Morgunblaðið - 18.11.2000, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 67-
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Æ ðruleysismessa
Dómkirkjunnar
Æðruleysismessa Dómkirkjunnar til-
einkuð fólki í leit að bata eftir tólf-
sporakerfinu verður í Dómkirkjunni í
Reykjavík sunnudagskvöldið 19. nóv-
ember kl. 20.30. Þar eru allir vel-
komnir til tilbeiðslu og æðraleysis.
Lofgjörðina leiðir söngkonan Anna
Sigríður Helgadóttir ásamt Birgi
Bragasyni og Karli Olgeirssyni. Og
svo mun Bubbi Morthens gleðja okk-
ur og uppörva með tónlist sinni.
Sr. Karl V. Matthíasson predikar,
sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir sam-
komuna og sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson leiðir fyrirbæn. Jafnframt
verður reynslusögu deilt með við-
stöddum. I lok stundarinnar verður
boðið fram til fyrirbæna.
Það verður boðið upp á kaffi eftir
1 messu en ekki fyrir messu eins og á
síðastliðnum vetri. Einnig hefjast
messurnar hálftíma fyrr en verið hef-
ur.
Æðraleysismessur era einstakar
og helgar stundir þar sem fólk kemur
og leitar af heiðarleika eftir samfélagi
við Guð og menn. Æðraleysismessur
eru 21. aldar messur og það era allir
velkomnir.
Kvöldmessa
í Grensáskirkju
Á morgun, sunnudaginn 19. nóv.,
verður kvöldmessa í Grensáskirkju
og hefst hún kl. 20.
Kvöldmessurnar í Grensáskii’kju
eru almennt mánaðarlega, þriðja
sunnudag hvers mánaðar. Lagt er
upp úr því að skapa kyrrlátt og frið-
sælt andrúmsloft þar sem töluðu máli
er stillt í hóf, allt form mjög einfalt og
3 sungnir sálmar sem henta vel í al-
mennum söng.
Kvöldmessan er kjörið tækifæri
fyrir þá sem eiga erfitt með að kom-
ast í kirkju á hefðbundnum messu-
tima eða setja fyrir sig form mess-
unnar.
Að öðra leyti er hér um að ræða al-
menna messu sem skírskotar á engan
hátt til sérgreindra hópa og ætti að
henta öllum sem vilja styrkja samfé-
I lag sitt við Guð.
Að halda hvíldardaginn heilagan
1 felur ekki það eitt í sér að taka sér frí
frá daglegum störfúm heldur miklu
fremur að leitast við að uppbyggjast í
trúnni og styrkjast til að takast á við
verkefni nýrrar vinnuviku.
lö^J©
KRISTIN TRÚ
í ÞÚSUND ÁR
ÁRIÐ 2000
Sönghátíð
í Hallgrímskirkju
Viðamikil sönghátíð verður sunnu-
daginn 19. nóvember í Hallgríms-
kirkju á vegum Kristnihátíðar
Reykjavíkurprófastsdæma, en þetta
er síðasta dagskráratriði í samfelldri
Ídagskrá, sem staðið hefur frá 15.
ágúst 1999.
Á sönghátíðinni munu Kór Lang-
holtskirkju, Dómkórinn og Mótettu-
kór Hallgrímskirkju flytja saman
hluta af tónlistaratriðum Þingvalla-
hátíðarinnar. Blásai’asveit Reykja-
víkur mun leika með hátíðarkórnum
undir stjóm Tryggva M. Baldvins-
sonai’, en flutningnum stjórnar Hörð-
ur Áskelsson kantor. M.a. verður
flutt Intrada eftir Tryggva M. Bald-
vinsson og Hallelujakórinn úr Mess-
íasi eftir Hándel. Þá verða sungnh'
kristnihátíðarsálmar dr. Sigurbjörns
Einarssonar biskups og sr. Péturs
Sigurgeissonar biskups. Lögð verður
sérstök áhersla á almennan sálma-
söng með sígildum íslenskum sálm-
um.
Ávörp flytja bæjarstjóri Kópavogs,
Sigurður Geirdal, og dómprófastur,
sr. Guðmundur Þorsteinsson.
