Morgunblaðið - 02.11.2000, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 2. NÓYEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+ Helgi Þorláksson
fæddist í Miíla-
koti á Síðu 31. októ-
ber 1915. Hann lést á
Droplaugarstöðum
18. október síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Langholts-
kirkju 30. október.
Helgi Þorláksson
fyrrverandi skólastjóri
lést á Droplaugarstöð-
•ám 18. október sl.,
tveimur vikum fyrir
afmælið sitt en hann
hefði orðið 85 ára 31.
október sl. Lífshlaup hans spannaði
stóran hluta aldarinnar sem nýlega
lauk og þegar litið er um öxl og
rýnt í söguna virðist hann á margan
hátt í lífi sínu hafa endurspeglað
þau gildi og viðhorf sem einkenndu
öldina. Helgi var fæddur og upp-
alinn í sveit, sonur bóndans og
barnakennarans Þorláks Vigfús-
sonar og Helgu Bjarnadóttur en
þau bjuggu í Múlakoti á Síðu. Helgi
fór til Reykjavíkur til náms í
Menntaskólanum í Reykjavík og
bjó þá hjá móðurbróður sínum, El-
íasi Bjarnasyni kennara í Austur-
bæjarskóla, og konu hans, Pálínu.
Faðir Helga var kennari og vistin
hjá Elíasi hefur vafalaust styrkt þá
ákvörðun hans sjálfs að verða kenn-
ari og lauk hann kennaraprófi og
söngkennaraprófi samhliða stú-
dentsprófinu árið 1935. Helgi varð
snemma þátttakandi í ungmennafé-
lagshreyfingunni eins og margir
samtímamenn hans, einkum á
landsbyggðinni, og urðu þau gildi
sem þar réðu honum veganesti, t.d.
bindindi. Var hann
stakur reglumaður
bæði á áfengi og tóbak
alla tíð.
Eftir að Helgi fór til
Reykjavíkur hreifst
hann af kenningum
sósíalisma og fylgdi
þeim flokkum að mál-
um sem héldu merkj-
um stefnunnar á lofti,
fyrst Sósílistaflokkn-
um og síðan Alþýðu-
bandalaginu. Það urðu
honum vonbrigði eins
og fleirum þegar þessi
heimsmynd brast.
Helgi var ákaflega áhugasamur um
pólitík og okkur sem vorum með
honum í fjölskyldu eru minnisstæð-
ir kosningadagar og tíminn fyrir og
eftir en þá fyllist Helgi ætíð eld-
móði og spunnust oft fjörugar um-
ræður. Þetta gilti að vissu leyti
einnig aðra daga ársins því hann
hafði brennandi áhuga á pólitík og
dægurmálum og fylgdist ákaflega
vel með. Þessum arfi hefur hann
skilað áfram til sona sinna og
sumra barnabarnanna.
Helgi var mikill trúmaður og
virkur í safnaðarstarfi Langholts-
kirkju og starfaði einnig lengi sem
organisti þar. Með þessu og sósílis-
manura tókst honum eins og fleiri
samtímamönnum sínum hér á landi
að sameina á einhvern undarlegan
hátt tvö hugmyndakerfi sem ýms-
um virtust ósamræmanleg.
Eg var tæplega tvítug þegar ég
kom fyrst inn á heimili þeirra
Helga og Gunnþóru í fylgd Þor-
steins sonar þeirra sem seinna varð
eiginmaður minn.
Tóku þau mér vel og upplifði ég
mig alltaf velkomna þar síðan. Ég
er fædd og uppalin í Vestúr-Skafta-
fellssýslu eins og Helgi og fundum
við samhljóm í aðdáun okkar á stór-
brotinni náttúru heimahaganna.
Þau bjuggu á þessum árum ásamt
stórum barnahópi og foreldrum
Gunnþóru í Nökkvavogi 21. Fljót-
lega urðum við tengdadæturnar
jafnmargar bræðrunum eða fimm
talsins og var því oft margt um
manninn í annáluðum fjölskyldu-
matarboðum þeirra hjóna. Smám
saman bættust svo barnabörnin í
þennan hóp. Lengi vel hittist stór-
fjölskyldan hjá þeim á jóladag. Var
þá á borðum m.a. heimareykt hang-
ikjöt frá Múlakoti. Helgi spilaði
jólasálmana á píanóið og við sung-
um með. Eftir að heilsunni hrakaði
og þau fluttust í minna húsnæði
hafa Þorkell, elsti sonurinn, og
kona hans Helga tekið við því mikil-
væga hlutverki að halda fjölskyldu-
jólaboðið og Helga séð um undir-
leik fyrir fjölskyldukórinn.
