Morgunblaðið - 18.11.2000, Side 8
8 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, á flokksstjórnarfundi
Hann er að spyrja hvort þú viljir ekki fara með bænirnar þínar
áður en hann brettir líka upp hina ermina?
12 mánuðir
fyrir hlut-
deild í fíkni-
efnabroti
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest 12
mánaða fangelsisdóm yfir 32 ára
manni, sem var fundinn sekur um
hlutdeild í fíkniefnabroti. Maðurinn
hafði útvegað smyglurum á tæplega
1000 e-töflum heimihsfang í Reykja-
vík til að senda efnið á.
Manninum var gefið að sök að hafa
að beiðni hollenskrar konu, sem
starfaði sem nektardansari á veit-
ingastað í Reykjavík, látið henni í té
heimilisfang feðga, í því skyni að
þangað yrði sendur pakki með fíkni-
efnum frá Hollandi sumarið 1999.
Hann hafði fengið annan feðganna til
að samþykkja að pakkinn yrði send-
ur þangað og boðið honum greiðslu
fyrir. Daginn eftir að pakkinn barst
tilkynnti hann konunni að hún gæti
sótt hann á heimili feðganna. Lög-
reglan hafði hins vegar komist á
snoðir um sendinguna og því voru
allir hlutaðeigandi handteknir. Kon-
an, sem stóð að e-töflusendingunni,
var dæmd til þriggja og hálfs árs
fangelsisvistar.
---------------
Hestar á beit í
Isafjarðarbæ
LÖGREGLAN á ísafirði hefur stað-
ið í ströngu við að koma hrossum út
úr bænum, bæði á ísafirði og í Hnífs-
dal. Hrossin hafa verið rekin á beit
fram í Dagverðardal. Þau hafa sótt
inn í þéttbýli þar sem beit er enn góð
þó nokkuð hafi snjóað. Bæjarlandið
er girt af með rafmagnsgirðingu en
eftir að snjór fellur er rafmagnið tek-
ið af. Hrossin eiga því í litlum vand-
ræðum með komast yfir girðinguna.
Hrossin hafa m.a. verið á beit við
verslunarmiðstöðina Ljónið og í veg-
köntum.
Lögreglan á ísafírði segir talsverð
vandræði hafa hlotist af lausagöngu
hrossa. Þar sem enginn fjárgæslu-
maður sé að störfum fyrir ísafjarð-
arbæ verði lögreglan sjálf að reka
hrossin út fyrir girðingu. Þá geti um-
ferð stafað hætta af hrossunum.
Bókmenntaverðlaun
Tómasar
Guðmundssonar
. sannferöug og Ortrtrt
stórskemmtileg dl
... tær og agaður stíll
... frábær persónu-
sköpun... frábært
skáldverk.“
Úr umsögn dómne/ndar
Bókmenntaverðlauna
Tómasar Guðmundssonar.
JPV FORLAG
Thorvaldsensfélagið sýnir jólamerki
Gylltur kross
merkið í ár
Guðlaug Jónína
Aðalsteinsdóttir
Thorvaldsensfélagið
opnar í dag sýn-
ingu á jólamerkj-
um og frummyndum
þeirra sem félagið hefur
gefið út frá 1913. Sýning-
in er í Ráðhúsi Reykjavík-
ur og verður hún opnuð
klukkan 15.00. Guðlaug
Jónína Aðalsteinsdóttir
er formaður Thorvald-
sensfélagsins. Hún var
spurð hvers vegna félagið
hafi farið út í þessa útgáfu
árið 1913.
„Þannig var að 1904
voru fyrstu jólamerkin
gefin út og það var í Dan-
mörku. Þau voru gefin út í
fjáröflunarskyni og þau
voru send hingað 1904,
1905 og 1911 og gefin frá
dönsku Karítashjálpar-
samtökunum til íslands.
Merkin voru gefin hingað til þess
að hjálpa til að byggja barna-
hæli.“
- Hefur þetta reynst góð fjár-
öflunarleið?
„Já, Thorvaldsenskonur sáu að
þarna var góð fjáröflunarleið
sem reyndin hefur orðið. Það
komu engin merki 1911 og 1912,
svo þær ákváðu að árið 1913
myndu þær taka við.“
- Hvernig eru þessi merki not-
uð?
„Jólamerki er skrautmerki,
sett á jólapóstinn, bæði til að
skreyta hann og til að sýna í
verki stuðning við líknarfélag.“
- Hvert erjólamerkið í ár?
„Jólamerkið í ár er gylltur
kross á rauðum grunni og mynd-
in heitir „Alheimskærleikur" og
er eftir Guðlaugu Halldórsdóttur
textíllistakonu. í tilefni af 1000
ára afmæli kristnitöku á Islandi
þá fannst okkur tilhlýðilegt að
hafa krossinn, sem er eitt helsta
helgitákn kristinna manna.“
-Hafið þið fengið nýja lista-
menn ár hvert til að teikna jóla-
merki?
