Morgunblaðið - 02.11.2000, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Búið að stytta afgreiðslu-
tímann hjá Islandspósti
Kvartanir í tengslum við
nýbyggingar algengar
Hvers vegna hefur afgreiðslutími
útibúa íslandspósts verið styttur?
Afgreiðslutími útibúa Islands-
pósts á höfuðborgarsvæðinu var frá
8:30 til 16:30 en núna eru fæst úti-
búin opnuð fyrr en klukkan 9 og
eru opin til 16:30. Þá eru einstök
útibú opin enn skemur eins og á
Seltjarnamesi þar sem er opið frá
kl. 12 til 16:30 og í Grafarvogi frá
kl. 10 til 18.
,Ástæðan fyrir breyttum af-
greiðslutíma er sú að þörf við-
skiptavina til að fara á pósthús fer
sífellt minnkandi," segir Hörður
Jónsson, framkvæmdastjóri þjón-
ustustaða íslandspósts.
„Hinn 19. janúar síðastliðinn hóf-
um við útkeyrslu á sendingum til
viðskiptavina okkar á höfuðborgar-
svæðinu þannig að við keyrum þær
sendingar, það er að segja smá-
pakka, böggla og ábyrgðarbréf, sem
áður voru sóttar á pósthús, til við-
skiptavina okkar þeim að kostnað-
arlausu öll kvöld,“ segir Hörður og
bætir við að þetta aukna vægi á út-
keyrslu sé einn af þeim þáttum sem
leiði til minni þarfa viðskiptavina til
að komast á pósthús. „Ef sendingin
kemst ekki til skila í útkeyrslu er
tilkynningin skilin eftir og þá þarf
viðskiptavinurinn að sækja póstinn
á pósthúsið en þetta á aðeins við í
um 15% tilfella. í ljósi þessa tókum
við þá ákvörðun að þrengja af-
greiðslutímann enda pósthúsin nú
aðallega í því að selja frímerki,
póstleggja og selja aðgengi að okk-
ar þjónustu. Póstur sem berst eftir
klukkan 16:30 kemst ekki til skila
daginn eftir og því miðast af-
greiðslutíminn við það. Auðvitað er
alltaf matsatriði hvenær hentugast
sé að hafa afgreiðslutímann en við
sjáum engar forsendur fyrir því að
lengja hann eða breyta honum, sér-
staklega ekki vegna breytinganna
19. janúar síðastliðinn."
Þess má geta að afgreiðslutími
útibúa á höfuðborgarsvæðinu verð-
ur þó ívið lengri síðustu vikuna fyr-
ir jól en þá er stefnt á að þau verði
opin til klukkan 18 alla virka daga.
Endurskinsmerki
Hvar er hægt að fá endurskins-
merki?
„Endurskinsmerki fást I flestöll-
um apótekum landsins og þá seljum
við þau einnig hér á Vinnustofunni
Ás, “ segir Kristín Friðriksdóttir,
starfsleiðbeinandi hjá Vinnustof-
unni Ás, en vinnustofan er vemdað-
ur vinnustaður fyrir þroskahefta og
einn af dreiflngaraðilum endur-
skinsmerkja hér á landi.
Að sögn Kristínar kaupir Vinnu-
stofan Ás endurskinsmerldn í gegn-
um heildsölu, pakkar þeim inn og
dreifir þeim síðan.
„Endurskinsmerki eru frekar
ódýr. Til em um tuttugu mismun-
andi tegundir en þær algengustu
seljum við til verslana á 140 krónur,
þær leggja síðan eitthvað á það.“
Kristín merkir aukningu í sölu
endurskinsme.rkja um þessar
mundir og hefur gert það síðasta
mánuðinn enda mikilvægt að nota
endurskinsmerki í skammdeginu til
að koma í veg fyrir slys.
Síðastliðið ár hefur Neytendasam-
tökunum borist mikill fjöldi kvart-
ana sem beinast að verktökum og
iðnaðarmönnum. Margar af kvört-
ununum lúta að nýbyggingum á höf-
uðborgarsvæðinu og þá meðal ann-
ars að því að afhendingartími sé
annar en samið var um.
„Kvartanir vegna nýbygginga eru
algengar," segir Björk Sigurgísla-
dóttir, lögfræðingur hjá Neytenda-
samtökunum. „Kvartanirnar lúta
aðallega að frágangi, það er að segja
að hann sé ekki í samræmi við kaup-
samning, göllum sem koma í ljós
eftir afhendinu og drætti á afhend-
ingu húsnæðisins."
Staðalinn IST51
í kaupsamning
Björk ráðleggur fólki sem ætlar
að fara að festa kaup á nýbyggingu
að bæta inn ákvæði í kaupsamning-
inn þess efnis að um frágang fari
eftir staðlinum IST51.
„Með þessu er minni hætta á að
upp komi ágreiningur þar sem báðir
aðilar hafa þá á nákvæman hátt
samið. Þetta ætti því að vera til
hagsbóta fyrir báða aðila.
IST51 er ekki lög heldur ákveðinn
staðall um byggingarstig húsa. í
honum er skilgreint byggingarstig
Yistvænt
kvoðu-
hreinsiefni
NÝLEGA hélt fyrirtækið S. Hólm
ehf. kynningarfund þar sem fagnað
var lokum fyrsta vöruþróunarverk-
efnis í átakinu Vöruþróun 1999 sem
stutt er af Nýsköpunarsjóði og leitt
af IMPRU hjá Iðntæknistofnun.