Þegar ég kynntist Helga var
hann skólastjóri í Vogaskóla sem
þá var stærsti grunnskóli í Reykja-
vík. Var þetta erilsamt starf og
mikið ónæði sem fylgdi bæði á
kvöldin og um helgar. Sinnti Helgi
starfinu af alúð og brennandi áhuga
og heyrði ég hann aldrei kvarta.
Hann var auðvitað mikið fjarver-
andi og upptekinn þótt hann væri
heima. Þegar litið er til baka þá eru
bestu minningarnar oft tengdar
einhverjum stöðum fjarri skólaann-
ríkinu.
Ógleymanlegar eru í minningu
fjölskyldu minnar heimsóknir hans
til okkar í Gautaborg þar sem við
bjuggum í tæp sjö ár, sérstaklega
þegar þau Gunnþóra dvöldu hjá
okkur yfir jól ásamt Þóru, yngsta
barninu. Einnig þegar við dvöldum
aftur í Svíþjóð, í Lundi í þetta sinn,
vetrarlangt fyrir fjórum árum. Þá
komu þau hjón í stutta heimsókn og
var það síðasta utanlandsferð
Helga. Var hann þá farinn að heilsu
og kröftum. Man ég eftir honum
þar sem hann sat í sólskininu á
bekk í garði við gamalt klaustur.
Allt yfirbragð og tal bar vott um
sátt og auðmýkt fyrir lífinu. Virtist
mér þá að hann væri tilbúinn að
kveðja þessa jarðnesku tilvist. Önn-
ur nýleg minnig er frá síðustu dvöl
hans á æskustöðvunum á Síðu og í
Fljótshverfi. Þá fór hann með okk-
ur Þorsteini og dóttur okkar Sig-
rúnu í bílferð og var að sýna okkur
ýmsa þá staði sem honum voru
kærir. Ferðin endaði hjá nánu
frændfólki hans á bænum Selja-
landi í Fljótshverfi en þar ríkir
ótrúleg náttúrufegurð. Þar var okk-
ur tekið af mikilli gestrisni með til-
heyrandi kaffiborði. Eftir kaffið
voru gömul myndaalbúm dregin
fram og var gaman að heyra Helga
og frænku hans minnast samferða-
fólks í sveitinni og atburða þeim
tengdum.
Helgi var alla tíð mjög tengdur
Múlakoti og sveitunum í kring.
Hann byggði sér snemma lítinn
sumarbústað í túnfætinum í Múla-
koti þar sem hann dvaldi langdvöl-
um með fjölskyldu sinni. Var fjöl-
skylda Bjarna bróður hans honum
mjög kær og sýndu Baldur bróður-
sonur hans og Helga kona hans,
sem nú eru bændur í Múlakoti,
þeim Helga og Gunnþóru ætíð ein-
staka ræktarsemi og gerðu þeim
kleift að vera í bústaðnum þótt
heilsan væri farin að svíkja.
Eftir að Helgi hætti störfum sem
skólastjóri starfaði hann við að að-
stoða víetnamskar fjölskyldur sem
hingað komu sem flóttafólk. Tengd-
ust þau Helgi og Gunnþóra þessum
fjölskyldum sterkum böndum. Varð
Helgi fyrir sum börnin í þessum
fjölskyldum eins konar afi. Hefur
allt þetta fólk sýnt þeim Gunnþóru
fádæma tryggð og ræktarsemi
gegnum tíðina, t.d. var lítill dreng-
ur skírður í höfuðið á Helga. Kunn-
um við í fjölskyldunni þeim kærar
þakkir fyrir.
A sunnudegi núna snemma í
október hitti ég Helga á heimili
dóttur hans og tengdasonar, þeirra
Þóru og Einars. Hélt hann þá lengi
í hönd mína þéttingsfast og var það
síðasta kveðja hans því ég sá hann
ekki með meðvitund eftir það.
Hann fékk hægt andlát í faðmi fjöl-
skyldunnar, saddur lífdaga, sáttur
við allt og alla. Megi hann hvíla í
friði. Ég þakka honum samfylgdina.
Guðlaug Magnúsdóttir.
Afi Helgi er dáinn. í tvo sólar-
hringa vöktum við ættingjarnir yfir
honum.
Þegar ég kvaddi afa í síðasta sinn
blikkaði hann augunum eins og til
að kveðja. Ég er þakklát fyrir að
hafa kynnst honum.
