Morgunblaðið - 18.11.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 29
ERLENT
Biður Fuj-
imori um
hæli í
Japan?
ALBERTO Fujimori, forseti
Perú, var í Japan í gær til að
semja um fjárhagsaðstoð við
Perústjóm en vildi ekkert segja
um þann orðróm, að hann hygð-
ist sækja um pólitískt hæli í
landinu. Heima í Perú er loft
lævi blandið eftir að upp komst
um mútuhneyksli Vladimiros
Montesinos, fyrrverandi yfir-
manns leyniþjónustunnar, og
stjómarandstaðan í landinu
ræður nú þinginu. Getm- hún
hugsanlega bolað Fujimori úr
embætti en sjálfur segist hann
ætla að fara frá í júlí á næsta
ári. Fujimori er af japönskum
ættum.
Vitað hverjir
sprengdu Cole
MENNIRNIR tveir, sem fyrir-
fóra sjálfum sér um leið og þeir
sigldu báti hlöðnum sprengiefni
á bandaríska herskipið Cole í
höfninni í Aden í Jemen í sið-
asta mánuði, vora báðir Jemen-
ar ogbörðust áður í Afganistan
gegn Sovétmönnum. Kom þetta
fram í viðtali við Abdul-Karim
al-Iryani, forsætisráðhema
Jemens.
Jemensk yfirvöld telja, að
mennirnir hafi ekki verið einir í
ráðum og líklega hafi einhverjir
utan landsteinanna komið að
hryðjuverkinu, sem olli dauða
17 bandarískra sjóliða. Þau
segjast þó ekki geta tengt það
saudi-arabíska hryðjuverka-
manninum Osama bin Laden en
gransemdir Bandaríkjamanna
beinast að honum.
Kouchner
áförum
frá Kosovo
BERNARD Kouchner, yfir-
maður borgaralegrar stjóm-
sýslu í Kosovo, hefur tilkynnt,
að hann ætli að láta af starfinu
og hefur lagt til, að Paddy
Ashdown, fyrrverandi leiðtogi
Frjálslynda demóki-ataflokks-
ins í Bretlandi, taki við því.
Haft er eftir heimildum, að
Bandaríkjastjórn telji Ashdown
líklegan arftaka Kouchners en
hún var áður andvíg honum
vegna þess, að hann styður
sjálfstæði Kosovohéraðs.
Kouchner sóttist eftir því fyrr á
árinu að verða yfirmaður
Flóttamannastofnunar Samein-
uðu þjóðanna og segist enn
vonsvikinn yfir því að fá ekki
það embætti. Hann er stofnandi
líknarsamtakanna Lækna án
landamæra og var heilbrigðis-
ráðherra Frakklands áður en
hann hélt til Kosovo.
Banna
franskt
nautakjöt
ÍTÖLSK stjórnvöld bönnuðu í
gær innflutning á fullorðnum
nautgripum og nautakjöti á
beini frá Frakklandi. Hafa ít-
alskir neytendur og bændur
hvatt stjómvöld til að fara að
dæmi ýmissa Evrópuríkja og
banna innflutning á frönsku
nautakjöti. Þótt ekki hafi komið
upp kúariða á Ítalíu er þar svo
mikill ótti við hana, að sums
staðar hefur nautakjötssala
minnkað um 75%.
Tekist á um sætaskipan,
drykki og flugvélamat
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
UMBURÐARLYNDI og samstarfs-
vilji voru ekki í fyrirrúmi er hópur
borgarráðsmanna frá Kaupmanna-
höfn hélt í námsferð til Italíu. Var
framganga stjórnmálamannanna
þeim til lítils sóma og vakið
takmarkaða hrifningu danskra
skattgreiðenda sem borguðu brús-
ann. Osættið var til marks um þá
spennu sem ríkir á milli margra
Dana og innflyljenda og þótt um há-
alvarlegt mál sé að ræða er ekki
laust við að margir brosi í kampinn
yfir lýsingum sem ættu líklega frek-
ar heima á barnaheimili en í hópi
kjörinna fulltrúa höfuðborgarbúa.
Stjórnmálamennirnir fjórtán
voru ekki fyrr komnir inn í flugvél-
ina en ágreiningurinn hófst. Jafn-
aðarmaðurinn Hamid E1 Mousti
þvertók með öllu að sifja við hliðina
á Louise Frevert, úr Danska þjóðar-
flokknum, sem vill takmarka fjökla
innflytjenda til Danmerkur. Stóð E1
Mousti í vegi fyrir Frevert er hún
hugðist setjast og hrópaði hástöf-
um. Frevert segir í samtali við Berl-
ingske Tidende að um persónulega
óvild hans í hennar garð sé að ræða
og að hann hafi ekki talað við hana í
sjö ár. Málið leystist ekki fyrr en
vinstrimaðurinn Lars Hutters
bauðst til að sefjast við hliðina á
henni og hægt var að fljúga af stað.
Því fór þó fjarri að stemmningin í
hópnum hefði batnað eftir þetta og í
kvöldverðarboði í Róm rifust
stjórnmálamennirnir hástöfum og
jusu svívirðingum hveijir yfir aðra.
Astæðan var m.a. framkoma þjón-
anna við stjórnmálamenn af inn-
flytjendaættum en A. Benhaddou úr
flokki miðdemókrata sagði það ekk-
ert annað en kynþáttahatur að
þjónarnir færðu Hutters drykk á
undan honum.
Bente Frost úr Venstre, sem fór
fyrir hópnum, neitar því að spennan
hafi einkum verið á milli þeirra sem
eru af innflytjendaættum og Dana
en tók jafnframt sérstaklega fram
að Danirnir hefðu ekki fengið neitt
svínakjöt alla ferðina.
Enn og aftur kom til árekstra á
milli fyrrnefndu hópanna á heim-
leiðinni er fullyrt er að Lubna Elahi
hafi hent kartöflusalati í Preben
Bille-Brahe úr Venstre. Hún neitar
því en segist hafa reiðst honum
mjög. „Þegar flugfreyjan kom með
mat fyrir okkur múslímana spurði
hann hvort við skömmuðumst okk-
ar ekki fyrir að valda aukinni fyrir-
höfn. Ég spurði hann þá hvort ekki
væri erfitt að vera með svona litinn
heila, stóð upp og lagði matinn frá
mér. Eitthvað fór til spillis en ég
hreinsaði sjálf upp eftir mig,“ segir
Elahi. Hún sagði að ósættið hefði
ekki aðeins verið á milli stjórnmála-
manna af ólíku þjóðerni, „til dæmis
vildi enginn sitja við hliðina á
Grethe Henius, því hún talar of mik-
ið og svo kvartar hún alltaf ef ein-
hver reykir“.
olastemninq
144 ijé$a útiserla
5 metrar (díóöur)
Jólasýpris
Bastpottur fylgir.
|óiastjörnur
I. flokkur
II. flokkur
III. flokkur
MINÍ-K£R2Í|U<»!1
V.INI CANDU UGKTJU
CÁtfMA A PICCOU CANMU