Sérstök nefnd Reykjavíkurpróf-
Íastsdæma og sveitarfélaganna í þeim,
þ.e. Reykjavík, Kópavogi og Seltjarn-
Dómkirkjan í Reykjavík.
Morgunblaðið/Sverrir
amesi, var skipuð á árinu 1997 til að
undirbúa og hrinda í framkvæmd há-
tíðardagskrá á þessu svæði. Mjög
margir viðburðir hafa verið á þessum
15 mánuðum sem nefndin hefur stað-
ið fyrir, en einnig hefur nefndin verið
í samstarfí við alla söfnuði prófasts-
dæmisins, margar fríkirkjur, ótal fé-
lagasamtök og íyrirtæki um margvís-
legt starf.
Nefndin telur sig hafa náð til milli
25 og 30 þúsund manns á þessum við-
burðum, sem hún stóð fyrir. Það er
von aðstandenda hátíðarinnar, að fólk
fjölmenni á hátíðina, fylli Hallgríms-
kirkju og taki undir lofsönginn sem á
að fylgja okkur inn í nýja öld.
Messa tileinkuð
ástinni í Hafnar-
fjarðarkirkju
Næstkomandi sunnudag, 19. nóv-
ember, verður haldin messa í Hafnar-
fjarðarkirkju sérstaklega tileinkuð
ástinni. Öll pör, hvort sem þau era í
sambúð eða hjónabandi, era hvött til
þess að mæta og eiga notalega stund í
kirkjunni með ástinni sinni. Tilefni
messunnar er það að í þessari viku er
lokið hjónanámskeiðum haustsins í
Hafnai’fjarðarkirkju, en 3.500 manns
hafa sótt þessi námskeið frá árinu
1996. í messunni verða sungir sálmar
og lög er tengjast ástinni og kærleik-
anum og að sjálfsögðu fjallar predik-
unin einnig um þetta þema. Eftir alt-
arisgönguna geta kirkjugestir kveikt
á bænakertum og skilið þannig eftir
bæn fyrir sambúð sinni eða hjóna-
bandi á „Himnastiganum" sem er
bænastjaki kirkjunnar. Organisti er
Natalía Chow og félagar úr kirkju-
kómum syngja. Prestur er sr. Þór-
hallur Heimisson. Messan hefst kl.
17.00.
Kristnihátíð
á Akranesi - biskup
íslands prédikar
Hátíðarmessa verður í Akranes-
kii’kju nk. sunnudag kl. 14, en hún er
liður í hátíðahöldum á vegum Borgar-
fjarðarprófastsdæmis vegna kristni-
tökuafinælisins. Biskup Islands, hr.
Kai’l Sigurbjömsson, prédikar. Nú-
verandi og fyrrv. sóknarprestar, sr.
Eðvarð Ingólfsson og sr. Björn Jóns-
son, þjóna fyrir altari. Sr. Þorbjörn
Hlynur Ámason prófastur flytur
ávarp. Sr. Kristinn Jens Sigurþórs-
son les ritningarorð. Að hátíðar-
messu lokinni er öllum kirkjugestum
boðið að þiggja veitingar í Safnaðar-
heimilinu Vinaminni. Akumesingar
og aðrir Borgfirðingar era hvattir til
þess að taka þátt í hátíðarhöldunum
og fjölmenna í Aki’aneskirkju nk.
sunnudag.
Sóknarprestur.
Myndlistarsýning
og kvöldmessa með
léttri sveiflu
Eftir messu og bamastarf í Nes-
kirkju á morgun, sunnudag, verður
opnuð í safnaðarheimili kirkjunnar
sýning á verkum fjögurra ungra lista-
manna sem allir hafa verið í námi hjá
Lóu Guðjónsdóttur. Þeir era: Elísa-
bet Yuka Takefusa, Ingi Hrafn Stef-
ánsson, Ingunn Birta Hinriksdóttir
og Sigrún Huld Hrafnsdóttir.
Markmið sýningarinnar er „að vekja
áhuga fólks og athygli á nauðsyn gall-
erís og starfsaðstöðu fyrir þroska-
hefta í miðborg Reykjavíkur árið
2000“ eins og segir í sýningarskrá.
