Morgunblaðið - 02.11.2000, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
______________________________FRÉTTIR_______________________________
Ólafur Ragnar Grímsson eftir heimsókn á munaðarleysingjaheimili í Bombay
„Mikil lífs-
reynsla“
Á þriðja degi opinberrar heimsóknar for-
seta íslands til Indlands kom hann m.a. við
á munaðarley singj aheimili og sagði það
mikla lífsreynslu. Skapti Hallgrímsson
blaðamaður og Ragnar Axelsson ljósmynd-
ari fylgdust með ferðum forsetans og
fylgdarliðs hans.
Morgunblaðið/RAX
Ólafur Ragfnar Grímsson og Dorritt Moussaieff, heitkona hans, með tvö
bamanna á munaðarleysingjaheimilinu sem þau heimsóttu í gær. Ólaf-
ur heldur á 14 mánaða dreng en Dorritt á níu mánaða stúlku.
FORSETI íslands hóf vinnudaginn
á morgunverðarfundi með nokkrum
indverskum athafnamönnum, því
næst lá leiðin í mikið og glæsilegt
safn sem kennt er við prinsinn af
Wales - þar sem var að finna ýmsa
muni sem Bretar söfnuðu saman á
sínum tíma, meðan þeir stjórnuðu
Indlandi - og síðan ávarpaði Ólafur
Ragnar viðskiptaráðstefnu sem út-
flutningsráð og viðskiptaskrifstofa
utanríkisráðuneytisins stóðu fyrir.
Þar voru nokkur íslensk fyrirtæki
kynnt.
Ólafur Ragnar og fylgdarlið hans
snæddi hádegisverð í boði Murli
Deora, fyrrverandi borgarstjóra
Bombay og fyrrverandi þingmanns,
en þeir Ólafur Ragnar eru gamlir
vinir; störfuðu mikið saman í alþjóð-
legu þingmannasamtökunum Parla-
menterians for Global Actions með-
an Ólafur var í forsvari fyrir þau.
Færði heimiiinu
gjafir frá íslandi
Um miðjan dag í gær eyddi for-
setinn drjúgri stund á munaðar-
leysingjaheimili í Bombay, þar sem
80 böm búa. Þau elstu sungu og
dönsuðu fyrir forsetann og fylgdarlið
hans og Ólafur færði þeim gjafir sem
hann kom með ofan af Islandi; bæk-
ur og Lego-kubba af ýmsu tagi og
voru gjafirnar greinilega vel þegnar.
Yngtu börnin á umræddu munað-
arleysingjaheimili voru nýfædd; það
yngsta sem var á heimilinu á meðan
Islendingarnir stöldruðu við var fætt
daginn áður og forstöðukona heimil-
isins sagði blaðamanni að hún ætti
von á bami á hverri stundu sem hefði
fæðst fyrr um daginn. Læknir hefði
nýlega hringt og látið hana vita að
barnið kæmi fljótlega. Um 75%
þeirra barna sem dveljast á heimil-
inu eru fædd á sjúkrahúsum en
fjórðungur hefur aftur á móti verið
borinn út, einhver fundið og komið á
heimilið.
Gífurlegan fjölda götubama er að
finna á Indlandi - börn sem engan
eiga að, búa á götunum og betla sér
til matar - en mörg munaðar-
leysingjaheimili, eins og það sem for-
setinn heimsótti í gær, er að finna í
landinu og sögðu forráðamenn þess
að það væri vitaskuld mikil gæfa fyr-
ir bömin að komast á slíkan stað. „Ef
ekki væri fyrir okkur væru þessi
böm á götunni,“ sagði einn þeirra.
Að sögn forstöðukonunnar eru öll
börn sem koma á heimilið ættleidd á
endanum en þau em yngst látin
burtu þriggja mánaða. Sum bam-
anna eru sýkt af HlV-veirunni, sem
getur valdið alnæmi, en þau eru engu
að síður ættleidd. „Fólk veit af því og
tekur þá áhættu," sagði hún við
Morgunblaðið og lagði áherslu á að
alls ekki væri vist að þau veiktust af
sjúkdómnum.
