Morgunblaðið - 18.11.2000, Page 54

Morgunblaðið - 18.11.2000, Page 54
54 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Þökkum innilega samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærrar dóttur okkar, eigin- konu, móður, tengdamóður og ömmu, HJÖRDÍSAR AÐALSTEINSDÓTTUR, Norðurgötu 11, Siglufirði. Þóra Jónsdóttir, Aðalsteinn Kr. Sveinbjörnsson, Hans Þorvaldsson, Bergþóra Arnarsdóttir, Aðalsteinn Þór Arnarsson, Arna Arnarsdóttir, Bjarni Bjarkan Haraldsson, Heimir Gunnar Hansson, Valur Freyr Hansson, tengdabörn og barnabörn. + Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, SÓLVEIGAR SNÆLAND GUÐBJARTSDÓTTUR, Víðilundi 2I, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimahlynningar á Akureyri. Jón Ellert Guðjónsson, Guðjón Axel Jónsson, Bjarney Hrafnberg Hilmarsdóttir, Guðbjartur Ellert Jónsson, Sigurbjörg Rún Jónsdóttir, Leonard Birgisson og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS KRISTINS STEINSSONAR, Árskógum 6, Reykjavík. Sigurður Steinn Jónsson, Yolande Jónsson, Logi Þórir Jónsson, Helga Lára Hólm, Smári Jónsson, Vilma Valeriano, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlý- hug og samúð við andlát og útför ÓSKARSJÓHANNSSONAR málarameistara. Sérstakar þakkir til starfsfólks dagdeildar Landakotsspítala og í Lönguhlíð 3 ásamt öllum á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir einstaka hjúkrun, alúð og umhyggju. Gréta Óskarsdóttir, Sveinn Ingvarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍNAR ARADÓTTUR húsfreyju, Brún, Suður-Þingeyjarsýslu. Björn Teitsson, Anna G. Thorarensen, Ari Teitsson, Elín Magnúsdóttir, Sigríður Teitsdóttir, Eggert Hauksson, Erlingur Teitsson, Sigurlaug L. Svavarsdóttir, Helga Teitsdóttir, Jón Hermannsson, Ingvar Teitsson, Helen Teitsson, barnabörn og barnabarnabarn. EÐVALD VILBERG MARELSSON + Eðvald Vilberg Marelsson fædd- ist í Hafnarfirði 18. nóvember 1953. Hann lést af slysför- um 5. nóvember síð- astliðinn og fór útfór hans fram frá Hafn- arfjarðarkirkju 17. nóvember. Ég get ekki skrifað kveðju eða minningar- grein um pabba minn. Orð geta aldrei orðið annað en fátækleg þegar mikilmennum er lýst. Mig langar svo til að segja heiminum frá pabba mínum. Grænu augunum hans sem voru full af ástúð, og blikinu sem kom með prakkarasvipnum. Og skop- lega ímyndunaraflinu sem kom öll- um til að hlæja. Og öllum sögunum sem hann skáldaði fyrir okkur systkinin þegar við vorum lítil. Píp- unni hans, endalausri kaffidrykkj- unni, og dugnaðinum, já pabbi minn var duglegastur í heimi. Röskastur, vinnusamastur og fyndnastur. Pabbi minn var sannur sigurvegari. Mig langar til að hrópa svo allir heyri: Pabbi minn var besti maður í heimi: gæddur manngæsku og hjálpsemi sem útvaldir fengu að njóta. Og verður heimurinn ekki að fá að vita að pabbi elskaði mömmu ofar öllu. Breiddi yfir hana á kvöld- in, og horfði óteljandi stundir á hana sofa. Pabbi sagði oft að konur ætti ekki að skilja heldur segja: „Já, elskan" við öllu. Og það gætu auðveldlega verið mest notuðu orð- in hans. „Já elskan“. Svo stórbrotin manneskja sem pabbi minn var skilur eftir sig tóm- arúm, sem hann fyllir sjálfur af persónuleika sínum, og við sem fengum að þekkja hann erum öll brot af honum. Þú munt áfram vera í huga mín- um og hjarta, elsku, elsku pabbi minn, og alltaf koma mér til að hlæja. Með óendanlegri þökk. Þín Sigrún. Elsku pabbi minn. Mig langar ekki til þess að sleppa þér og kveðja þig en ég neyðist til þess og kveð þig þá bara í bili þangað til ég hitti þig aftur. Þú sagðir einu sinni við mig þegar við sátum og spjölluðum og drukk- um kaffi, að lífið væri ósanngjarnt, en ég hefði aldrei getað trúað því að það væri svona ótrúlega ósanngjarnt. Þú ert bara tekinn frá okkur og spurningum eins og ef og af hverju verður aldrei svarað. Einhvern veginn hélt ég að þú myndir aldrei deyja, hvað þá svona ungur. Minning- arnar um þig eru ótal- margar og þær eru svo óbærilega sárar núna, en seinna meir mun ég hugsa um þær og gleðjast. Kristófer, einn af afastrákunum þínum, sagði mér að þið yrðuð alltaf perluvinir þó að þú værir ekki hérna með okkur, mér þykir þetta falleg hugsun. Sigi-ún var nú alltaf svo mikil pabbastelpa og stendur nú eins og klettur við hlið mömmu sem hefur misst mest okkar allra. Ég veit það og allir sem þekktu þig vissu það að þú elskaðir mömmu af öllu þínu hjarta. Samstarfsmenn þínir vildu að það kæmi einhvers staðar fram hve duglegur þú varst, en ég held að það hafi nú ekki farið framhjá neinum. Dugnaðurinn og hjálpsem- in í fyrirrúmi. Pabbi minn, þú skilur eftir þig svo stórt skarð alls staðar. Ég bið góðan Guð að styrkja mömmu, afa og ömmu, Sigga og Sigrúnu í þessari miklu sorg okkar allra. Deyrfé deyja frændur deyr sjálfur hið sama. En orðstír deyr aldregi þeim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Margrét og Árni. 17. nóvember