Morgunblaðið - 02.11.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Opið bréf til flutnings-
manna frumvarps um
tímareikninga á Islandi
ÁGÆTU þingmenn.
Eins og ykkur er
kunnugt hefur undir-
ritaður ásamt fleirum,
áður mótmælt frum-
varpinu um tíma-
reikning sem þið hafið
nýlega lagt fram í
fjórða sinn og er til-
gangur þessa bréfs að
endurtaka þau mót-
mæli og benda enn og
aftur á helstu rökin
gegn þeirri breytingu
sem frumvarpið felur í
sér.
Ekki er ástæða til
þess hér að tíunda í
smáatriðum enn einu
sinni öll rökin gegn þessari breyt-
ingu, að öðru leyti en minnast stutt-
lega á það sem nýtt kemur fram í
greinargerðinni með fyrirliggjandi
frumvarpi. Undirritaður ásamt sam-
starfsmönnum skrifaði ýtarlega
greinargerð um málið þegar sam-
bærilegt frumvai-p var lagt fram árið
1998. Sú greinargerð er aðgengileg á
netinu, ásamt öðrum gögnum um
málið á veffanginu: http://julkb.vor-
tex.is/timamal.htm
Það er þó rétt að nefna að í þetta
fjórða sinn sem málið er lagt fram
eru enn tínd til ný rök með því, sum-
sé þau að breytingin sé afar góð fyrir
knattspyrnuna í landinu og fyrir
beinar sjónvarpsútsendingar frá
knattspyrnuleikjum. Þetta má vel
vera, en líklega væri enn betra fyrir
knattspyrnuna og samskipti hennar
við Evrópu að hún færi öll fram á
meginlandinu, þá væri enginn tíma-
munur.
Öll þau rök sem færð eru fyrir
málinu eru auðhrekjanleg, nema ef
vera skyldi sú þörf kaupsýslumanna
að hafa sameiginlegan skrifstofutíma
með Evrópulöndum. Raunar hefur
sú þörf farið minnkandi með auknum
tölvusamskiptum og mætti ætla að
hún sé nú orðin óveruleg. Þessu til
viðbótar myndi frumvarpið, ef sam-
þykkt verður, torvelda samskipti við
Norður-Ameríku, nokkuð sem ekki
er minnst á í greinargerðinni. Al-
þingi verður því að gera upp við sig
hvort rökin um sameiginlegan vinnu-
tíma með Evrópu ein og sér, nægja
til þess að koma á þessari breytingu,
eða hvort óverulegir hagsmunir við-
skiptalífsins eigi að stjórna og stýra
svefni og vöku allrar þjóðarinnar og
hafa ómæld slæm áhrif á líðan henn-
ar og heilsu.
Það er rétt að leggja áherslu á það
enn einu sinni að þegar er í gildi hér
á landi sumartími allt árið. I lögum
nr. 6/1968, var sú breyting gerð á
tímareikningi hérlendis, að festa
sumartímann allt árið. Því ætti í raun
að notast við hugtakið sumarsumar-
tími í fyrirliggjandi frumvarpi, þar
sem það gengur enn lengra. Raunar
er texti frumvarpsins og greinar-
gerðarinnar allm- villandi hvað þetta
atriði varðar, þar sem sumartími er
þegar í gildi hér.
Greinargerðin með frumvarpinu
fjallar nokkuð um umsögn undirrit-
aðs og fleiri frá því 1998 um frum-
varp um sama efni. í henni er fullyrt
að ekki komi fram í umsögninni að
geðheilsu manna stafi hætta af
breytingunni. Augljóst er að höfund-
ar greinargerðarinnar hafa ekki lesið
umsögnina ýtarlega, þar sem þar er
ekki einungis verið að fjalla um geð-
heilsu, heldur heilsu almennt. Erfitt
er að skilja þær röksemdir höfunda
frumvarpsins að birta síðar á degin-
um hafi betri áhrif en birta fyrr.
Hvað með alla þá einstaklinga sem
vakna snemma og þurfa eftir þessa
breytingu að vera lengur í myrkri
vor og haust, en áður? Hvað með
lægra hitastig að morgni, hugsan-
lega meiri hálku og þar með ileiri
umferðarslys? Röksemdafærsla af
þessu tagi er algerlega sambærileg
þeirri sem flutnings-
menn frumvarpsins
leggja fram og mælir
auðvitað gegn breyt-
ingunni.
I greinargerðinni er
jafnframt gerður sam-
anburður við vestur-
strönd Iriands og hann
tekinn sem sönnun
þess að breyting af
þessu tagi sé til bóta.