„Þetta var mikil lífsreynsla,“ sagði
Ólafur Ragnar Grímsson við blaða-
mann í þann mund sem hann yfirgaf
heimilið en þá höfðu forsetinn og
Dorritt Moussaieff, heitkona hans,
talað lengi við elstu börnin, haldið á
þeim yngstu og skoðað. Þau skoðuðu
m.a. agnarsmátt barn sem sagt var
mánaðargamalt og var fætt tveimur
mánuðum fyrir tímann. Það lá í
vöggu, alveg hreyfingarlaust og
greinilega mjög máttvana.
Gandhi var helja í
hugnm fólks á Islandi
Eftir heimsókn til barnanna héldu
forsetinn og fylgdarlið hans í stofnun
sem kennd er við Mahatma Gandhi
en þar var verið að útski'ifa nemend-
ur sem lokið höfðu tölvunámi. Það er
áðurnefndur vinur Ólafs, Murli
Deora, sem stendur fyrir þessu verk-
efni og hefur gert um tíma; námið er
ókeypis og ætlað þeim sem annars
hefðu engin tækifæri, af fjárhags-
ástæðum, til að stunda slíkt nám.
Stofnunin, sem rekin er fyrir gjafafé
úr ýmsum áttum, rekur yfir 100 mið-
stöðvar í landinu eins og þá sem ís-
lenski hópurinn skoðaði í gær.
„Mahatma Gandhi var ein hetja
fólksins í litla fiskibænum sem ég
ólst upp í á íslandi," sagði Ólafur
Ragnar m.a. þegar hann ávarpaði
fjölmarga nemendur og forráða-
menn stofnunarinnar og hlaut mikið
lófaklapp fyrir. „Ég hef sagt við ör-
yggisverðina sem gæta mín hér, að
þegar ég sný heim aftur verði ekki
einn hermaður eða lögreglumaður
sem gæti mín. Hvort sem ég er
heima á forsetasetrinu eða á skrif-
stofu minni lifi ég í friði meðal fólks-
ins. Þetta var sú sýn sem Mahatma
Gandhi dreymdi um,“ sagði Ólafur
Ragnar og fólkið fagnaði honum aft-
ur.
Hann afhenti síðan nokkrum
bestu nemendum áðumefnds tölvu-
námskeiðs viðurkenningarskjöl og
gjafir frá stofnuninni áður en haldið
var í kvikmyndahús í borginni þar
sem opnuð var íslensk kvikmyndahá-
tíð. Þar verða sýndar fimm myndir
Friðriks Þórs Friðrikssonar, þær
sömu og voru á dagskrá sams konar
hátíðar í Dehlí á dögunum. Upphafs-
mynd þessarar hátíðar var Börn
náttúrunnar.
í gærkvöldi snæddu forsetinn og
fylgdarlið hans kvöldverð í boði
fylkisstjórans í Maharashtra, sem
Bombay tilheyrir, Dr. Aeksander.
Morgunblaðið/RAX
Friðrik Þór Friðriksson (lengst til vinstri), Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra og Sverrir Haukur Gunnlaugsson ráðuneytisstjóri við setn-
ingu íslensku kvikmyndahátíðarinnar í Bombay í gær.
Hreinskilnar um-
ræður um mál sem
áður voru viðkvæm
Halldór vill
viðskipta-
skrifstofu í
Bombay
Bombay. Morgunblaðið.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra telur nauðsynlegt að Islend-
ingar setji upp viðsldptaskrifstofu á
Indlandi sem fyrst, og finnst skyn-
samlegt að hún verði í borginni
Mumbai (Bombay). Halldór sagði
þetta í gærkvöldi eftir fund íslensku
viðskiptasendinefndarinnar með Ind-
veijum og heimsókn sína í stórt hug-
búnaðarfyrirtæki.
