Morgunblaðið - 02.11.2000, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000 27
ERLENT
Anatov 26-flugvél brotlendir í Angóla
Hugsanlega
eru 48 látnir
Luanda. AFP, AP, Reuters.
RÚSSNESK flugvél af gerðinni
Anatov 26 brotlenti eftir að kvikn-
að hafði í henni skömmu eftir flug-
tak frá flugvellinum í Saurimo í
norðurhluta Angóla. Angólsk flug-
málayfirvöld greindu frá atvikinu í
gær, en það átti sér stað á þriðju-
dagskvöld. Að sögn portúgölsku
fréttastofunnar LUSA létust allir
48 sem voru um borð, 42 farþegar
og 6 manna áhöfn. Flugmálayfir-
völd sögðust hins vegar ekki geta
staðfest þessa tölu.
Svo virðist sem kviknað hafi í
flugvélinni örfáum mínútum eftir
flugtak, kl. 19.30 á þriðjudags-
kvöld. Orsakir slyssins lágu hins
vegar ekki fyrir í gær, en fyrri
flugslys, sem eru æði algeng á
þessum slóðum, hafa m.a. verið
skýrð með lélegu viðhaldi flugvall-
arins. Þar fyrir utan hefur upp-
reisnarhreyfíngin UNITA skotið
niður nokkrar ílugvélar á síðustu
árum og var jafnvel talið að sú sé
raunin í þetta skiptið. Að sögn
flugmálayfirvalda var herinn á
leiðinni á slysstað til að kanna
málið.
Borgin Saurimo er staðsett 800
km norðan við höfuðborg Angóla,
Luanda, í miðjum frumskógi á
einu helsta svæði demantanáma í
Angóla. Svæðið er miðpunktur
átaka milli hersins og uppreisnar-
hreyflngarinnar UNITA sem átt
hafa í borgarastríði síðan landið
hlaut frelsi frá Portúgal 1975. UN-
ITA ræður yfír hluta af demanta-
námunum og er hreyfingin stað-
ráðin í að láta þær ekki af hendi.
Að sögn Jackie Potgieter,
stjórnmálaskýranda sem frétta-
stofa Reuters ræddi við í Pretoríu,
er það a.m.k. á færi UNITA að
skjóta niður flugvélina og þjónar
hagsmunum hreyfingarinnar þar
sem það vekur athygli á henni og
neyðir ríkisstjórnina til að senda
hersveitir sínar þangað.
Ekki hefur verið greint frá
hvaðan farþegar vélarinnar voru.
Flugmálayfirvöld sögðu áhöfnina
rússneska, en að sögn rússneska
neyðarmálaráðuneytisins var hún
úkraínsk.
Lélegar Anatov-vélar
í notkun í Angóla
Vélin, sem var í innanlandsflugi
og á leið til höfuðborgarinnar, var
í eigu angólska íýrirtækisins An-
cargo en í leiguflugi á vegum ang-
ólskrar ferðaskrifstofu. Talsvert er
af Anatov-flugvélum í Angóla, sem
einkafyrirtæki nýta til farþega-
flutninga en hættulegt getur verið
að ferðast innanlands í Angóla,
vegna átaka hersins og UNITA.
Angólskir flugsérfræðingar hafa
reyndar kvartað við yfirvöld í
Rússlandi vegna sölu á Anatov-
vélum til Angóla þar sem þær séu
oft gamlar og í lélegu ástandi.
Félag angólskra flugmanna
benti reyndar einnig á það í ný-
legri skýrslu að meirihluti flug-
manna í flugslysum væri erlendur.
Ríkisstjórnin tilkynnti nýverið að
allir flugmenn af erlendum upp-
runa þyrftu að gangast undir próf.
Angólskir flugmenn hafa fagnað
því og sagt það gæti bætt úr
slæmu orðspori rússneskra flug-
manna sem hafa orð á sér fyrir að
fljúga oft undir áhrifum áfengis og
leyfa flugvélum sínum að drabbast
niður.
Lögreglumenn hliðhollir FPÖ reknir
Haider yfír-
heyrður
Vínarborg. AFP.
RANNSÓKNARLÖGREGLA í
Austurríki hefur kallað Jörg Hai-
der, fyrrverandi leiðtoga hins um-
deilda Frelsisflokks
(FPÖ), til yfir-
heyrslu vegna
hneykslismáls sem
mjög hefur verið að
vinda upp á sig að
undanförnu.
