Morgunblaðið - 18.11.2000, Page 81

Morgunblaðið - 18.11.2000, Page 81
morgunblaðið LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 81*~ FÓLK í FRÉTTUM Drum’n’bass á Gauki á Stöng í kvöld Þreföld afmælisveisla MYNDBÖND Þetta er ótrúlegt líf Strákar fella ekki tár (Boy’s Don’t Cry) D r a in a Leiks^jóri: Kimberley Pierce. Handrit: Kimberly Pierce og Andy Bienen. Aðalhlutverk: Hilary Swank, Chloe Sevigni, Brendan Sexton, Peter Sarsgaard . (120 mrn) Bandaríkin. Skífan, 1999. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára í KVÖLD halda Vndirtónar, Skýj- um ofar og breska plötufyrirtæk- ið Moving Shadow Records sér- staka afmælistónleika á Gauki á Stöng í tilefni af tíu ára afmæli Moving Shadow Records. Þeir sem fram koma eru drum’n’bass- listamennirnir Dom & Roland annars vegar og Aquasky hins- vegar. Moving Shadow Records hefur haldið afmæli sitt hátíðlegt í nokkrum af helstu borgum heims og nú er vitanlega komið að Reykjavik. Ofannefndir listamenn sem fram koma eru á mála hjá útgáfunni og hafa getið sér gott orð undanfarið á sviði drum’n’bass-danstónlistarinnar. Tímaritinu Undirtónum og út- varpsþættinum Skýjum ofar er sönn ánægja að samgleðjast með Moving Shadow en báðir aðilar ætla að nota tækifærið til þess að fagna sínu fjórða aldursári. Á aðalhæð Gauksins munu Moving Shadow-listamennirnir kynna fyrir íslenskum það sem þeir hafa fram að færa en þar munu einnig koma fram dj Addi og dj Eldar. f kjallaranum munu síðan dj Frímann og dj Bjössi „brunahani“ sprauta á eldheita dansunnendur en í hæstu hæðum verða þau új Kári og dj Arna. Moving Shadow Records hefur í áratug farið mikinnn í fram- leiðslu á drum’n’bass, jungle og breakbeat-danstónlistar í Bret- landi og mörg af stærstu nöfnum^- þess geira eins og Goldie, Roni ** Size og EZ Rollers hafa komið við sögu þess. Dom & Roland er einn maður, Dom Angas, sem leikur harða og framtíðarkennda drum’n’bass-tónlist en Aquasky, sem einnig hefur verið að krukka í drum’n’bass, er öllu fönkaðri og jafnvel svolítið djassaður á köfl- um. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og veislan stendur til kl. 6 um morg- uninn. Áður en formleg spila- mennska hefst verður haldin sér- stök afmælisteiti á sama stað frá — kl. 20.30. Þar verður 16 ára aldurstakmark og aðgangseyrir 500 krónur. í’eii- sem hafa séð hina stórkostlegu heimildarmynd um Brandon Teena ættu að vita hvað þessi mynd íjallar um. Teena er strák- ur að öllu leyti nema líkamlega séð og hét réttu nafni Teena Brandon. Teena býr á stað í Bandaríkjunum þar sem orðið umburð- arlyndi þekkist varla og fólk sem er öðruvísi nær aldrei fótfestu. En það er ástin sem heldur í Teena og verður hún til þess að óhugnanleg og harmræn atburðarás hefst. Swank í hlutverki Teena er ótrúleg og átti óskarsverðlaunin fylli- lega skilið. Teena verður ljóslifandi í túlkun Swank, full af orku og pers- ónutöfrum og skilur maður hvemig fólk frá svona óaðlaðandi stað laðaðist að þessari merkilegu persónu. Mynd- in slær fáar sem engar feilnótur og er fyndin, sorgleg og andstyggileg þegar hún þarf að vera það. Leikstýrunni og handritshöfundinum Pierce er greini- lega mjög annt um viðfangsefni sitt og þessi metnaðarfulla og áhrifaríka mynd er afrakstur ástríðu hennar. Ottó Geir Borg Unglings- stúlkur í vanda Þar sem draumarnir enda (Brokedown Palace) D r a m a ★★% Leikstjóri: Jonathan Kaplan. Hand- rit: David Arata. Aðalhlutverk: Claire Danes, Bill Pullman, Kate Beckinsale, Lou Diamond Phillips. (101 mín) Bandarfldn. Skífan, 1999. Myndin er bönnuð innan 16 ára. STÖLLURNAR Alice og Darlene eru að útskrifast og langar til þess að skemmta sér ærlega áður en al- vara háskóla- námsins tekur við. Til að láta foreldra sína ekki fá áhyggjur segjast þær ætla til Hawa- ii en áætlunarstað- urinn er Thailand og hið framandlega umhverfi þar. Hlutimir gerast svo mjög hratt þar. Þær hitta mann, falla báðar smá fyrir honum, ætla með honum til Hong Kong, eru teknar á flugvellinum í Thaiiandi með 4 kíló af heróíni. Það virðist enginn geta hjálpað þeim, ekki um- boðsmenn bandarísku rfldsstjómar- innar, ekki lögfræðingamir, ekki foreldrarnir og ekki þær sjálfar. Það eru margar myndir sem fjalla um svipað viðfangsefni og gera t.d. „Midnight Express" og „Return to Paradise" þetta á mun áhrifaríkari máta. Þó má segja þessari mynd til hróss að hún kemur ekki með neinar ódýrar lausnir. Einu leikararnir sem reynir eitthvað á eru þær Beckisale °g Danes og standa þær sig báðar nokkuð vel. Ottó Geir Borg >u, \rrít vrt 'C , u* ~~t i/rt vrt vrt vrt vrt vft vrt vrt vrt Jr vft vft vft vft vrt rft vrt vft vft vft vft vft vft vft vft Vft Vft Vft Vft Vft Vft Wf. vft vft vft vft vft vft t vft vft vft vft vft vft vft 'St vft vft vft vft vft vft vft vft t»ad.er Vlt 1 ’þessul Vitræn tílboð í GSM símanum þínum Nú þarft þú ekki lengur að eltast við tilboðin! Þau eltast við þig! Ef þú notar VIT-þjónustu Símans GSM bíða þín frábærtilboð frá mörgum af mest spennandi verslunum og veitinga-stöðum landsins í næsta nágrenni við þig. Þú sýnir síðan símann við kassann og færð tilboð sem aðrirfá ekki. Ath. Til að byrja með mun þjónustan takmarkast við stór- Reykjavíkursvæði en aðrir landshlutar munu bætast við á næstunni. Til að fá sértilboðavalmynd í símann þarf að fara á vit.is eða senda SMS í númerið 1848 og skrifa ínn: vit sertilbod 1 (eða númer valmyndar sem þú vilt) vft vft vft vft vft vft vft vft SÍMINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.