Morgunblaðið - 18.11.2000, Page 41

Morgunblaðið - 18.11.2000, Page 41
VIKU LM Bandaríski lyfjaiðnaðurinn ver 13,9 milljörðum Bandaríkjadollara í markaðssetningu nýrra lyfja á ári Vilja „brunagafT milli lækna og lyfja- framleiðenda Associated Press I Bandaríkjunum er nú rætt um hvort Iæknar sæti óhóflegum þrýstingi frá lyfjafyrirtækjum. „Hádegísverðurinn er aldrei ókeypis,“ segir bandarískt spakmæli. I Banda- ríkjunum fer nú fram lífleg umræða um markaðssetn- ingu lyfjafyrirtækja og hugsanlega hags- munaárekstra lækna. The New York Times Syndicate. VÍN og góður matur, ferðalög og fleira gott, allt ókeypis handa lækn- um. Þetta getur haft áhrif á það upp á hvaða lyf þessir læknar skrifa, segja læknasiðfræðingar. Læknar verða að gæta sín á að lenda ekki í hagsmunaárekstrum með þessum hætti. En lyfjafyrir- tækin segja aftur á móti að engin hætta sé á ferðum - þetta snúist allt um menntun og rannsóknir. „En hádegisverðurinn er aldrei ókeypis," segir dr. Amy Brodkey, aðstoðarprófessor í geðlæknisfræði við Háskólann í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. „Lyfjafyrirtækin gera hvað þau geta til þess að koma eigin lyfjum á framfæri, og mörg- um geðlæknum þykir orðið nóg um tengslin." Einbeita sér einkum að læknanemum Á hverju ári ver bandaríski lyfja- iðnaðurinn 13,9 milljörðum Banda- ríkjadollara í markaðssetningu nýrra lyfja, eða um 10 þúsund doll- urum á hvern lækni í landinu. Þótt læknar fullyrði að þeir verði ekki fyrir neinum áhrifum af þessum völdum hafa rannsóknir sýnt fram á áhrif á lyfjagjafir. Lyfjafyrirtækin beina spjótum sínum einkum að læknanemum, og nauðsynlegt er að veita þeim menntun til þess að þeir geti haldið sig innan siðferðislegra marka, að því er fram kom í erindi á ársþingi Geðlæknasamtaka Bandaríkjanna (APA) nýlega. Aftur á móti benda lyfjaframleið- endur á, að ekki megi ganga of langt. Markaðssetning þeirra sé nauðsynlegur þáttur í að koma upplýsingum um ný lyf og yfir- standandi rannsóknir til lækna. Læknar og sjúklingar njóti góðs af þeirri menntun sem lyfjafyrirtækin kosti og allar upplýsingar séu undir eftirliti matvæla- og lyfjaeftirlits- ins. Rannsóknir sýna fram á áhrif Vandann megi að hluta til rekja til stýrðrar heilsugæslu, sem hafi grafið undan möguleikum á mennt- un og rannsóknum, að sögn Brodk- eys. „Lyfjaiðnaðurinn hefur hlaup- ið í skarðið. Þeir eru þeir einu sem nú orðið hafa þá peninga sem til þarf. Læknum finnst að sér þrengt vegna þess að þeir eiga orðið svo fárra kosta völ. Þeir vinna sífellt meira fyrir minni laun og stýrða heilsugæslan gefur þeim ekki leng- ur færi á að taka ákvarðanir." Læknar og læknanemar segja að gjafirnar sem lyfjafyrirtækin bjóði, „allt frá pennum til ferðalaga og kostunar framhaldsmenntunar læknanna, hafi engin áhrif á ákvarðanatöku þeirra,“ segir Brodkey. „En það eru talsvert margar rannsóknir sem hafa sýnt fram á að læknar verða í raun og veru fyrir áhrifum frá þessum þátt- um. Þetta hefur áhrif á það á hvaða lyf þeir vísa.