„I framhaldi af þróun Undra-
hreinsiefnanna, sem unnin eru að
hluta til úr kindafitu, var ákveðið að
hrinda í framkvæmd vöruþróunar-
verkefni um þróun vistvæns kvoðu-
hreinsiefnis fyrir matvælaiðnað sem
nú er lokið,“ segh- Sigurður Hólm
Sigurðsson, framkvæmdastjóri S.
Hólm ehf. „Kvoðuhreinsiefnið hefur
þá kosti að það hreinsar vel, tærir
ekki málma því það hefur sýrustig
pH 7,7 og slítur ekki tækjum. Jafn-
framt er tryggt að gerlatalan sé lág
á hlutum sem hafa verið þvegnir
með Undra og að efnið sé vistvænt
húsa, til dæmis hvernig frágangur
byggingar er þegar hún er seld fok-
held eða tilbúin til innréttinga," seg-
h- Björk og bætir við að íslenski
staðallinn sé gefinn út í bæklinga-
formi af Staðlaráði Islands.
Ráðleggjum fólki að fá tilboð
Aðspurð segir Björk að mikið sé
kvartað undan því að reikningar frá
iðnaðarmönnum reynist hærri en
talað var um í upphafi. „Hvað varð-
ar rétt neytenda er mikilvægt að
það komi fram að ef ekki hefur verið
samið um verð áður en vinna iðnað-
og valdi ekki skaða á húð eða í önd-
unarfærum." Á kynningarfundinum
kom fram að fyrirtækið er farið að
selja efnið í Norður-Noregi og er að
undirbúa markaðssetningu í Fær-
eyjum. „Efnisprófanir hafa verið
gerðar á rannsóknarstofu í Banda-
ríkjunum og stóðust Undra-hreinsi-
armanns hófst þá ber neytandanum
að greiða það verð sem iðnaðarmað-
urinn setur upp. Verðið verður þó
að vera sanngjarnt með hliðsjón af
því hve vinnan er mikil og hvers eðl-
is hún er. Mjög misihundandi skiln-
ingur er á því hvaða verð er sann-
gjarnt.
Við ráðleggjum fólki ávallt að fá
tilboð í það verk sem vinna á og ef
það er ekki hægt að fá kostnaðar-
áætlun og reyna að hafa hana sem
nákvæmasta þannig að reikningur
iðnaðarmannsins komi ekki á óvart
við verklok."
efnin allar kröfur, meðal annars
ASTM-staðalinn fyrir hreinsiefni
sem ætlaður er fyrir flugvélar.“
Fyrirtækið er nú flutt í nýtt hús-
næði á Stapabraut 3a í Reykja-
nesbæ og nánari upplýsingar um
það er að finna á heimasíðunni
www.undri.is.
300 vöruteg-
undir á 250
krónur
I KA á Selfossi er hafin sala á um 300
vörutegundum sem kosta 250 krónur
stykkið.Vörurnar koma frá Banda-
ríkjunum og Noregi. Um er að ræða
ýmiskonar leikföng, búsáhöld og
gjafavörur eins og leikfangabíla,
snyrtitöskur, ávaxtaskálar, osta-
skera, uppþvottagi-indur, glös, hnífa-
pör, blómavasa, fægiskóflur og nest-
isbox.
---------------
Kalkúnar á
tilboði
í dag hefst tilboðssala á 10 tonnum
af kalkúnum í Bónusi. Að sögn Guð-
mundar Marteinssonar, fram-
kvæmdastjóra hjá Bónusi, mun kíl-
óið á tilboði kosta 479 krónur í stað
699 króna.
Hann segir að með tilboðinu sé
verið að taka jólaslaginn snemma og
gefa fólki kost á að dreifa kostnaði
fyrir jólin.
»PP9"P
Pcx sM'Mðhíáið kcx
| Vcrdáðir: fv»l: Á
60 Þ.
4Q W. 1
knerr Tastc Brcaki pasta
IKlýtt ^aJ33 krl
Oeritgs allar tc<jjrlír200qr.
IVcrðáéUr: Nj: SlA I
>59 kr. Z. Í7 kr.l
Varasalvi lcc Úrcps
IVerðá&r: Nl: r- I
90 tr. 59 kr. 1
__________Tgblcrcnc )0Q qr.
;§* SI | Verðádir: Nú: |
•T 1 175 tr. »19 tr, 1
Tilboðr íjilda í 20 Uppíjripsverslunýim Cllís utr s<ll( ismd
olís
Cartíse
HamraborgJt
Ný sending
Lúxus
Mossy Micro
Stærðir 36-52
Cartíse
Hamraborg 1,
sími 554 6996.
Garðarsbraut 15, Húsavík,
sími 464 2450.
Fyrirtækið S. Hólm ehf. með nýjung fyrir matvælaiðnað
Morgunblaðið/Arnór
Eigendur S. Hólm ehf., Eygló Hjálmarsdóttir og Sigurður Hóim Sig-
urðsson, ásamt Ragnari Jóhannssyni ráðgjafa og Önnu Margréti Jó-
hannesdóttur með nýjustu afurð fyrirtækisins, hreinsiefni sem er að
hluta framleitt úr kindafitu.