfum sínum til lögreglumanna. Jónas segir að 80% af tólf hundruð manna úrtaki hefði svarað því til að byrjunarlaun lög- reglumanna væru of lág. „Við telj- um að miðað við erfitt og krefjandi starf séu þessi launakjör með öllu óviðunandi. í ljósi væntanlegs nið- urskurðar á fjárlögum er ljóst að það verður samdráttur í yfirvinnu og meðaltekjur lögreglumanna munu halda áfram að lækka. Við sjáum merki um flótta úr stéttinni sem við megum illa við þar sem hún er ekki fullmönnuð menntuðu fólki,“ sagði Jónas. Aðspurður sagði Jónas að heildai-laun lög- reglumanna væru að meðaltali á bilinu 240-260 þúsund kr. á mán- uði. Talið væri eðlilegt að dregið yrði úr yfirvinnu þannig að vægi grunnlauna ykist og vinnutíminn yrði þar með skaplegri. Hermann Lutz, formaður Evrópusamtaka lögreglumanna, sat blaðamannafundinn. Aðspurður um hvernig kjarastaða íslenskra lögreglumanna kæmi honum fyrir sjónir sagði Lutz að hann væri ekki tekinn trúanlegur í Evrópu þegar hann skýrði frá því að eftir- launaaldur íslenskra lögreglu- manna miðist við 70 ár. í Evrópu væri þessu öfugt farið. Hann sagði jafnframt að almennt gilti að því minni sem menntun lögreglumanna væri því meiri hætti væri á einræð- islegum vinnubrögðum lögreglunn- ar. Hann benti á að í Þýskalandi tæki lögreglunám þrjú ár og í ein- stökum fylkjum landsins væri mið- að við að lögreglumenn hefðu a.m.k. tólf ára almennt nám og nám í lögregluskóla að baki. Lög- reglunám á Islandi tekur eitt ár. Austurland Sfldarvinnsl- an hæsti skattgreið- andinn SÍ LDARVINN SLAN hf. á Neskaup- stað greiðir mest lögaðila í opinber gjöld á Austurlandi samkvæmt upp- lýsingum frá skattstjóra Austur- landsumdæmis eða 62,3 milljónir króna. Næstmest gjöld greiðir Hrað- frystihús Eskifjarðai' hf., 37,1 milljón, Skinney-Þinganes greiðii' 29 milljón- ir, Kaupfélag Fáskrúðsíirðinga er í fjórða sæti og greiðir 25,6 milljónir og Fjarðabyggð á að greiða 24 milljónir. ------------------- Vestfírðir Básafell hf. greiðir mest BÁSAFELL hf. greiðir hæst gjöld lögaðila á Vestfjörðum, rúmar 49 milljónir króna og Hraðfrystihúsið Gunnvör hf. er í öðru sæti með 35,4 milljónir. Þriðji hæsti gjaldandi meðal lög- aðila á Vestfjörðum er ísafjarðar- bær sem greiðir 31,6 milljónir, í fjórða sæti er Heilbrigðisstofnunin Isafirði með 17,9 milljónh’ og í því fimmta Orkubú Vestfjarða sem greiðir 13,1 milljón. --------------- Vesturland HBléntií efsta sæti HARALDUR Böðvarsson hf. á Akranesi greiðir mest samanlögð op- inber gjöld lögaðila á Vesturlandi, rúmar 74,3 milljónir króna, sam- kvæmt álagningarskrá skattstjór- ans. Næstmestu gjöldin greiðir ís- lenska járnblendifélagið, 71,8 millj- ónir króna. I þriðja sæti er Aki’aneskaupstað- ur sem greiðir 32,2 milljónir, í því fjórða Heilbrigðisstofnunin Akra- nesi með 30,3 milljónir og í fimmta sæti er Sementsverksmiðjan hf. sem greiða á 27,2 milljónir. Leikskólakennarar krefjast tvöföldunar by rj unar launa FORSVARSMENN Félags ís- lenskra leikskóiakennara sögðu á fundi í gær að krafist yrði allt að tvöföldunar byrjunarlauna í næstu kjaraviðræðum. Byijunarlaun eru nú um 102.000 krónur. Samningar leikskólakennara eru lausir um næstu áramót. FÍL hefur gert við- ræðuáætlun sem felur í sér það markmið að kjarasamningum verði lokið fyrir þann tíma. Fyrsti samningafundur er 9. nóvember nk. og þá mun félagið leggja fram kröfur sínar. Björg Bjarnadóttir formaður FIL sagði á blaðamannafundi í gær að öll umræða í þjóðfélaginu undanfarin misseri endurspeglaði þann vanda sem leikskólarnir ættu við að etja enda hefði ástand á leikskólum verið sérstaklega slæmt sl. ár og starfsmannaekla sem áður hafi aðeins verið á sumr- in er nú orðið viðvarandi vandamál árið um kring. „Það þarf að koma ráðamönnum í skilning um hversu starf leik- skólakennarans er mikilvægt, og nú