Morgunblaðið - 18.11.2000, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Hagstærðir
í höfuðborg
HOFUÐBORG Is-
lands er hin dreifbýl-
asta sem um getur.
Byggð er á 6.000 ha
lands en vergur þétt-
leiki er 17 íbúar/ha. Frá
stríðslokum hefur hún
þanist út og þynnst
með ótrúlegum hraða
'og áætlanir sveitarfé-
laga gefa enga vísbend-
ingu um að hverfa eigi
frá stjórnlausri þróun á
næstu áratugum. Pétt-
leiki evrópskra borga
er að jafnaði fimmfalt
meiri. Örn
Afleiðingin er víta- Sigurðsson
hringur bflsins: aukið
land þarf undir götur, lengri tíma
þarf daglega undir stýri og aukinn
tími fer í að vinna fyrir rekstri bfls-
ins. Fé, sem ætti að fara í raunveru-
leg lífsgæði, sparnað, nýja þekkingu,
rannsóknir og atvinnurekstur, er
bundið í sóun bflgeirans. Kjörtíma
íbúanna, sem ætti að verja í uppeldi,
-ramönnun og menntun barna, sköp-
un, hvfld, skemmtun, útivist, menn-
ingarstarf og mannleg samskipti, er
sóað í endalausum akstri og striti
fyrir rekstri bflsins.
Ábati af háum þjóðartekjum skilar
sér ekki sem skyldi, hvorki í tekjum,
kaupmætti, spamaði og hóflegum
vinnutíma né til eflingar atvinnulífs,
rannsóknastarfsemi og menntunar.
Nú búa allir utan göngufjarlægðar
því leiðin, sem allir þurfa að fara dag
hvem, oft á dag, er einfaldlega of
. löng og hún lengist enn verði ekki
’ tekin upp ábyrg skipulagsstefna.
Margfeldisstuðlar (fólksfjöldi,
bflafjöldi, ferðafjöldi o.s.frv.) era há-
ir. Margfeldi þeirra og lengri leiða
birtist nú þegar í svimandi tölum
sem lýsa alvarlegum samfélags-
vanda. 280.000 íslendingar eiga nú
160.000 fólksbfla eða 0,570 hver. Ár-
legur kostnaður vegna einkabfla á
höfuðborgarsvæðinu er nú 120 millj-
arðar kr. og verður að óbreyttu 180
milljarðar 2020. Nú era famar
250.000.000 15 mín. farþegaferðir á
svæðinu, jafngildi 33.000 mannára
(1.850x60 = 111.000 mín.= 1 mann-
ár). Árið 2020 verða þær að óbreyttu
350 þús. í 20 mínútur hver, jafngildi
63.000 mannára. Mannár má nota til
~ ’að meta þjóðhagsleg áhrif ákvarðana
í skipulagi sbr. skýrslu Hagfræði-
stofnunar HÍ um
Reykjavíkurflugvöll
1997. Þar er 40 mín.
lenging á ferðatíma 400
þús. flugfarþega árlega
(16.000.000 m£n. eða
144 mannár) talin
sanna þjóðhagslega
hagkvæmni flugrekst-
ursíVatnsmýri.
Atvinnurekstur á
höfuðborgarsvæðinu
veltir nú 600 milljörð-
um, sveitarfélög 32 og
rfldð 20, alls um 652
milljörðum kr. Ef 15%
veltu er háð byggðar-
mynstri hefur þéttleiki
byggðar áhrif á hlutfall
kostnaðar/ábata af 100 milljörðum
kr. nú og 150 milljörðum 2020.
Takist að þétta byggð um 30% til
2020 skv. tillögu Samtaka um betri
Flugvallamál
Flugvellir í Keflavík og
Reykjavík eru hernað-
armannvirki, segir Örn
Sigurðsson, byggð á
forsendum stríðsátaka.
byggð að svæðisskipulagi, mætti
lækka kostnað af einkabflum um 54
mflljarða og tímavirði farþega um 75
milljarða (18.900 mannár). Samtímis
mætti lækka kostnað atvinnurekst-
urs, sveitarfélaga og ríkis um 45
milljarða á ári.