Sá samanburður er þó
mjög misvísandi, þar
sem tekið er fram að ír-
ar hafi þegar sumar-
tíma, en ekki kemur
fram að þeir hafa ein-
ungis sumartíma, en
ekki sumarsumartíma eins og lagt er
til að hér verði. Því er um algerlega
ósambærilega hluti að ræða. Þar að
auki er Island mun norðar á jörðinni
en írland og þvi staðan alls ekki sam-
bærileg. Samanburður við Austur-
land og stöðu þess er ennfremur
nokkuð undarlegur, þar sem sér-
staklega er gefið í skyn í greinar-
gerðinni að tímareikningurinn hafi
einhverskonar tengsl við efnahags-
ástand landsvæðisins. Slíkt er auð-
vitað erfitt að sýna fram á.
Rétt er að nefna að í greinargerð-
inni kemur fram að umsögn undirrit-
aðs og fleiri uppfylli ekki þær kröfur
sem gera verði til vísindalegrar
þekkingar. Ef sömu rökum yrði beitt
á rök flutningsmanna með tillögunni,
er ljóst að þau rök byggjast alls ekki
á vísindalegri þekkingu, þau byggja
raunar alls ekki á neinni þekkingu,
heldur getgátum og ósannfærandi
rökum. Umsögn undirritaðs byggist
hinsvegar hvað varðar svefn og vöku
á þeim vísindum sem við þekkjum
um stjórn þessara fyrirbæra og er að
okkar mati á allt öðru plani en t.d.
niðurstaða greinargerðarinnar sem
fullyrðir að breytingin yrði til þess að
stórbæta mannlíf á Islandi. Þessi
fullyrðing vtrðist úr lausu lofti grip-
in, ekki studd neinum rökum, hvorki
vísindalegum né öðrum. Þá eru jafn-
framt algerlega sniðgengnar þarfir
þeirra einstakiinga í viskiptalífinu
sem þurfa að hafa samskipti vestur
um haf, þein-a vandi eykst, verði
frumvarpið að lögum.
I náttúruverndarmálum verður
það sjónarmið æ algengara að nátt-
Tími
✓
Eg óska þess að málið
verði endurskoðað, seg-
ir Júlíus K. Björnsson,
þar sem um er að ræða
tillögu sem gæti haft
eyðileggjandi og trufl-
andi áhrif á heilsu og
-----------7-------------
vellíðan Islendinga.
úran skuli njóta vafans þegar um
áhtamál er að ræða. Hið sama hlýtur
að gilda hér. Engin vísindaleg rök
hafa verið lögð fram um að þessi
breyting geti verið til góðs, en mörg
um að hún geti verið slæm. Því skyldi
heilsa þjóðarinnar og velferð ekki
njótavafans?
Að lokum er rétt að minnast á að
Þorsteinn Sæmundsson stjörnu-
fræðingur hefur ítrekað lagt fram
ýmis rök gegn þessari breytingu,
m.a. í ýtarlegri skýrslu sem skrifuð
var að beiðni Alþingis, en sem grein-
argerð fyrirliggjandi frumvarps
minnist alls ekki á. Þorsteinn er sá
Islendingur sem er manna best að
sér um tímareikninga og áhrif þeirra
hér á landi og því er það afar sér-
kennilegt að álit hans sé algerlega
sniðgengið í greinargerðinni með
frumvarpinu.
Því vill undirritaður að lokum óska
þess að málið verði enn endurskoðað,
og helst dregið til baka þar sem um
er að ræða tillögu sem hafa mun
mögulega eyðileggjandi og truflandi
áhrif á heilsu og vellíðan Islendinga.
Nægir í því sambandi að benda á að
ef þriggja tíma munur verður á
klukkunni og líkamsklukku manna,
munu vandkvæði við að sofna að
kvöldi og vakna að morgni næsta ör-
ugglega aukast. Þingið getur að
sjálfsögðu ákveðið það sem því sýn-
ist, en ég leyfi mér að efast um að það
hafi mikil áhrif á náttúruna og sólar-
ganginn og það hvaða áhrif hann hef-
ur á svefn og vökumynstur fólks.
Höfundur er sálfræðingur.
beURMif: Udm
Kringlunni 2.-3. nóv.
Afmælistilboð
20% afsláttur af mörgum Mnmisrmc
vinsælum íslenskum bókatitlum
Ef keypt er fyrir 3.000 kr.
eða meira þá fylgir bókin
Carola með sem kaupbætir.
20% afsláttur af ýmsu öðru. Líttu við
og samgleðslu okkur i Betra lífi.
Nýjar vörur
Orkuarmbönd úr
ekta steinum.
Falleg dagatöl
fyrir árið 2001
o.m.fl.
Þjónum þér með kærleik, gleði og Ijósi
Betra líf, Kringlunni 4-6. S. 581 1380.
Július K.
Björnsson
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2000 59*
HORPU
TILBOÐ .
Gæða innimalninq
GLJÁSTIG
10
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
Verð á 4 lítra dós
i.
í verslunum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HARPA NIÁLNIN GARVERSLU N,
BÆJARLIND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFÐA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
DROPANUM, KEFLAVÍK.
Sími 421 4790
MÁLNINGARUERSLANIR
f
*
m-