finnst okkur kominn tími til að þeir sýni þann hug í verki, en ekki bara í orði,“ sagði Björg sem lagði áherslu á að leikskólakennara- stéttin væri í biðstöðu og mikil eft- irvænting ríkti um væntanlega kjarasamninga og þeir væru margir sem litu á samningana sem úrslitavald um hvort halda skyldi áfram starfi eða snúa í aðrar greinar. Framtíð leikskólanna í húfi „Fólk mun taka þessa ákvörðun ef ekki kemur til verulegra kjara- bóta. Launin eru skammarlega lág þar sem meðaldagvinnulaun leik- skólakennara eru innan við 115.000 og meðalheildarlaun allra félagsmanna þar með taldra stjómenda eru ríflega 140.000.“ Björg sagði þessar staðreyndir hafa legið ljósar um langa hríð og til verulegra launahækkana þyrfti að koma. Umræðan hefði allt þetta ár staðið um tvöföldun grunnlauna og því ætti sú krafa ekki að koma rekstraraðlinum leikskólanna á óvart. „Þessir kjarasamnningar snúast hreinlega um framtíð leik- skólanna." Björg sagði enga opinbera könnun hafa verið gerða um vilja leikskólakennara til aðgerða og sagði félagið forðast allt tal um verkfall áður en kæmi til samn- ingaviðræðna enda væri verkfall algjört neyðarún-æði. Hún sagði það samt ljóst að ef í hart færi myndu félagsmenn standa þétt saman. Einnig kom fram á fundinum að undanfarin tvö ár hefur aðsókn í leikskólaskorir háskólanna í Reykjavík og á Akureyri ekki ver- ið næg og er sú dræma aðsókn rakin til lágra launa leikskóla- kennara að námi loknu. Athygli vekur einnig að af þeim rúmlega 2.000 leikskólakennurum sem út- skrifast hafa eru ekki nema um 1.200 sem starfa við fagið. Þeir eru því átta hundruð faglærðir leik- skólakennarar sem kjósa önnur störf en 55-60% starfandi innan leikskólanna. Olíuhækkanir hafa minni áhrif á skipafélögin Kaupa olíuna á Rotterdam-markaði OLÍUVERÐSHÆKKANIR um mánaðamótin hafa einnig áhrif á skipafélögin, en ekki í jafn miklum mæli og á kaupendur eldsneytis innanlands þar sem félögin kaupa mestalla olíu á flutningaskipin á Rotterdam-markaði. Heimsmark- aðsverð á olíu hefur sem kunnugt er hækkað verulega á árinu, ásamt hækkun á gengi dollars, og segir Kristinn Þór Geirsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Sam- skipa, olíukostnað félagsins nú vera þrefalt hærri en fyrir ári. Þetta hafi að sjálfsögðu áhrif á flutn- ingsgjöldin, sem hækkað hafi í samræmi við aukinn rekstrarkostn- að. Samskip hefur lagt af strand- siglingar sínar þannig að hækkun skipaolíu hér heima hefur lítil áhrif á félagið. Hins vegar hefur hækkun dísilolíunnar áhrif á Samskip þar sem félagið hefur aukið þátttöku sína í landflutningafyrirtækjum. „Allt hefur þetta áhrif. Hækkun dísilolíunnar um mánaðamótin um 3% þýða að sjálfsögðu aukin út- gjöld í för með sér fyrir okkur,“ segir Kristinn Þór. Síðast hækkuðu flutningsgjöld innanlands hjá Samskip fyrir tæp- um mánuði og segir Kristinn Þór þungaskattshækkanir einnig hafa vegið þungt í þeirri ákvörðun. Hann segir gjaldskrá fyrir milli- landafrakt einnig hafa hækkað á árinu, sem rekja megi til aukins ol- íukostnaðar. Haldi verðhækkanir á olíu áfram, segir Kristinn Þór að Samskip þurfi fljótlega að endur- skoða gjaldskrár þjónustunnar. Svigrúm sé ekki til staðar til að mæta þessum kostnaðarhækkun- um. Hjá Eimskip urðu síðast breyt- ingar á flutningsgjöldum í ágúst sl. Að sögn Sigríðar Hrólfsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Eimskips, liggja engar ákvarðanir fyrir um að hækka flutningsgjöld að nýju. Líkt og keppinauturinn Samskip kaupir Eimskip mestalla sína olíu á flutningsskipin á Rotterdam-mark- aði. Sigríður segir að hækkanir á heimsmarkaðsverði hafi að sjálf- sögðu áhrif á rekstrarkostnað Eimskips. Hækkanir á olíuverði innanlands hafi áhrif á þá flutn- ingabíla sem félagið rekur, og séu þau töluverð.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.