„Nei, ekki á hverju ári, en við
höfum reynt að vera með fjöl-
breytt úrval af myndum. Oft er-
um við með sama listamanninn
tvö ár í röð, en alla jafna er þó
skipt. Frummyndirnar sem fé-
lagið á og eru á sýningunni eru í
kringum fimmtíu en alls hafa
verið gerðar 87 myndir frá 1913.“
- Hafa komið merki á hverjum
jólum öll þessi árfrá 1913?
„Nei, árið 1917 kom ekkert
jólamerki af því skipið sem var
með það innanborðs var skotið
niður og það fórst.“
-Hvað stendur þessi sýning
lengi?
„Hún stendur til 27. nóvember
og hún er opin daglega frá kl.
10.00 til 18.00 virka daga og 12.00
til 18.00 laugardaga og sunnu-
daga. Þess má geta að Thor-
valdsensfélagið hefur gefið út rit
sem nefnist „Jólamerki í 88 ár“. I
því eru litmyndir af öllum jóla-
merkjunum og lýsing á þeim og
einnig er sagt frá listmönnunum
öllum. Þetta framtak er styrkt af
Reykjavík - menning-
arborg Evrópu 2000.“
- Er mikil starfsemi
hjá Thorvaldsensfé-
laginu?
„Auk jólamerkj-
anna, sem mikil vinna
er að gefa út, pakka og
selja, hefur félagið gefið út jóla-
kort síðustu sjö árin. Þar er einn-
ig nóg að starfa. Við erum með
tvær myndir á jólakortunum í ár.
Önnur heitir „Jólagleði“ og er
eftir Sigríði Gyðu Sigurðardótt-
ur og hin er gefin út sérstaklega í
tilefni af 125 ára afmæli félags-
ins. Sú mynd heitir „Leyfið börn-
► Guðlaug Jónína Aðalsteins-
dóttir fæddist í Skagafírði 5.
febrúar 1946. Hún lauk barna-
skóla- og gagnfræðaskólaprófi á
Siglufirði og síðan tók hún próf
frá Húsmæðraskólanum í
Reykjavík 1965. Hún hefur starf-
að hjá Flugleiðum í rösklega
þrjátíu ár og starfar þar enn.
Guðlaug er gift Sigurði Geirs-
syni skólastjóra Rafiðnaðarskól-
ans og eiga þau tvo syni.
unum að koma til mín og bannið
þeim það eigi“, en það er lág-
mynd af skírnarfontinum í
Dómkirkjunni sem Bertel Thor-
valdsen gaf til Dómkirkjunnar
árið 1839.“
- Hvað gerið þið við peningana
sem þið safnið?
,jUla peninga sem félagið aflar
gefur það til líknarmála, fyrst og
fremst til styrktar börnum. Við
höfum fyrst og fremst styrkt
barnadeildina sem var á Landa-
koti en er nú við Landspítalann,
en að sjálfsögðu eru alltaf mörg
önnur verkefni sem við styrkj-
um, en þau eru ekki eins stór í
sniðum. Flest þeirra lúta að vel-
ferð barna.“
-Þið eruð með búð, Thor-
valdsensbasarinn, er salan þar
góð?
„Salan þar er alveg ágæt. Það
er mjög mikið að gera á sumrin.
Við erum með þjóðlegar ullar-
vörur, útskurð, silfurskart og
fleira. Allt þetta hafa útlendingar
verið duglegir að kaupa og ís-
lendingar gleyma okkur ekki
heldur, hins vegar finnum við
fyrir því að umferð vegfarenda
hefur minnkað. Þá vil ég geta
þess að Thorvaldsensfélagið hef-
ur sölu- og dreifingarrétt á bók-
inni „Karíus og Baktus" eftir
Thorbjörn Egner og hefur hún
gefið ágætlega af sér. Það er hins
vegar heilmikil vinna að dreifa
henni í bókabúðir.“
- Er öll ykkar vinna sjálfboða-
starf?
„Já, öll. Meira að segja hringja
konurnar öll erindi fyrir félagið
úr eigin símum. Við
borgum engum fyrir
að hringja fyrir okkur
eða nein vinnulaun
nema til verslunar-
stjóra í búðinni, hún er
fastur starfsmaður þar
, og er ekki félagskona.
A hverjum degi hefur hún sér til
aðstoðar tvær félagskonur og sjá
þær um að þrífa auk þess sem
þær afgreiða og sinna öðrum er-
indum fyrir búðina."
- Hvað með framtíðarhorfur?
„Þær eru bjartar. Félagskon-
ur eru nú 78 og gætu verið fleiri,
aldrei þó fleiri en 100.
Alla peninga
sem félagið
aflar gefur
það til vel-
ferðar barna
í