Halldór skoðaði í gær hugbúnaðar-
fyrirtækið i-flex í borginni, þar sem
vinna 1.400 manns, og fannst það
ákaflega fróðleg heimsókn. „Það virð-
ist ganga afskaplega vel hjá fyrirtæk-
inu og þeir eru mjög bjartsýnir á
framtíðina. Þeir eru komnir í sam-
starf við íslenska aðila og þarna sáum
við í fyrsta skipti í þessari ferð áþreif-
anlegt samstarf með eigin augum,“
sagði Halldór við Morgunblaðið.
Tækifæri í hugbdnaðargerð
„Ef ég hefði komið héma fyrir
fimm árum á ég von á því að ég hefði
ekki trúað að hægt væri að fara út í
annars konar samstarf hér en á sviði
sjávarútvegs. Það er afskaplega ríkt í
okkur. Eftir þessa ferð er ég þeirrar
skoðunar að helsta leiðin til þess að
koma á samstarfi á sviði sjávarút-
vegsmála sé að aðilar í þessum hug-
búnaðarbransa komi þar að; fari af
stað með slíkt í samstarfi við íslend-
inga. Þama eru t.d. aðilar sem eru í
ágætu samstarfi við fyrirtæki á Sauð-
árkróki, en þar í bæ er líka að finna
sjávarútveg og ég tel það miklu lík-
legra til árangurs að þessir menn,
sem virðast vera allir vegir færir, fari
eitthvað inn á þá braut. Hjá okkur
hefur þetta verið þannig að af sjávar-
útveginum hefur hugbúnaðargeirinn
og tækniþekkingin sprottið en hér í
Indlandi held ég að þetta sé akkúrat
öfugt. Mér fannst mikil reynsla að
koma í þetta fyrirtæki og ræða við
forystumenn þess, og þeir voru á
margan hátt sammála þessu mati.“
Halldór sagði að í heimsóknum sem
þessari til i-flex skynjaði hann vel al-
þjóðavæðinguna. „Þama er verið að
vinna að lausnum á mismunandi stöð-
um í mismunandi löndum, en jafnvel
að sama verkefninu. Þetta er svipað
og ég skynjaði þegar ég kom til Chile;
þar var verið að rækta lax, en hrognin
komu frá f slandi og afurðin var seld á
japanska markaðnum. Þetta er annað
dæmi um alþjóðavæðinguna og hvað
þekkingin og grundvöllurinn skiptir
miklu máli. Það er alveg Ijóst að Ind-
verjar hafa mikla þekkingu og
reynslu á þessu sviði. Þeirra fólk er að
vinna út um allan heim og þeir eru
meira að segja að ala upp fólk til að
senda hingað og þangað í heiminum.“
Mumbai hjarta viðskiptalífsins
Fleiri tóku þátt í viðskiptaráð-
stefnu, sem Útflutningsráð og Við-
skiptaskrifstofa utanríkisráðuneytis-
ins stóðu fyrir í borginni í gær en í
Delhí fyrr í vikunni, og Halldór tók
þátt í. „Það virtist meira líf í kringum
þetta hér, enda er Mumbai hjarta við-
skiptalífsins á Indlandi og ég skynja
það þannig að þegar við Islendingar
förum af stað með starfsemi hér á
Indlandi, sem hlýtur að verða fyrr en
síðar, sé skynsamlegast að setja upp
viðskiptaskrifstofu hér í Mumbai áð-
ur en farið verður í að setja á stofn
sendiráð í Delhí. Mín tilfinning er sú
að það sé okkar næsta skref.“
Halldór benti á að Indland væri
næstfjölmennasta land heims og hér
væru ekki allir fátækir, sem betur fer.
