Morgunblaðið - 18.11.2000, Side 20
20 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Mótmæli eldri borgara
og hjartasjúklinga
Eðlileg viðbrögð að
mati bæjarstjóra
KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, segir viðbrögð Fé-
lags eldri borgara á Akureyri og Fé-
lags hjartasjúklinga í Eyjafírði við
tillögu íþrótta- og tómstundaráðs Ak-
ureyrar þess efnis að taka gjald af
ellilífeyrisþegum í sundlaugar og
skíðamannvirki, eðlileg og skiljanleg.
Kristján Þór sagði að tillaga ráðs-
ins yrði til umræðu á fundi bæjar-
stjómar næsta þriðjudag og þar yrði
tekin afstaða til þeirra. í tillögu
íþrótta- og tómstundaráðs er gert ráð
fyrir að gjaldtaka skili bæjarsjóði
þremur milljónum króna í tekjur á
næsta ári. „Þessi tillaga kom okkur að
óvörum,“ sagði Þorvaldur Jónsson,
formaður Félags eldri borgara á Ak-
ureyri. Hann sagði töluverðan hóp
eldri borgara nýta sér sundlaugamar
til heilsubótar. „Það er nokkuð stór
hópur sem stundar sundlaugamar,
enda er það viðurkennt að hreyfing í
vatni er góð fyrir heilsuna," sagði
Þorvaldur.
í ályktun stjómarfundar félagsins í
vikunni kemur fram að félagsmenn
eru þakklátir fyrir þá þjónustu sem
Akureyrarbær veitir, svo sem heima-
þjónustu, dagþjónustu, dagvistun og
fleira, en tillaga ráðsins fari algjör-
lega í bága við stefnumótun bæjarins í
þjónustu við aldraða. Þá segir enn-
fremur að almennt sé álitið að sund sé
nauðsynlegur þáttur í líkamsþjálfun,
ekki hvað síst fyrir aldraða og vegna
gjaldfrelsis hafi aldraðir getað nýtt
sér sundstaðina í ríkari mæli en ella.
Skátafólagið Klakkur
A
Arleg jólavörusala
ÁRLEG jólavörasala Skátafé-
lagsins Klakks á Akureyri verður
dagana 20., 21. og 22. nóvember.
Að venju innihalda pakkarnir
jólapappír, merkimiða, límband
og gjafaborða.
Þetta er ein af mikilvægustu
fjáröflunarleiðum félagsins og
vona skátamir að bæjarbúar taki
vel á móti sölufólkinu eins og
reynsla undanfarinna ára hefur
verið.
Mánudagskvöldið 20. nóvem-
ber verður bankað uppá hjá íbú-
um Glerárþorps, þriðjudags-
kvöldið 21. nóvember á efri
brekkunni og miðvikudags-
kvöldið 22. nóvember á Oddeyr-
inni, Innbænum og neðri brekk-
unni.
Uppbygging nýs hverfís við Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit
Fyrstu þrjár íbúðirnar af
12 tilbúnar næsta sumar
FYRSTA skóflustunga að nýju
hverfi við Hrafnagil í Eyjafjarðar-
sveit var tekin nýlega, en um er að
ræða rað- og parhúsahverfi. Um er
að ræða byggingareit austan við
þjóðveginn, við Hrafnagilsskóla og
hefur Sveinn Heiðar Jónsson, bygg-
ingaverktaki á Akureyri, fengið reit-
inn til skipulags og bygginga íbúð-
anna til sölu á fijálsum markaði. Á
reitnum verða 12 íbúðir og verða
húsin að stærstum hluta forsmíðuð.
Sveinn Heiðar sagði að fyrstu þrjú
húsin yrðu tilbúin til afhendingar
næsta sumar eða 15. júlí, en þær
íbúðir hefur Eyjafjarðarsveit keypt
sem leiguíbúðir fyrir sveitarfélagið.
Bjami Kristjánsson sveitarstjóri
sagði fyllstu ástæðu til að lýsa yfir
mikilli ánægju með samstarfið við
Svein Heiðar um byggingafram-
kvæmdir á HrafnagilsSvæðinu.
„Hann hefur allt frá því að fyrst var
til hans leitað um framkvæmd af
þessum toga sýnt málinu mikinn
áhuga og ég óska honum góðs gengis
og vona að næsta ár líði ekki án þess
að tekist hafi að selja allar íbúðim-
ar,“ sagði Bjami.
Jarðvegsvinna hefst á svæðinu
innan tíðar og sagði Sveinn Heiðar
að gatnagerð hæfist í framhaldi af
henni. íbúðimar verða smíðaðar á
versktæði hans í vetur og sem fyrr
segir verða þrjár þær fyrstu tilbúnar
um miðjan júlí á næsta ári. „Það fer
svo eftir því hver eftirspurnin verð-
ur, hversu hratt við byggjum upp.
Ég er bjartsýnn og hef ekki
Páll Tómasson arkitekt, Ámi
Gunnar Kristjánsson bygginga-
tæknifræðingur, Jósavin Gunn-
arsson, byggingafulltrúi Eyja-
fjarðar, Bjarni Kristjánsson
sveitarstjóri, að taka skóflu-
stunguna, og Sveinn Heiðar
Jónsson byggingaverktaki.
Alls verða 12 par- og raðhúsa-
íbúðir byggðar á nýjum bygg-
ingareit við Hrafnagil.