Önnur samlegðaráhrif era bætt
heilsa vegna minni mengunar,
ósnortin náttúra á jöðram byggðar-
innar, bætt og menningarlegt borg-
aramhverfi og betra uppeldi og
menntun yngri kynslóða í harðri, al-
þjóðlegri samkeppni.
Fjárfestingar í byggðarþróun til
2020 gætu numið 800 milljörðum kr.
Eftir miklu er að slægjast því í
þéttri byggð er kostnaður minni en í
strjálli, en hagnýtt gildi, gæði og
ending mannvirkja að sama skapi
meiri. Festist þetta fé í þróun bfla-
borgar austan Elliðaáa verður ekki
aftur snúið eftir 10-15 ár ef ráða-
mönnum þóknast þá að leggja af
flugrekstur í Vatnsmýri.
- ■ E. •'•--T
TIL ALLRA
ÁTTA!
Vantar þig vinnu?
www.radning.is
Nýlega vora kynnt drög að mið-
borgarbyggð í Vatnsmýri og settir
fram valkostir að nýtingarstigi, frá
2.280.000 til 3.750.000 gólfflatar-
metra.
Ef sama lóðaverð er í Vatnsmýri
og í miðborg Reykjavíkur er verð-
mæti lóða þar 45-75 milljarðar kr.
Hvergi í lýðveldinu er jafnraunhæft
og æskilegt að reisa slíka miðborgar-
byggð, þar sem mikill fjöldi byggi
innan göngufjarlægðar frá þjónustu.
Samtímis næðist jafnvægi milli bú-
setu og starfa á nesinu og stofnbraut-
ir þar nýttust betur. Þessi byggð
skapar kjölfestu nýs samgöngu-
kerfis, sem gagnast öllu svæðinu.
Orsakavaldur þess sem fór úr-
skeiðis í byggðinni frá 1946 er flug-
völlurinn í Vatnsmýri. Ekki er unnt
að snúa öfugþróuninni við nema með
því einu að fjarlægja meinsemdina.
Með flutningi flugs á nýjan stað á
höfuðborgarsvæðinu fæst veraleg
bót og nýir möguleikar skapast.
Líklega á engin evrópsk borg
sambærilegt tældfæri og Reykjavík
til að þróast í átt að raunveralegri
menningarborg. Nýr stækkanlegur
flugvöllur styrkir samkeppnisstöðu
svæðisins: - 1. áf. sem æfingavöllur
árið 2002:500.000.000 kr. - 2. áf. sem
innanlandsvöllur árið 2010:
10.000.000.000 kr. - 3. áf. sem alhliða
flugvöllur árið 2020: 15.000.000.000
kr. - samtals: 25.500.000.000 kr. Á
höfuðborgarsvæðinu er fjöldi staða
fyrir flugvöll. Þeir álitlegustu, Eng-
ey, Akurey, Skerjafjörður og Álfta-
nes, era innan 6 km frá miðborginni.
Staðarval er á sviði skipulags því
veðurfar er sambærilegt. Við loka-
hönnun þarf að beita flug- og flug-
leiðsögutækni og nákvæmum vind-
mælingum til að fínstilla stefnur
brauta.
Þessir staðir era á fyllingum eins
og flugvellir víða um heim enda era
kostirnir margir. Fé sparast því á
landi þarf einnig að greiða fyrir helg-
unarsvæði flugvalla (x5-10). Aðflug
er yfir sjó og brautir marflatar. Mið-
borgarsvæðið er innan eðlilegra
helgunarmarka Reykjavíkurvallar
og telst því óbyggilegt skv. almenn-
um skilningi. Það skýrir hve hratt
svæðinu hefur hrakað sl. hálfa öld.
Landþörf vallar með 900 og 1.200
metra brautir er 70 ha. I Skerjafirði
kostar slík fylling 3.500 milljónir,
frágangur 500 m., flugstöð/turn
1.700 m., vegur 300 m., flugskýli
1.000 m., hönnun, umsjón og ófyrir-
séð 50%, alls 10.500 m.