sl. var ég bæði að kveðja góðan vin og fyrrverandi vinnufélaga. Það er ekki enn þá búið að síast inn í hugann minn að hann Valdi sé farinn frá okkur og á ég enn von á því að sjá hann niður frá, á Lækjargötu, þar sem hann hleypur á milli bíla eins og rauð elding. Ég kynntist honum fyrir mörgum árum síðan, þegar hann hóf störf á bensínafgreiðslustöðinni við Lækjargötu. Þegar ég fór að spyrjast fyrir um hver þessi maður væri, var mér sagt að þetta væri hörkuduglegur miðaldra maður af olíustöðinni sem vildi fá smá breyt- ingu. Hörkuduglegur reyndist vera of vægt til orða tekið um manninn og kunni ég strax mjög vel við RAGNA KRISTIN ÞÓRÐARDÓTTIR + Ragna Kristín Þórðardóttir fæddist í Bolungar- vík 11. maí 1938. Hún lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 12. októ- ber síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 20. október. Nú er hún Ragna uppáhaldskennarmn minn dáin. Hún kenndi mér í nokkur ár og urð- um við miklar vinkonur. Mér þótti ákaflega vænt um Rögnu og gat leitað til hennar með öll mín vandamál. Mér fannst alltaf gott að tala um hlutina við hana og hún skildi allt svo vel. Oft var gaman með Rögnu. Við fór- um t.d. saman öll á Pizza 67 og áttum góða stund þar. Þótt ég hafi klárað skólagöngu gat ég alltaf komið til Rögnu, bæði upp í skóla og heim til hennar. Hún tók allt- af jafnvel á móti mér. Mér fannst Ragna alltaf svo fín og falleg. Hún hafði fallegt hár, falleg augu og var alltaf í svo fínum fötum. Þegar ég vissi að Ragna var svona veik vonaði ég að henni myndi batna. En svo fór ekki og nú þarf ég að kveðja hana. Elsku Ragna mín. Ég hefði viljað óska að þú lifðir lengur og gætir verið með okkur. En samt er ég þakklát iyrir að hafa fengið að kynnast þér og eiga þig að á meðan þú lifðir. Þú kenndir mér margt sem á eftir að auðvelda mér í mínu lífi. Mig langar bara að þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyr- ir mig og hvað þú varst alltaf góð við mig. Ég bið Guð að geyma þig og blessa minningu þína. Farðu í friði, elsku Ragna mín. Þinn gamli bekkjamemandi, Margrét Eiríksdóttir. hann. Alltaf hress og kátur og stutt í spaugið og pípuna. Ég minnist þess að í eitt skipti var okkur send brauðterta. Allir komu inn, hver á fætur öðrum og fengu sér bita en alltaf var Valdi að dunda sér úti. Ég kallaði til hans og spurði hann hvort hann ætlaði ekki að fá sér sneið. „Ég held það nú“ var svarið en ekki fann hann sér tíma til þess að koma inn og áfram sá ég rauðu eldinguna á ferð úti. Ég hóaði á hann í tvö skipti í viðbót og alltaf var það sama svarið en áfram hélt hann að vinna engu að síður. Að lokum tók ég kökufatið og kaffi- könnuna og rölti af stað út og spurði hann hvort ég ætti að koma með þetta til hans. Og reyndist þetta vera aðferðin til þess að fá hann inn. Eftirminnilegasta hrós sem ég hef fengið um ævina var frá honum Valda mínum. Það hafði komið maður inn á stöðina og beðið um viftureim og kerti í bílinn sinn. Ég afgreiddi manninn sem síðan fór beint út á plan til Valda. Stuttu seinna kom hann inn aftur með vandræðalegt bros á vörunum. Ég spurði hann hvort allt væri í lagi. Þá hafði maðurinn farið og spurt Valda hvort ég væri að selja hon- um rétta hluti og hafði fengið það svar, að ef að stelpan inni hefði sagt að þetta væri rétt, þá væri það raunin því að hún gæti búið til Bens úr Trabant. Ef að þessi setn- ing var ekki til þess að ýta Valda lengra inn í hjartað mitt var það bara vegna þess að hann var kom- inn þangað þá þegar. Þetta átti samt meira við um hann því að ég hafði stundum á tilfinningunni að hann væri að gera upp bílana fyrir viðskiptavinina. Ég mun sakna þess að geta ekki talað við hann um lífið og tilveruna. Umræðuefnið núna væri líklega hvort hann væri ekki búinn að bóka ferð til Kanarí í einn mánuð en það var Joannig sem Valdi hlóð batteríin. A hverju ári pantaði hann ferð til Kanarí í einn mánuð, hjá sömu sölukonunni hjá Heims- ferðum, gisti á sama hótelinu og helst í sömu íbúðinni. Ég spurði hann eitt sinn hvort hann ætlaði sér ekki að vera meira og minna allt árið á Kanarí þegar hann myndi hætta að vinna. Hann glotti og sagði að það væri ekki ólíklegt en að það þyrfti að fara undir nefnd. Hann sagði að ég yrði þá að koma í heimsókn og hann myndi gerast fararstjóri fyrir mig. Því miður verður ekki úr þessu hjá okkur. Með miklum söknuði kveð ég þennan vin minn í dag og votta fjölskyldu hans mikla samúð. Margrét Hrefna Pétursdóttir. Frágangur afmælis- og minning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda grein- arnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvern látinn einstakl- ing birtist formáli, ein uppi- stöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við með- allínubil og hæfilega línu- lengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir1 greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.