Alltaf þegar við frænkurnar gist-
um heima hjá afa og ömmu, hvort
sem það var í Akurgerði, Brekku-
koti eða á Sléttuvegi, vakti afi okk-
ur með því að koma með bakka með
seríosdiskum og sykurkari. Öfugt
við það sem tíðkaðist heima hjá
okkur máttum við ráða því hvað við
notuðum mikinn sykur. Þetta er
einhvern veginn fast í minningunni.
Þegar ég bjó í Danmörku fékk ég
reglulega sendan þykkan pakka frá
afa, fullan af barnablaði Morgun-
blaðsins. Þessu safnaði hann sam-
viskusamlega svo ég hefði nóg af ís-
lensku lesefni.
Þegar afi var fluttur á Droplaug-
arstaði var hann orðinn mjög veik-
burða. Þegar maður kom í heim-
sókn var nóg að brosa til hans og
halda í höndina á honum. Meira
þurfti ekki til að við skildum hvort
annað.
Sigrún.
HELGI
ÞORLÁKSSON
Starfsmenn í
byggingavinnu
Við leitum eftir starfsmönnum til starfa nú þegar.
Mikit vinna og góð starfsaðstaða er í boði.
Verkamenn í byggingavinnu.
Verkstaðir:
Lyngháts, upplýsingar gefur Gunnar í síma: 696 8562
Barðastaðir, upplýsingar gefur Þorkell i síma: 861 2966
Naustabryggja, upplýsingar gefur Ómar í síma: 696 8565
Skógarhlið, upptýsingar gefur Árni 5 síma: 696 8563
Ársalir, upplýsingar gefur Kristján í síma: 892 1148
Upplýsingar gefur Konráð á
skrifstofutíma í sima 562 2991
BYGGINGAFÉLAG
GYLFA 0G GUNNARS EHF.
Borgartúni 31 • S: 562 2991
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. var stofnað árið 1984.
BYGG hefur reist þúsundir fermetra af húsnæði á
höfuóborgarsvæðinu og er nú eitt öftugasta
byggingafétag landsins.
50% starf
Tollskýrslugerð — Birgðaumsjón
. Starfsmann vantar í innflutningsfyrirtæki í
Reykjavíktil að sjá um umsjón birgðakerfis
í Navision Financials tölvukerfi, ásamt toll-
skýrslugerð, bókhaldi og öðrum almennum
skrifstofustörfum. Um er að ræða framtíðar-
starf og viðkomandi þarf að geta byrjað strax.
Áhugasamir sendi upplýsingartil augl.deildar
_*Mbl. merkt: „ísól — Tollur" fyrir 7.11.2000.
Bifreiðastjóra
vantar
Við óskum eftir að ráða bifreiðastjóra
með meirapróf til aksturs á strætis-
vögnum.
Hagvagnar sjá um akstur 25 strætis-
vagna á höfuðborgarsvæðinu og eru
með um 60 manns í vinnu.
Starf bifreiðastjóra er bæði líflegt og
skemmtilegt með áhugaverðu samferða-
fólki.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir
rekstrarstjóri Hagvagna, Hrafn Antons-
son, í síma 565 4566.
...
Rafvírkjar
Byggingafétag Gylfa og Gunnars ehf. óskar eftir að
ráða rafvirkja í vinnu. Mikil mælingavinna er fram-
undan. Upptýsingar gefur Magnús í síma 892 5586
eóa á skrifstofutíma í síma 562 2991.
BYGGINGAFÉLAG
GYLFA 0G GUNNARS EHF.
Borgartúni 31 * S: 562 2991
Byggingafétag Gytfa og Gunnars ehf. var stofnaó árió
1984. BYGG hefur reist þúsundir fermetra af húsnæði á
höfuóborgarsvæðinu og er nú eitt öflugasta
byggingafélag tandsins.
JHorðtmblnMb
Blaðbera
vantar
• I Þrastarlund.
I Kópavog á Marbakkabraut
og Kársnesbraut.
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
Aðstoð í mötuneyti
Óska eftir aðstoð í mötuneyti. Fólk á besta aldri
er sérstaklega boðið velkomið. Dagvinnutími
og góð vinnuaðstaða. Svör sendist til auglýs-
ingadeildar Mbl., merkt: „Mötuneyti — 10275".
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund
Starfsfólk óskast
Óskum eftirtraustu og ábyggilegu fólki til
starfa við umönnun aldraðra. Um er að ræða
morgun-, kvöld- og næturvaktir. Starfshlutfall
eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
552 6222 alla virka daga frá kl. 9.30-13.30.