Sé kostnaður við nýjan flugvöll af-
skrifaður sem hrein fóm til að greiða
fyrir þróun borgarinnar virðist arð-
semi óendanlega mikil en sé aðeins
miðað við bílakostnað, slys og tíma-
virði er hún +300% (m.v. -25% á
þjóðvegi 1 um Mosfellsbæ, +5% í
Vaðlaheiðargöngum og +25% á
MiklubryKringlumýrarbr.).
Kostnaður við nýjan völl, sem nú
er byggður í Vatnsmýri, er 4.630 m.
(brautir 1.530 m., vegur 300 m., flug-
stöð 1.500 m., flugskýli 1.000 m., æf-
ingavöllur 300 m.). Hvorki er reiknað
með kostnaði við land undir vellinum
né á helgunarsvæði hans því sam-
gönguyfirvöld tóku flugvallarsvæðið
ófijálsri hendi í stríðslok og hafa
aldrei greitt Reykvíkingum leigu,
aðstöðugjöld eða skaðabætur. Þau
hafa æ síðan ráðskast með mikil-
væga hagsmuni höfuðborgarbúa.
Flugvellir í Keflavík og Reykjavík
era hernaðarmannvirki, byggð á for-
sendum stríðsátaka. Hvoragur hent-
ar íslensku samfélagi á 21. öld þó
ráðamenn beiti mikilli hörku til að
þvinga framtíðarþróun höfuðborgar-
svæðisins og lýðveldisins alls að
þessum mannvirkjum.
Höfundur er arkitekt.
Réttarstaða
barna
EINN er sá ört vax-
andi þjóðfélagshópur í
landinu sem lítt hefur
notið áhuga stjórn-
valda á málefnum sín-
um, það era böm ein-
stæðra foreldra. I dag
era greidd um 12.500
barnsmeðlög í landinu
og hafa málefni þessa
hóps dagað uppi á
borðum þingmanna
áram saman, þrátt
fyrir fögur fyrirheit
um metnaðarfulla fjöl-
skyldustefnu í landinu
sem jafna á rétt barna Albert
án tillits til fjölskyldu- Snorrason
gerðar þeirra - sam-
kvæmt yfirlýsingum ríkisstjórnar
um mótun fjölskyldustefnu • frá
1996. Nærtækasta dæmi þess er
óafgreidd þingsályktunartillaga frá
árinu 1997 sem þingmennirnir Ásta
R. Jóhannesdóttir og Össur Skarp-
héðinsson lögðu fram um bætta
réttarstöðu barna til umgengni við
báða foreldra sína. í tillögunni sem
varðar eitt helsta mannréttindamál
barna ber hæst að réttur barnsins
skuli ávallt hafður í fyrirrúmi við
skilnað foreldra og því skipaður
talsmaður tafarlaust ef ágreiningur
verður um umgengni við það sb.
heimild í barnalögum frá 1992.
Engum dylst hvflíkt hjartans mál
afgreiðsla þessarar tillögu er þeim
fjölskyldum sem standa í slíkum
ágreiningi og eðli málsins vegna
ætti að ríkja skilningur stjórnvalda
á mikilvægi hennar. Því til áherslu
má benda á að niðurstöður fjöl-
margra rannsókna sýna að börn
telja eitt erfiðasta atriði í skilnaði
foreldra sinna vera að missa sam-
band við annað foreldri sitt. Tjá
flest börn sorg yfir að missa aðhald
og traust föður síns við skilnað, en
ég nefni hér feður þar sem í um
90% tilfella eiga börnin lögheimili
hjá móður. Vonbrigði barnanna
lýsa sér m.a. í því að sjálf leggja
þau síðar minna upp úr fjölskyldu-
tengslum og finna drengir gjarnan
til sorgar, saknaðar og óöryggis
sem kemur oft fram síðar á ævinni í
erfiðleikum þeirra í hlutverki sem
karlmenn og feður. Því má líta svo á
að ástandið erfist sé ekkert að gert.
Hjá stúlkum hefur komið í Ijós að
sambandsleysi við föður birtist
gjarnan síðar hjá þeim í undirgefni,
stöðugri leit og óöryggi í tengslum
á fullorðinsárum. Er því ljóst mikil-
vægi föðurins í uppeldinu þótt hann
sé ekki einn af heimilismönnum.