ástæðu til að ætla annað en að íbúð-
imar seljist. Eyjafjarðarsveit hefur
upp á marga kosti að bjóða, góðan
skóla og leikskóla, íþróttahús og
sundlaug og þá era menn ekki nema
8-10 mínútur að aka frá Hrafnagili
til Akureyrar,“ sagði Sveinn Heiðar.
Morgunblaðið/Kristján
I
LAU GARDAGU R
(RaFqeymar með hátt kaldræsiþoí
SKEIFUNN111 - SÍMI 520 8000-
Nýr geisladiskur með söng
Kristjönu Arngrimsdóttur
Tónleikar í Eyjafirði
og Reykjavík
KRISTJANA Am-
grímsdóttir heldur
tónleika í Dalvíkur-
byggð, Eyjafjarðar-
sveit og Reykjavík á
næstu dögum í til-
efni af útkomu
geisladisksins „Því-
lík er ástin“. Þetta
er fyrsti geisladisk-
ur Kristjönu en áður
hefur hún sungið inn
á fjóra með Tjarnar-
kvartettinum. Diskurinn hefur að
geyma 13 söngperlur, lög af ýmsum
toga, ballöður frá ýmsum löndum og
tangóa.
Krisfjana hefur leikinn á heima-
velli, upptökur geisladisksins fóm
fram í Dalvíkurkirkju sl. sumar og
þar verða fyrstu tónleikamir á
morgun kl. 16. Á mánudagskvöld
verða tónleikar í Laugarborg í Eyja-
fjarðarsveit kl. 21 og á sama tíma á
Kaffi Reykjavík miðvikudaginn 22.
nóvember. Kristjana sagðist ekki
geta annað en verið ánægð með af-
raksturinn, enda hafi geisladiskur-
inn fengið góða dóma. „Eg er af-
skaplega ánægð með upptökumar
og hlut Sveins Kjartanssonar upp-
tökustjóra. Einnig var ég heppin
með þá menn sem spiluðu með mér,
Jón Rafnsson, Krist-
ján Eldjárn Þórar-
insson og Daníel
Þorsteinsson.“
Krisfjana sagðist
hafa gengið með
það í maganum þeg-
ar hún var ung
stelpa að syngja inn
á plötu. „Það að
syngja og túlka
tónlist er eitthvað
sem maður hefur
áhuga á og kannski var það hvatn-
ing frá vinum og kunningjum sem
gerði útslagið. Svo er ég líka orðin
svo stór stelpa. Þetta er ekki svo
mikið mál, það er þó öðravísi að
vera ein í þessu en ég hef góða
stuðningshópa í kringum mig.“
f sumar flutti Kristjana t.il Dan-
inerkur ásamt manni sinum Krist-
jáni Eldjárn Hjartarsyni, þar sem
þau hjón ætla bæði að stunda nám.
„Við eigum það alveg inni að nýta
safann úr Dönunum og þeir hafa
upp á niargf að bjóða og eru nota-
legir. Tjarnarkvartettinn starfar
ekki lengur vegna breyttra að-
stæðna en eftir hann liggja fjórir
geisladiskar, og fólk getur alltaf
sótt í þá, ekki síst fyrir jólin", sagði
Kristjana.
Akureyrarmótið í atskák
Ólafur og* Gylfi
efstir og jafnir
ÓLAFUR Kristjánsson og Gylfi
Þórhallsson urðu efstir og jafnir á
Akureyrarmótinu í atskák sem lauk
í vikunni. Þeir félagar fengu fimm
og hálfan vinning hvor af sjö mögu-
legum og þurfa því að tefla einvígi.
Jón Björgvinsson og Þór Valtýs-
son höfnuðu í þriðja til fjórða sæti
með 4V4 vinning en Halldór Brynjar
Halldórsson og Sigurður Eiríksson
komu næstir með 4 vinninga.
Haustmót yngri flokka hefst
laugardaginn 18. nóvember kl.
13.30. Teflt verður í flokkum ungl-
inga, drengja, telpna og barna.
Teílt verður í Skákstofunni í
Iþróttahöllinni en keppnisgjald er
500 krónur.
-----------------
Foreldrafélag
Giljaskóla
Aðalfundur
AÐALFUNDUR Foreldrafélags
Giljaskóla verður haldinn í skólanum
þriðjudagskvöldið 21. nóvember og
hefst hann kl. 20.30. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa mun Viðar Sigur-
jónsson starfsmaður Iþrótta- og
ólympíusambands Islands á Akur-
eyri halda fyrirlestur um barna og
unglingastefnu ISÍ. Foreldrar barna
í Giljaskóla eru hvattir til að mæta á
fundinn.
Jóhannes S. Kjarval
LISTMUNAUPPBOÐ
annað kvöld kl. 20.00 á Hótel Sögu
VERIÐ VELKOMIN AÐ SKOÐA VERKIN í GALLERÍI FOLD, RAUÐARÁRSTÍG 14-16,
í DAG KL. 10.00-17.00 EÐA Á MORGUN KL. 12.00-17.00.
SELD VERÐA UM 100 VERK, ÞAR Á MEÐAL FJÖLMÖRG VERK GÖMLU MEISTARANNA.
, , , Rauöarárstíg 14-16
HÆGT ER AÐ NALGAST UPPBOÐSSKRANA A NETINU: www.myndlist.is sími 551 0400
I
l
I