Um kvöldið er svo messa með léttri
sveiflu í Neskirkju. Tónlistarflutning-
ur er í höndunum á Reyni Jónassyni
sem leikur á harmoniku og Szymon
Kuran sem leikur á fiðlu. Umræðu-
efni kvöldsins er „Fyrirgefningin í lífi
okkar“. Kvöldmessurnar era einu
sinni í mánuði í Neskirkju og era með
frjálsara yfirbragði en venjulegar
guðsþjónustur. Lögð er áhersla á nýj-
ungar samfara gömlum hefðum.
Kirkjudagur í Frí-
kirkjunni í Reykjavík
Næstkomandi sunnudagur er sér-
stakur kirkjudagur í Fríkirkjunni í
Reykjavík þegar við minnumst 101
árs afmæhs safnaðarins. Þessi sunnu-
dagur hefur jafnan verið kirkjudagur
Fríkirkjunnar og munum við nú eins
og áður halda daginn hátíðlegan.
Hátíðar- og fjölskylduguðsþjón-
usta verður klukkan 11:00. Einsöngv-
ari við guðsþjónustuna er Magnús
Ragnarsson.
Við hvetjum safnaðarfólk til að
mæta í kirkjuna sína á þessum af-
mælisdegi Fríkirkjunnar í Reykja-
vík. Einnig hvetjum við yngra fólk til
að aðstoða aldraða til að taka þátt í
þessum degi. Það er góður siður að
yngri og eldri komi saman til kirkju.
Á þessum degi hvetjum við til kirkju-
göngu og bjóðum alla velkomna í
Fríkirkjuna í Reykjarik. Eftir messu
er kirkjugestum boðið í messukaffi í
safnaðarheimilinu.
Miðbæjarstarf
KFUM og KFUK
Á morgun verður miðbæjarstarf
KFUM og KFUK kynnt á samkomu í
húsi félaganna á Holtavegi 28 kl.
17:00. Eygló Bjarnadóttir mun
bregða upp svipmyndum úr starfinu
og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, mið-
bæjarprestur KFUM og KFUK, flyt-
ur ræðu dagsins, auk þess sem Helga
Vilborgog Agla Marta Sigurjónsdæt-
ur gleðja samkomugesti með söng.
Félögin hafa staðið fyrir stai’fi á með-
al ungs fólks í Austurstræti 20 undan-
farin ár. Margir sjálfboðaliðar hafa
unnið þar mikið og óeigingjarnt starf
undir forystu miðbæjarprestsins. Þar
er opið hús á fóstudagskvöldum.
Hópur um einelti er einnig starfandi
og námskeið sem kallast „12 spor,
andlegt ferðalag" er vel sótt. Miðbæj-
arprestur sinnir auk þess mikilli sál-
gæslu. Margir unglingar hafa fundið
lífi sínu betri farveg fyrir tilstuðlan
þessa góða starfs.
Konur og
kristni
Á morgun, sunnudaginn 19. nóv-
ember, kl. 10 verður flutt á fræðslu-
morgni í Hallgrímskirkju þriðja og
síðasta erindið i röðinni „Konur og
kristni". Að þessu sinni er fjallað um
frá Guðránu Lárasdóttur, fátækra-
fulltráa, alþingismann og rithöfund.
Frá Guðrán var mikilhæf kona á
sinni tíð (1880-1938), alin upp við ríka
guðstrá og jafnrétti á heimili foreldra
sinna. Þessi gildi, svo samofin sem
þau era, fylgdu henni alla tíð og mót-
uðu ævistarf hennar allt. Hún var
framarlega í kvennabaráttu aldamót-
anna, mikill bindindisfrömuður og
kristniboðsvinur. Meðal málefna
þeiira, sem hún barðist fyrir á Al-
þingi, var framgangur raforkunnar,
með hagsmuni heimilanna í huga. -
Erindið flytur sr. María Ágústsdóttir,
héraðsprestur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi vestra, en hún er af-
komandi Guðránar Lárasdóttur í
beinan kvenlegg. Allir eru velkomnir
á fræðslumorgun í Hallgrímskirkju
og er aðgangur ókeypis.