„Hér er stór markaður og ég tel að
það sé alveg ljóst að íslendingar þurfi
sem fyrst að koma upp aðstöðu hér til
að styðja við bakið á þeim íslensku
fyrirtækjum sem eru að hasla sér völl.
Eg tel að sú aðstaða eigi að vera hér í
Mumbai.“
„FUNDIRNIR voru mjög árangurs-
ríkir. Þeir sýndu mikinn vilja ind-
verskra stjómvalda til að styrkja
sambandið við ísland. Það er greini-
legt að Indverjar hafa meira sjálfs-
öryggi og sjálfstraust en þeir hafa
haft áður, þeir telja að þeir hafi með
efnahagslegum breytingum skapað
grundvöll til að geta átt farsæla sam-
vinnu við fólk á sviði viðskipta og
menningar víða um heim án þess
þunglamalega kerfis sem löngum
batt þetta land í ákveðna fjötra. Nú
hefur verið opnað á fjölmörgum svið-
um fyrir þetta samstarf og það er
þeim mikið kappsmál að það nái sem
víðast um heiminn," sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti íslands,
við íslenska fréttamenn í Delhí.
Ólafur sagði Indverja greinilega
hafa tekið eftir því að ísland hefði
náð ótrúlegum árangri á sviði sjávar-
útvegs. „Þeir hafa greinilega kynnt
sér hvernig við höfum skapað einna
hæstu þjóðartekjur í heiminum á því
sviði og á fundinum með forsætis-
ráðherranum Vajpayee kom fram
eindreginn vilji af hans hálfu til þess
að Indverjar sendu fólk til Islands og
tækju þátt í háskóla Sameinuðu
þjóðanna, sæktu ráðstefnur og aðra
atburði sem efnt væri til á Islandi
jafnhliða því að forystumenn í ind-
verskum sjávarútvegi væru hvattir
til þess að byggja upp tengsl við ís-
land.
Við ræddum einnig á þeim fundi
og öðrum um hinn mikla árangur
Indverja á sviði upplýsingatækni;
það er greinilegt að þeir telja nánast
byltingu vera að eiga sér stað hér í
þeim efnum, nánast obbinn af hæfi-
leikaríku ungu fólki helgar sig þess-
ari nýju grein og þeir eru með svo
öflugar sveitir á sviði tölvutækni og
hugbúnaðar að fólkið sjálft er orðið
útflutningsgrein. Þeir vilja hins veg-
ar byggja iðnaðinn upp í Indlandi og
búa til samstarf við fyrirtæki sem
eru staðsett í öðrum löndum, eins og
Islandi, og enn á ný finnum við að
vegna smæðar Islands komumst við
kannski miklu lengra í slíkri sam-
vinnu heldur en aðrar þjóðir. Það er
ekkert mjög flókið pólitískt eða við-
kvæmt hér á Indlandi en kynni að
vera það við stærstu ríkin í Évrópu.
Og ég er sannfærður um það að eftir
þessa heimsókn munu aukast mjög
samskiptin á þessum tveimur svið-
um, sjávarútvegsmála og upplýs-
ingatækni,“ sagði hann.
Ólafur sagði mikinn áhuga hafa
komið fram, á fundum hans, á því að
efla tengsl á sviði menningar.
„Þeir telja íslensku kvikmyndahá-
tíðina hér, þótt hún sé ekki stór í
sniðum á þeirra mælikvarða,
ákveðna merkjasendingu af okkar
hálfu.“
Hann sagðist verða var við mikinn
góðvilja indverski-a ráðamanna
gagnvart Islandi og nú sýndu þeir
því í raun í fyrsta skipti áhuga að
byggja upp öflugt og traust samstarf
við Islendinga.
Þá sagði Ólafur að á fundunum
hafi einnig verið rætt um málefni
hinna fátæku, stöðu bama, sérstak-
lega munaðarlausra, stöðu kvenna
og mannréttindamál í víðasta skiln-
ingi.