“ Læknisfræðin verður að passa sig, að sögn Brodkeys. „Við verðum að reisa brunagafl á milli lækna og lyfjaiðnaðarins og stýrðrar heilsu- gæslu og sjúkratryggingafélaga, og þetta verðum við sjálf að gera,“ segir hún. „Og fyrsti hlutinn af þessum brunagafli er að gera lækn- um ljóst að þeir eigi við vanda að stríða og að rannsóknir hafi sýnt fram á þennan vanda.“ Nægja reglurnar? Deilur risu um þetta á ársþingi APA. Fulltrúar lyfjaiðnaðarins segja að hátt í helmingur þeirra peninga sem varið sé til markaðs- setningar fari í ókeypis lyfjaprufur sem læknar gefi sjúklingum. Þá séu fyrir hendi reglur sem settar hafi verið í byrjun áratugsins um mark- aðssetningu lyfja. „Áður en þessar reglur voru sett- ar var þessi lyfjamarkaðssetning miklu umdeilanlegri," segir dr. Bert Spiker, aðstoðarfram- kvæmdastjóri vísinda- og reglu- gerðasviðs lyfjaframleiðendasam- taka Bandaríkjanna (Pharma- ceutical Research and Manu- facturers of America). „Þetta hefur batnað til muna.“ Ágengir sölufulltrúar Spiker segir að margt af því sem Brodkey hafi sagt sé „einföldun". „Markaðssetning er mikilvæg fyrir lækna; hún gerir þeim kleift að fá nauðsynlegar upplýsingar um ný lyf til þess að þeir geti skrifað upp á það sem við á. Læknar eru mjög uppteknir og hafa ekki tíma til að afla sér nýj- ustu upplýsinga. Ein leiðin fyrir þá er sölufulltrúar," segir Spiker. „Brunagafl" á milli lækna og lyfja- fyrirtækja myndi auka vandann. Brodkey segir aftur á móti að sölu- fulltrúarnir séu hluti af vandanum. „Eg held að það væri affarasælast að læknar myndu ekki þiggja gjafir frá fulltrúum lyfjafyrirtækja og ekki fá upplýsingar um uppáskrift lyfja frá þessum sölufulltrúum. Og það þarf að setja reglur fyrir læknanema og fulltrúana sem myndu draga úr eða koma í veg fyrir samskipti þeirra við full- trúana.“ Læknar verði að losa sig við þann ávana að þiggja kostun frá lyfjafyrirtækjum. I ritgerðum, rannsóknum og leið- urum læknaritsins Journal of the American Medical Association (JAMA) nýverið var því haldið fram, að lyfjafyrirtæki hafi sífellt meiri og oft óeðlileg áhrif á lækna. Ritstjóri annars læknarits, New England Journal of Medicine, skrifaði í maí sl. harðorða gagnrýni þar sem hann sagði að vísindarann- sóknum stafaði hætta af auknum peningaáhrifum lyfjaiðnaðarins. Eignarhluti vísindamanna skapar vanda í sama mánuði lýsti læknadeild Harvardháskóla í Bandaríkjunum því yfir, að hagsmunaárekstravið- mið deildarinnar yrðu áfram jafn- ströng og þau hafi verið, en þau eru talin hin ströngustu í Bandaríkjun- um. Forseti deildarinnar, Joseph B. Martin, hvatti til þess að um- ræður færu fram um þessi mál. Ritstjóri JAMA, dr. Catherine DeAngelis, segir að eitt alvarleg- asta vandamálið sé það, þegar vís- indamenn eigi hlut í þeim fyrir- tækjum sem kosti rannsóknir þeirra. I slíkum tilfellum geti rann- sóknirnar ekki talist jafngóðar og ella og líklegra sé að niðurstöðurn- ar verði fyrirtækinu hallkvæmar. TENGLAR JAMA: jama.ama-assn.org Læknadeild Harvard: www.hms.harvard.edu/integrity Lífsiðfræðimiöstöð Stanford- háskóla: www.stanford.edu/dept/ scbe i i i I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.