Helstu rökin fyrir því að ekki
hafa verið settar í lög reglur til að
knýja forræðislaust foreldri til að
sinna lögbundinni skyldu sinni til
umgengni við barn sitt era m.a. þau
að það þjóni síst hagsmunum
barnsins að foreldri sem skortir
áhuga á að umgangast barn sitt sé
þvingað til samvistanna.
I þeim tilvikum sem forsjárfor-
eldri meinar hinu foreldrinu að
njóta umgengnisréttar við barn sitt
er möguleiki á beitingu sekta, allt
að 5.000 kr. á dag. Það er álit þeirra
sem með þessi mál fara að úrræðið
sé máttlaust og er því sjaldan beitt.
Helstu rök fyrir því era þau að með
auknum fjárhagsbyrðum einstæðs
foreldris, þ.e. dagsektum, mundi
aðstöðumunur bama einstæðra for-
Ætlar þu að sauma jólafötín?!*
Komdu og skoðaðu úrvalið af fataefnum hjá okkur.
V/RKA
Mörkin 3 - Sími 568 7477
www.virka.is
Opið
Mánud.-föstud. kl. 10-18.
Lau. kl. 10-16.
Halldóra
Einarsdóttir
eldra og hjóna eða sambúðarfólks
aukast meira. Úrræðaleysi það sem
einkennir þessi mál hefur viðgeng-
ist of lengi og tímabært að sýna til-
veru þessa hóps þá virðingu að
skipa honum umboðsmann eða tals-
mann sem gætir hagsmuna hans í
hvívetna.
Hinn nýi réttur til fæðingarorlofs
sem þrykkt var í gegn fyrir síðustu
þinglok reyndist stuðla að miklu
misrétti meðal barna og hreint ekki
Fjölskyldustefna
Börn sem fæðast inn
í fjölskyldugerð
einstæðra foreldra
eiga ekki að gjalda
þess, segja Halldóra
Einarsdóttir og Albert
Snorrason, taki feður
þeirra ekki fæðingar-
orlof með þeim.
til að jafna rétt þeirra án tillits til
fjölskyldugerðar. Árið 1999 fæddist
501 barn utan hjónabands eða sam-
búðar í landinu. Það þýðir að sá
fjöldi bama fæddist inn í fjöl-
skyldugerð einstæðra foreldra. Úm
næstu áramót þegar tökur á fæð-
ingarorlofi hefjast má búast við af-
föllum á töku þess af hendi forræð-
islausra feðra. Nýtist þá orlof
þeirra engum og ætti í slíkum til-
vikum að vera framseljanlegt til
móður með samþykki hans eða til
föðurforeldra barnsins óski þeir
þess, og þá með samþykki beggja
foreldra. Þannig eru hagsmunir og
fjölskyldutengsl barnsins hafðir í
fyrirrúmi enda fæðingarorlofið
komið til barnsins vegna. Böm sem
fæðast inn í fjölskyldugerð ein-
stæðra foreldra eiga ekki að gjalda
þess taki feður þeirra ekki fæðing-
arorlof með þeim! Að öllu óbreyttu
má búast við að hluti barna ein-
stæðra og mæðrum þeirra verði
hegnt fyrir þjóðfélagsstöðu sína
með styttra orlofi. Mér eru minnis-
stæð ummæli þingkonu Samfylk-
ingar við lagasetningu frumvarps-
ins. Þar segir hún níu mánuði vera
algjöran lágmarkstíma miðað við
hin Norðurlöndin þar sem hann er
allt upp í tvö ár. En hvað finnst
henni um 6 mánaða orlof einstæðra
foreldra? í mannréttindayfirlýs-
ingu Sameinuðu þjóðanna er að
finna ákvæði sem varðar hagsmuni
barna. Samkvæmt því ber öllum
bömum, jafnt þeim sem fæðast inn-
an og utan hjónabands eða sambúð-
ar, að njóta sömu félagsverndar og
sú skylda er lögð á herðar ríkis-
valdinu að þeim sé ekki mismunað.
Hin nýju lög um fæðingarorlof í
landinu mismuna ófæddum íslend-
ingum.
Halldóra er í stjóm
Félags einstæðra foreldra.
Albert er formaður
Félags einstæðra foreldra.