Hjónakvöld um
samskipti, kynlífíð
og hjónabandið
Sunnudagskvöldið 19. nóvember
nk. kl. 20.30 verður fræðslukvöld í
safnaðarsal Digraneskirkju. Gestur
kvöldsins er Halldóra Bjamadóttir
hjúkrunarfræðingur sem fjallar um
samskiptin, kynlífið og hjónabandið á
hispurslausan hátt. Hún er þekkt fyr-
ir pistla sína í Degi á Akureyri og um-
ijöllun um svipað efni í morgunþátt-
um Stöðvar 2. Fyrirlesturinn er í
safnaðarsal Digraneskirkju, en eftir
hann er boðið upp á kaffisopa og fyr-
irspurnii’. Á eftir er boðið upp á
kyrrðarstund í kirkjunni. Hjón og
sambýlisfólk boðið velkomið. I mess-
unni kl. 11.00 um morguninn munu
fermingarbörnin leiða messusvör,
sálmasöng og lesa lestra og bænir
dagsins. Þau hafa æft messuna undir
stjóm organistans Kjartans Sigur-
jónssonar og er það hluti fermingar-
starfsins. Prestur er séra Magnús
Bjöm Bjömsson. Eftir messu er boð-
ið upp á léttan málsverð á vægu verði,
til að eiga notaiegt samfélag.
Frumkirkja - kirkju-
feður, samkirkjulegt
fræðslukvöld
Á mánudaginn kemur, 20. nóv., kl.
20.30 fer fram samldrkjulegt fræðslu-
kvöld í Strandbergi, safnaðarheimili
Hafnarfjai’ðarkirkju. Þar verður
fjallað um bænaaðferðir framkirkj-
unnar og kirkjufeðra. Sr. Kristján
Valur Ingólfsson, lektor í helgisiða-
fræði, og sr. Jakob Roland, prestur
kaþólska safnaðarins í Hafnarfirði,
munu hafa forsögu ásamt sr. Gunn-
þóri Ingasyni sóknarpresti. Allir era
velkomnir.
Prestamir.
Heimsókn frá
Gerðubergi
í Kópavogskirkju
ÞAÐ er orðinn árviss viðburður að
þeir sem taka þátt í félagsstarfi
Gerðubergs komi til guðsþjónustu í
Kópavogskirkju í nóvembermánuði
og taki virkan þátt í henni. Sunnu-
daginn 19. nóvember verður guðs-
þjónusta kl. 14 með þátttöku félags-
starfs Gerðubergs. Kór Kópa-
vogskirkju syngur og leiðir
safnaðarsöng og Gerðubergskórinn
syngur undir stjóm Kára Friðriks-
sonar. Upphafsbæn les Eyjólfur R.
Eyjólfsson og lokabæn Guðrán S.
Guðmundsdóttir. Ritningarlestra
annast Helgi Magnússon og Anna
Magnea Jónsdóttir. Organisti Julian
Hewlett. Að lokinni guðsþjónustu
verður boðið upp á hressingu og sam-
vera í safnaðarheimilinu Borgum.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Neskirkja. Félagsstarf eldri borg-
ara. Samvera í dag kl. 14 í safnaðar-
heimilinu. Samfylgd okkar við
kirkjuna. Spjall um jólabækur. Tón-
list, veitingar, helgistund. Kaffiveit-
ingar. Munið kirkjubflinn. Allir vel-
komnir.
Grafarvogskirkja. AA-hópui’ kl.
11.
Fríkiriqan Vegurinn: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Brauðsbrotning.
Samkoma kl. 20. Brauðsbrotning.
Högni Valsson prédikar. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KEFAS: Samkoma í dag, laugar-
dag, kl. 14. Ræðumaður Sigrán Ein-
arsdóttir. Mikil lofgjörð, söngur og
fyrirbæn. Allir hjartanlega velkomn-
ir. Þriðjud.: Bænastund kl. 20.30.
Miðvikud.: Samverastund unga fólks-
ins kl. 20.30. Föstud.: Bænastund
unga fólksins kl. 19.30. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Hvammstangakii kja. Sunnudaga-
skólikl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Umsjón:
Hreiðar Öm Stefánsson.