Asakanir hafa
komið fram um, að
nokkrir stuðnings-
menn Haiders innan
austurrísku lög-
reglunnar hafi safn-
að trúnaðarupplýs-
ingum um pólitíska
andstæðinga Haid-
ers í gegnum tölvu-
kerfi lögreglunnar
og ganga ásakanirn-
ar svo langt að Haider hafi sjálfur
beðið um þessar ólöglega útveguðu
upplýsingar.
Að sögn Haiders lögðu rann-
sóknarlögreglumenn fyrir hann
spurningar um gögn sem fundust
við húsleit heima hjá fyrrverandi
lífverði FPÖ-leiðtogans, Horst
Binder, en honum var vísað úr
starfi sínu sem lögreglumaður á
mánudag.
Lögreglan gerði í fyrradag enn-
fremur húsleit hjá fyrrverandi
framkvæmdastjóra FPÖ, Gerald
Mikscha, og hjá móður hans.
Haider segist hvergi nærri
þessu persónunjósnamáli hafa
komið, ásakanir um slíkt í sinn
garð væru ekkert nema hreinn til-
búningur, „sprottinn úr
sjúkum hugum fáeinna
blaðarnanna". Á blaða-
mannafundi í Klagen-
furt í Karnten, þar sem
hann gegnir embætti
fylkisstjóra, lýsti Haid-
er því yfir að nú væri
sér nóg boðið og hann
myndi svara fyrir sig.
Engar sannanir hefðu
fundizt fyrir þeim
ásökunum sem á hann
og aðra forystumenn í
FPÖ væru bornar.
í síðustu viku hófu
saksóknarar í Vín að
rannsaka ásakanir sem
fyrst komu fram í bók
sem fyrrverandi lögreglumaðurinn
Josef Kleindienst skrifaði en hann
var um tíma formaður verkalýðsfé-
lags sem bein tengsl hefur við
FPÖ.
I bókinni sakar hann háttsetta
FPÖ-menn um að hafa greitt lög-
reglumönnum, sem voru í flokkn-
um, fé fyrir að láta þeim í té upp-
lýsingar um pólitíska andstæðinga
úr skjölum úr tölvugagnagrunni
lögreglunnar.
Ellefu lögreglumönnum, sem all-
ir eru taldir vera í nánum tengsl-
um við FPÖ, var á mánudag sagt
upp störfum vegna ásakananna.
Jörg Haider
S:
3. - 6.11. eftir myrkur
Vatn við Norræna húsið
Næturlíf á Lækjartorgi
Án sólarinnar á Vínbarnum, Súfistanum,
Vegamótum, Prikinu og Ara í Ögri
Skýjum ofar á Hallgrímskirkju
Annarleg birta í Vatnsmýrinni
Ýmsir viðburðir
Eldur
í Gallerí i8 og Norræna húsinu 3,- 6.11.
Stjörnuverið í Norræna húsinu 3. - 6.11.
Ljósameðferð á kaffistofu Norræna hússins 3. -6.11
Valon Voimat í Ráðhúskaffinu 6.11.
Straumur í Elliðaá 3.11. kl.18
Heimsljósin í Hljómskálagarðinum
3. 11. kl. 18:30 og 4.11. kl. 18
Eldur/Vatn í Portinu í Hafnarhúsinu
3.11. frá 20:30 og 4. - 5.11. frá 21 -24
Ljósahótel á Hverfisgötu 20
3. - 6.11. frá 11 - 23. Bókanir í síma 860 4333
Club Lux á Kaffi Thomsen 3. - 4.11. frá 23
Trans Light, DJ Björn Torske,1000, Adam Beyer o.fl.
Ég veiddi vampíru í Svíþjóð.
Höfnin í Reykjavík 3. - 5.11. kl. 19 og 21
Ljósafiug yfir borginni
3. - 6.11. Bókanir í síma 595 2025 frá 14 -16
Kraftar Ijóssins
í Goðaborgum 8 í Grafarvogi 4.11. frá 19 - 22
Vetrarævintýrið WHAT
á hlaði Norræna hússins 5.11. kl. 18 og 6.11. kl. 19
Skuggadansinn Ljós úr skugga
á framhlið Háskóla íslands 5.11. kl. 18:45 og 20:45
ítarleg dagskrá á www.reykjavik2000.is
UÓSIN f N0RDRI2000
i ■ mi
Útilistahátíð í Reykjavík dagana 3.- 6. nóvember.
N0RDICIIGHT
Orkuveita
Reykjavíkur
lt I V l( J A V I K
LISTAHÁSKÓLI ISLANDS
' ICIIAND ACADEMV OF TNE ARTS -
Leikfélag Reykjavikur
JiiiÍlM-
(j?' Nordisk Kulturfond